Morgunblaðið - 02.03.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.03.1979, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979 Frá atkvæðagreiðslu í prófkjörinu í Háskólanum í gær. Ljósm.: ól.K.M. Prófkjör i Háskólanum: Guðmundur K Magnússon hlaut fíest atkvœði PRÓFKJÖR vegna rektors- kjörs við Háskóla íslands fór fram í gær, en rektorskjörið á að fara fram hinn 3. apríl n.k. Á kjörskrá voru rúmlega 3000 manns, kennarar og starfs- menn háskólans og stúdentar og kusu úr hópi kennara og starfsliðs 179 eða 63,3% en 633 stúdentar eða 23,1%. Atkvæði stúdenta vega '/> á móti atkvæð- um annarra og samtals voru því atkvæðin 268*/2. Efsta sæti hlaut Guðmundur K. Magnússon, 70 atkvæði, Sig- urjón Björnsson varð í öðru sæti og hlaut 64 atkvæði, Sigmundur Guðbjarnarson fékk 60 atkvæði, Víkingur H. Arnórsson 31 xk, Bjarni Guðnason 7, Sveinbjörn Björnsson 6'A og Margrét Guðnadóttir 5‘/2. Aðrir prófess- orar hlutu færri atkvæði, en alls fengu 44 af 72 prófessorum atkvæði. Að sögn Stefáns Sörenssonar formanns kjörstjórnar má búast við meiri þátttöku í rektorskjör- inu sjálfu sem verður eins og fyrr segir hinn 3. apríl næstkomandi. Frystihúsin rekin með tapi FRYSTIHÚSIN í landinu eru rekin með halla, sem nemur 1500 milljónum á ársgrundvelli, sam- kvæmt því sem Eyjólfur ísfeld forstjóri Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna tjáði Mbl. f gær Eyjólfur sagði að rekstur frysti- húsanna undanfarið hefði verið aðeins fyrir ofan núllið, eins og hann orðaði það en 6,9% kaup- hækkun nú 1. marz þýddi 1600 milljóna kostnaðarauka fyrir frystihúsin miðað við heilt ár og breytti það dæminu mjög mikið. Eins hefði það áhrif til hins verra að nýákveðin fiskverðshækkun Leiðrétting RANGHERMI var í frétt Mbl. á bls. 2 í gær um árekstur tveggja fólksbíla. Áreksturinn varð þannig að Trabantbíl var ekið vestur Hringbraut. Ökumaðurinn missti þá skyndilega stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann fór yfir umferðareyju á miðri götunni, í gegnum girðingu og lenti síðan á amerískri bifreið, sem ók austur Hringbrautina. Báðir bílarnir skemmdust mikið, eins og myndirnar í blaðinu í gær báru með sér. kostaði frystihúsin heldur meira en sú 1% niðurfelling útflutnings- gjalds, sem kæmi á móti, færði þeim í staðinn. Eyjólfur ísfeld sagði að forráða- menn frystihúsanna hefðu ekki rætt þessa stöðu frystihúsanna við stjórnvöld. Hins vegar hefðu þeir spurst fyrir um það hvað liði þeirri 2—3% kostnaðarlækkun, sem boðuð væri í sáttmála ríkis- stjórnarinnar. Smygl - Kjöt selt á 6 stöðum Þörungavinnslan: Kannar möguleika á þurrkun loðnu fyrir Nígeríumarkað SKYNDIATHUGUN Toll- gæzlunnar, sem framkvæmd var á miðvikudaginn leiddi 1' ljós að ólöglega innflutt kjöt var selt í sex verzlunum og matsölustöðum á höfuðborgarsvæðinu. Var þarna aðallega um að ræða skinku, tæp 150 kg að magni til, smávegis af spægipylsu og hamborgurum og 20 kg af beikoni. Aðspurðir sögðu forráðamenn fyrirtækjanna að menn sem þeir þekktu ekki hefðu selt þeim kjötið en það upplýstist að beikonið var komið frá varnar- liðinu á Keflavíkurflugvelli. Toll- gæzlan telur líklegt að kjötinu hafi verið smyglað með skipum hingað til lands en í fyrradag fannst talsvert af kjöti í Laxfossi, en skipið lá þá í Reykjavíkur- höfn. Samkvæmt upplýsingum Kristins Ólafssonar tollgæzlu- stjóra voru fyrirtæki þau sem um ræðir verzlun Sláturfélags Suður- lands í Glæsibæ, verzlun KRON við