Morgunblaðið - 28.06.1979, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1979
19
/
Fundur Olafs og Bakke:
„Ekkert fréttnæmt,,
„NEI, ÞAÐ er ekkert fréttnæmt
að segja af þeim fundi" sagði
Ólafur Jóhannesson forsætisráð-
herra í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi, er hann var spurður
hvort hann gæti sagt um hvað
viðræður hans og Hallvards Bakke
viðskiptaráðherra Noregs í gær-
dag snerust.
Sagði Ólafur að ekkert frásagn-
arvert hefði fram komið í þeim
viðræðum enn, enda hefðu þeir
aðeins ræðst við mjög stuttlega í
gærmorgun.
Eyjólfur K. Jónsson:
„Vituð ér enn
eða hvat?”
Mayen-svæðinu, lýsum
það sameign Norðmanna
og íslendinga. Eyjuna
sjálfa og 12 mílna land-
helgi mega Norðmenn
eiga, en hafsvæðið þar
fyrir utan og hafsbotninn
eigum við saman. Þetta
svæði verði undir sam-
eíginlegri, pólitískri
stjórn Islendinga og
Norðmanna um aldur og
ævi og tengir þjóðirnar
órofa böndum, þar verði
jafnræði.
Annar kostur er ekki
fyrir hendi, það verða
Norðmenn að skilja.
„Vituð ér enn eða hvat?“
Eyjólfur K. Jónsson
ÍSLENDINGAR gera
Norðmönnum boð. Lýsum
strax yfir sameiginlegri
lögsögu á öllu Jan
Bjöm Teitsson skólameist-
ari Menntaskólans á í safirði
BJÖRN Teitsson mag. art. hefur
verið settur skólameistari
Menntaskólans á ísafirði um eins
árs skeið frá 1. september 1979
að telja.
Bjönn er fæddur að Brún í
Suður-Þingeyjarsýslu árið 1941.
Hann lauk magistersprófi í ís
lenskum fræðum frá Háskóla ís
lands 1970 og var árið 1971 við
framhaldsnám og störf við
Björgvinjarháskóla. Árið 1972 og
aftur 1974 til 1976 var hann settur
lektor í sagnfræði við Háskóla
íslands.
Auk Björns sóttu um starf
skólameistara M.í. Arndís
Björnsdóttir B.A., Bergljót S.
Kristjánsdóttir B.A., Haraldur
Jóhannsson hagfræðingur og
Sveinn Eldon M.A.
Björn Teitsson
Eigandi Fjalakatt-
aríns stefnir Borginni
ÞORKELL Valdimarsson eigandi
hússins Fjalakattarins, Aðal-
stræti 8, hefur ákveðið að höfða
skaðabótamál á hendur Reykja-
víkurborgar og krefst hann rúm-
Greenpeace
kynnir ad-
gerdir í dag
Greenpeacesamtökin hafa ekki
tilkynnt til hvaða aðgerða gripið
verður í kjölfar lögbannsins á
aðgerðir samtakanna á hvalamiðun-
um. Samtökin hafa boðað til
blaðamannafundar í dag þar sem
gefin verður yfirlýsing, væntanlega
um aðgerðir á næstunni.
lega 720 milljóna króna í skaða-
bætur.
Eftir því, sem Morgunblaðið
hefur fregnað, mun skaðabóta-
krafan reist á þeim grundvelli
m.a. að eigendur Aðalstrætis 8
hafi allt frá árinu 1944 óskað eftir
því að fá leyfi tii að byggja á
lóðinni, þeirri ósk hafi ekki verið
sinnt af borgaryfirvöldum en á
sama tíma hafi verið veitt leyfi til
að reisa nýbyggingar á öðrum
lóðum við götuna.
Mun málið verða þingfest í
bæjarþingi Reykjavíkur í dag en
stefnendur eru sem fyrr sagði
Þorkell Valdimarsson en einnig
stefnir með honum faðir hans,
Valdimar Þórðarson, fyrri eig-
andi, vegna skaðabóta fyrir þann
tíma, sem hann átti eignina á því
tímabili er málið nær til.
Ljósm. Mbl. Kristján.
