Morgunblaðið - 02.03.1979, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979
Gunnar Eyjólfsson, Margrét Guðmundsdóttir og Erlingur Gíslason í
Máttarstólpum þjóðfélagsins.
Síðustu sýningar á Mátt-
arstólpum þjóðfélagsins
SÝNINGUM á verki Henriks Ib-
sens, Máttarstólpum þjóðfélags-
ins, fer senn að ljúka en verkið
hefur verið sýnt á Stóra sviðinu í
Þjóðleikhúsinu frá því um jól
undir leikstjórn Baldvins Árna-
sonar.
Með helstu hlutverk í sýning-
unni fara Erlingur Gíslason, Guð-
rún Þ. Stephensen, Margrét Guð-
mundsdóttir, Bríet Héðinsdóttir,
Gunnar Eyjólfsson, Rúrik Har-
aldsson, Guðrún Þórðardóttir,
Hákon Waage og Bjarni Stein-
grímsson. Næst síðasta sýning á
verkinu verður á sunnudag.
Kristján Jónsson forstjóri:
„Koma mátti í veg
fyrir þær skemmdir
sem á síldinni urðu”
Vegna athugasemda frá síldar-
matsmönnum Framleiðslueftir-
lits sjávarafurða og fyrirspurna
til mín í Morgunblaðinu 25. febr.
s.l., bis. 17, vii ég taka þetta
fram:
Yfirtaka síldar og eftirlit, sem
síldarmatsmenn Framleiðslu-
eftirlits sjávarafurða hafa
sannarlega framkvæmt til þessa,
hefur reynst gott og árangursríkt.
Það er bjargföst trú mín, að ef
Framleiðslueftirlit sj ávarafurða,
sem hefur yfir að ráða færustu
síldarmátsmönnum landsins,
hefði farið að lögum og óskum
okkar og skoðað síldina, sem við
keyptum 1977, hér á Akureyri
þegar hún var fullverkuð og síðan
framfylgt lögum eftirlit með
hráefni lagmetisverksmiðja, þá
hefði mátt koma í veg fyrir þær
skemmdir sem á síldinni urðu.
Viðvíkjandi spurningum mats-
manna um saltmagn við söltun
síldarinnar í Höfn vísa ég til
yfirlýsingar Jóns M. Jónssonar,
eftirlitsmanns, dags. 24. febr. s.l,
svohljóðandi:
„Vegna fréttar í Dagblaðinu á
föstudaginn 23. þ.m., 6. bls., eftir
viðtal við Hermann Hansson á
Höfn í Hornafirði, þar sem skilja
má að ég undirritaður, sem
trúnaðarmaður K. Jónsson & Co.
h.f., á Akureyri, við söltun síldar
á Höfn til vinnslu hjá fyrirtækinu
hafi óskað eftir því að saltmagn í
tunnu færi niður í 14,5 kg og síðan
ekki sinnt aðvörunum um að
•saltmagnið væri of lítið, vil ég
taka þetta fram:
Saltmagnið var ákveðið 15 kg
og annað bar aldrei á góma. Það
kom aldrei til þess að trúnaðar-
menn Fiskimjölsverksmiðju
Hornafjarðar, eða aðrir, vöruðu
mig við því, að saltmagnið væri of
lítið.“
Hver beri endanlega ábyrgð á
mistökunum, sbr. fullyrðingu
varðandi það í yfirlýsingu síldar-
matsmannanna í Mbl., bíður úr-
skurðar síns tíma.
Kristján Jónsson,
Forstjóri K. Jónsson & Co. h.f.
'LwmeTiitlOfi
VERÐHÆKKUN
Á NÆSTU
SENDINGU
Meðan nýkomnar birgðir endast getun
við boðið LUMENITION á kr. 32.000.
Verð búnaðarins hefur verið stöðugt
erlendis í tæp 3 ár, en því miður hafa
framleiðendur nú tilkynnt verðhækkun,'
hækka mun útsöluverö búnaðarins hér um 8 pús.
krónur, miðaö við núverandi gengi.
HABERGhf
iSkelfunni 3e*Sinti 3*33*45
Fyrrum ráðherra
á Ítalíu í fangelsi
R6m, 1. marz. AP
ÍTALSKI STJÓRNLAGADÓMSTÓLLINN dæmdi í dag Mario Tanassi fyrrum landvarnaráð-
herra í tveggja ára og fjögurra mánaða fangelsi fyrir að hafa þegið mútur frá bandarísku
Lockheed-flugvélaverksmiðjunum en sýknaði annan fyrrverandi landvarnaráðherra, Luigi Gui.
Dómstóllinn úrskurðaði að Tanassi skyldi sviptur þingmennsku. Réttarhöldin hafa staðið í
tæpa fimm mánuði og dómsuppkvaðningunni var sjónvarpað. Þingið úrskurðaði fyrir tæpum
tveimur árum að Tanassi og Gui skyldu leiddir fyrir rétt. Tanassi er sósíaldemókrati, en Gui
kristilegur demókrati.
Fjórir aðrir sakborningar
voru fundnir sekir, þeirra á
meðal fyrrverandi yfirmaður
flughersins. Luigi Fanali hers-
höfðingi, sem var dæmdur í
eins árs og níu mánaða
fangelsi. Dómstóllinn sýknaði
fimm aðra sakborninga. Hann
er skipaður 28 mönnum og
hefur setið á rökstólum í 23
daga. Dóminum verður ekki
áfrýjað.