Dunhaga, verzlunin Seljakjör í Breiðholti, verzlunin Kostakaup Hafnarfirði og matsölustaðirnir Brauðborg við Rauðarárstíg og Hlíðagrill í Suðurveri. Á síðast- nefnda staðnum fannst beikonið. Mest fannst af skinkunni í verzlun SS í Glæsibæ, 68 kg, en næstmest í KRON, 37 kg. Að sögn Kristins verður áfram fylgst með því hvort verzlanir hafi á boðstólum ólög- lega innfluttar kjötvörur. Tók Kristinn það sérstaklega fram að það væri lagabrot að veita viðtöku slíku kjöti, hvað þá að bjóða það til sölu. Vegna rannsóknarinnar var starfsmaður SS í Glæsibæ hafður í haldi dagpart í fyrradag en hann mun hafa annast innkaupin á kjötinu. Eins og fyrr sagði fannst ólög- legt kjöt í Laxfossi í fyrradag. Var það 100 kg af skinku, sem var falin í tank og var eign vélstjóra á skipinu, og 20 kg af spægipylsu, sem bátsmaður átti. Kjötið var keypt í Kaupmannahöfn. Hægt mun að fá sexfalt kaupverð vörunnar hér innanlands ef tekst að smygla henni inn í landið. FORSVARSMENN Þörunga- vinnslunnar að Reykhólum kanna nú möguleika á því að láta flytja þangað loðnu frá Faxaflóa- höfnum cn stefnt er að því að þurrka í verksmiðjunni töluvert af loðnu f skreið, sem talið er að góður markaður sé fyrir í Nígeriu um þessar mundir. Að því er framkvæmdastjóri Þörungavinnslunnar sagði í sam- tali við Mbl. í gær er gert ráð fyrir að úr hverjum 5 kílóum af nýrri loðnu fáist um 1 kíló af skreið en verksmiðjan getur afkastað um 20—25 tonnum á sólarhring. Gert er ráð fyrir að greiða verði 20—30% hærra verð fyrir loðnuna en bræðsluverðið er núna og kemur það til af því að nokkurt Bílvelta í Námaskarði Mývatnssveit 1. marz. í GÆR valt jeppi austur 1 Náma- skarði en 1 bflnum voru tveir menn og munu þeir hafa sloppið furðanlega vel. Hins vegar er jeppinn mjög illa farinn ef ekki ónýtur. Hann lá enn um hádegið í dag á toppnum. Orsökin fyrir óhappinu er talinn svellbunki á veginum. Haldin var kvöldvaka í gær- kvöldi í barnaskólanum að Skútu- stöðum. Var foreldrum sérstak- lega boðið á þessa samkomu sem tókst mjög vel. Skemmtu nemend- ur skólans með upplestri, leik- þætti, dansi og söng. Einnig var spurningaþáttur. Séra Örn Frið- riksson sýndi margar mjög fróð- legar og skemmtilegar myndir frá fyrri árum af nemendum og starfsliði skólans. Að síðustu var spiluð félagsvist. Viðstaddir þágu hinar rausnarlegustu veitingar á vegum skólans. Á yfirstandandi skólaári eru 42 nemendur í Skútu- staðaskóla og er þeim ekið þangað daglega. Skólastjóri er Þráinn Þórisson. Ég vil hér með færa nemendum og öllu starfsfólki skól- ans bestu þakkir fyrir mjög ánægjulega kvöldstund. Kristján. umstang er samfara löndun á loðnunni fyrir Þörungavinnsluna. Gert er ráð fyrir því, ef samningar takast um akstur á loðnunni, að hún verði fyrst flutt með bílum frá Faxaflóahöfnum til Reykhóla en síðan er ætlunin að senda skip Þörungavinnslunnar til Reykjavíkur eða Akraness eftir meiri loðnu en það getur flutt 100—150 tonn eða um vikuforða handa verksmiðjunni. Hins vegar háttar nú svo til í Breiðafirði að skipið kemst trauðla leiðar sinna vegna íss en það ástand á að geta breytzt á um vikutíma í hlákutíð. Loðnan sem verksmiðjan tekur til vinnslu má ekki vera með meira en 5% fitu, því að ella er hætta á að loðnan þráni. Miðað við fyrri ár ætti loðnan að vera komin í það ástand í kringum 10. marz og ætti loðnuþurrkunin síðan að geta stað- ið í um mánaðartíma eða þar til Þörungavinnslan hefst að nýju. Forráðamenn verksmiðjunnar