Morgunblaðið - 17.03.1979, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1979
3
Fiskur
á snúru
Loðnuveiði með tilheyrandi
frystingu og bræðslu hefur
staðið yfir að undanförnu
en er senn lokið. Myndirnar
hér á síðunni tók Sigurgeir
Jónasson ljósmyndari Mbl.
í Vestmannaeyjum. Þær
eru teknar um borð í flutn-
ingaskipi sem flytja á
frysta loðnu til Japans og
má sjá hvar einn Japaninn
er að hengja fisk á snúru.
Allar frístundir eru notað-
ar til að birgja sig upp,
síðan er loðnan þrædd á
bandið og hengd til þerris
og sögð góð til átu eftir að
hafa hangið í tveggja daga
þurrki. Lítur skipið út eins
og jólatré svona alsett
loðnu, að sögn Sigurgeirs,
og voru Eyjapeyarnir
mættir til að fylgjast með
aðförum Japanans.
Formenn félaga í Alþýðusambandi Austurlands:
Lýsa sig fúsa til að taka á sig
nokkra kaupmáttarskerðingu
FORMANNARÁÐSTEFNA Alþýðusambands Austurlands var haldin
á Eskifirði í gær og samþykkti hún ályktun, þar sem formennirnir
lýsa sig íúsa til þess að taka á sig nokkra kaupmáttarskerðingu.
Leggja þeir til að ekki skuli skerða laun undir 210 þúsund krónum
nema um helming þess, sem laun yrðu almennt skert. Falli
ríkisstjórnin segja formennirnir að um yrði að ræða „gróf svik við
fslenzka verkalýðshreyfingu14.
Fundurinn skorar á fram-
kvæmdastjórn Verkamannasam-
bands íslands að beita áhrifum
sínum til lausnar deilu þessari.
Jafnframt verði kallaður saman
formannafundur Verkamanna-
sambandsins nú þegar.“
Loðnuveiðum lýkur
á hádegi sunnudags
LOÐNUVEIÐIN var fremur treg
að sögn talsmanna hjá loðnu-
nefnd, en um kl. 21 höfðu 12
bátar tilkynnt afla, um 4.000
tonn. Hafði hann fengist á Faxa-
flóasvæðinu og var landað í næstu
verstöðvum.
Skipin eru þessi:
Keflvíkingur 230, Harpa 240,
Þórshamar 250, Heimaey 90, Þórð-
ur Jónasson 450, Faxi 300, Huginn
600, Steinunn 140, Gunnar Jónsson
300, Húnaröst 600, Skírnir 430,
Freyja 370.
Loðnuveiðinni á að ljúka á
hádegi á sunnudag og er talið
vafasamt að þau skip sem landað
hafa í gærkvöldi og nótt geti
haldið út aftur. Búið er að frysta
um 4 þúsund tonn á vegum Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna og
vantar 250 tonn til að ná gerðum
samningum. Af þessum 4000 tonn-
um eru um 1.500 tonn hrogn.
Stöðug loðnulöndun
Siglufirði, 16.3. — Stöðug loðnulöndun hefur verið hér
í gær og í dag og er frysting einnig í fullum gangi hjá
frystihúsi Þormóðs ramma hf.
Bátarnir sem lönduðu hér í nótt og í morgun voru
Pétur Jónsson, Bjarni Ólafsson, Gísli Arni, Víkingur og
Örn, en Víkingur hefur landað hér tvisvar á 3 dögum.
Netabátar hafa verið með sæmilega góðan afla að
undanförnu. Fleiri loðnubátar munu vera á leiðinni. —
Fréttaritari.
Söfnunin til sundlaugar
Sjálfsbjargar framlengd
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fram-
lengja söfnun þá sem verið hefur
í gangi í vikunni til sundlaugar-
byggingar Sjálfsbjargar. Lions-
hreyfingin á íslandi og Hjálpar-
stofnun kirkjunnar hafa for-
göngu um söfnunina og að sögn
Guðmundar Einarssonar fram-
kvæmdastjóra Hjálparstofnunar-
innar var afráðið að framlengja
söfnunina að minnsta kosti um
viku.
Söfnunarfé nemur nú 12—14
milljónum og hafa Lionsmenn
safnað af því um 7,5 milljónum en
annað borist með framlögum og á
gíróreikningi söfnunarinnar nr.
20005.
Kvað Guðmundur áætlað
með þessu að gera Sjálfsbjörgu
kleift að ljúka verkinu, en til að
fullgera laugina er talið að þurfi
30—40 milljónir króna.
