Morgunblaðið - 17.03.1979, Síða 27

Morgunblaðið - 17.03.1979, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1979 27 VAXBLÓM Hoya Carnosa HOYA sem hér á landi og víðast um Norðurlönd er nefnd Vaxblóm er vafningsjurt ættuð frá Ástralíu og Kína og hentar á norðurslóðum mjög vel til ræktunar í stofu eða gróðurskála. Þakin sínum myndarlegu og fögru blómum er hoyan glæsileg. Fljótt á litið gæti maður ímyndað sér að þau væru gerð af vaxi og er það orsökin fyrir nafngiftinni. Þau eru hvít eða með daufum holdlit, stjörnulaga og hafa rauða aukakrónu, sitja mörg þétt saman í sveip, ilma mikið og vel og drýpur einatt af þeim feitur sætur safi. Greinarnar sem blómin koma á eru stuttar og nokkuð sverar — svonefndar dverggreinar — geta þær borið blóm árum saman og því mikilvægt að skerða þær ekki eða sníða af. Blöð jurtarinnar eru þykk og leðurkennd, ekki ýkja dökk og oft hvítflekkótt. Á stönglunum sem eru dökkbrúnir vaxa heftirætur og með þeim getur jurtin fest sig við vegg, rimla, prik eða hvað eina annað sem hún hefur til stuðnings. Oft eru partar af stönglunum, einkum nýir sprotar, berir og blaðlausir langtímum saman en ekki er þó ástæða til að hafa ama af því, þeir blaða sig með tímanum þó það gangi fremur hægt og séu þeir klipptir af heftir það vitaskuld vöxt jurtarinnar. Vaxblómi þarf að velja svo bjartan stað sem unnt er. Því má koma fyrir á margan hátt: láta það vaxa uppi við vegg, gluggakarm, eða rimla eða binda það upp við prik (sbr. mynd). Þá má og hafa hana í hengipotti og þykir Hoya bella einna best til þess fallin. Vaxblómi og raunar fleiri klifurjurtum má til tilbreytingar koma fyrir þannig að potturinn sé látinn standa á diski eða grunnri skál úr tágum eða basti, mætti vera allt að 35—40 sm í þvermál og látin standa á fremur lágu borði. Er þá greinunum sívafið utan um pottinn og hagrætt á diskinum en með slíku fyrir- komulagi er þó tæplega blómgunar að vænta þegar vaxblóm á í hlut. Létt og sendin mold hentar vaxblóminu vel. Það þarf jafna og góða vökvun að sumarlagi en litla yfir vetrartímann. Því má fjölga með græðlingum að vorlagi. Að lokum má geta þess að hoya er kennd við Thomas Hoy (1788—1809). Hann var yfirgarðyrkju- maður hertogans af Northumberlandi í frægum garði hans við Thames-á gegnt Kew-grasagörðunum í London. Ums, Nemendur hótel- og veitingaskólans með spjöld sem þeir munu bera þgar þeir auglýsa nemendasýninguna í miðbeenum. Nemendasýning Hótel- og veitingaskólans: Nýjar íslenskar mat- aruppskriftir kynntar ÁRLEG nemendasýning Hótel- og veitingaskóla íslands verður haldin á Hótel Esju í dag, laugardag, frá 14 — 19 og sunnu- dag frá 19—19. 3. bekkur skólans sér um sýninguna en nemendur þess bekkjar eru að ljúka námi við skólann og eru með sýningunni að kynna starfsemi hans. Auk þess sem nemendurnir sjálfir munu matbúa, leggja á borð og veita upplýsingar um matar- uppskriftir og fleira verða á nemendasýningunni kynntar ýms- ar nýjungar. Kjötbúð Suðurvers mun þar kynna heilsufars sem er ný íslensk uppskrift og Ragnars- bakarí í Keflavík kynnir þar heilsubrauð sem einnig er ný íslensk uppskrift. Úr þessum tveimur nýjungum munu nemendurnir gera samloku á staðnum sem þeir nefna heilsu- samlokuna. Mjólkursamsalan kynnir á nemendasýingunni tvær nýjungar sem eru væntanlegar á markaðinn frá þeim, bláberjaís og ís ásamt bragðefnum s_em blönduð eru á staðnum og getur þá viðkomandi ráðið hvaða bragð er af ísnum. Loks munu Islensk matvæli kynna nýjan íslenskan síldarrétt. Ýmis fyrirtæki munu kynna vörur sýnar á sýningu Hótel- og veitingaskólans og einnig munu bakarar sýna kökugerðarlist og veitingahús af Reykjanessvæðinu sýna list sína og selja veitingar. Að öðru leyti er allt það sem á sýningunni er aðeins til sýnis en ekki sölu. Happdrættismiðar munu verða Skálholti 15. marz. Skálholtskórinn og Kirkju- kór Selfoss halda sameigin- lega tónleika um helgina. Fyrstu tónleikarnir verða í Skálholti laugardaginn 17. marz kl. 16 og þeir síðari í Selfosskirkju sunnudaginn 18. marz kl. 16. Kórarnir syngja kirkjuleg seldir á meðan á sýningunni stendur og verður dregið um utan- landsferð og matarvinninga ýmiss konar. í dag um kl. 13, ef veður leyfir, munu nemendur skólans fara niður í miðbæ Reykjavíkur í fullum kokkabúningum og auglýsa þar sýninguna. lög frá ýmsum tímum eftir innlenda og erlenda höfunda, m.a. er hluti þeirra helgaður barnaári. Forsöngvari er Sigurður Erlendsson á Vatnsleysu. Einnig verður kvartettsöngur, orgelleikari er Olafur Sigurjónsson í For- sæti, en stjórandi er Glúmur Gylfason. _ Björn. Kórar Skálhylt- inga og Selfyss- inga með tónleika Rásaöur krossviður til inni- og útinotkunar þykktir 10 mm og 12 mm. Stærðir 121x250 cm og 121x210 cm. Finnsk gæöavara á hagstæðu verði. ~E'\l&?tn~lcivi>ruverzL BJORNINN Skúlatúni 4. Sími 25150. Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.