Morgunblaðið - 17.06.1979, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JÚNI1979
+
,,,0r’ OTTO JÖRGENSEN
fyrrv. póst- og símstjóra í Siglufiröi
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 18. júní kl. 1.30.
Fyrir hönd ættingja.
Froyja Árnadóttir.
Faðir okkar + RAGNAR HALLDÓRSSON
er látinn. Svana og Helga Ragnarsdætur.
Bróðir okkar + HANNES ÓLAFSSON,
frá Söðulsholti
sem andaðist 10. þ.m. veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju
þriöjudaginn 19 júní kl. 3 e.h.
Fyrir hönd systkina hins látna
Axel Ólafsson.
Faöir okkar + ÞORGILS GUDMUNDSSON fyrrverandi bakarameistari,
Lindargötu 54,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, þriöjudaginn 19. jum kl.
1.30 e.h. Guöríöur Þorgilsdóttir, Höröur Þorgilsson, Jóhanna Þ. Tremain.
t
Útför foreldra okkar og tengdaforeldra
GUORUNAR ÓLAFSDÓTTUR,
og
FRÍMANNS ÞÓRÐARSONAR,
Selvogsgötu 18, Hafnarfirði
fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfiröi, mánudaginn 18. júní kl. 1.30.
Gróa Frímannsdóttir,
Olafur Frímannsson, Kristín Siguröardóttir,
Elín Frímannsdóttir, Kristján Kristjánsson,
Guöjón Frímannsson, Kristín Jónsdóttir,
Svana Frímannsdóttir, Sigurvin Snæbjörnsson,
Einar Frímannsson.
Útför eiginkonu minnar
FRIORIKKU JÓNSDÓTTUR,
Selvogsgrunni 26,
verður gerð frá Fossvogskirkju miövikudaginn 20. júní kl. 13.30.
Þeir sem vildu minnast hinnar látnu er vinsamlegast bent á
Slysavarnafélag Islands.
Fyrir mína hönd, föður hinnar
barnabarna, Valdimars og Gógó,
látnu, barna, tengdabarna,
Ingólfur Þóröarson.
+
Konan mín, móðir og tengdamóðir
BJARNVEIG GUÐJÓNSDÓTTIR,
Seljabrekku,
lést fimmtudaginn 14. júnf.
Jarðarförin fer fram þriðjudaginn 19. júní kl. 2 e.h.
Athöfnin fer fram í Mosfellskirkju en jaröaö veröur aö Lágafelli.
Guömundur Þorlákason,
börn og tengdabörn.
+
Alúöar þakkir fyrir samúð og vinarþel viö andlát og útför,
ÁRNA ÓLA,
rithöfundar.
F.h. ættingja og venzlafólks,
Anna Mjöll,
Atli Már.
Kveðjuorð:
Otto Jörgensen, fv.
póst- og símstjóri,
Otto Jörgensen, fv. póst- og
símstjóri í Siglufirði, er látinn.
Hann var kallaður norður í Siglu-
firði, laugardaginn 9. júní sl., þar
sem hann hafði alið aldur í nær
sex áratugi. Hann kom þangað
fyrst til skammrar dvalar, að því
er ráðgert var, en sú dvöl varð að
langri, farsælli starfsævi, sem
spannar nær alla sögu Siglufjarð-
ar sem kaupstaðar.
Ottó Holger Winther Jörgensen,
eins og hann hét fullu nafni, var
fæddur á Seyðisfirði 13. janúar
1896, sonur hjónanna Karólíne
Lane Johanne Jörgensen og And-
ers Jörgensen, bakarameistara.
Ungur að árum hóf hann störf hjá
Landssímanum í Seyðisfirði og
lauk símritaraprófi árið 1914. Að
loknum þeim áfanga fór hann til
frekara náms í fagi sínu. Hann hóf
kennslu í símritun í Reykjavík
árið 1919, sem hann stundaði unz
hann var skipaður símstjóri í
Siglufirði 1921. Árið 1925 var
hann jafnframt skipaður umdæm-
isstjóri Pósts og síma í Siglufjarð-
arumdæmi, en þessum störfum
gegndi hann þar til hámarskaldri
embættismanna var náð.
Jörgensen var gæddur sterkum
persónuleika, víðsýnn og vel lát-
inn. Hann ávann sér skjótt traust
og virðingu samborgara, sem ent-
ist honum á leiðarenda. Hann var
mikill starfsmaður en ljúfur hús-
bóndi og hélt um stjórnartauma á
stofnun sinni með þeim hætti, að
hann naut þakklætis og hlýhugar
bæði viðskiptavina og undirsáta.
Markviss stjórnunarsemi, blandin
velvild í garð samstarfsfólks, var
hans aðalsmerki.
Jörgensen tók ríkan þátt í öllu
því, sem á döfinni var í vaxandi
bæjarfélagi, sem á starfsævi hans
breyttist úr þorpsnefnu í miðstöð
sfldveiða og sfldariðnaður, sem var
stóriðja þeirra tíma og einn af
hornsteinum verðmætasköpunar í
þjóðfélaginu. Þjónustan við síld-
veiðiflotann var stór þáttur í
starfi stofnunarinnar. Og það
segir sína sögu að á 25 ára
starfsafmæli Jörgensens í Siglu-
firði færðu Síldarverksmiðjur rík-
isins honum fagran silfurbikar að
gjöf fyrir ágæt störf í þágu síldar-
útvegsins.
