Morgunblaðið - 17.06.1979, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.06.1979, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ1979 pJtrgtt Útgefandi ttltyfofrife hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvœmdaatjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson Ritstjórn og skrifstofur Aðalstrssti 6, sími 10100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiósla Sími 83033 Askriftargjald 3000.00 kr. ó mánuði innanlands. 1 lausasölu 150 kr. eintakið. A 17. Aþessum þjóðhátíðar- degi hvílir skuggi yfir þjóðlífinu. Enn einu sinni hafa langvinnar vinnu- deilur sett strik í reikn- inginn. Þannig hefur far- mannaverkfallið nú staðið í sjö vikur og er ekki í sjónmáli, hvernig unnt sé að leysa það. A hinn bóg- inn hafa hinar gífurlegu verðhækkanir á olíu greitt atvinnulífinu og þá sér- staklega sjávarútveginum slíkt högg, að óhjákvæmi- legt er að grípa til sér- stakra ráðstafana af þeim sökum. Enginn vafi er á því, að við Islendingar stöndum nú í þeim sporum, að við verðum alvarlega að fara að hugsa okkar ráð til þess að glata ekki efna- hagslegu sjálfstæði okkar. Á miðju sumri 1977 hafði náðst umtalsverður árangur í baráttunni við verðbólguna, þar sem tek- izt hafði að ná henni niður um 50%. Sólstöðusamn- ingarnir og þvermóðska Alþýðusambandsins og Verkamannasambandsins ollu því, að sá árangur varð að engu í nýju verð- bólguflóði, sem enn er í örum og ótrúlegum vexti. Vígorðið um samningana í gildi var aldrei annað en grátt kosningabragð, eins og öllum er nú orðið ljóst. Það gat ekki hjá því farið í þessum atburðum og einkanlega í ljósi þeirrar þróunar, sem orðið hefur á síðustu mánuðum, að trú manna á lýðræðis- lega stjórnarhætti, eins og löggjafar- og fram- kvæmdavaldi er háttað hér á landi, biði nokkra hnekki. Mönnum þykir sem ýmis hagsmuna- og fjöldasamtök hafi dregið til sín valdið úr höndum alþingis og ríkisstjórnar, svo að ógjörningur sé að koma við viðhlítandi ráð- stöfunum í efnahags- eða atvinnumálum, einkan- lega þegar svo langt var gengið að stéttasamtök og einstakir stjórnmálamenn brýndu menn til að taka þátt í ólöglegum aðgerð- um til að brjóta niður ákvarðanir Alþingis. Alþingi er spegilmynd af þjóðinni á hverjum tíma og ríkisstjórnir starfa í umboði þess. Þeg- ar menn horfast í augu við getu- eða úrræðaleysi stjórnvalda, hitta þeir sjálfa sig fyrir: Þetta var það, sem þeir kusu yfir sig. En ekki til frambúðar. I því eru yfirburðir lýð- ræðisríkjanna fram yfir einræðis- og lögregluríkin fólgnir, að þjóðinni gefst kostur á að skipta um forystu, kjósa nýja menn til starfa, þegar þeir gömlu hafa brugðizt. Enginn vafi er á því, að við Islendingar eigum erf- iða tíma fyrir höndum vegna efnahagsvandans, sem sumpart er utanað- komandi en sumpart bú- inn til af okkur sjálfum. En að sumu leyti stöndum við vel að vígi til að takast á við hann. Þótt land okkar sé óneitanlega erfitt búsetu fyrir fá- menna þjóð, eru kostir þess ríkir, ef við þorum að hverfa frá rányrkjunni og göngum í það að virkja orkulindirnar án fordóma og þráhyggju. I dag eru 35 ár síðan lýðveldi var stofnað á Þingvöllum. Morgunblað- ið óskar íslendingum öll- um gleðilegrar hátíðar með ósk um, að úr erfið- leikunum rakni, en menn geti áfram búið við at- vinnuöryggi og batnandi lífskjör. júní Rey ki av í kurbréf Laugardagur 16. júní 17. júní Það er ekki sízt ástæða til að huga að sjálfstæðisbaráttu okkar Islendinga á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Ymsar skýringar eru á því, hvers vegna við misstum sjálfstæði okkar á 13. öld, en fullvíst má telja, að tvær orsakir séu helztar: í fyrsta lagi innan- landsátök og í öðru lagi óhagstæð og erfið viðskipti við aðrar þjóðir. Báðar þessar orsakir eru fyrir hendi nú um stundir og því fyllsta ástæða til að vera vel á verði og huga rækilega að því, hvernig við getum tryggt sjálfstæði okkar, svo að við glutrum því ekki niður eins og forfeður okkar í stétta- og ættaátökum og vegna lélegra kjara í utanríkisverzlun. Á þetta var m.a. reynt