Morgunblaðið - 02.03.1979, Page 12

Morgunblaðið - 02.03.1979, Page 12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979 Hvað lásu þeir í útlöndum á síðasta ári ? AÐ VENJU hafa brezk blöð leit- að eftir því við KaKnrýnendur sína, rithöfunda og fleiri sér- fræðinga og áhugamenn um bækur að þeir tjái sin um eftir- minnilegustu bækur, sem þeir hafi lesið á árinu 1978. Þar kennir margra grasa svo sem vænta má en þó eru nokkrar bækur, sem oftar eru nefndar öðrum. bar á meðal eru tvær skáldsögur, „The Sea The Sea“, sem er nýjasta bók Iris Murdoch og „The Human Factor“ eftir Graham Greene. Bók Greenes kom út snemma árs 1978 og fékk slíkar móttökur að þær raddir voru áleitnari en oft áður að ekki yrði iengur framhjá honum geng- ið við Nóbelsverölaunaveitingu en Sænska akademían reyndist á öðru máli svo sem oft áður. Á næstunni verður f jallað í Mbl. um þessar tvær bækur, „The Human Factor“ og „The Sea The Sea“. Verður hér á eftir stiklað á stóru um bækur ársins f Bret- landi. A.J.P. Taylor í bókinni Most Secret War (Hamish Hamilton) tekst höfund- inum R.V.Jones að gera hvort- tveggja í senn, birta athygl- isverðari stríðsleyndarmál en hafa sézt um langa hríð og að rita óvenjulega læsilega stríðsendur- minningabók. I The Human Factor (Bodley Head) eftir Graham Greene er þessi mesti núlifandi skáldsagnahöfundur okkar á hátindi snilli sinnar og leikni. Bók hans var óumdeilan- lega bezta skáldsaga á árinu og kannski áratugarins. Philip Larkin Bók Kingsley Amis Jake’s Thing (Hutchinson), sýnir mögn- uð tök höfundar á efninu og handan orðanna skynjar lesand- inn alvarlegri undirtón en í ýms- um fyrri bókum Amis. Verk Helen Gardners, The Composition of the Four Quartets (Faber), gefur heillandi innsýn í lotningarfulla könnun Eliots á Hayward og Geoffrey Faber og hversu mjög þetta skipti fyrir ljóðagerð hans. Og hjá James Lincoln Collier, The Making of Jazz (Granada), líðum við við eftir Missisippi og erum í ótrúlegri nánd við þann tíma sem þarna er um að ræða. Grahm Greene Girl in a Blue Shawl (Hamish Hamilton) eftir Sylvia Sherry er bezta skáldsaga sem ég hef lesið í mörg ár. Sögusviðið er England Viktoríutímans og höfundurinn nær fram óvenjulega trúverðugu og listrænu andrúmi. The Ivankiad eftir Vladimir Voinovich (Cape) er prýðilega skemmtileg frásaga Voinovich um baráttu fyrir því að komast yfir betri íbúð í Moskvu. Þarna sitja kímni og orðfimi í fyrirrúmi. The Selected Letters of Conrad Aiken (Yale University Press) er mjög gott úrval bréfa sem skrifuð voru af höfundi, sem aldrei hefur notið sannmælis og þeirrar virð- ingar sem ég tel að honum hafi borið. Arthur Koestler Promised Land eftir Karel Schoman (Friedmann) er fyrsta bók sem hefur orðið á vegi mínum, rituð af höfundi sem skrifar á afrísku. Þetta er í senn falleg og ógnvekjandi bók sem lætur varla nokkurn ósnortinn. Jeans Way (Quartet Books) eftir Derek Humphry er mjög skilmerkileg lýsing höfundar á langvinnu sjúk- dómsstríði konu hans við krabba- meinið sem lyktaði með því að hún framdi sjálfsmorð með því að taka inn lyf og veitti maður hennar aðstoð við það. Þarna er fjallað um umdeild