Morgunblaðið - 02.03.1979, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 02.03.1979, Blaðsíða 32
Tillitssemi kostar ekkert FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979 Verzlið sérverzlun med lítasjónvörp og hljómtæki. Skipholtí 19 BUÐIN sími ■— y 29800 Fiórir siómenn f órust vid Eyjar Tveir komust af er Ver VE 200 fórst í gærkvöldi FJÓRIR SJÓMENN fórust með mótorbátnum Ver VE 200 skammt austur af Vestmannaeyjum á áttunda tímanum í gærkvöldi, en tveir skipverjar komust af. Bakkavíkin ÁR 100, sem er gerð út frá Eyjum, sigldi af tilviljun fram á gúmmíbjörgunarbát úr Ver stuttri stundu eftir að slysið varð. Náði Bakkavíkin mönnunum tveimur og fann lík ejns skipverjans á floti innan um brak úr bátnum. Milli 20 og 30 Eyjabátar fóru þegar á slysstaðinn og leituðu þeir í gærkvöldi og nótt. Þeir sem komust af voru skipstjórinn, sem er heimamaður og aðkomumaður í hópi skipverja. Bakkavíkin leitaði á slysstaðnum þar til aðrir bátar komu á vettvang. Ver VE 200, sem íórst fyrir austan Eyjar í gærkvöldi. Ljósmynd Mbl.: Sigurgeir. Ver átti eftir um tvær mílur ófarnar að Bjarnarey þegar bátur- inn fékk á sig hnút sem lagði hann á hliðina. Skipstjórinn reyndi fyrst að keyra bátinn upp, en þegar hann rétti sig ekki reyndu skipverjar að komast í gúmmí- björgunarbátana. Allir skipverjar komust á þilfar, en flestir voru fáklæddir, því slysið bar svo skjótt að. Tókst skipverjum ekki að ná nema öðrum gúmmíhjörgunar- bátnum en bátarnir voru báðir staðsettir á stýrishúsinu. Aðeins tveir skipverjanna komust í gúmmíbjörgunarbátinn, en ekki hafði tekizt að senda út neyðarkall áður en báturinn var yfirgefinn. Að öllum líkindum hafa ekki liðið margar mínútur þar til Bakkavík- in kom á vettvang en þá þegar voru skipverjarnir í björgunar- bátnum orðnir þrekaðir af kulda. Að sögn skipverja á Bakkavík voru þeir á lensi á landleið að ljúka við aðgerð þegar skip- stjórinn, Þórður Markússon, sá ljós framundan Bakkavíkinni, lítið eitt á stjórnborða. Bað hann skipverja að gæta að, því að hann hélt að þarna væri trillubátur á útleið, en þegar að var gætt sáu þeir að ljósið var á þaki gúmmí- björgunarbáts og var talsvert brak stíufjala og annars á floti í kring um bátinn. Var svo skammt liðið frá því að gúmmíbjörgunarbátur- inn blés upp að ennþá heyrðist í honum blístur þar sem umfram- loft blés út um ventií. Bakkavíkin náði mönnunum strax úr björgunarbátnun. og tilkynnti um slysið. Héldu nokkrir tugir Eyja- báta þá þegar úr höfn, sumir hættu löndun og ræst var út á aðra. Var síðan leitað allt frá hafnarmynninu, Faxaskeri og austur fyrir Bjarnarey og Elliðaey, en eyjarnar eru við bæjardyr Heimaeyjar. Austsuðaustan 7—8 vindstig voru á Stórhöfða þegar slysið varð, en Ver var um 80 tonn að stærð. Skipbrotsmennirnir voru fluttir í sjúkrahús Vestmannaeyja og var líðan þeirra eftir atvikum góð. Þrír úr hópi þeirra sem fórust voru heimamenn og einn aðkomu- maður, allt ungir fjölskyldumenn. Tillaga allra þingmanna Sjálfstæðisflokksins: Þing verði rofið og efnt til nýrra kosninga ALLIR þingmenn Sjálfstæðis- flokksins, undir forystu Geirs Hallgrímssonar, formanns flokksins, lögðu fram á Alþingi í gær, þingsályktunartillögu um þingrof og nýjar kosningar. svo fljótt, sem við verði komið. Tillagan er efnislega á þá leið, að Alþingi skori á forsætisráð- herra að leggja til við forseta Íslands, að Alþingi verði rofið og efnt til nýrra almennra þing- kosninga, svo fljótt, sem við verði komið. I greinargerð fyrir þingsálykt- unartillögu þessari benda þing- menn Sjálfstæðisflokksins á eft- irfarandi ástæður fyrir því að nú verði að rjúfa þing og efna til kosninga: • Fyrirheit tveggja