Morgunblaðið - 02.03.1979, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 2. MARZ 1979
29
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
útgerðarráði og borgarstjórn hafa
lýst stuðningi við kaup á skipum
frá Stálvík og Portúgal á fundum
29. jan. og í. febrúar sl. með
ákveðnum skilyrðum sbr. bókan-
ir. Við þau skilyrði hefur ekki
verið staðið.
Við viljum að framansögðu
mótmæla því, hvernig að þeim
samningi sem hér liggur fyrir
hefur verið staðið og greiðum því
atkvæði gegn honum.“
Af framangreindum ástæðum
sagðist Ragnar Júlíusson vilja
spyrja Björgvin Guðmundsson: 1.
Eigum við enn í dag 15. febrúar
val til að skipta um vél í skipinu.
2. Hve stór er skipasmíðastöðin,
sem smíða á togarann?
Síðan flutti Ragnar eftirfar-
andi bókun frá borgarfulltrúum
Sjálfstæðisflokksins: „Fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins í útgerðar-
ráði og borgarstjórn hafa lýst
stuðningi við kaup á skipum frá
Stálvík og Portúgal á fundum 29.
janúar og 1. febrúar með ákveðn-
um skilyrðum sbr. bókanir.
Forsenda þess að hraða þurfti
samningsgerðinni fyrir 1. febrúar
var samkvæmt upplýsingum for-
manns útgerðarráðs að velja
þyrfti nýja aðalvél í skipið en
ljóst var að framleiðandinn var
gjaldþrota ella yrði það gert af
umboðsmanni skipasmíða-
stöðvarinnar. Þessir upplýsingar
formannsins hafa reynst rangar.
1. Samningurinn var undirrit-
aður af formanni útgerðarráðs og
samþykktur af borgarstjóra án
fyrirvara um samþykki útgerðar-
ráðs.
2. í samningnum er ríkissjóði
sleppt undan allri ábyrgð enn-
fremur allri íhlutun um að koma
fram nauðsynlegum breytingum á
honum.
3. Skip skal selt ella útborgun
greidd áður en skipið afhendist.
Þetta er ekki í samræmi við
samþykkt útgerðarráðs frá 29.
jan. sl. Þar segir, að skip skuli selt
Björgvin
þegar Portúgals- og Stálvíkur-
skipin hafa bæði verið afhent.
4. Af þriggja mánaða láni ríkis-
sjóðs að upphæð kr. 48 milljónir
skulu greiðast yfirdráttarvextir í
sex mánuði þ.e. 1. nóvember 1978
— 1. maí 1979.
5. Engin yfirlýsing liggur fyrir
um samning við Stálvík hf. sbr.
bókanir á fundi útgerðarráðs frá
26. jan sl. og á fundi borgarstjórn-
ar 1. febrúar sl. í gær 14. febrúar
höfðu engar formlegar beiðnir
verið sendar til viðkomandi
stjórnvalda um heimild til kaupa
á nýsmíði frá Stálvík.
Við viljum að framansögðu
mótmæla því hvernig að þeim
samningi sem hér liggur fyrir,
hefur verið staðið og lýsum and-
stöðu gegn honurn."
Björgvin Guðmundsson (A)
sagðist hafa haldið að eftir allar
umræðurnar á síðasta fundi
borgarstjórnar væru málin út-
rædd. Hann sagði, að meirihlut-
inn hefði viljað kaupa skipið,
enda hefðu öll atriði verið ljós svo
lengi sem málið hefði verið til
umræðu. Ekki væru kaupin nú
sambærileg og þegar Spánar-
togararnir hefðu verið keyptir. Þá
hefði ríkið keypt togarana frá
Spáni en nú gengið í tímabundna
ábyrgð. Björgvin sagði rétt, að
vegna umræðna um 1. febrúar þá
hefði umboðsmaðurinn ekki viljað
taka neina ábyrgð út af fjárhags-
erfiðleikum Wickman vélaverk-
smiðjanna. Enn í dag hefði engin
ákvörðun verjð tekin um vél enda
engin greiðsla farið til vélafram-
leiðandans. Björgvin sagði að
norska ríkið hefði ákveðið að
mynda nýtt hlutafélag um fram-
leiðslu fyrirtækisins að sögn.
Ekki yrði tekin nein ákvörðun um
vél fyrr en yfirlýsing norskra
stórnvalda lægi fyrir. Björgvin
kvaðst ekki geta svarað spurning-
unni um skipasmíðastöðina.