og viðkvæm málefni sem alltaf öðru hverju skjóta upp kollinum — hvort fólk hafi rétt á að fá að deyja í friði og með sæmd. Af kiljum þykir mér ástæða til að nefna Imaginary Friends (Penguin) eftir Alison Lurie sem er afburða fyndin ádeilubók sem- snýst um bandaríska sértrúar- safnaðadýrkun. Margaret Drabble Fyrst fýsir mig að nefna The Singapore Grip eftir J.G. Farrell (Weidenfeld) sem er sérstaklega vel skrifuð bók, traust, upplýs- andi, skemmtileg, átakanleg. Ein af þeim bókum sem gefur lesanda sínum óvenjulega mikla vídd. Söguhetja bókarinnar er einhver ógeðfelldasta og kaldhæðnasta persóna sem ég man eftir í fljótu bragði. Sjaldgæft er að ég lesi stríðsbækur en ég get ekki orða bundizt um bók Olivia Manning The Battle Lost and Won (Weidenfeld) en þar er gefin frábær lýsing á bardaganum við El Alamein lögð í munn ungs foringja sem er þátttakandi í bardaganum. Síðast en ekki sízt nefni ég The Sea The Sea eftir Iris Murdoch (Chatto and Windus) sem er blátt áfram stórkostleg og kallar eigin- lega á flest þau lýsingarorð sem ég ræð yfir. En gæti einfaldað málið með því að segja að hún sé langbezta bók sem höfundur hefur skrifað og með albeztu bókum sem ég hef lesið. Edna O’Brien Sú skáldsaga sem mér fannst bera af á sl. ári var Final Payments (Hamish Hamilton) eftir Mary Gordon. Á ytra borði fjallar sagna um stúlku sem verður að losa um þau ástar- og haturstengsl sem hún hefur við foreldra sína. En þegar nánar er að gáð er verið að segja sögu af því hversu nauðsynlegt er einstaklingi að slíta sig úr tilfinningatengslum við aðra til þess að hann finni sjálfan sig. Þá las ég Proust Screenplay Harolds Pinter (Methuen) og sökkti mér svo niður í það að allt annað gleymdist á meðan. Philip French Óvenjulega margar merkar ævi- sögur komu út á árinu, en eftir- minnilegust þeirra þótti mér tvímælalaust bók Arthurs Schlesingers, Robert Kennedy and His Times (Deutsch). Eftir- lætisskáldsaga mín á árinu verð „The Human Factor" eftir Graham Greene, sem er eitruð og beinskeytt njósnasaga, en marg- slungnari og manneskjulegri en hún virðist við fyrstu sýn. V.S. Pritchett Mér fannst Montaillou (Scolar Press) Le Roy Laduries merki- legasta bók sem ég las á árinu. Þetta er lærð könnun á stöðu bænda á Albigensatímabilinu í Frakklandi á fjórtándu öld, unnin eftir sögulegum heimildum. Einnig þótti mér til um smásagnasafn Williams Trevors, Lovers of Their Timc (Bodley Head), vegna þess að þar gætti djúphygli og vits. í þriðja lagi skal ég nefna bók sem ætti að falla þeim vel í geð, sem eru á sama báti og ég og dást að rússneskum nítjándu aldar bókmenntum. Sir Isaiah Berlin hefur unnið gagn- merkt og örvandi starf með bókinni „Russian Thinkers“ (Hogarth Press) og finnst mér þetta hreint ómetanleg bók. Philip Howard Af nýjum skáldsögum kemur The Sea The Sea (Chatto and Windus) Irisar Murdoch fyrst upp í huga minn. Ekki væri fullnægj- andi að segja að ég hafi aðeins haft skemmtun af því að lesa þá bók, því að við lestur hennar vakti hún með mér ýmsar mun flóknari tilfinningar og tel ég þetta óvenju- lega áhrifaríka bók, svo afkáralegt sem efnið er, svo næmt er skyn