Morgunblaðið - 17.06.1979, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.06.1979, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 1979 r Astædulaust að reka mikinn áróður fyrir aukinni kartöflur ækt „HJÁ okkur, sem ræktum kartöflur í sandgörðum er niður- setning hálfum mánuði seinna en í meðalári en þar sem eru moldargarðar er ekki hægt að setja niður enn og verður ekki á næstunni. Klaki er enn mjög grunnt í túnum og víða er ekki nema um 15 cm niður á hann. Hér í sandgörðunum eru 30 til 40 cm niður á klaka. Ástæðan fyrir því að klakinn er ekki meiri þrátt fyrir kuldann er fyrst og fremst hin miklu snjóalög í vetur,“ sagði Ágúst Sigurðsson, bóndi í Birtingarholti í Hruna- mannahreppi, þegar blaðamaður hitti hann fyrir helgina, þar sem hann var ásamt heimilisfólki sínu að setja niður kartöflur. Ágúst býr ásamt Magnúsi bróður sínum í Birtingarholti og er Ágúst með um 30 kýr auk þess, sem hann er með kartöflur á 4 hekturum. Ágúst sagði að yfirleitt væru þeir búnir að setja niður kartöflur vel fyrir mánaðamót og venjulega byrjuðu þeir að setja niður um miðjan maí en nú hefði ekki verið byrjað fyrr en 30. maí. Sagðist Ágúst gera ráð fyrir að niðursetningu lyki um miðja næstu viku. „Um upp- skeruhorfur er ómögulegt að segja, því það fer allt eftir sumrinu. Ef sumarið verður gott ætti hún að verða miðlungsgóð en ef veðrátta verður óhagstæð í sumar má gera ráð fyrir að sprettan verði lök,“ sagði Ágúst. „Manni sýnist að með þessu árferði, sem nú er, gæti kúfurinn af offramleiðslunni minnkað. Ég held að það sé dálítið vafasamt að grípa til stórfelldra aðgerða til að draga úr framleiðslu búvara meðan árferðið er ekki betra, því það þarf raunar ekki —Rætt við Ágúst Sigurðsson í Birtingaholti Ágúst Sigurðsson. nema eitt slæmt ár til að hér verði skortur á vissum tegundum búvara." Aðspurður um hvort unnt væri að auka kartöflurækt sem aukabúgrein eins og ýmsir forystumenn í landbúnaði hafa lagt til, sagði Ágúst að hann teldi rétt að fara varlega í að auka kartöfluræktina, því að í allgóðum árum fullnægir sú ræktun, sem þegar er til staðar, innanlandsmarkaðnum, nema hvað það er ekki hægt að reikna með íslenskum kartöflum í mánaðartíma yfir hásumarið vegna takmarkaðs geymsluþols þeirra. „Ég sé ekki að það sé ástæða til að hlaupa upp til handa og fóta í þessum efnum eins og mátt hefur skilja á sumum, allavega þarf að fara varlega í að reka mikinn áróður fyrir aukningu í kartöflurækt- inni. Afkoma bænda í ár getur orðið lök, því eins og nú horfir verður trúlega erfitt að greiða fullt verð fyrir sauðfjárafurðir frá því í fyrra. Það vantar fé til að greiða þær eftirstöðvar, sem bændur eiga inni hjá sölu- félögunum en trúlega hefði verið auðveldara að greiða þetta, ef Alþingi hefði samþykkt að heimila Framleiðsluráði að taka lán vegna þessa. Undanfarin tvö ár hefur afkoma bænda verið þokkaleg enda hefur verið greitt fullt grundvallarverð fyrir afurðirnar. „Menn virðast ætla að komast af með hey. En veturinn hefur í heild verið sérlega gjafafrekur og þeir, sem eru með mörg hross, hafa farið illa út úr vetrinum. Sauðgróður er í augsýn og menn fara almennt að geta sleppt fé í næstu viku. Um kúahaga er ekki gott að segja en þó er ljóst að kýr verða í vor settar út með seinna móti. Þessi harðindi eru þegar farin að segja til sín hvað varðar framleiðsluna, Mjólkin er t.d. töluvert minni nú en á sama tíma í fyrra og ég held að ástæðan sé kannski fyrst og fremst sú að það hefur frekar fækkað í fjósi hjá mönnum. Það hefur verið slátrað miklu af stórgripum í vetur og menn hafa frekast látið lélega gripi fara, þegar þeir sáu fram á hvað veturinn varð gjafafrekur. Ég skal hins vegar ekki segja, hvort áróðurinn um offramleiðslu er farinn að segja til sín,“ sagði Ágúst að lokum. A takmörkunum