Morgunblaðið - 17.03.1979, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1979
39
L eikur Pétur
meðValámánu■
dags kvöld?
SPENNAN í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik er nú í hámarki.
Valur, KR og Njarðvíkingar eiga
öll möguleika á að hreppa
íslandsmeistaratitilinn í ár og
félögin munu að sjálfsögðu leggja
allt í sölurnar til þess að svo megi
verða.
Nú bendir allt til þess, að
Valsmcnn fái góðan liðsstyrk
fyrir leik sinn á móti Njarðvík-
ingum á mánudagskvöldið í
Laugardalshöllinni. Það er eng-
inn annar en Pétur Valsmaður
Guðmundsson, sem væntanlegur
er til landsins um helgina í frí.
Pétur hefur leikið með liði
Washingtons Iluskies í vetur, en
hann stundar nám við skólann.
Eins og öllum er kunnugt hafa
framfarir Péturs verið mjög örar í
vetur og hann vakið mikla athygli
með skólaliði sínu í Bandaríkjun-
um. Meðal annars var Pétur valinn
í úrvalslið háskóla vesturstrandar
Bandaríkjanna nú ekki alls fyrir
löngu. Þá var Pétur maðurinn á
bak við sigurinn er skóli hans lék
við eitt besta háskólalið Banda-
ríkjanna í körfuknattleik, UCLA.
Það væri því ekki lítill styrkur
fyrir lið Vals að fá þennan
hávaxna leikmann til liðs við sig í
þeim erfiðu leikjum sem framund-
an eru. Lið Vals á eftir að leika tvo
leiki í úrvalsdeildinni. Á mánu-
dagskvöld kl. 20.00 verður leikið
við UMFN og síðan á liðið eftir að
leika við Þór frá Akureyri. Takist
Valsmönnum að sigra í báðum
þessum leikjum stefnir allt í
hreinan úrslitaleik við KR-inga
sem eiga einn leik eftir í úrvals-
deildinni við Þór frá Akureyri.
Það yrði nú uppgjör sem segði
sex. Og eitthvað fyrir þá fjölmörgu
körfuknattleiksunnendur sem
sækja leiki úrvalsdeildarinnar.
—br.
(fprðlllrl
„Ekki okkar
að leiknum
var frestað“
* Morgunblaðinu hefur
borist eftirfarandi athuga-
semd vagna greinar, sem
birtist á íþróttasíðu blaðs-
ins síðastliðinn
fimmtudag:
„Vegna nokkurra skrifa á
íþróttasíðu Morgunblaðsins
undanfarið viljum við undirrit-
aðir taka eftirfarandi fram.
Okkur var falið að dæma leik
Þórs í Vestmannaeyjum og
Þróttar í Reykjavík í 2. deildinni
í haldknattleik, en leikur þessi
átti að fara fram laugardaginn
fyrir réttri viku.
Upphaflega átti að fljúga til
Eyja klukkan 9.30 um morguninn
og strax klukkan 8 höfðum við
samband ví Flugfélag íslands og
fengum þær fréttir að flugbrautin
í Vestmannaeyjum væri lokuð þá
var okkur sagt að athuga með flug
klukkan 10.30, sem við gerðum, en
þá var brautin enn lokuð. Enn var
ólendandi í Eyjum klukkan 12 á
hádegi.
Við höfðum samband við Ólaf
Aðalstein Jónsson í hádeginu, sem
bað okkur að vera tilbúna að fara
til Eyja til klukkan 14. Formaður-
inn hafði síðan samband við okkur
klukkan 13.30 og sagði að leiknum
yrði frestað til sunnudags. Síðan
þennan dag tilkynnti hann okkur
að leiknum væri frestað um
óákveðinn tíma og héldum við þá
að málið væru úr sögunni af okkar
hálfu.
Við viljum að það komi skýrt
fram, að við vorum reiðubúnir að
fara til Eyja til að dæma um-
ræddan leik allan laugardaginn,
svo framarlega, sem við hefðum
nægan tíma til að komast frá
Keflavík fyrir flug frá Reykja-
víkurflugvelli. Við vorum meira og
minna í sambandi við Ólaf Aðal-
stein og FÍ allt þar til ákveðið var
að fresta leiknum. Það er því alls
ekki rétt, sem fram kemur í pistli
Gunnars Gunnarssonar Þróttara í
Mbl. síðastliðinn fimmtudag, en
þar er haft eftir formanni Móta-
nefndar HSÍ, að leiknum hefði
verið frestað þar sem „dómararnir
hefðu ekki séð sér fært að fara“.