höfundar fyrir persónum sínum og því sem þær glíma við. Af kiljum skal ég fyrst geta The Raj Quartet eftir Paul Seott (Panther). Hún er sönn og áhrifamikil, afar vel gerð hvað snertir efnismeðferð og efnistök. Loks get ég um Obituaries from The Times 1971—75 (Newspaper Archives Development) sem er kyndugri lesning en okkur skáld- saga. Iverach Mc Donald Ég verð að viðurkenna að ég hef enn ekki lesið nema tvo þriðju hluta þeirrar bókar, sem mér finnst muni hrífa mig mest um langan tíma: The Human Factor eftir Graham Greene. Það er af fullum ásetningi gert að ég les hana mjög hægt til að hafa betri tíma til að dást óspart að persónu- sköpun og allri atburðalýsingu í bókinni. Philip Toynbee 1. Collected Poems of Basil Bunting (Oxford). Einhvern veg- inn varð það svo að Bunting dróst aftur úr og gleymdist þegar þeir Eliot og Pound voru að endur- skapa ensk-amríska ljóðagerð á árunum milli 1910—1930. En hann tilheyrði kynslóð þeirra og þeim hópi skálda sem áhrifamestir urðu og gerir það enn. 2.Freud, Jews and other Germans (Oxford) eftir Peter Gay. Sér- staklega fróðleg úttekt á stöðu Gyðinga í Þýzkalandi, þegar keisaradæmið var við lýði: hið þýzka stolt þeirra og gyðingleg niðurlæging. Robert Frost eftir Richard Poirier (Oxford). Höfund- ur gerir þá kröfu að Frost verði viðurkenndur sem mesta skáld á enska tungu á þessari öld. Og þau rök sem hann ber fram eru sérdeilis sannfærandi. Hermione Lee 1. Tenebrace eftir Geoffrey Hill (Deutsch) er sterk saga, hispurs- laus svo á af ber, fyndin og formleg: hefur sem sagt í sér hvers konar andstæður. 2. The Human Factor eftir Graham Greene (Bodley Head). Meistarlega gerð saga. Bitur og hvöss, en undirtónn hennar er angurværð, og næmleiki. 3. In Between the Sheets eftir Ian McEwan (Cape). Höfundur er afburða góður smásagnahöfundur sem horfir köldu, raunsæju augnaráði á mannlegar náttúrur og það sem þeim getur fylgt. Og aukin heldur er hann ákaflega skemmtilegur. Jacky Cillott Vegna þess ég met framar öðru stíl, vit, illkvittni, ákveðna firrð og þó skilning er eðlilegt að tvær bækur komi mér í hug og togist á um hylli mína: Little Sister eftir Fay Weldon (Holder & Stoughton) og The Sea The Sea eftir Iris Murdoch (Chatto and Windus). Mín skoðun er að verk Weldons sé að sínu leyti fullkomnara, en bók Murdoch endist manni lengur og vekur upp hjá mér fleiri og áleitn- ari spurningar þegar frá líður. Anthony Burgess Af vísinda- og fræðiverkum er ég ekki í neinum vafa, þar set ég í efsta sæti The Linguistic Atlas of England (Croom Helm). Um út- gáfu sáu Harold Orton, Stewart Sanderson og John Widdowson. Feiknalega áhugaverð bók fyrir alla þá sem hafa áhuga á enskri tungu og þróun hennar. Af skáldsögum nefni ég The Battle Lost and Won eftir Oliviu Manning (Weidenfeld), annað bindi í þrísögu hennar þar sem einna hæst ber frásögnina af bardaganum við E1 Aiamein — og óvenjulegt að lesa’slíka lýsingu dregna upp af konu. Og auk þess Jakes' Thing eftir Kingsley Amis (Hutchinson), sem er dálítið ógnarleg en ákaflega fyndin saga um erfiðleika sextugs manns í kynferðismálum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.