Morgunblaðið - 17.03.1979, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 17.03.1979, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1979 17 - BORGARSTJÓRN Biiqir Bjðrgvin Kriatján EHn tíska líf undir kjósendum á Austur- landi. Allar þessar markvissu að- gerðir væru aðvörun til Reykvíkinga. Elín Pálmadóttir vakti athygli á, að Reykvíkingar greiddu raflínulagnir úti um land með sköttum sínum, einnig 50% hlut hjá ríkinu, auk þess verðjöfnunargjald og loks vexti og afborganir af lánum. Elín Pálma- dóttir sagði, að með þessu væri því farið út á verulega hættulega braut og ætla mætti, að nú væri unnið markvisst að því að leggja Reykvík- inga á höggstokkinn með virkjanir, afborganir og greiðslur í framtíð- inni. Páll Gíslason (S) sagði, að fram kæmi í nefndarálitinu hækkanir á árunum 1979—1989 og væru þær miðaðar við ýmsa möguleika þ.e. 14.7% hækkun Lv, Lxv og Nl., 16.7% Lv, Lxv og Bl., 42.1% Lv, Lxv, Bl. og Krafla. Það væri því augljóst mál hversu alvarlegar afleiðingar hug- myndir iðnaðarráðherra hefðu á raforkuverð í Reykjavík ef til kæmi. Fleiri borgarfulltrúar tóku til máls, en töluðu stutt og verða umræður ekki raktar frekar hér. Borgarstjórnarmeirihlutinn vísaði síðan tillögum sjálfstæðismanna frá og samþykkti að skipa viðræðu- nefndina. Þá lögðu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fram svohljóð- andi bókun: „Við borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins höfum með til- löguflutningi og atkvæðagreiðslu í borgarstjórn lýst andstöðu okkar við þau tilmæli iðnaðarráðherra að skipa viðræðunefnd, enda hefur ráð- herra sett óaðgengileg skilyrði fyrir þeim viðræðum í bréfi sínu til borgarstjórnar. Vinstri flokkarnir í borgarstjórn hafa engu að síður samþykkt að skipa viðræðunefnd. Ljóst er að slíkar viðræður munu ekki fara fram á jafnréttisgrundvelli og vafalaust munu þær fyrst og fremst snúast um tillögur þær, sem ráðherra hefur þegar látið móta. Mun það einu gilda þótt vinstri menn í borgarstjórn hafi bókað með veiku orðalagi að þeir gangi til þessara viðræðna án skuldbindinga. Við borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins viljum enga ábyrgð taka á þessum viðræðum, sem við teljum frá upphafi fráleitar eins og að þeim er staðið. Við munum því ekki tilnefna neina fulltrúa í viðræðu- nefnd. Niðurstöður viðræðnanna munum við síðan vega og meta og ef þær að okkar mati ganga gegn hagsmunum borgarbúa munum við óska eftir allsherjaratkvæðagreiðslu meðal borgarbúa um málið. Hér er um að ræða eitt stærsta hagsmuna- mál Reykvíkinga sem borgarstjórn hefur lengi fjallað um.“ Útsýn leigir DC-8 þotu tvisvar í viku FERÐASKRIFSTOFAN Útsýn boðaði í gær til blaðamannafund- ar þar sem Ingólfur Guðbrands- son forstjóri ferðaskrifstofunnar gerði biaðamönnum grein fyrir ferðaáætlun og starfsemi Útsýnar á komandi sumri. Útsýn hefur tekið á leigu DC-8 þotu til sólarlandaflugs í sumar og sagði Ingólfur að sætanýting hjá Útsýn í leiguflugi hingað til hefði verið 95 — 96% og upp í 100%. Hann sagði að lægð hefði verið í ferðalögum hjá almenn- ingi í vetur en nú virtist skriður vera að koma þar á. Mestur straumurinn liggur eins og fyrr til Spánar en ferðamönnum til Grikklands hefur farið fækkandi. einn farþegi mun fara til Grikk- lands á móti 10 til Spánar. Ingólf- ur sagði að fargjöld hjá Útsýn hefðu hækkað um 50 — 60% á meðan pesetinn spænski hefði hækkað um rúmlega 100%. I sambandi við þjónustu Útsýn- ar við farþega sína erlendis sagði Ingólfur að þeir hefðu skrifstofur á þeim stöðum sem þeir hefðu ferðir til og gætu farþegar leitað til þeirra með öll sin mál og rætt um þau á