Hann var bæjarfulltrúi á árun-
um 1937—1945, einn af stofnend-
um kaupfélags á staðnum og
þátttakandi í margs konar félags-
og menningarstarfsemi, s.s. Rót-
aryklúbbi Siglufjarðar, en þar var
hann heiðursfélagi, Bridgefélagi
Siglufjarðar, Stangveiðifélagi
Siglufjarðar, o.fl. Jörgensen var
róttækur í skoðunum, einn af
stofnendum Sósíalistafélags
Siglufjarðar, og fór aldrei í graf-
götur með þá afstöðu sína. Að
leikslokum bæjarmálaafskipta
hans átti hann þó ekki síður
hlýhug og virðingu þeirra, sem
örlögin skákuðu hægra megin
markanna í stjórnmálaátökum,
sem oft vóru hörð og hávaðasöm.
Persóna hans, starf og samskipti
við samferðafólk var einfaldlega
af þeirri reisn að hafið var yfir
pólitískt dægurþras. Það var vel
gjörlegt að hafa önnur sjónarmið
en Jörgensen á þessum árum, en
hitt var útilokað, að vera persónu-
legur andstæðingur hans.
Otto Jörgensen kvæntist Þór-
unni Þórðardóttur, sjómanns og
bátasmiðs í Mýrarhúsum á Sel-
tjarnarnesi, Jónssonar, hinn 15.
október 1921. Þau hjón eignuðust
tvö börn: Halldóru, sem lézt ung
að aldri og Gunnar, er tók við
embætti póst- og símstjóra í
Siglufirði, er faðir hans lét af
störfum fyrir aldurssakir. Hann
iézt fyrir nokkrum árum um aldur
fram og var að honum mikill
sjónarsviptir í Siglufirði. Gunnar
heitinn var kvæntur Freyju
Jörgensen, Árnadóttur Kristjáns-
sonar, af Lambanesætt, sem er að
góðu kunn í A-Skagafirði og í
Siglufirði. Þeirra börn eru: Ottó
Jörgensen, flugvirki í Luxemburg,
Árni Jörgensen, blaðamaður á
Mbl., Halldóra, Guðbjörg og
Gunnar, öll í heimahúsum.
Otto Jörgensen verður lagður til
hinstu hvílu í Fossvogskirkjugarði
hér í Reykjavík á morgun, mánu-
dag, við hlið konu sinnar, sem lézt
árið 1961. Honum fylgja fararósk-
ir Siglfirðinga, sem þakka honum
langa samfylgd, farsælt ævistarf
og margþætt framlag til sigl-
firzkra málefna.
Stefán Friðbjarnarson.
Minning:
Guðmimdur Guðmimds-
son frá Ólafsfirði
Fæddur 8. desember 1959.
Dáinn 9. júní 1979.
Það er eins og öll þau orð sem í
hugann leita séu of smá og fátæk-
leg til að lýsa þeim tilfinningum
er vakna vegna sviplegs fráfalls
félaga okkar Guðmundar Guð-
mundssonar.
Miskunnarlaust og skyndilega
er hann horfinn, félaginn góði, er
haustið ’76 hélt ásamt okkur að
heiman í menntaskóla, á vit
þeirrar framtíðar er beið. Ljúfar
eru minningarnar frá mörgum
glöðum samverustundum inni á
Akureyri þar sem við þrír deildum
saman herbergi og Gummi Gumm
með sína léttu lund og ljúfu
framkomu var kátastur allra, lífið
og sálin í hópnum.
Margt er einnig að minnast frá
leik og starfi undanfarin sumur
því einnig þá héldum við þrír
hópinn.
Þakklæti til hans er okkur nú
efst í huga, þakklæti fyrir vináttu,
drenglyndi og gleðistundir.
Við kveðjum þig Gummi að
leiðarlokum með orðum skáldsins
Stefáns G. Stefánssonar.
„Af kærleik þínum engu verður
eytt.
Hann er og varir mér í tímans
sjóði.
Þó von um framtíð,
um þig byggð, sé breytt,
ég bý að auð frá samvist okkar,
góði“.
Eftirlifandi móður og fjölskyldu
Guðmundar sendum við okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Gummi og Benni.
LEGSTEINAR
S. HELGASON H/F,
STEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI48, KÓPAVOGI,
SÍMI 76677.
+
Þökkum auðsýnda samúö viö fráfall og jaröarför eiginmanns míns
og fööur okkar,
JÓNS VALDIMARS JÓHANNSSONAR,
Tjarnargötu 2, Sandgerði.
Guörún Magnúsdóttir,
Anna Magnea, Ásdís,
Sigrún Jóhanna, Svanhildur,
Ragnheiður Elín Jónsdætur.
+
Innilegar þakkir fyrir ómetanlegan vinarhug og samúö viö fráfall og
jarðarför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur, afa og
langafa,
ÞÓRÐAR GEORGS HJÖRLEIFSSONAR,
skipstjóra.
Lovfsa Halldórsdóttir,
Hrafnhildur Þórðardóttir, Lárus Hallbjörnsson,
Hjördís Þórðardóttir, Guömundur Karlsson,
Andrea Þórðardóttír, ísleifur Bergsteínsson,
Hjörleifur Þóróarson, Jensína Magnúsdóttir,
Ásdís Þórðardóttir, Valdimar Hrafnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.