segja allar horfur á því að unnt sé að selja skreiðina til Nígeríu á góðu verði. Þingsályktunartillaga: Leyfisgjöld lækkuð og niður af litlum spameytnum bílum verði felld Lögð hefur verið fram á Alþingi tillaga til þingsályktun- ar um niðurfellingu og lækkun leyfisgjalda af litlum bifreiðum og kemur fram að tilgangurinn með þessu er að ríkisvaldið stuðli að óbeinum og beinum sparnaði og komi þannig til móts við almenning í tilraunum hans til að spara. Gert er ráð fyrir að af bifreiðum, sem séu með vélar með rúmmál sprengirýmis minna en 1600 rúmsentimetra, verði 50% 70 ára aldursmörkin All ím 111,C! IZ’/l'l 1 á\ — Tillaga sjálfstæðismanna C J. I vl. U1 ðlVU vf UU í borgarstjórn samþykkt BORGARSTJÓRN Reykjavíkur samþykkti samhljóða í gærkvöldi tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins varðandi endurskoðun á reglum um að starfsmenn séu skyldaðir til að hætta störfum 70 ára gamlir. Ætlunin er að athuga hvort rétt sé að hækka aldursmörk þau sem nú er miðað við. Birgir ísl. Gunnarsson fylgdi tillög- unni úr hlaði og sagði það verulegt vandamál hjá mörgum að þurfa að hætta störfum 70 ára og í raun væri fátt erfiðara fyrir suma. Slíkt skapaði kvíða hjá fólki, það missti stund- um fótfestuna í lífinu og jafnvel hrakaði heilsu þess. Birgir ísieifur vakti athygli á að mörg einkafyrirtæki hefðu haft það að reglu að segja ekki upp starfsmönn- um við 70 ára aldur heldur færa þá frekar til í starfi og nefndi Völund hf. og O. Johnson og Kaaber sem dæmi. Adda Bára Sigfús- dóttir borgarfulltrúi Al- þýðubandalagsins sagðist telja rétta reglu að starfs- menn hættu 70 ára, því að mjög erfitt væri að gera eldri starfsmanni ljóst að hann væri ekki hæfur til starfsins. Þessi regla væri rétt og sjálfsögð, en menn ættu rétt á að fá starf við sitt hæfi. Hún sagðist vænta þess að það yrði niðurstaðan. Sjöfn Sigur- björnsdóttir sagðist efnis- lega samþykk þessari til- lögu og taldi algjöra óhæfu að við 70 ára aldur væri fólki skipað á ómagabekk gegn vilja þess. leyfisgjald algjörlega fellt niður, og lækkað um 25% af bifreiðum með vélar þar sem sprengirými er 1601—3000 rúmsentimetrar. Hins vegar verði gjöld óbreytt af bif- reiðum með stærri vélar. í greinargerð um áhrif niður- fellingar og lækkunar leyfisgjalda eru nefnd tvö dæmi: í fyrra tilvikinu er dæmi um bifreið, sem í er vél með minna sprengirými en í 600 rúmsenti- metra. Bíll af þessari gerð, sem kostar frá framleiðanda 2.985 dollara, eða 960 þúsund íslenskar krónur (samkvæmt gengi dollara 23. febr. 1979), kostar kominn á götu í Reykjavík 3.440.000 kr., er þá er rýðvörn ekki talin með. Tekjurnar, sem ríkið fær af bifreiðinni, eru þessar: Tollur 982 þús. kr., leyfisgjald 546 þús. kr. og söluskattur 457 þús. kr. Til ríkisins renna því samtals í 1.985.000 kr. Ef leyfisgjaldið yrði fellt niður, yrði verð til kaupanda í Reykjavík 2.894.000 kr. Ef tekið er dæmi um bíl með vél, sem hefur sprengirými á bilinu 1601 til 3000 rúmsentimetra, lítur það þannig út: Frá framleiðanda kostar bíllinn 5.000 dollara, eða 1.606.000 kr. Til kaupanda í Reykjavík yrði verðið 5.432.000 kr. fyrir utan ryðvörn. Tekjur ríkisins af þessari bifreið' eru þessar: Tollur 1.578.000 kr., leyfisgjald 876.000 kr. og söluskattur 747.000 kr. Til ríkisins renna því samtals 3.201.000 kr. Ef leyfisgjaldið af þessari tegund yrði lækkað um 25%, yrði verð bifreiðarinnar um 5.000.000 kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.