Norðmenn bæru hins vegar mikið
traust - til hennar og hefði
ANKER LÖKKEN eftirlit með
henni. Björgvin sagðist vísa á bug
fullyrðingu um, að hann hefði
gefið rangar upplýsingar.
Birgir ísleifur Gunnarsson (S)
sagði, að meginforsenda fyrir því,
að borgarráðsmenn hefðu léð
máls á að málinu yrði hraðað
væri, að sagt hefði verið að taka
þyrfti ákvörðun fyrir 1. febrúar
um vélina. Þessi forsenda væri
greinilega röng. Allur þessi samn-
ingur væri með eindæmum því
strax og stjórnarráðið hefði opn-
að eftir dansleikinn fræga hefðu
borgarstjóri og Björgvin verið
mættir til til undirritunar. í raun
væri samningurinn eins og börn
hefðu gert hann.
FRÁ BORGARSTJÓRN- FRÁ BORGARSTJÓRN
sjálfstæðismenn gerðu sér grein
fyrir, að ætlun meirihlutans væri,
að Mæðraheimilið yrði ekki rekið
áfram. Þess vegna flyttu sjálfstæð-
ismenn eftirfarandi tillögu:
„Borgarstjórn samþykkir að taka
upp viðræður við Félag einstæðra
foreldra um rekstur Mæðraheimil-
isins við Sólvallagötu í samræmi
við tilboð félagsins í bréfi til
borgarráðs frá 6. október sl.“. í
greinargerð með ti^ögunni segir
m.a.: Tillaga þessi er flutt í fram-
haldi af þeirri ákvörðun borgarráðs
að hafna tillögu félagsmálaráðs um
breytta tilhögun Mæðraheimilisins,
en í tillögum meirihluta borgarráðs
um breytingu á fjárhagsáætlun er
ráð fyrir því gert, að þarna verði
tekin upp dagvistun ungbarna.
Ljóst er, að sú tillaga er ekki gerð í
samráði við félagsmálaráð. Markús
Örn sagði, að tillagan miðaði að því
að taka upp viðræður við Félag
einstæðra foreldra um málið, en
ljóst væri, að hugmyndir vinstri
manna hefðu valdið áhyggjum hjá
þeim sem þekktu bezt til í þessum
málaflokki. Markús Örn tók fram,
Albert Guðmundsson
að auðvitað þyrfti að gera ráð fyrir
fjárveitingu til þessa og ekki þýddi
að strika út þá fjárveitingu. Mark-
ús Örn Antonsson ræddi einnig um
útideildina.
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir (A)
sagði, að mikil þörf væri á starfi
útideildar, hún sagðist vonast til,
að starf af þessu tagi gæti hafist á
ný.
Guðrún Helgadóttir (Abl) sagði,
að stvíndum yrði að gera óþægilega
hluti. Nú væri unnið að endurskoð-
un á starfsemi Félagsmálastofnun-
ar. Ætlunin væri að athvarfið að
Hagamel 19 kæmi eitthvað inn á
starfssvið útideildar sem lögð yrði
niður sem slík. Hún sagði, að
borgarstjórnarmeinihlutinn ætlaði
að samþykkja tillögu sjálfstæðis-
manna um mæðraheimilið. Guðrún
sagði, að það væri Markúsi Erni
Antonssyni og fyrrverandi félags-
málaráði að kenna, að ráðgert hefði
verið að leggja mæðraheimilið
niður.
Markús örn Antonsson sagði, að
ummæli Guðrúnar Helgadóttur um
afstöðu hans til Mæðraheimilisins
hefði nálgast að vera ómerkileg,
vegna þess að sannleikur málsins
væri allt annar, en hún hefði viljað
gefa í skyn. Markús örn sagði, að
félagsmálaráð hefði komist að
þeirri samróma niðurstöðu 12.
janúar 1978, að það væri heldur
ekki forsvaranlegt að reka Mæðra-
heimilið við Sólvallagötu á sama
hátt og gert hafði verið þá nokkurn
tíma á undan, með afskaplega
slæmri nýtingu þannig, að iðulega
voru þarna tvær konur eða svo sem
hefðu verið þarna með börnin sín.