að sumarið sé nógu langur vaxtartími — Rætt við Magnús Sigurðssoná Grafarbakka „Það má nánast aldrei stoppa," sagði Magnús Sigurðs- son er hann sýndi okkur plöntur, sem ræktaðar hafa verið í vermireitum. „Það er fljótsagt að þetta tíðarfar hefur haft þau áhrif að öll vinna hjá okkur, sem stund- um útirækt á grænmeti, er seinni. Við höfum ekki nema í undantekningartilvikum orðið fyrir beinu tjóni vegna veðrátt- unnar og þó við séum í mörgum tilvikum rúmri viku seinni með útplöntun, þarf það ekki að þýða það að afurðirnar komi síðar á markað,“ sagði Magnús Sigurðs- son, garðyrkjubóndi á Grafar- bakka í Hrunamannahreppi, er við heimsóttum hann í síðustu viku. Magnús ræktar einkum hvítkál, gulrætur, rófur og blóm- kál og eru plönturnar forræktað- ar í gróðurhúsi og vermireitum. „Við þessir garðyrkjumenn hér, sem erum með útirækt, höfum á síðast liðinni rúmri viku komist langt með útplönt- unina en þetta á þó bara við þar sem menn eru með volg lönd ýmist frá náttúrunnar hendi eða upphituð. Hjá þeim, sem eru með kalt land, t.d. venjulega moldargarða, þýðir í fæstum tilvikum að hugsa um útplöntun eða sáningu á næstunni. Þar eru ekki nema 20 til 25 cm niður á klaka og þetta land er alveg ósigið. Slíkt land verður ekki tilbúið til ræktunar fyrr en um miðjan júní.“ Magnús sagði að um upp- skeruhorfur væri of snemmt að spá, því það færi allt eftir tíðinni í sumar en yfirleitt færu fyrstu garðávextir að koma á markað 4 til 6 vikum eftir útplöntun, ef ræktað væri í volgum löndum. „Okkur þykir seint að fá ekki uppskeru fyrr en i síðustu viku júlí en það þykir gott að fá einhverja uppskeru um miðjan júlí.“ Um áhrif þessa tíðarfars á uppskeru garðávaxta almennt sagði Magnús að ljóst væri að hjá þeim, sem ekki væru með volg lönd yrði uppskeran bæði seinni og minni nema tíð í sumar yrði með eindæmum góð. Alla- vega sagði Magnús að ljóst væri að uppskera á gulrófum yrði venjulega minni en í meðalári, þegar á heildina væri litið. „Afkoman í þessari grein er upp og ofan. Ef framleiðslan er meiri en nemur eftirspurninni á innanlandsmarkaðnum í einn tíma, kemur það sem ekki selst niður á okkur sem afföll, því fæstar þeirra tegunda, sem við ræktum hér þola nema mjög takmarkaða geymslu. Helst eru það gulrófur, sem hægt er að geyma fram eftir vetri en rýrn- un verður þó alltaf töluverð. En sé miðað við aðrar greinar land- búnaðar er afkoma okkar garð- yrkjubænda í meðallagi. Vitan- lega hefur einn og einn maður haft ágætar tekjur í þessari grein en það hefur þá verið með mikilli vinnu. Útiræktin krefst óskaplegrar vinnu allt frá því að sáð er í apríl og þangað til að búið er að koma vörunum á markað. Það má nánast aldrei stoppa," sagði Magnús og bætti því við að tíðarfar eins og í vor hefði ekki dregið úr þessari vinnu og þá sérstaklega hjá þeim, sem rækta í vermireitum. Aðspurður um hvort unnt væri að lengja þann tíma, sem íslenskt grænmeti væri á mark- aði, sagði Magnús, að tíðarfarið skammtaði alveg þessa fram- leiðslu og það væri því erfitt að flytja uppskerutímann meira til heldur en þegar væri orðið. Plönturnar væru nú undantekn- ingarlítið forræktaðar áður en þeim væri plantað út en þrátt fyrir það væri nánast á tak- mörkunum að sumarið væri nógu langur vaxtartími fyrir ýmsar tegundir nema veður væri þvi betra. Magnús agði að á þessum áratug hefði veðrátta verið kaldari en til dæmis á næsta áratug þar á undan, ef frá væru talin árin rétt fyrir 1970. Þetta breytta tíðarfar hefði meðal annars þýtt að gulrófna- uppskera hefði síðustu árin ekki verið svipuð því sem var í góðum árum eins og t.d. um 1965. „Það má nánast aldrei stoppa^ sagði Magnús Sigurðsson er hann sýndi okkur plöntur, sem ræktaðar hafa verið í vermireitum. SL, ý ■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.