íslensku við íslendinga. Einnig sagði hann að þeir hefðu íslenskar ræstingakonur á Costa Brava, Lignano og í Grikklandi þar sem hreinlæti þessara þjóða er ekki svipað því og hjá íslend- ingum. Einnig sagði hann þá hafa íslenskar eftirlitskonur með hreingerningum á Costa dei Sol en alls starfa við ræstingar á vegum Útsýnar erlendis um 20 manns. Starfsmenn ferðaskrif- stofunnar hér á íslandi og erlend- is eru alls um 100. Hér á eftir fer fréttatilkynning ferðaskrifstofunnar Útsýnar í heild: Útsýnaríerðir með DC-8 þotu til sólarlanda — Hagstæð fargjöld Sá orðrómur, að Útsýn hafi fest kaup á DC-8 þotu er jafntilhæfu- laus og úr lausu lofti gripinn eins og gróusagan um að Flugleiðir hafi keypt meirihluta hlutabréfa í Útsýn, sem er ekki einu sinni hlutafélag. Hins vegar hefur Útsýn gert stóran leigusamning við Flugleiðir um sólarlandaflug í sumar með nýjasta flugfarkosti Islendinga, DC-8 þotu, sem Flugleiðir keyptu á dögunum, og býður nú upp á dagflug á öllum leiðum: Spánn — Costa del Sol og Costa Brava, — Ítalía — Gullna ströndin Lignano, — Júgóslavía — Portoroz og Porec, og til Aþenu í Grikklandi. Magnflutningar lækka ferðakostnaðinn — 250 farþegar í ferð Vegna legu landsins verða far- gjöldin alltaf stór liður í ferða- kostnaði íslendinga. Fargjalda- hækkanir bitna því mjög á ferða- lögum okkar, og við hverja hækk- un eykst bilið í krónutölu milli almennra fargjalda og hinna hag- stæðu fargjalda í leiguflugi. Flug með litlum vélum á löngum leiðum er ekki lengur samkeppnisfært við stórþotur. í fyrra vakti það mikla undrun og hneykslun, er í ljós kom að verulegur hluti innflutnings lands- manna var keyptur óeðlilega háu verði vegna óhagstæðra samninga. Hins vegar er ekki verið að flíka því opinberlega, þegar gerðir eru samningar, sem eru jafnvel hag- stæðari en fyrirtækjum milljóna- þjóðanna tekst að ná. Útsýn nýtur nú hagstæðustu gistisamninga erlendis, sem um getur. Þess vegna getur Útsýn boðið farþegum sínum góða gisti- aðstöðu á stórlækkuðu verði. Dagflug með DC-8 tvisvar í viku til sólarlanda Með notkun helmingi stærri farkosts tekst Útsýn að halda fargjaldakostnaði niðri — eða allt niður í um 140 þúsund krónur í 2—3 vikna ferðum til Torremo- linos á Spáni. Sumar þessara ferða eru nú Ljósm. Kristján. Ingólfur Guðbrandsson forstjóri Útsýnar. Á borðinu fyrir framan hann liggur nýútkomin ferða- áætlun Utsýnar fyrir árið 1979. þegar uppseldar, t.d. er biðlisti í páskaferðina 11. apríl. Að henni lokinni taka við tvær þriggja vikna vorferðir til Costa del Sol, á fegursta tíma, og eru þær ódýr- ustu ferðirnar á markaðnum. Frá júníbyrjun verður flogið vikulega á föstudögum með DC-8 þotu til Malaga, en til Costa Brava verða ferðir á þriggja vikna fresti frá 29. maí. Ítalía og Júgó- slavía sækja á Mest hefur eftirspurnin verið eftir ferðum til Spánar, en bæði Italía og Júgóslavía sækja fast á og eru geysivinsælir staðir, t.d. er Lignano — hin gullna strönd Ítalíu, vinsælasti fjölskyldustað- urinn. Flugið þangað er sameinað Júgóslavíufluginu á sunnudögum og fæst þannig stórlækkað far- gjald. Skammt verður að aka á báða staðina, Lignano og Portoroz, eftir að flugvöllurinn Ronchi skammt frá Trieste verður tekinn í notkun. Aðsókn að Júgóslavíuferðum Útsýnar í fyrra sló öll met. Dvalist er í Portoroz og Porec við bestu fáanlega aðstöðu, og er verðlag enn mjög hagstætt í Júgóslavíu. Tveggja vikna ferð með gistingu og hálfu fæði kostar frá 188 þúsund krónum, en tveggja vikna ferð til Lignano á Ítalíu frá 147 þúsund krónum með gistingu. Útsýn og Sunna slíðra sverðin Það telst til tíðinda að Útsýn og Sunna taka nú upp samvinnu um