Morgunblaðið - 17.03.1979, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1979
13
gildi í öllum kjördæmum landsins,
en það sýnir aftur á móti bezt þá
agnúa, sem eru á samstarfi
Miðflokksins og Frjálslynda þjóð-
arflokksins.
Samstaða
sósíaldemokrata
Það virðist því einungis vera
flokkur sósíaldemokrata, sem býð-
ur fram heill og óskiptur í þessum
kosningum. Staða hans virðist því
vera allsterk. Jafnvel stjórnarand-
stöðuflokkurinn, Sameiningar-
flokkurinn, getur ekki státað af
slíkri innri samheldni. í tiu ár
hefur þessi flokkur nú verið í
stjórnarandstöðu, og hinir yngri
þingmenn flokksins taka að gerast
óþolinmóðir; þeir hefðu ekkert á
móti því að komast loks með í
stjórn. Það er yfirleitt reiknað
með því, að Sameiningarflokkur-
inn, sem er eindreginn hægriflokk-
ur, vinni töluvert á í þessum
kosningum.
Sigurlíkur borgara-
flokkanna
Þeir sem vel þekkja til finnskra
stjórnmála spá því jafnvel, að hinn
hægrisinnaði Sameiningarflokkur
vinni svo mjög á i kosningunum,
að hann verði stærri en Miðflokk-
urinn og þar með næststærsti
flokkurinn á þingi, næstur á eftir
Sósíaldemokrötunum. Það er því
mörgum, sem finnst, að nú sé
brátt tími til kominn fyrir Sam-
einingarflokkinn að taka að sér
stjórnarforystuna, ef svo fer sem
horfir um mikinn kosningasigur
flokksins.
Forsvarsmenn vinstri flokkanna
hafa látið hafa það eftir sér, að
þeir búizt síður við því, að umtals-
verðar breytingar verði gerðar á
ríkisstjórn Finnlands, ef kosning-
arnar leiða í ljós, að einustu
verulegu breytingarnar á fylgi
kjósenda verði tilfærsla á fylgi
borgaraflokkanna.
Stóri bróðir
fylgist með
Sameiningarflokkurinn eða
hægrimenn hafa auk þess lagt
áherzlu á, að samsetning ríkis-
stjórnar Sorsas endurspegli á eng-
an hátt vilja finnskra kjósenda og
sé alröng, þar sem hægri flokkarn-
ir séu útilokaðir frá stjórnar^am-
starfinu. Þessi fullyrðing getur þó
ekki talizt alls kostar rétt, þar sem
ríkisstjórn Sorsas hefur þó fylgi
meirihluta þingmanna i Riksdag-
en, sem nemur tveim þriðju.
Nokkur vafi ríkir einnig um það,
hversu heilshugar Sameiningar-
flokkurinn styður utanríkisstefnu
Kekkonens Finnlandsforseta.
Sumir þingmenn flokksins álíta,
að Finnland fylgi alltof auðsveipri
stefnu í samskiptum sínum við
nágrannann í austri.
Það er staðreynd, að bæði aust-
ur í Moskvu og eins í sovézka
sendiráðinu í Helsingfors er fylgzt
af töluverðum óróa með þeim
mikla meðbyr, sem hinn hægri-
sinnaði Sameiningarflokkur er tal-
inn njóta um þessar mundir. Og
það er heldur ekki þagað yfir þeim
kvíða af hálfu Sovétmanna. En
mitt í þessum sovézka óróleika er
það þó eitt, sem hefur vakið
athygli, og það er sú staðreynd, að
gagnrýni Sovétmanna á finnskum
hægrisinnum og þá sérstaklega á
Sameiningarflokkinum beinist
fyrst og fremst að hinum eldri,
gallhörðu hægrimönnum innan
flokksins, en hinir yngri, óþolin-
móðu menn innan flokksins fá
mun mildari dóma enda álitnir
hófsamari í sínum hægri skoðun-
um. Þetta hefur hinum yngri
framámönnum innan Sameining-
arflokksins byr undir báða vængi.
Hitt er svo staðreynd, að styrk-
leikahlutföllin milli vinstri- og
hægrimanna i finnskum stjórn-
málum þurfa að breytast verulega
hægrimönnum í vil, áður en Sam-
einingarflokkurinn fær inngöngu í
stjórnarráð Finnlands.
Kristniboðsvika í Reykjavík:
25 ár frá upphafi
starfsins í Konsó
SEX kristniboðar verða í hópi
ræðumanna á kristniboðsviku
Sambands íslenzkra kristniboðs-
félaga sem hefst n.k. sunnudag
18. marz. Verða samkomur hvert
kvöld vikunnar í húsi KFUM og
K Amtmannsstíg 2b í Reykjavík
og hefjast þær kl. 20:30 og verður
sú síðasta sunnudaginn 25. marz.
Meðal kristniboðanna eru
Ingunn Gísladóttir og Astrid
Hannesson, sem báðar eru ný-
komnar úr kynnisferðum til
kristniboðslanda, Ingunn frá
Konsó í Eþíópíu þar sem hún
starfaði í mörg ár og Astrid frá
Hong Kong, en þar og á megin-
landi Kína var hún kristniboði um
árabil ásamt manni sínum
Jóhanni Hannessyni síðar
prófessor. Munu þær báðar segja
nýlegar fréttir af kristniboðsstarfi
á þessum stöðum.