stjórnar- flokka, sem sá þriðji tók undir um „samningana í gildi“ hefur ekki verið efnt. • Samstaða hefur ekki tekizt með stuðningsflokkum ríkis- stjórnarinnar um stefnu í efnahagsmálum. • Af hálfu eins stjórnarflokks- Ólafur kominn á band Alþýðubandalagsins ítarlegar tillögur, „nánast nýtt frum- varp” lagt fram frá Alþýðubandálaginu ÓLAFUR Jóhannesson forsætis- ráðherra kynnti í gær hugmyndir sínar að hreytingum á efnahags- málafrumvarpi sínu við sam- starfsflokkana sinn 1 hvoru lagi. Gerir hann mjög veigamiklar breytingar á frumvarpinu og er nú kominn á band með Alþýðu- bandalaginu, en í frumvarpinu, þegar það var lagt fram, var hann allur á bandi Alþýðuflokks- ins um stefnuna í efnahags- málum. Breytingartillögur Ólafs eru 31 efnis- og orðalagsbreyting. Sam- hliða þessum tillögum lagði Al- þýðubandalagið fram í gær breyt- ingartillögur, sem nánast eru al- veg nýtt frumvarp í ekki færri köflum en frumvarp Ólafs Jóhannessonar. Að sögn alþýðu- flokksmanna þurfa þeir að taka sér góðan tíma til þess að brjóta þessar tillögur, bæði frá Ólafi og Alþýðubandalaginu, til mergjar. Þá bætist og heill kafli við upphaf- legt frumvarp Ólafs og verður að kanna að hve miklu leyti tillögur Alþýðubandalags hafa áhrif á niðurstöðuna í málinu í heild og hvað fyrir þeim vakir. Því er „hætt við að liðið geti mjög verulegur tími þar til málin skýrast." Samkvæmt heimildum, sem Morgunblaðið aflaði sér í gær- kveldi hefur Ólafur breytt mjög verulega viðkvæmasta kafla frum- varpsins, sem fjallaði um verð- bætur á laun. Hann hefur fellt út öll ákvæði vísitöluskerðingar og frestunar verðbóta í 9 mánuði. Ekkert af skerðingarákvæðunum stendur eftir, nema hann vill setja vísitöluna í 100 stig hinn 1. febrúar og ákvæði þjóðhagsvísitölunnar til hækkunar eða lækkunar vegna viðskiptakjara þjóðarinnar eru enn inni í myndinni. Þá hafa orðið talsverðar breyt- ingar á ákvæðum frumvarpsins um peninga- og fjárfestingamál, þar sem dregið er mjög úr hörku sumra ákvæðanna og öðrum er breytt. Þá eru einnig gerðar breytingar á fleiri atriðum frum- varpsins. Þá er það nýmæli komið inn í frumvarpið að fjárfestingum verði1 stjórnað af sérstakri nefnd, „kommisaranefnd" eins og einn alþýðuflokksmanna orðaði það í gærkveldi. Samkvæmt heimildum, sem Morgunblaðið hefur úr Alþýðu- flokknum, þá kastar Ólafur boltanum til verkalýðshreyfingar- innar með breytingunum á verð- bótaákvæðum frumvarpsins, hún taki alla samningana í sínar hendur án afskipta ríkisvaldsins. Með þessu segir Ólafur að verka- lýðshreyfingin verði ákveðið að gera upp við sig innan sinna vébanda, hvort ríkisstjórnin fái vinnufrið eða ekki — samráð við hana sé tilgangslaust. ins hefur verið borin fram tillaga um þjóðaratkvæði til að leysa ágreining stjórnar- flokkanna um efnahagsmál. Slík tillaga er til marks um uppgjöf. • Verulegur hluti kjósenda nú- verandi stjórnarflokka hefur vafalaust ætlazt til annars en nú er komið á daginn og þess vegna er nauðsynlegt að kjós- endum gefist kostur á að kveða upp dóm að nýju. Þingsályktunartillaga þing- manna Sjálfstæðisflokksins er birt í heild á miðopnu Morgun- blaðsins í dag. Á bls. 3 er viðtal við Geir Hallgrímsson um tillög- una. Gert er ráð fyrir, að hún komi til umræðu fljótlega eftir helgi. Bíll í Rauðavatn BÍLL fór niður um ís á Rauða- vatni í gærkvöldi. Að sögn Árbæjarlögreglunnar var öku- maður á leið í skíðaferð er hann hugðist athuga ísinn á vatninu. Var hann orðinn nokkuð veikur við landið og fór hann því niður. Ekki urðu slys á fólki og taldi lögreglan að skemmdir á bílnum hefðu ekki verið mjög miklar, en verið var að draga hann upp um kl. 23.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.