Morgunblaðið - 17.03.1979, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 17.03.1979, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1979 J Jóhannesí úrvalsliði útlendinga Búferla- flutningar TVEIR kunnir, brezkir knattspyrnukappar hafa skipt um íélög síðustu da>j- ana, sá þriöji einnig, minna þekktur. Duncan McKenzie gekk til iiðs við sjöunda íélagið sitt er Chelsea féllst á að selja hann tii Blackburn Rovers, liðs sem rambar á barmi fails í 3. deild úr annarri. Verðið var aðeins 100.000 sterlingspund. McKenzic hefur hvergi get- að fest rætur, þö svo að hann hafi jafnan staðið sig vei með þeim félögum sem hann hefur leikið með, einkum þó Nottingham Forest, Leeds og Everton. Það hefur fylgt McKenzie, að skömmu eftir að hann hefur gengið til liðs við nýtt félag, hefur fram- kvæmdastjðri félagsins ýmist verið rekinn eða hon- um sagt upp. Gamla kempan og skoski iandsiiðsmaðurinn Peter Lorimer hefur nú gert samning við kanadiska liðið Toronto Biizzard, en Tor- onto-liðið greiddi fyrir kappann 300.000 sterlings- pund. Blak íslandsmeistaramót yngri flokka í blaki 1979, fer fram í marz-apríl. Rétt til þátt- töku hafa öil íþróttafélög innan ÍSÍ. Þátttökutilkynn- ingar skuiu berast tii Al- berts H.N. Valdimarssonar Öldugötu 13, Hafnarfirði, siminn er 52832. Æskilegt er að tiikynningar berist sem ailra fyrst og ekki er víst að unnt verði að taka tii greina tilkynningar sem berast eft- ir 1. aprfl. La Louviere á botninum IIEIL umferð fór fram í beigísku deildakeppninni í fyrrakvöld og var það lítið frægðarkvöld fyrir lið íslensku leikmannanna f jögurra sem með belgískum liðum leika. La Louviere lék á heimavelli og tapaði þar illa fyrir Lierse. Eru þeir Þorsteinn Bjarnason og Karl Þórðarson því í neðsta sæti belgísku deildarinnar. Standard og Lokeren léku bæði á útivelli gegn sterkum iiðum og töpuðu. Standard fyrir FC Brugge og Lokeren fyrir Anderlecht. Úrslit leikja urðu þessi: Anderlecht — Lokeren 1—0 Beveren — Berchem 2—0 FC Brugge — Standard 3—1 Waterschi — Courtrai 2—3 La Louviere — Lierse 1—2 Waregem — Winterslag 1 —0 FC Liege — Beershot 3—0 Berlingen — Molenbeek 1—2 Beveren hefur 5 stiga forystu í deildinni, hefur 36 stig. Anderiecht hefur 31 stig og FC Brugge hefur 30 stig. Standard er nú í 5. sæti með 27 stig, en Lokeren er sfðan í 6. sæti með 26 stig. Á botninum situr La Louviere með aðeins 14 stig. Courtrai hefur 15 stig og FC Liege og Berchem hafa bæði 16 stig. Síðan eru 3 stig í næsta lið, Waregem, sem heíur 19 stig. Má því sjá að staða La Louviere er afar Ijót og í rauninni vonlítil. FRÉTTAMENN Reuters frétta- stofunnar brugðu á leik um dag- inn og reyndu að snara saman liði útlendinga sem nú leika með enskum liðum. Það stendur ekki til að tefla fram liði þessu við eitt lið eða annað, en uppátækið kom til af því að erlendum leikmönn- um hefur fjölgað gífurlega með enskum liðum, eftir að gefið var frjálst að fiytja þá inn. Nú hefur hins vegar enska knattspyrnu- sambandið sett nokkrar hömlur, Blakum helgina ÞAÐ VERÐUR lítið um að vera í deildar- keppnunum í hlakinu um helgina, en á móti verður töiuvert um órslitaleiki í skólamótinu sem nú geisar. Tveir leikir verða þó í 1. deild, báðir viðureignir botniiðanna UMSE