að benda í síðasta Reykjavíkurbréfi og verður það ekki endurtekið hér. Þá var höfð hliðsjón af þeim alvarlegu áföll- um, sem við höfum orðið fyrir vegna olíukaupa frá Sovétríkjun- um og á það bent, að enda þótt olía sé mikilvæg og skortur á henni hafi hækkað heimsmarkaðsverð og aukið erfiðleika í ýmsum lönd- um, þá séu þeir langt frá því óyfirstíganlegir og full ástæöa sé til að ætla, að betur sé hægt að halda á þeim málum fyrir hönd Islendinga en gert hefur verið undanfarna mánuði. Þá var ekki síður lögð áherzla á, að fiskurinn sem Rússar kaupa af okkur Is- lendingum er gæðavara og óvíst, hversu lengi hún verður á boðstól- um fyrir það verð, sem verið hefur. Að sjálfsögðu var að því vikið, að fáránlegt væri að olía hækkaði úr öllu valdi á sama tíma og fiskverð héldist óbreytt vegna samningsbundinnar verðákvörð- unar við Sovétríkin. Þó að fiskur hafi stórhækkað á Bandaríkjamarkaði, eða milli 10 og 20% undanfarna mánuði, hefur verðið á Rússlandsmarkaði haldizt óbreytt, svo fáránlegt sem það er með tilliti til þess, að olíuverðið hækkar nú meira en nokkru sinni. Það er ekki ástæðulaust, að ís- lendingum þykir illa með sig farið, þegar heimsmarkaðsverð á fiski stórhækkar á Bandaríkjamarkaði en fiskverði er á sama tíma haldið niðri á Rússlandsmarkaðnum vegna þeirra samninga, sem við höfum gert við Sovétmenn. Nú er svo komið, að verzlun okkar og viðskipti við Sovétríkin eru okkur mjög óhagstæð, og ef við snúum ekki við blaðinu, getur svo farið, að við glötum efnahagslegu sjálf- stæði í hendur Sovétmanna, en öllum er augljóst, hvað fylgja mundi í kjölfarið. I síðasta Reykjavíkurbréfi var lögð á það höfuðáherzla, að for- sendur sjálfstæðis lítillar þjóðar eins og okkar Íslendinga er efna- hagslegt sjálfstæði. Það hefur sagan kennt okkur og þess vegna þurfum við að vera vel á verði. Það hefur verið stefna Morgunblaðsins að brýna fyrir mönnum að telja ekki viðskipti okkar við Sovétríkin nú meö þeim hætti, að viðunandi sé og íslendingar eigi að bukka sig °g beygja þeirra vegna, eins og olíufurstarnir og ráðherrar kommúnista hafa gert undanfarið. Þetta Reykjavíkurbréf verður ekki endurtekið hér, enda ástæðulaust, svo mjög sem það hefur verið kynnt, ekki sízt í Þjóðviljanum, sem náði ekki upp í nefið á sér vegna þeirrar „hættulegu" stefnu sem Morgunblaðið boðaði og kall- aði skrif blaðsins raunar „fárán- leg“, en olíuráðherra Alþýðu- bandalagsins notaði fjölmiðla- samtal til þess að kalla ritstjóra Morgunblaðsins „vitsmunaverur" í tilefni af því, að þeir hafa skipað sér í flokk með Hólmfasti Guð- mundssyni á Brunnastöðum og talið sér skylt að krefjast þess af olíukóngum og ráðherrum, að þeir slái skjaldborg um íslenzka hags- muni, en láti ekki deigan síga og telji allt sjálfsagt, sem frá Rúss- um kemur um þessar mundir. Hólmfastur á ekki lengur upp á pallborðið hjá „þjóðernissinnun- um“ á Þjóðviljanum og er ástæða til að minna á það nú á þjóðhátíð- ardegi íslendinga. Morgunblaðs- menn kippa sér ekki upp við þau köpuryrði, sem heyrast úr herbúð- um Alþýðubandalagsmanna og Þjóðviljans um þessar mundir og óskar blaðinu sérstaklega til hamingju með þá breiðfylkingu, sem það hefur að baki sér, ein- staka olíuseljendur á íslandi, sem telja af einhverjum ástæðum hentugast að taka Morgunblaðið í karphúsið, vegna stefnu þess og nota til þess Þjóðviljann og aðra fjölmiðla, enda þótt þeim líki ekki kompaníið við kommúnista betur en svo, að fullyrðingin um banda- lag þeirra og kommúnistaráðherr- anna er úthrópuð sem „100% lygi“, eins og sagt var í samtali í Þjóðviljanum sællar minningar. Minna mátti ekki gagn gera! Það er skemmtilegt, hve tímarnir breytast og allt virðist á hverfanda hveli. Nú er í raun og. veru gaman að lifa. Heródes og Pílatus standa í faðmlögum á útsíðum Þjóðviljans og engu er líkara, en viðskiptaráðherra blaðsins og sumir eigendur olíu- fyrirtækjanna hafi svarizt í heil- agt fóstbræðralag um að standa rækilegan vörð um arðrán Sovét- manna á íslandi, eftir að olíuverð þaut upp úr öllu valdi vegna