Morgunblaðið - 17.03.1979, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1979
Flugmenn:
Dregur til tíðinda
ef fresturinn verð-
ur ekki vel notaður
EKKI hefur verið unnið að und-
anförnu að lausn flugmannaverk-
fallsins að því er Ragnar Arnalds
tjáði Mbi. í gær. Kvað hann
flugmenn hafa rætt við sig sl.
miðvikudag og þar verið farið
fram á frestun aðgerða og hún
samþykkt af hálfu Félags ísl.
Leitað að
veðurdufli
VEÐURDUFL sem stað-
sett hefur verið suðvestur
af landinu eða á 62. gráðu
norður og 29. gráðu vestur
slitnaði upp fyrir nokkru
og var skip Landhelgis-
gæzlunnar í gær að huga
að duflinu. Höfðu Land-
helgisgæzlumenn séð dufl-
ið í könnunarflugi á
fimmtudag og átti í gær að
freista þess að ná því frá
skipi. Það hafði hins vegar
ekki tekist síðla í gær.
Ekki er talið að skipum
stafi veruleg hætta af því
en hins vegar er hér um
nokkurt tjón að ræða, ef
það finnst ekki.
atvinnuflugmanna, eins og fram
hefur komið. Kvað Ragnar sátta-
nefndarmenn hafa verið fjarver-
andi, en málið yrði tekið til
skoðunar strax upp úr helgi.
Ámundi H. Ólafsson kvað ekkert
að frétta af stöðunni af hálfu
flugmanna, beðið væri þess hvert
yrði næsta skref stjórnvalda. Kvað
hann hins vegar geta dregið til
tíðinda að loknum tveggja vikna
frestinum yrði hann ekki notaður
vel af hálfu stjórnvalda.
Aðalfundur
Verzlunarbanka
AÐALFUNDUR Vcrzlunarbanka
íslands verður haldinn í dag á
Hótel Sögu og hefst kl. 14.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa verða að sögn Höskulds
Ólafssonar bankastjóra bornar
upp tillögur til breytinga á sam-
þykktum bankans með hliðsjón af
nýjum hlutafélagalögum er taka
eiga gildi um næstu áramót. Þá
verður borin upp tillaga bankaráðs
um útgáfu jöfnunarhlutabréfa að
upphæð 100 milljónir króna, en
útgáfa jöfnunarhlutabréfa fyrir
sömu upphæð var einnig samþykkt
á síðasta aðalfundi bankans.
Jón teflir í Gladsaxe
JÓN L. Árnason, Fide-meistari,
er farinn utan til Danmerkur
til þátttöku í 10 manna alþjóð-
legu skákmóti í Gladsaxe, sem
hefst föstudaginn 16. mars og
0
INNLENT
lýkur 25. mars. Mótið er rétt-
indamót að alþjóðlegum titli.
í mótinu taka fjórir alþjóðleg-
ir meistarar, þeir: Wedmark
(2425) Elo-stig, Schneider (2420),
Niklasson (2385) og Kaiszauri
(2405) allir frá Svíþjóð. Aðrir
keppendur auk Jóns (2410) eru
Danirnir Jens Kristiansen
(2365), Jens Ove Fries Nielsen
(2350), Carsen Hoi (2355), E.
Mortensen (2365) og
Gladsaxe-meistarinn Flemming
Fuglsang.
Dagfari í Hafnarfjarðarhöfn.
Viðgerð á Dagfara
lauk á réttum tíma
VIÐGERÐ á Dagfara er skemmdist af eldi úti fyrir Vestfjörðum
sl. haust lauk nýlega hjá Stálvík í Garðabæ og var skipinu
reynslusiglt hinn 14. marz sl. Að sögn Jóns Sveinssonar forstjóra
Stálvíkur lauk viðgerð á tilsettum tíma svo og reynslusiglingu og
kvað Jón eigendur og Stálvíkurmenn sammála um, að viðgerð
hefði raunar lokið þremur og hálfum degi fyrir tilsettan tíma.