og Mímis. Ráða þessir leikir úrslitum um hvort liðið hreppir neðsta sæti deildarinnar. Tveir leikir fóru fram í siðustu viku sem ekkert hefur verið frá sagt. Fyrst vann UMFL nágranna sína Mími 3—0 og síðan unnu Laugdælir aftur, nú ÍS 3—1. Virðast Laugdæiir ætla að hafa það af að inn- byrða tslandsbikarinn. Leikir helgarinnar eru eftirfarandi: Laugardagur: Akureyri 1. deild karla UMSE—Mímir kl. 15.00. Melaskóli skólamót úrsl. Stórutj.skóli — Flúðaskóli kl. 13.00. Melaskóli skólamót úrsl. Vogaskóii — Flúðaskóli ki. 13.45. Melaskóli skólamót úrsl. Vogaskóli — Stórutj. skóli kl. 14.30. Sunnudagur Akureyri 1. deild karla UMSE—Mímir kl. 13.00. Hagaskóli Framh. skólamót úrsl. HÍ—ÍKÍ (kv) kl. 13.45. Hagaskóii Framh. skóiamót úrsl. Bif- röst—ÍKÍ (ka) kl. 14.30. ÞAÐ MÁ SEGJA með sanni að Patreksfjörður er mikill körfu- knattleiksbær. Sl. 15 ár hefur körfuknattleikur verið geysivin- sæl íþrótt hér bæði hjá piltum og stúlkum. Um hundrað börn og unglingar æfa hér körfuknattleik að stað- aldri yfir vetrarmánuðina. Ekki kann ég á þessu fullnægjandi skýringu en nokkuð kann hér að valda snjóleysi, því að hér á sunnanverðum Vestfjörðum snjóar ekki meira en t.d. í Vest- mannaeyjum og hvergi hér í nágrenninu er nægur snjór fyrir skiðalyftu, helst væri að staðsetja hana á Hálfdán. Skíðaíþróttin á því miður heldur erfitt uppdrátt- ar hér. Þórir Arinbjarnarson læknir, sem hérna var fyrir 12 til 13 árum var mjög ötull við að þjálfa og kenna hér körfubolta, en hann er gamall landsliðsmaður í körfu eins og kunnugt er og á hann einna mestan þátt í þessum uppgangi sem felast í því að viðkomandi útlendingur verður að hafa leikið með aðallandsliði þjóðar sinnar. Útlendingarnir sem leika með enskum liðum eru þó enn ekki orðnir svo margir að þeir nái því að geta skipað lið. Til þess vantar tvo og þá svindlaði Reuter með því að sækja Jóhannes Eðvaldsson frá Celtic í Skotlandi. Ellefti maður- inn var Cirel Regis, sem er fæddur í Frönsku Guyana. Það er líklega mikill heiður fyrir Jóhannes að vera stillt upp í þessum félags- skap, en þar er að finna ýmsa af fremstu knattspyrnumönnum veraldar, t.d. Osvaldo Ardiles, Alberto Tarantini og Kaszimierz Deyna. Deyna hefur reyndar verið slappur í vetur og tekið ástfóstri við varamannabekkinn. Út- lendingaliðið sem skipað er Júgóslövum, Hollendingum, Argentínumönnum, Islendingum og fleirum, er þannig skipað: Peter Broota (Chelsea), Iwan Golac (Southampton), Alberto Tarantini (Birmingham), Jóhannes Eðvaldsson (Celtic), Osvaldo Ardiles (Argentína og Tottenham), Kaszinierz Deyna (Pólland og Manchester City), Franz Thijsen (Holland og Ipswich), Arnold Múhren (Holland og Ipswich), Cirel Regis (Franska Gyana og WBA), Bosco Jankowich (Júgóslavía og Middlesbrough) og Ricardo Villa (Argentína og Tottenham). Þetta er mikið sóknarlið sem stillir aðeins 3 varnarmönnum upp. Leiki lið þetta nokkurn tíma opinberlega, mun því mæða mikið á Jóhannesi og hann ekki fá mörg tækifæri til þess að þeysa fram í sóknina eins og hans er venja hjá Celtic. íþróttarinnar. Ennfremur hafa margir kollegar hans unnið mikið og gott starf hérna fyrir íþróttina. Má þar nefna Hörð Bergsteinsson, Einar Oddsson, Tómas Zoega og nú síðast Birgi Jakobsson. Ekki getum við sagt að margir sigrar hafi unnist í íþróttinni á lands- vísu, en við höfum þó átt Islands- meistara kvenna í 2. flokki í tvö ár og 3. og 4. fl. pilta hefur átt góða leiki í úrslitum. Mjög háir okkur hve ferðakostnaður er mikill í samskiptum við aðra. ísiandsmet: Maraþonleikur í körfuknatt- leik á Patreksfirði. 