Markús Örn sagði, að þá hefði verið
tekin sú ákvörðun að fella niður
reksturinn í þáverandi mynd sinni
með þeim inntökuskilyrðum sem þá
giltu og hefðu verið mjög ströng. Þá
í bráðabirgðaástandi sem ríkti
hefðu intökuskilyrði verið rýmkuð
og þá hefði komið í ljós, að nýtingin
hefði stórbatnað. Markús Örn sagð-
ist vilja vekja athygli á, að Gerður
Steinþórsdóttir fulltrúi Framsókn-
arflokksins í félagsmálaráði og
Þorbjörn Broddason einnig, sem
væri fulltrúi Alþýðubandalagsins
þar, hefðu bæði verið aðilar að
samþykktinni 12. janúar 1978. Nú
hefðu tillögur félagsmálaráðs kom-
ið fram milli umræðna um þetta
mál og eindregin væru þau tilmæli
ráðsins, að Mæðraheimilið yrði
rekið áfram. Nú hefði Guðrún
Helgadóttir tækifæri á þessum
fundi að gera eins og félagsmálaráð
vildi.
Albert Guðmundsson (S) sagði,
að menn yrðu að gera sér grein
fyrir því, að Mæðraheimilið ætti
ekki að gefa af sér peninga, það
væri enginn kominn til með að
segja, að heimilið ætti alltaf að
vera troðfullt. Mæðraheimilið ætti
að gegna vissu öryggishlutverki.
Hver einstaklingur í neyð réttlætti
tilveru heimilisins. En greinilegt
væri, að þessi borgarstjórnarmeiri-
hluti vinstri manna hugsaði með
peningum.
Borgarstjórn samþykkti síðan
samhljóða tillögu sjálfstæðis-
manna um Mæðraheimilið. Nafna-
kall fór fram um niðurlagningu
útideildarinnar, þar með talsverða
lækkun fjárveitingar til hennar.
Já sögðu: Björgvin Guðmunds-
son, Guðmundur Þ. Jónsson, Guð-
rún Helgadóttir, Sjöfn Sigur-
björnsdóttir, Þór Vigfússon, Adda
Bára Sigfúsdóttir, Sigurjón Péturs-
son og Kristján Ben. Nei sögðu:
Davíð Oddsson, Magnús L. Sveins-
son, Markús Örn Antonsson, Ólafur
B. Thors, Páll Gíslason, Albert
Guðmundsson og Birgir Isleifur
Gunnarsson.
— FRÁ BORGARSTJÓRN — FRÁ BORGARSTJÓRN — FRÁ BORGARSTJÓRN
Birgir ísleifur um SVR:
200 millj. glutr-
aðniður!978
í UMRÆÐUM um fjárhags-
áætlun borgarinnar benti
Birgir ísleifur Gunnarsson
borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins á, að borgarstjórn-
armeirihlutinn hefði á sl.
sumri látið sem vind um
eyru þjóta aðvaranir em-
bættismanna borgarinnar
um Strætisvagna Reykjavík-
ur.
Þá hefði verið bent á, að
nauðsynlegt væri að fara
fram á 50% hækkun far-
gjalda en þetta hefði meiri-
hluti vinstri manna ekki vilj-
að hlusta á og glutrað niður
200 milljónum á árinu 1978
og enn meiru ef litið sé á árið
1979.
Þessu hefði verið hægt
að bjarga ef vilji hefði verið
fyrir hendi, sagði Birgir Is-
leifur Gunnarsson.
Alþýðuleikhúsið fær
4 mÚljónir frá borgmni
ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ sunn-
andeild, fær 4ra milljóna
króna styrk frá borginni á
þessu ári.
í borgarráði nýlega
bar Sigurjón Pétursson fram
tillögu um að veita Torfu-
samtökunum og íbúasamtök-
um Vesturbæjar 100 þús.
hvoru en tillagan hlaut ekki
stuðning. Þá samþykkti borg-
arstjórnarmeirihlutinn 700
þús. kr. styrk til leigjenda-
samtakanna.
ITT
VESTUR-ÞÝSKU
LITSJÓNVARPSTÆKIN
Bræóraborgarstig1-Simi 20080-
(Gengió inn frá Vesturgötu)
MYNDAFOLK!
Filterar í geypi-
legu úrvali
— 60 tegundir
nýkomnar.
Durst
Canon
Æ
STÆKKARAR
heimsþekkt
gæöi. Fyrir
lit og sv/hv.
I-. Myndavélar og
'21 linsur í miklu úrvali
Myndavélatöskur, Ijósmyndabækur og blöö.
Nánast allt til Ijósmyndunar.
— Greiöslukjör — póstsendum —
Versliö hjá
fagmanninum.
LJOSMYNDAÞJONUSTAN S.F.
LAUGAVEGI 178 REYKJAVIK
SIMI 65811