Morgunblaðið - 17.03.1979, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1979
5
Lanzky-Ottó feðgar á
lónleikum Kammersveitar
Á árunum eftir síðari heims-
styrjöldina, þegar tónlistarlíf
landsmanna var að vakna til
lífsins fyrir alvöru, settist að
hér á landi danskur hornleikari
og píanóleikari, Wilhelm
Lanzky-Otto, og hafði mikil og
góð áhrif á þróun tónlistarmála
þau fimm ár, sem við fengum að
njóta starfskrafta hans.
Hann
fluttist til Svíþjóðar árið 1951 og
hefur búið og starfað þar síðan.
Wiihelm er nú staddur hér á
landi ásamt konu sinni og syni,
Ib, og munu þeir feðgar koma
fram á tónleikum Kammersveit-
ar Reykjavíkur næstkomandi
sunnudag. Með þeim er sænski
hljómsveitarstjórinn Sven
Verde, Sem mun stjórna Kamm-
ersveitinni í flutningi verkanna
Divertimento elegiaco eftir
sænska tónskáldið Ture Rang-
ström og WIBLO eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, sem Þorkell
samdi fyrir og tileinkaði feðgun-
um. Þriðja verkið á tónleikunum
verður Tríó Op. 40 eftir Johann-
es Brahms fyrir horn, fiðlu og
píanó og mun Rut Ingólfsdóttir
leika í því verki með feðgunum.
Barnavika
félagsins í
VORVAKA Norræna félagsins í
Kópavogi er að þessu sinni helg-
uð börnum í tilefni alþjóðabarna-
ársins. Vakan verður í Þinghól að
Hamraborg 11, á morgun, sunnu-
daginn 18. mars kl. 20.30.
Á vökunni mun kór Menntaskól-
ans í Hamrahlíð syngja undir
stjórn Ragnars Jónssonar. Frú
Nita Pálsson formaður Dansk
Kvindeklub ræðir um viðhorf
danskrar móður til uppeldis barna
á Islandi. Börn úr öllum skólum
bæjarins munu einnig vera með
skemmtiatriði og munu 10 ára
börn úr Digranesskóla syngja og
leika á hljóðfæri, fjórar stúlkur úr
Norræna
Kópavogi
Kársnesskóla sýna dans, börn úr
Snælandsskóla lesa upp og herma
eftir og börn úr Kópavogsskóla
dansa. Loks verða kynntar ferðir
Norræna félagsins á sumri kom-
anda.
INNLENT
Þýzkur gesta-
leikurílðnó
Wolfgang Haller
leikur kafia úr
verki Max Frisch
ÞYSKUR gestaleikur verður
hjá Leikfélagi Reykjavíkur í
Iðnó í dag 17. mars kl. 16.30.
Wolfgang Haller verður sam-
eiginlegur gestur Leikfélagsins
og félags þýskuvina Germaníu
og leikur hann kafla úr kunnu
verki svissneska leikskáldsins
Max Frisch „Ich bin nicht
Stiller“.
Höfundurinn Max Frisch er
þekktur hér á landi fyrir tvö
verk sín, „Biederman og brennu-
vargana" sem á sínum tíma var
sýnt í leikhúsi Grímu og því
næst víðs vegar um land á
vegum áhugamannaleikhópa og
einnig leikritið Andorra sem
sýnt var í Þjóðleikhúsinu árið
1963. Leikflokkur Menntaskól-
ans í Hamrahlíð hefur einmitt
nýverið sýnt það verk.
„Ich bin nicht Stiller" er eitt
þekktasta verk Max Frisch í
þýskumælandi löndum. Stiller
sem ekki sættir sig við líf sitt
grípur til þess ráðs að hverfa
ósáttur við þjóðfélagið og reglur
þess. Hann er tekinn fastur á
ferðalagi með falsað vegabréf.
Sagan snýst um yfirheyrslur og
viðbrögð hans sjálfs og þeirra
sem telja sig hafa þekkt í fortíð
Stiller manninn sem hvarf.