— Skipið fór mjög illa og var gerðartíminn frá 10—28 vikur,
yfirbyggingin algjörlega skorin
frá og fór í brotajárn til Sindra,
sagði Jón, og síðan var unnið að
endurbyggingu, en samið var
um verkið hinn 13. desember sl.
eftir að ákveðið hafði verið að
taka tilboði okkar sem opnað
var 24. nóvember sl. Tilboð
okkar hljóðaði upp á rúmar 197
milljónir króna og 12 vikna
vinnu en tilboðið hækkaði um
5% vegna verðlagshækkana
þennan tíma. Tvö innlend tilboð
bárust og sjö erlend og voru
erlendu tilboðin frá 17 og upp í
55% hærri en okkar, og við-
þ.e. frá því skipið væri komið á
viðgerðarstað.
Jón Sveinsson sagði, að sam-
vinna hefði verið við nokkur
fyrirtæki um ýmsa þætti verks-
ins og hefði hún verið með
ágætum, en meðal þeirra er
komu við sögu voru Nökkvi,
Rafboði og Bátalón. Jón sagði að
lokum að tvímælalaus sparnað-
ur væri að því að verkið var
unnið innanlands, því auk þess
sem allt að 100 milljón króna
munur væri á tilboðunum hefði
sparast umtalsverður gjaldeyr-
ir.
Þrjár umsóknir
um starf bæjar-
stjóra í Garðabæ
ÚTRUNNINN er umsóknarfrest
ur um stöðu bæjarstjóra í Garða-
bæ, en Garðar Sigurgeirsson nú-
verandi bæjarstjóri mun láta af
starfi sínu í sumar.
Jón Sveinsson forseti bæjar-
stjórnarinnar upplýsti í samtali
við Mbl. að borizt hefðu 3 umsókn-
ir: Geir Þórólfsson verkfræðingur,
Jón Gauti Jónsson viðskiptafræð-
ingur og Vilhjálmur Bjarnason
hagfræðingur. Jón kvað umsóknir
þessar hafa verið lagðar fram á
síðasta fundi bæjarstjórnarinnar
og þær yrðu væntanlega ræddar á
næsta fundi hennar á fimmtudag-
inn kemur.
Bíða niður-
staðna efna-
hagsumræðna
TRYGGINGAEFTIRLITIÐ vinn-
ur um þessar mundir að því að
yfirfara beiðni tryggingafélag-
anna um 79% hækkun iðgjalda
ábyrgðartrygginga bíla.
Erlendur Lárusson forstöðu-
maður tryggingaeftirlitsins kvaðst
í samtali við Mbl. ekki hafa lokið
því verki enn, og yrði hann að bíða
niðurstaðna efnahagsfrumvarps-
ins er lagt hefði verið fram á
Alþingi og spá þjóðhagsstofnunar
um verðbólgu á árinu. Meðan það
lægi ekki ljósar fyrir en nú væri
gæti hann ekki gefið endanlega
umsögn um útreikninga þá sem að
baki hækkunarbeiðninni lægju.
Bankastarfsmenn fá stórum
betri kjör en viðskiptavinir
Fá 19% vexti á ávísanareikning á meðan viðskiptavinir fá 3%
STARFSFÓLK bankanna fær stórum betri kjör á sparisjóðsávísanareikningum en
hinn almenni viðskiptavinur banka eða 19% vexti á sama tíma og hinn almenni
viðskiptavinur fær aðeins 3% vexti. Þá fá og starfsmenn bankanna dagvexti, en vextir
hins almenna viðskiptamanns eru reiknaðir á 10 daga fresti af lægstu innstæðu.
Komi það fyrir, að starfsmaður
banka gefi út innstæðulausa ávís-
Matthías Á. Mathiesen:
Forsætisráðherra sem leggur
persónulega fram frumvarp
hefur gefist upp við að stjórna
— ÞEGAR forsætisráðherra tekst ekki að ná sam-
stöðu innan ríkisstjórnar sinnar í svo veigamiklum
málaflokki sem efnahagsmálin eru, ber honum og
ríkisstjórn hans að víkja, sagði Matthias A. Mathie-
sen alþingismaður í samtali við Mbl. aðspurður um
álit sitt á efnahagsmálafrumvarpi Ólafs Jóhannes-
sonar forsætisráðherra.