viðmiðunar braskmarkaðarins í Rotterdam, sem allir forystumenn vestrænna ríkja hafa þungar áhyggjur af, og virðast raunar reiðubúnir til að kanna rækilega, hvort ekki sé unnt að hnekkja svo Rotterdammarkaðinum, að ræn- ingjarnir, sem þar hafa tögl og hagldir komist ekki upp með að grafa undan lýðræði og efnahags- legu sjálfstæði vestrænna þjóða. Nú er olían margseld, tilbúinn skortur „settur á svið“ og verðlag- ið í Rotterdam a.m.k. helmingi hærra en opinbert verðlag olíu- ríkjanna, OPEC. Þegar Morgun- blaðið bendir á þetta, er það kallað öllum illum nöfnum, en sættir sig að sjálfsögðu ágætlega við að vera í flokki með Hólmfasti Guð- mundssyni og öðrum andstæðing- um einokunarvaldsins fyrr og síðar. Svo mega þeir Þjóðvilja- menn reka hörmangarastefnu, eins og þeir vilja, en íslenzka þjóðin mun ekki sætta sig við það hlutskipti til lengdar að vera arðrænd af rússneskum hör- möngurum 20. aldar, frekar en hinum dönsku fyrr á tímum. Allt þetta skulum við hugleiða í dag, 17. júní, á 35 ára afmæli íslenzka lýðveldisins. Megi þessi dagur minna okkur á hlutverk íslenzku þjóðarinnar og hvernig hún helzt og bezt megi vernda sjálfstæði sitt — og þá ekki sízt fyrir þeim fulltrúum arðránsins, sem nú skipa öndvegi í Alþýðu- bandalaginu og stofnunum þess. Fadmlag eða hrygg- spenna? Við skulum vona, að faðmlagið á síðum Þjóðviljans sé ekki hrygg- spenna. Þó er aldrei að vita nema full heilindi búi ekki á bak við þá samstöðu, sem birtist á síðum blaðsins, milli sumra olíuseljenda og þessa aðalmálgagns Alþýðu- bandalagsins á Íslandi. Það er langt frá því, að eining andans sé með þeim hætti, að fullkomið megi teljast og sæist það af örfáum tilvitnunum, en ástæðu- laust er að fylla Reykjavíkurbréfið af svo ómerkilegum hlutum, og verða tvær eða þrjár látnar nægja. En áður en við minnumst á þær, vill Morgunblaðið benda olíu- seljendum og forstöðumönnum Þjóðviljans á að ræða svo sem eins og á einni útsíðu um það, hvort þeir séu ekki fullkomlega sam- mála um afstöðuna til þjóðnýting- ar olíufélaganna eða hvort Þjóð- viljinn sé kannski genginn af trúnni og vilji umfram allt eiga hauka í horni, þar sem eigendur olíufélaganna eru, og þannig verði stefnan endurskoðuð eins og margt annað í þeim herbúðum um þessar mundir! Ef svo er mætti taka undir með Þórbergi og segja: Og þá varð bylting í ríki útvaldra! I einu af þessum brengluðu fjölmiðlasamtölum segir Svavar Gestsson, viðskiptaráðherra og hörmangari, í Dagblaðinu fimmtudaginn 14. júní sl. m.a., að hann hafi „alltaf verið fylgjandi viðræðum við Sovétmenn um hugsanlega endurskoðun á olíu- verðinu". Sem sagt: ráðherrann hefur verið fylgjandi viðræðum og „hugsanlegri endurskoðun" og er hér auðvitað um að ræða stórkost- lega tímamótayfirlýsingu, enda þótt Morgunblaðið ætli að leyfa sér þann munað, að finnast fátt um þessa stórhuga afstöðu ráð- herrans. Ef hann hefði verið fylgj- andi viðræðum við Sovétmenn, hefði hann að sjálfsögðu verið búinn að skreppa til Moskvu og ræða við olíukóngana þar og arð- ránsmenn íslenzkrar alþýðu, en það hefur ekki hvarflað að honum; hann situr sem fastast heima á Fróni og bíður að sjálfsögðu eftir „hugsanlegu tækifæri". En gæti verið „hugsanlegt", að ráðherrann hafi í raun og veru engan áhuga á að ræða við Rússa um málið, a.m.k. er þessi spurning ekki alveg út í bláinn, þegar haft er í huga, að hvorki hann né aðrir ráðherrar hafa sýnt merki þess, að þeim sé órótt. Þeir’hafa einungis haldið fast við stjórnarstefnuna, þ.e. að fleipra í blöðum um flest mál, í stað þess að láta verkin tala. Fólkið í landinu krefst þess, að tekið sé til hendi, meira sé fram- kvæmt, en minna hjalað í fjöl- miðlum. En látum það vera. Stjórnar- stefnan er með þessu marki brennd og því verður sjálfsagt ekki breytt. Við skulum aftur á móti snúa okkur að frekari tilvitn- unum. Svavar Gestsson segir, einnig í fyrrnefndu blaði hörmangara, að því megi ekki gleyma, að olíuvandinn sé alþjcð- legur, barizt sé um hvern dropa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.