Fréttamenn iafnan
reiðubúnir að
gef a upp heimildir
- segir fréttastjóri útvarps
í UMRÆÐUM á Alþingi sl. fimmtudag var m.a. fjallað nokkuð um
fréttaflutning ríkisfjölmiðla og óskaði Ólafur Ragnar Grímsson
eftir því að upp yrði gefinn heimildarmaður fréttar útvarpsins
varðandi efnahagsfrumvarp og stuðning rikisstjórnarinnar við
það. Mbl. sneri sér til Margrétar Indriðadóttur fréttastjóra
útvarps og spurði hvort myndi orðið við ósk þingmannsins, en
Margrét kvaðst ekki hafa skoðað afrit af umræðunum á þingi og
ætti því eftir að ákveða það.
— Reglur um heimildarmenn
frétta útvarpsins eru skýrar og í 3.
grein þeirra er kveðið svo á að
fréttamenn skuli jafnan vera
reiðubúnir að gefa upp hver sé
heimild frétta þeirra, sagði Mar-
grét Indriðadóttir.
Margrét sagði það koma örsjald-
an fyrir að heimildir væru ekki
gefnar upp þegar þess væri óskað
og fréttamenn tækju heimildar-
skyldu sína mjög alvarlega. Þá
benti Margrét á að sérstakur
reitur væri á handritablöðum þar
sem geta skyldi heimildar og þegar
frétt hefði verið lesin í útvarpi
bæri að líta á hana sem opinbert
plagg og gæti þá hver sem þess
óskaði fengið að rannsaka heim-
ildir.
Ályktun fundarins er svohljóð-
andi:
„Fundurinn skorar á núverandi
ríkisstjórnarflokka að leysa þann
ágreining, sem nú er kominn upp
varðandi efnahagsmálin. Fundur-
inn minnir á að ríkisstjórnin var
mynduð vegna samstöðu launþega
á síðastliðnu sumri og telur að
stjórnarslit nú væru gróf svik við
íslenzka verkalýðshreyfingu.
Fundurinn telur að framkomið
frumvarp forsætisráðherra um
efnahagsmál feli í sér markmið
varðandi verðhjöðnun, sem hann
lýsir sig fylgjandi, en telur ýmsa
ágalla á frumvarpinu, sem færa
þurfi til betri vegar.
Fundurinn lýsir sig fúsan til
þess að taka á sig nokkra kaup-
máttarskerðingu til að ná þeim
efnahagslegu markmiðum, sem
frumvarpið sneiðir að, en telur
ekki óeðlilegt að komið verði til
móts við tekjulægstu hópa þjóð-
félagsins, t.d. þannig, að ekki skuli
skerða laun undir 210 þúsund
krónum á mánuði nema um helm-
ing þess, sem laun yrðu almennt
skert.
Fundurinn bendir á þann stór-
kostlega aðstöðumun, sem laun-
þegar búa við varðandi nýtilkomn-
ar olíuverðshækkanir og leggur
þunga áherzlu á að stefnt verði að
jöfnun kyndingarkostnaðar í land-
inu, þannig að í raun verði hægt að
tala um sömu kjör um allt land.
Fundurinn minnir á að enn er
óafgreiddur hluti þeirra félagslegu
umbóta, sem gert var samkomulag
um í desember síðastliðnum og
leggur þunga áherzlu á að þau mál
verði afgreidd strax.
Fundurinn lýsir því sem sinni
skoðun, að slitni upp úr þessu
stjórnmálasamstarfi, falli þessi
mál dauð að miklu leyti.
Fundurinn telur það eðlilegt, að
gerðir verði samningar á milli
ríkisstjórnar og verkalýðshreyf-
ingarinnar, þar sem kveðið er á
um að kaupmáttarskerðingunni
verði skilað aftur.
Á leió í skóla
gœtið að
Bílamarkaður
Daihatsuumboðsins
Vegna mikillar sölu „
japanska verðlauna-
bílnum Daihatsu
Charade höfum viö á
boðstólum nokkurt
úrval af velmeöförn-
um notuöum bifreiö-
um, sem viö sýnum
og seljum aö Ármúla
23 í dag laugardag
kl. 10—18.
Austin Mini 1000 árg. 1977 ek. 12.000 km Verð 2.2 millj. kr.
Austin Mini sp árg. 1978 ek. 13.000 km Verð 2.3 millj. kr.
Toyota mk II árg. 1973 ek. 100.000 km Verð 2.2 millj. kr.
Toyota mk II árg. 1973 ek. 120.000 km Verð 2.2 millj. kr.
Toyota Corolla árg. 1972 2ja dyra Verð 1.0 millj. kr.
Toyota Carina árg. 1974 ek. 76.000 km Verð 2.2 millj. kr.
Daihatsu Charmant árg. 1978 ek. 8.000 km Verð 3.3 millj. kr.
Daihatsu Station árg. 1977 lítið ekinn Verð 3.2 millj. kr.
Cortina Station árg. 1974 ek. 55.000 km útvarp,
vetrardekk
Fiat 127 árg. 1974 ek. 75.000 km Verð 800.000 kr.
Daihatsuumboöiö, Armúla 23