— Forsætisráðherra sem
leggur persónulega fram frum-
varp um stjórn efnahagsmála og
fleira hefur gefizt upp við að
stjórna. Með þessum vinnu-
brögðum freistar hann þess að
halda völdum án þess að eiga
vissan stuðning Alþingis við
stefnu sína sem stríðir gegn
þeirri frumskyldu ríkisstjórnar
að hafa forystu um lausn vanda-
mála sem brýnust eru í þjóð-
félaginu á hverjum tíma.
— Vinnubrögð ríkisstjórnar-
innar og stjórnarflokkanna hafa
frá upphafi verið með þeim
hætti að við þessu var alltaf að
búast. Það er hins vegar mikill
ábyrgðarhluti af' forsætisráð-
herra að vilja ekki viðurkena
getuleysi sitt og ríkisstjórnar
sinnar og segja af sér í stað þess
að lengja líf þessarar vonlausu
vinstri stjórnar.
— Það segir sig sjálft að við
slíkar aðstæður aukast vanda-
málin dag frá degi og verða
illleysanlegri þegar ríkisstjórn-
in loksins fer frá völdum.
un er tékkinn bókaður og fer hann
um leið í innheimtu. Eru reiknaðir
skuidavextir á ávísunina og fær
starfsmaðurinn nokkra daga til
þess að kippa þessu í lag. Er
starfsmanninum þá ekki gert að
greiða refsivexti eins og viðskipta-
manninum. „Við viljum ekki að
starfsmaðurinn sé með einhverja
slæma tékka úti í bæ,“ sagði einn
yfirmaður banka, sem Mbl. ræddi
við en bannaði blaðinu að láta
Bráðlega rætt
um launaliðinn
FUNDUR var í gær með samn-
ingamönnum Verzlunarmanna-
félags Reykjavíkur og vinnuveit-
enda og að sögn Magnúsar L.
Sveinssonar framkvæmdastjóra
V.R. hefur annar fundur verið
boðaður á mánudag.
Magnús sagði, að umræður sner-
ust einkum um málefni þriggja
starfshópa innan félagsins og
þegar viðræðum um röðun í launa-
flokka lyki sem hann kvaðst halda
að yrði bráðlega yrði tekið til við
viðræður um launaliðinn, sem
hefur hingað til ekki verið fjallað
hafa nokkuð eftir sér. „Þeir borga
skuldavexti eins og aðrir, en ekki
sektarvexti." Hann kvað þetta gert
í öllum bönkum.
Þá ræddi Morgunblaðið við einn
yfirmanna Alþýðubankans og
spurðist fyrir um þetta. Hann
kvað Alþýðubankann hafa veitt
starfsmönnum sínum nákvæmlega
sömu kjör og viðskiptavinum og
hefði gætt óánægju með þetta
meðal starfsfólksins, sem borið
hefði sig saman við starfsfólk
annarra banka. Vegna þessa hefur
Alþýðubankinn ritað samstarfs-
nefnd bankanna bréf til þess að fá
heimild til þess að bankinn veitti
starfsfólki sínu sömu kjör og
starfsmenn annarra banka fá.
Svar við því bréfi hefur enn ekki
borizt.
80 þúsundum stolið
TÆPLEGA'80 þúsund krónum var
stolið frá Stálhúsgagnagerðinni í
Skeifunni 8 í fyrrinótt. Málið er í
rannsókn.
Ókeypis aðgang-
ur að Regnboganum
REGNBOGINN, eitt kvikmynda-
húsanna í Reykjavík, býður upp á
ókeypis aðgang að einni kvikmynd
er sýnd hefur verið að undanförnu,
Convoy. Jón Ragnarsson forstjóri
Regnbogans sagði að myndin hefði
gengið svo vel, að ákveðið hefði
verið að bjóða upp á ókeypis
aðgang næstu viku, frá mánudegi
til föstudags, að báðum dögunum
meðtöldum. Kvað Jón vera búið að
sýna myndina í 450 skipti eða í um
17 vikur. Hún verður sýnd næstu
viku alla virka daga kl. 15:05,
17:05,19:05 og 21:10.