Keflavík 16. marz
Ragnar Marinósson
Marel Sigurðsson
Handbolti um helgina:
Botnliðin bítast
DEILDARKEPPNIN í handknattieik heldur sínu striki um
hclgina og verða leikir í öilum deildunum utan 2. deild karla.
Tveir leikir fara fram í fyrstu deild karia og er einkum annar
þeirra mikilvægur fram úr hófi. Er það viðureign ÍR og IIK í
Laugardalshöllinni á sunnudaginn. Þar verður barist fyrir lífinu
í 1. deild. enda fer staða IIK að verða vonlaus fari stigin ekki að
láta sjá sig. ÍR-ingar bættu stöðu sína verulega mð sigri yfir Fyiki
um síðustu hfelgi og sigur gegn HK nú myndi næstum bjarga
liðinu frá faili. Leikir helgarinnar eru eítirfarandi:
Laugardagur:
Halnarfjörður 1. deild kvenna
1. deild karla
Vestm.eyjar 3. deild karla
2. deild kvenna
Njarvík 3. deild karla
Akranes 3. deild karla
FH-Fram kl. 14.00
FH-Fram kl. 15.00
Týr-UMFN kl. 13.15
Þór-UMFN kl. 14.30
ÍBK—Dalvík kl. 14.00
ÍA—Grótta kl. 15.00
Sunnudagur:
Laugardalsh. 1. deild karla ÍR—HK ki. 19.00
2. deild kvenna ÍR—Fylkir kl. 20.15
Víðavangs-
hlaup íslands
um helgina
8. viðavangshlaup íslands fer fram sunnudaginn 18. mars. 303
keppendur eru skráðir frá 9 félögum og samböndum. Keppt ér í 7
flokkum.
Hlaupið fer fram á Miklatúni og hefst það kl. 14.00.
Búningsaðstaða fyrir keppendur verður í Austurbæjarskólanum.
Inngangur í portinu til hægri. Keppendum er ráðlagt að hlaupa á
gaddaskóm. Kaffistofan á Kjarvalsstöðum verður opin á meðan
keppni fer fram.
TÍMASEÐILL:
kl. 14.00 Stelpur (67 og yngri) 1.5 km
kl. 14.15 Strákar (’67 og yngri) 1.5 km
kl. 14.30 Telpur ('65—'66) 1.5 km
kl. 14.45 Piltar (’65—’66) 1.5 km
kl. 15.00 Konur ’64 og eldri 3.0 km
kl. 15.20 Sveina og drengjafi. (’61-’62-’63-’64) 3.0 km
kl. 15.40 Karlar ('60 og eldri 8.0 km
Kortið t.v. sýnir hringina sem hlaupnir verða í Víðavangshlaupi
Islands sem fram fer á Miklatúni á morgun. Rás- og endamark er á
flötinni fyrir framan Kjarvalsstaði. Hlaupið er réttsælis á túninu.
Yngstu aldursflokkarnir, þ.e. strákar, stelpur, piltar og telpur,
hlaupa einn stuttan hring, þ.e. um 1500 metra. Konur, sveinar og
drengir hlaupa stuttan hring og einn langan þ.e. um 3.000 metra.
Karlar hlaupa einn stuttan hring og fjóra langa eða um átta
kílómetra. Þegr er um að ræða að keppendur hlaupi hringi af báðum
stærðum er styttri hringurinn hlaupinn fyrst.
r,
• Risinn Pétur Guðmundsson, sem vakið hefur óskipta athygii í vetur
með háskólaliði sínu í Bandaríkjunum. leikur að öllum líkindum með
Val síðustu leiki liðsins í úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Pétur
kemur til iandsins um heigina og þá mun hann æfa með íslenska
landsliðinu og fara með þeim í keppnisferð til Skotlands.
VÍÐAVANGSHLAUP ÍSLANDS 1979