Morgunblaðið - 02.03.1979, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979
11
stöðvarinnar ekki að gera sér
neinar áhyggjur, því bæði að
því er varðar leik, leikstjórn,
stígandi verksins og sögulega
nákvæmni í meðferð efnisins,
er nýi myndaflokkurinn í öllu
fremri hinum fyrri. „Rætur:
næstu kynslóðirnar“ flokkast
aö vísu ekki undir list, né
heldur beinlínis undir sann-
sögulega frásögn, en mynda-
flokkurinn er reglulegt kassa-
stykki af fyrstu gráöu.
Sem framúrskarandi skyn-
samlega samansett og heill-
andi sápuópera, snertir frá-
sögnin í myndaflokknum
„Rótum 11“ dýpstu tilfinningar
manna fyrir hugsjónum lýð-
ræðisins og kærleiksböndum
innan fjölskyldunnar.
Þegar frásögnin tekur undir
lok myndaflokksins aö snúast
um feril Alex Haleys veröur
einnig úr þessu efni eln af
þessum ómótstæðilegu am-
erísku velgengnissögum.
Ef litiö er á myndaflokkinn
„Rætur 11“ í heild, kemur í Ijós
að þarna er á ferðinni eins
konar afsprengi popp-menn-
ingarinnar sálugu. Þarna
blandast saman þættir úr „Á
hverfanda hveli“, „Kofa Tóm-
asar frænda" og fréttakvik-
myndum, sögum eftir Horatio
Alger og jafnvel keimlíkir
þættir og í „Fiðlaranum á
þakinu."
Fyrsti þáttur hins nýja
myndaflokks endar á dauða
barnabarns Kúnta Kintes,
Chicken George, og undir lok
síöasta þáttar myndaflokks-
ins hafa sjónvarpsáhorfendur
fengið að sjá börn Haleys
sjálfs, þannig að frásögnin í
„Rótum 11“ spannar æviferil
fjögurra kynslóða alls.
Jafnréttis-
baráttan
Eins og áður eru kunnir
atburðir í sögu Bandaríkjanna
frá þessum tímum látnir end-
urspeglast í þeim áhrifum,
sem þeir hafa á eina svert-
ingjafj^lskyldu. En frásögnin
af tímabilinu eftir borgara-
styrjöldina er ekki sett fram í
eins sterkum litum og tímabil
þrælahaldsins í „Rótum l“.
Framleiöandi þessa seinni
myndaflokks, Stan Margulies,
hafði þetta að segja um efniö:
„hafi fyrsti myndaflokkurinn
fjallað um baráttuna fyrir
frelsi, þá segir aftur á móti
þessi seinni hluti „Róta“ frá
baráttunni fyrir jafnrétti."
Mikill fjöldi þekktra banda-
rískra leikara kemur fram í
hinum nýja sjónvarpsmynda-
flokki, og þykir t.d. leikur
James Earl Jones í hlutverki
Alex Haleys afar góður. Sjálf-
ur Marlon Brando hringdi af
sjálfsdáöum í Alex Haley og
bauðst til þess að leika eitt-
hvert lítiö en eftirminnilegt
hlutverk í myndaflokknum.
Honum var fengið hlutverk
bandaríska nazistaforingjans
George L. Rockwells, og lauk
Marlon Brando leik sínum í
þessu hlutverki á aöeins ell-
efu klukkustundum, sem
hann kvað algjört met á öllum
sínum leikferli.
Framhaldsmyndaflokkurinn
hefur nú þegar verið seldur
20 löndum og eru sýningar á
þessum seinni hluta „Róta“
víða að hefjast, en mynda-
flokkurinn er alls í sjö þáttum.
„ Jöklar” í Borgar-
firði gefa snjóbíl
— gáfu sjúkrabíl í fyrra
Þorsteinn Sigurðsson forseti Jökla og Óli R. Jóhannsson formaöur
björgunarsveitarinnar, sem heldur á gjafabréfinu fyrir snjóbílnum.
Hvanneyri, 24. febrúar.
í dag buðu félagar Kíwanis-
klúbbsins „Jöklar" í Borgarfirði
björgunarsveitarmönnum í
„Heiðar", björgunarsveit sem
starfar í Þverárþingi til kaffi-
drykkju að Brún í Bæjar-
sveitásamt nokkrum fleiri gestum.
Þorsteinn Sigurðsson forseti
klúbbsins afhenti Óla R. Jóhanns-
syni, Klettstíu, Norðurárdal, form.
björgurnarsveitarinnar „Heiðar"
lykla og skrautritað gjafabréf þess
efnis að Kíwanisklúbburinn „Jökl-
ar“ gæfu þeim snjóbíl af „Snow
Trac“ gerð. Snjóbíll af þessari gerð
er að verðmæti um það bil 9
milljónir. Þeir félagar í „Jöklurn"
eru um 20, hiklaust er því hægt að
fullyrða að þeir séu fáir þjónustu-
klúbbarnir sem hafa afrekað eins
og þeir, um svipað leyti í fyrra
afhentu Kíwanismenn björgunar-
sveitinni „OK“ vandaðan sjúkra-
bíl, Hannes Hafstein framkv. stj.
Slysavarnarfélags Islands færði
björgunarsveitarmönnum talstöð í
snjóbílinn frá Slysavarnarfélag-
inu.
Hannes Hafstein afhenti einnig
forseta Kíwanisklúbbsins „Jöklar"
fána Slysavarnafélagsins að gjöf í
þakklætisskyni fyrir mikinn
stuðning við björgunarsveitir í
Borgarfirði. Hann gat þess að
fánastöngina vantaði, en sagðist
vona að hún yrði tilbúin áður en
þeir Kíwanismenn afhentu þyrl-
una! (Viss ögrun).
Þorbjörn Karlsson umdæmis-
stjóri Kíwanis í íslandi þakkaði
þeim „Jöklafélögum“ frábært starf
og sagði m.a. að enginn kíwanis-
klúbbur í dreifbýlr hefði unnið
annað eins og þeir. Afhenti hann
klúbbnum fána sem sérstaka
viðurkenningu og hefur enginn
Kíwanisklúbbur á íslandi hlotið þá
viðurkenningu áður. — Ófeigur.
Hannes Hafstein framkvæmdastjóri
SVFÍ afhendir Óla R. Jóhannssyni
talstöö í snjóbílinn.
Kíwanisklúbburinn Jöklar í Borgarfiröi hefur gefiö björgunarsveitunum Heiöar og Ok snjóbíl og sjúkrabíl, sem
sjást á bessari mynd. Ljósm. Mbl. Ófeigur.
Austurstræti 22. simi fra skiptiboröi 28155
®i>
Loksins
eru
komin
á
markaðinn
fermingar-
föt,
sem
hægt
er
að
nota
eftir
ferminguna.
TÍZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS
Wkarnabær
Glæsibæ sími 819T5 Laugaveg. 66 símu !>á ^iput uí*u ^8155 •