flug til Grikklands og leigja til þess Boeing 720 þotu frá Arnar- flugi, sem flýgur þangað á þriggja vikna fresti, frá 17. maí. Útsýn hefur bætt gistiaðstöðu sína í Vouliagmeni skammt frá Aþenu og býður upp á hótelgist- ingu með fæði eða gistingu í íbúðum, skammt frá glitrandi baðströndinni. Ódýrar ferðir til nágrannalandanna — Norðurlönd — Bret- land — Frakkland Eins og áður hefur Útsýn á boðstólum hagkvæmustu fargjöld- in fyrir hópa og einstaklinga til Norðurlanda og Bretlands, en nú bætast einnig við vikuferðir á sérfargjöldum til Parísar. Ferðir til ísraels eru einnig í undirbún- ingi. Aðsókn er mikil og eftirspurn, og upp á síðkastið engu minni en áður í sólarlandaferðir, t.d. eru fyrstu ferðirnar til Ítalíu að selj- ast upp. Á sunnudaginn kemur, heldur Útsýn dag Ítalíu á Hótel Sögu með ferðakynningu og fjölbreyttri skemmtun bæði síðdegis og á sunnudagskvöld. Frá undirritun samnings milli Norræna fjárfestingarbankans og Landsvirkjunar. Norræni fjárfestingarbankinn lánar Landsvirkjun 5 milljarða í dag var undirritaður láns- samningur í Reykjavík milli Norræna fjárfestingarbankans, sem aðsetur hefur í Helsingfors, og Landsvirkjunar. þar sem bankinn veitir Landsvirkjun lán að fjárhæð allt að jafnvirði 16 millj. Bandaríkjadollara (tæp- lega 5,2 milljörðum króna). Lántaka þessi er liður í fjár- mögnun virkjunarframkvæmd- anna við Hrauneyjafoss, en heild- arkostnaður við virkjunina er áætlaður um 140 milljónir Banda- ríkjadollara (um 45'/2 milljarður króna) að meðtöldum vöxtum á byggingartíma. Hrauneyjafoss- virkjun er hönnuð fyrir 210 mega- watta afl. í fyrri áfanga virkjun- arinnar verða tvær 70 megawatta vélasamstæður. Stefnt er að því, að önnur vélin verði tekin í rekst- ur haustið 1981 og hin 1981 til 1982. Hverflar, rafalar og mestur hluti rafbúnaðar .,rkjunarinnar verður keyptur af sænsku fyrir- tækjunum ASEA, Nohab-Bofors og Karlstad Mekaniska Verkstad. Nokkur fyrirtæki, einkum íslensk en einnig dönsk og sænsk, önnuð- ust í sameiningu fyrsta hluta virkjunarframkvæmdanna, sem fór fram sumarið 1978 og fól í sér gröft fyrir stöðvarhúsi virkjunar- innar. Hinn 2. þ.m. voru opnuð tilboð í aðra hluta byggingarvinn- unnar, og eru þau nú í athugun hjá Landsvirkjun. Af lánsfjárhæðinni verður and- virði allt að 10 millj. Bandaríkja- dollara greitt Landsvirkjun gegn skuldbindingu um endurgreiðslu í hinum sérstöku dráttarréttindum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (SDR), og eru vextir af þeim hluta lánsins 9,85% á ári. Að öðru leyti greiðist lánsféð Landsvirkjun gegn skuld- bindingu um endurgreiðslu í gjaldmiðli, sem samið verður um síðar á árinu milli bankans og Landsvirkjunar og verður þá jafn- framt samið um vextina af þeim hluta lánsins. Lánið er veitt gegn einfaldri ábyrgð eigenda Landsvirkjunar, ríkisins og Reykjavíkurborgar. Lánstími er 15 ár. Fyrstu 5 árin eru afborgunarlaus, og fara end- urgreiðslur fram með jöfnum hálfsárslegum greiðslum á síðustu 10 árunum. Landsvirkjun er annað íslenska fyrirtækið, sem Norræni fjárfest- ingarbankinn veitir lán. Á árinu 1976 veitti bankinn íslenska járn- blendifélaginu lán að fjárhæð 200 milljónir norskra króna (12,8 milljarðir íslenskra króna) til byggingar járnblendiverksmiðj- unnar að Grundartanga, en járn- blendifélagið er sameign íslenska ríkisins og norska fyrirtækisins Elkem-Spigerverket. Framleiðsla hefst i fyrri ofni verksmiðjunnar í apríl n.k. eins og áætlað var í upphafi og þá jafnframt raf- magnssala Landsvirkjunar til verksmiðjurekstursins. Frá Landsvirkjun og Norræna fjárfestingarbankanum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.