3. flokkur pilta í íþróttafélaginu Herði á Patreksfirði vann það afrek um helgina að setja íslands- met í maraþonkörfuknattleik. Léku piltarnir viðstöðulaust frá því kl. 9 á föstudagskvöld til 9.05 á laugardagskvöld eða í 24 klst. og 5 mín. Samtals voru skoruð 6376 stig. Annað liðið skoraði 3766 stig en hitt liðið skoraði 2610 stig. Islandsmót í lyftingum ÍSLANDSMÓTIÐ í lyftingum verður haldið í anddyri Laugar- dalshallarinnar þessa komandi helgi. Allir bestu lyftingamenn landsins verða meðal keppenda. Keppendur verða alls 33 og fer keppnin fram bæði á laugardag og sunnudag. Hefst hún klukkan 14.00 báða dagana. Gífurlegar framfarir hafa verið hjá íslenskum lyftinga- mönnum að undanförnu, þannig að f ýmsum flokkum má búast við heljarátökum og mikilli keppni. Stigahæstur var Helgi Magnús- son og skoraði hann hvorki meira né minna en 2108 stig. Undirbún- ingur og skipulag var allt til fyrirmyndar undir stjórn Sigurðar Viggóssonar formanns Harðar og þjálfara Odds Friðrikssonar. Hall- grímur Magnússon var hafður með í ráðum, en hann er læknir héraðs- ins. Piltarnir sem léku voru : Helgi Magnússon, Magnús Sigurgeirs- son, Kristinn Pálmason, Kristinn Halldórsson, Ægir Jónsson, Óðinn Þórarinsson, Sigurður Pétur Guðmundsson, Páll Ólafsson. Fjöldi Patreksfirðinga lagði leið sína á áhorfendapalla íþróttasal- arins um helgina og fylgdust með leiknum og undir lokin var hús- fyllir, tóku piltarnir þá smáskorpu og var því vel fagnað. I sambandi við leikinn hétu um 200 þorpsbúar að greiða kr. 200 fyrir leikna klst. og höfðu piltarnir því um 1 millj. kr. upp úr krafsinu. Páll T.d. í 67,5 kg flokkinum, þar sem Kári Elíasson hefur verið ósigr- andi sfðustu árin. í þeim flokki hefur komið nýr maður fram á sjónarsviðið, Haraldur Ólafsson, ÍBA, sem ógnar veldi Kára óþyrmilega. Spennandi verður keppni þeirra. Þá keppir Guð- mundur Sigurðsson á nýjan leik eftir 2ja ára hlé og verður at- hyglisvert að fylgjast með því hvort þeir ungu menn, sem komið hafa upp sfðan Guðmundur hætti, veita honum keppni. Fimleikar • Meistaramót fslands f frjálsum íþróttum fer fram um helgina eins og áður hefur komið fram. í dag hefst keppni klukkan 15.00 í Laugar- dalshöllinni og verður þá keppt í skylduæfingum bæði í karla og kvennaflokki. A morgun verður hins vegar keppt í frjálsum æfingum. Að venju verður töluverður fjöldi þátttakenda á móti þessu, enda fimleikar í sókn hérlendis. Körfubolti 17. laugardagur Akureyri kl. 15.00 I.d. Tindastóll: Snæfell Hattaskóli kl. 14.00 O.d. KR:Þór kl. 15.30 Bikark.Kv. KR: ÍR kl. 17.00 Il.d. Lóttir:Esja Akureyrl kl. 15.00 I.d. Tindast.:SnæleII Kennaraháskóli kl. 14.30 Od. ÍS:Þór 19. mánudagur Laugardalshöll kl. 20.30 O.d. ValurUMFN 0 Pill ólalsson var sá yngsti sem tók þitt í maraþonkörfubolta- keppninni á Patreksfirði. MHU gróska í íþróttatífinu á Patreksfirói

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.