Tanassi og Gui voru ákærðir
fyrir að nota aðstöðu sína til
að hafa áhrif í þá átt að
keyptar yrðu 14 herflutninga-
flugvélar af gerðinni Hercules
C130 og fá í staðinn frá
Lockheed 1.6 milljónir dollara
sem eru hluti af 24.4 milljón-
um dollara sem fyrirtækið
greiddi í mútur til að auka sölu
á framleiðslu sinni í
heiminum.
Tanassi sagði um dóminn, að
hann væri „pólitískur glæpur".
Þegar þingið ákvað að þeir
skyldu leiddir fyrir rétt kallaði
Gui þá ákvörðun „pólitíska
aftöku" og „ósk ítalska
kommúnistaflokksins". Allir
ERLENT
sakborningarnir sögðust vera
saklausir.
Ritari Kristilega demókrata-
flokksins, Benigno Zaccagnini,
fagnaði því að Gui var
sýknaður og sagði að flokkur-
inn þakkaði honum virðuleika
og siðferðilegan styrk sem
hann hefði sýnt í þessari miklu
eldraun.
Gui sagði eftir að dómur var
upp kveðinn: „Hver borgar mér
aftur þessi þrjú ár“ og átti við
þann tíma sem er liðinn síðan
hneykslið var opinbert.
Brtlssel, 1. marz. AP.
BELGÍSKU
fallhlífahermennirnir sem
voru sendir til Zaire til að
þjálfa Zaire-hermenn í nokkr-
ar vikur, vinna ötullega að
undirbúningi áætlunar um að
bjarga Evrópumönnum sem
hungraðir íbúar Zaire ógna
að sögn belgísku fréttastofn-
unnar Belga í dag.
Fréttastofan hefur eftir
fallhlífahermönnum að þeir
vinni að dreifingu matvæla og
reyni að koma í veg fyrir stuld
Tanassi var færður í fangelsi
í handjárnum en fékk áður að
hitta fjölskyldu sína.
Tveir aðalsakborningarnir
auk Tanassi voru bræðurnir og
lögfræðingarnir Ovidio og
Antonio Lefebvre, sem voru
ákærðir fyrir að vera tengiliðir
Lockheeds og ítalskra em-
bættismanna, og fengu
fangelsisdóma. Ovidio var
fulltrúi Lockheeds á Ítalíu
þegar ítalska flughernum voru
seldar Hercules-flugvélarnar
1969 til 1971.
á matvælum. Þar sem mat-
vælaástandið hefur versnað
mikið hefur hlutverk
hermannanna breytzt þannig
að það er að miklu leyti fólgið í
því að berjast gegn hungri.
Þriðjungur íbúa Kinshasa—
héraðs líður hungur, helm-
ingur allra barna er dauðvona
vegna hungursneyðar á sumum
svæðum og rúmlega 100
fullorðnir deýa úr hungri í
landinu öllu suma daga. Sumir
líkja ástandinu við hungurs-
neyðina í Sahel-auðninni fyrir
nokkrum árum.
Evrópumenn í
hættu í Zaire
Þetta gerðist
1969 — Fyrsta tilraunaflug
Concorde.
1956 — Marokkó fær aftur
sjálfstæði.
1943 — Orrustan á Bis-
marck-hafi í Kyrrahafi hefst.
1924 — Tyrkneska þjóðþingið
leggur niður embætti kalífs.
1836 — Fimmtíu og níu borgar-
ar í Texas stofna lýðveldi í
Mexíkó.
Almæii: Sam Houston, banda-
rískur hermaður (1793—1863) —
Bedrich Smetana, bæheimskt
tónskáld (1824—1884) — Píus
páfi XII (1876-1958).
Andlát: Lother, konungur Vest-
ur-Franka, 986 — John Wesley,
meþódisti, 1791 — Horace Wal-
pole, rithöfundur, 1797 — Niku-
lás I Rússakeisari 1855 — Carm-
en Silva, Elísabejt. Rúmeníu-
drottning, 1916.
Innlent: Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur vígð 1957 — „ís-
lendingabragur“ Jóns Ólafsson-
ar birtur í „Baldri" 1870 — d.
Guðmundúr faktor Thorgrímsen
1895 — Bretar toga yfir net
Ólafsvíkurbáta 1960 — Forseta-
hjónin til Finnlands 1972 —
Brynjólfur Jóhannesson heiðr-
aður 1972.
Orð dagsins: Við brosum að
einfeldni þess sem segir að
tunglið sé fallegra í Aþenu en S
Kórintu — Plútark, grískur
rithöfundur (c. 46 e. kr. — c. 120
e. Kr.).
Saudi-Arabar kalla
heim gæsluhermenn
Jidda. 1. marz. AP.
SAUDI-ARABAR haía haíið borttflutning gæzlusveita sinna frá Líbanon til þess að treysta
varnir landamæra sinna að sögn landvarnaráðherra Saudi-Arabíustjórnar í viðtali við blaðið A1
Nadwa í Beirút í dag.
Yfirlýsing ráðherrans fylgir í kjörfar frétta um að öll leyfi hernamma í Saudi-Arabíu hafi
verið afturkölluð og að herafli landsins hafi verið settur í viðbragsstöðu. Brottflutningurinn frá
Líbanon er talinn standa í sambandi við bardaga Norður- og Suður-Jemena og uppreisn sem
sagt er að gerð hafi verið í Norður-Jemen.
Fréttastofan segir að landstjór- Norður-Jemens, hafi gengið í lið Hajla, mikilvægur bær í fylkinu,
inn í Mareb, austasta héraði með uppreisnarmönnum og að sé á valdi uppreisnarmanna.