Wolfgang Haller
Listamaðurinn Wolfgang
Haller er kunnur leikari og
hefur kynnt þýskar bókmenntir
um allan heim á leikferðalögum.
Hann kom hingað til Islands
fyrir tveimur árum og fór þá
með einleik á sviðinu í Iðnó um
söguna af Felix Krull eftir
Tomas Mann.
Wolfgang staldrar við á Is-
landi í langri leikför til Suð-
ur-Ameríku þar sem hann hefur
verið falaður til að koma fram í
15 borgum.
srBaskrifstofan
fSl
DAGUR
ÍTALÍU
ísamvinnu viö ítölsk feröamálayfirvöld gengst
ÚTSÝN fyrir ítalíukynningu í Súlnasal Hótel
Sögu, sunnudag 18. marz.
FJÖLSKYLDUSKEMMTUN
Kl. 13.30 Húsiö opnað. Ókeypis happdrættismiðar afhentir
öllum gestum, vinningar ítölsk leikföng og ítalíu-
ferð.
Kl. 14.00 Síödegisskemmtun fyrir alla fjölskylduna. Léttar
veitingar á boöstólum. Öll börn fá
ÚTSÝNAR-merki.
★ Kvikmyndasýning
★ Danssýning: íslandsmeistarar unglinga í diskó-dansi 1979
sýna nýjustu dansana.
★ Glæsilegt leikfanga- og ferðabingó: Vinningur ítölsk
leikföng og Ítalíuferö
Ath. — Forðist þrengsli og óþægindi — borðapantanir í síma
25017 kl. 16—18 á föstudag.
KVÖLDDAGSKRA:
Kl. 19.00 Húsiö opnaö. Hressandi drykkir og
lystaukar.
Kl. 19.30 Veizlan hefst stundvíslega meö ítölskum
kvöldveröi: Jambon de parme
alla Trentina .. . m .
Verö aöeins kr. 3.500.-
P
★ Tízkusýning: MODEL ’79“
sýna ítalskan tízkufatnað frá MOONS og herraföt frá „SAUTJÁN"
★ Skemmtiatriði: Söngvararnir Hjálmtýr Hjálmtýsson og
Soffía Guömundsdóttir syngja íslenzk og
ítölsk lög.
★ Myndasýning og ferðakynning:
Forstjóri Útsýnar sýnir myndir frá Ítalíu
og kynnir glæsilega nýútkomna feröaáætlun
Útsýnar 1979 með ótrúlegum ferðatilboðum
á eftirsóttustu sumarleyfisstaðina.
★ Danssýning: Sigurvegarar i 3ju umferö hóp- og para-danskeppni
Útsýnar og Klúbbsins sýna diskó-dansa.
' Hinn óviöjafnanlegi bráðfyndni Ómar Ragnarsson með nýja skemmtiskrá.
★ Bingó: Spilaö veröur um 3 glæsilegar Útsýnarferöir.
★ Fegurðarsamkeppni: Ljósmyndafyrirsætur Útsýnar. Stúlkur úr hópi gesta. 10 Útsýnarferðir í vinning.
Forkeppni.
DANS TIL KL. 01.30.
Hin bráðskemmtilega
hljómsveit Ragnars Bjarnasonar og
Þuríöur Siguröardóttir leika og syngja
fjölbreytta tónlist viö allra hæfi.
MISSIÐ EKKI AF STÓRKOSTLEGRI
SKEMMTUN OG MÖGULEIKUM Á
ÓKEYPIS ÚTSÝNARFERÐ.
Ath. Allir gestir fá ókeypis happdrættismiöa. Vinningur dregið kl.
20.00 og 23.00 Útsýnarferð til Italíu.
Allir velkomnir, engirin aögangseyrir aðeins rúllu- _
^ iD Z? J ( F«rðasi(rH«toýan
gja|d- VlJTSVl
Tryggiö ykkur borö tímanlega hjá yfirþjóni í síma ^
20221 frá kl. 15.00 í dag.