Auk þeirra eru margir fleiri
ræðumenn, sýndar verða myndir
eitt kvöld, einsöngur, tvísöngur og
kórsöngur og á samkomunum
verður veit viðtaka gjöfum til
kristniboðsins.
A þessu ári eru liðin 25 ár frá
því kristniboðsstarf hófst í Konsó
á vegum Islendinga én nú hafa
þarlendir menn stjórn starfsins
með höndum. Unnið er að kristi-
legri fræðslu og prédikun, skóla-
haldi og hjúkrun, og geta má þess
að nú vinnur norskur búfræðingur
að kennslu í bættum atvinnu-
háttum landsmanna.
Tvenn íslenzk hjón eru í Eþíópíu
um þessar mundir við kristniboðs-
störf, Jóhannes Ólafsson og Jónas
Þórisson og fjölskyldur þeirra.
Þrátt fyrir ókyrrðina í landinu og
mikinn áróður gegn guðstrú hafa
kristniboðar yfirleitt frjálsar
hendur til starfa og verður víða
vart við mikla löngun hjá lands-
búum til að hlusta á boðskap
kristindómsins, segir í frétt frá
S.I.K. svo og að sumir kaupi sér
tvær Biblíur, grafi aðra í jörð ef
hin skyldi af þeim tekin.
Skúli Svavarsson kristniboði fór
ásamt fjölskyldu sinni til starfa í
Kenýa á sl. ári á vegum S.Í.K. og
er hann nú að reisa kristniboðs-
stöð í vesturhluta landins.
Á fyrstu samkomu kristniboðs-
vikunnar annað kvöld tala
Guðmundur Guðmundsson
guðfræðinemi, Ingunn Gísladóttir
og Helgi Hróbjartsson kristniboði
og einnig er á dagskrá tvísöngur.
Mikil aðsókn að
Stjómmálaskólannm
Nemendur Stjórnmálaskólans í kennslustund í félagsstörfum hjá Pétri
Sveinbjarnarsyni. Ljósm. Mbl. Rax.
Stjórnmálaskóli Sjálfstæðis-
flokksins er starfandi núna. en
hann var settur á mánudaginn.
Að þessu sinni fer kcnnsla fram á
Mognúfr Jóhannsson (rá Haluarnesi
Blómið
í brjósli mór
kvöldin og um helgar, en það er
nýbreytni því áður hefur skólinn
verið heiisdags skóli sem staðið
hefur í eina viku samfleytt.
Mjög margir sóttu um inngöngu
í skólann að þessu sinni og var
ekki unnt að verða við öllum
umsóknum, að því er Sveinn
Skúlason framkvæmdastjóri Full-
trúaráðs sjálfstæðisfélaganna
tjáði Morgunblaðinu. Sagði hann,
að greinilega hefði verið þörf á
skólahaldi með þessu sniði og
hefði þegar verið ákveðið að hafa
skólahald með þessum hætti
næsta vetur, auk þess sem heils-
dags skóli verður þá starfræktur
eins og undanfarin ár. Kennsla fer
fram í Sjálfstæðishúsinu Valhöll
við Háaleitisbraut.
Meðal námsgreina á skólanum
eru almenn félagsstörf og kennsla
í ræðumennsku og fundarsköpum,
fluttir eru fjölmargir fyrirlestrar
um stjórnmálaleg efni, fjölmiðlar
eru heimsóttir og margt fleira.
Formaður skólanefndar Stjórn-
málaskóla Sjálfstæðisflokksins er
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson.
Ný ljóðabók
„Blómið í brjósti mér“ nefnist
nýútkomin ljóðabók eftir Magnús
Jóhannsson frá Hafnarnesi. í
bókinni er að finna fimmtíu ljóð
Magnúsar, en setningu og prent-
un annaðist Bókamiðstöðin.
Káputeikning er eftir ólaf
Sigurðsson frá Vatnsdal.
Áður hafa komið út eftir Magn-
ús þessar bækur: Vegamót (smá-
sögur) 1955, Heimur í fingurbjörg
(skáldsaga) 1966, Svikinn draumur
(skáldsaga) 1970, Silungurinn í
lindinni (ijóð) 1978 og nú ljóðabók-
in Blómið í brjósti mér.
«i
epolhi
Síöumúla 20, sími 36677, hefur tekiö aö sér smásöludreifingu á
HEWI vörum frá fyrirtækinu Heinrich Wilke GmbH., og eru
viöskiptavinir okkar vinsamlegast beönir um aö snúa sér þangaö.
iittsill
I •
beggia
HEWI í eldhúsið, baðherbergíö, stofuna.
HEWI-vörur eru sérhannaöar fyrir nútímaheimili
HEWI höldur, húnar, snagar, krókar o.fl. Margar gerðir, tíu litir.
Eggert Kristjánsson & Co. hf.,
Sundagörðum 4 — Slmi 85300