Morgunblaðið - 02.03.1979, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.03.1979, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979 Grein og myndir: Sighvatur Blöndal A faraldsfæti með íslenzka Alpaklúbbnum Skessuhorn í Skarðsheiði, norð-austurhryggur fjallsins fyrir miðju. Skessuhorn í Skarðsheiði Fjallgöngur njóta nú sífellt meiri vinsælda hér á landi eins og sést hvað bezt á gróskumiklu starfi íslenzka Alpaklúbbsins, sem er félag áhugamanna um fjall- göngur, á s.l. ári. — Morgunblaðið brá sér fyrir skömmu með nokkrum félögum klúbbsins til fjalla og var stefnan að þessu sinni sett á Skessuhorn, sem er einn tinda Skarðsheiðar og stendur norðan í henni. Að sögn félaga í klúbbnum er Skessuhorn eitt af vinsælli æfingasvæðum félaganna þar sem aðstæður þar eru mjög fjölbreyttar. t»ar er hægt að halda námskeið fyrir algjöra byrjendur í f jallaklifri og svo er hægt að fara leiðir sem aðeins eru á færi reyndra fjallgöngumanna og allt þar á milli. Að þessu sinni voru það um 20 félagar í klúbbnum sem héldu úr bænum og var ákveðið að leggja til atlögu við f jallið eftir nokkuð hefðbundinni leið sem gerir þó kröfu til viðkomandi fjallgöngumanna að þeir hafi nokkra reynslu svo og að þeir hafi sérútbúnað, s.s. fsöxi, mannbrodda, líflínu, öryggisbelti og hjálm svo eitthvað sé nefnt, en það er upp eftir hrygg fjallsins að norð-austanverðu. Veður var allgott, heiðskírt og 1—2 stiga frost þennan sunnudagsmorgun nema hvað fjallgöngumennirnir hefðu sjálfsagt kosið að heldur meira frost væri svo að þeir færu ekki niður úr snjóskelinni sem var yfir öllu. Hópurinn fylgdist allur að upp undir hrygg fjallsins þar sem ákveðið var að skipta hópnum niður í línur, en algengast er að fjallgöngumenn ferðist 2—4 saman í fjalla- línu. Þá settu menn á sig mannbroddana því að þegar ofar dró í fjallið óx kuldinn nokkuð þannig að ekki var lengur nóg að sparka skónum inn í harðan snjóinn. Þá voru og dregnar upp ísaxir þegar brattinn varð meiri, og hægðist einnig mjög á hópnum því að þegar brattinn er orðinn eins mikill eins og myndirnar sýna er nauðsyn- legt að aðeins einn klifri f einu og hinir séu við öllu búnir ef eitthvað fer úrskeiðis. Þetta gekk allt stórslysalaust þannig að síðasti maður sté á tind fjallsins um fjórum tímum eftir að lagt var af stað. Menn höfðu skamma viðdvöl á tindinum og fóru eilítið niður í vesturhlíð fjallsins í „kaffistofu" fjallgöngumanna og tekið var til matarins. Niöurferðin gekk ágætlega fyrir sig en farið var niður vesturhlið fjallsins sem er auðveldust yfirferðar og niður að bflunum sem stóðu niðri á vegi. Að sfðustu spjallaði ég stuttlega við nokkra félaga klúbbsins um starfið almennt og kom fram hjá þeim að starfið hefði verið mjög gróskumikið á síðasta ári sem er annað starfsár klúbbsins. Farnar hefðu verið 15 ferðir beint á vegum hans auk ýmissa aukaferða sem félagarnir stóðu fvrir. Þá hefði hagur klúbbsins vænkast mjög nú um áramótin þegar hann komst loks í eigið húsnæði, þ.e. hann fékk leigt húsnæði með Skandinavisk Boldklub að Grensásvegi 5 í Reykjavík. Sögðu félagarnir að í framtíðinni yrði opið hús fyrir félaga og aðra þá sem hefðu áhuga á að kynna sér fjallgöngur, á miðvikudögum í viku hverri, og ættu þeir í því sambandi von á því að áhugi á fjallgöngum myndi aukast enn- frekar og væri því bjart útlitið framundan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.