Frá blaðamannafundinum þar sem gerð var grein fyrir söfnuninni fyrir byggingu Hjúkrunarheimilis
aldraðra í Kópavogi. Ásgeir Jóhannesson. formaður stjórnar heimilisins. situr við enda borðsins, en
opnuð hefur verið skrifstofa í Hamraborg 1, í Kópavogi þar sem tekið er við framlögum í söfnunina.
Víðtæk fjársöfnun
meðal Kópavogsbúa
Níu félög sameinast um byggingu Hjúkr-
unarheimilis f yrir aldraða í Kópavogi
UM þessar mundir er að hefjast
almenn fjársöfnun meðal Kópa
vogsbúa í þeim tilgangi að safna
fé til að reisa hjúkrunarheimili
fyrir aldraða í Kópavogi. Að
þessu verki standa Junior
Chamber Kópavogur. Kirkjufé
lag Digranesprestakalls, Kiwan-
isklúbburinn Eldey, Kvenfélag
Kópavogs, Lionsklúbbur Kópa
vogs, Lionsklúbburinn Muninn,
Rauðakrossdeild Kópavogs, Rot-
aryklúbbur Kópavogs og Soropt-
imistaklúbbur Kópavogs.
Á blaðamannfundi til að kynna
fjársöfnunina sagði Ásgeir Jó
hannesson að formlega hefðu
félögin níu stofnað með sér sam-
tök 17. marz síðastliðinn til að sjá
um framkvæmd þessa máls og er
Ásgeir formaður þessara sam-
taka.
Undirbúningur undir stofnun
samtakanna hefur staðið síðan í
ársbyrjun 1978 en forsagan er sú,
að sögn Ásgeirs, að um langt
skeið hefur verið mjög erfitt að
koma sjúku, öldruðu fólki til
hjúkrunar á sjúkrahúsum og
mjög erfiðar aðstæður eru oft
heima fyrir til að veita því
nauðsynlega aðhlynningu og
hjúkrun. Asgeir sagði, að fram til
þessa hefðu verið htutfallslega
fáir íbúar Kópavogs í hópi aldr
aðra, en þeim fjölgaði nú ört eftir
því sem bæjarfélagið efldist og
stækkaði. Hann sagði illt til þess
að vita, að í 13.500 manna bæjar-
félagi væri ekkert sjúkrarúm og
að undangenginni könnun á veg-
um Félagsmálastofnunar Kópa
vogs á högum aldraðra þar sem
kom fram að mjög brýnt er að
reisa hjúkrunarheimili var ákveð
ið að ráðast í þessa framkvæmd.
Hugmyndin er að byggja hæfi
lega stórt heimili með 24—30
rúmum. Einnig er fyrirhugað að
hafa hjá heimilinu gróðurhús eða
blómaskála fyrir gamla fólkið. '
Þegar hefur verið fengin lóð á
einum fegursta stað í Kópavogi á
vestanverðum Kópavogshálsi,
skammt frá miðbænum nýja, og
er gert ráð fyrir að hjúkrunar
heimilið nýti væntanlega endur
hæfingarstöð heilsugæslustöðv-
arinnar í Kópavogi.
Merki söfnunarinnar.
Þá hefur ríkisskattstjóri heim-
ilað að framlög til heimilisins
verði frádráttarbær frá tekju
skatti. En fjársöfnuninni verður
hagað með þeim hætti, að söfnun-
arbaukur verður sendur á hvert
heimili í Kópavogi, en Gísli Sig
urbjörnsson á Grund gaf alla
baukana í fyrstu umferð söfnun-
arinnar, 4000 talsins, Kristín
Þorkelsdóttir hannaði merki
söfnunarinnar og Gísli Ástþórs
son sá um útgáfu sérstaks bréfs
sem sent verður með baukunum
þar sem gerð er grein fyrir
söfnuninni.
Stofnfélögin hafa þegar gefið
10 milljónir i söfnunina og fram-
lög eru farin að berast frá
einstaklingum, að sögn Ásgeirs,
en reiknað er með því að ef
söfnunin gengur vel muni það
taka eitt og hálft til tvö ár að
safna fyrir heimilinu. Bænum
hefur verið skipt niður í níu
hverfi þar sem hvert félag, sem
aðild á að samtökunum, mun
standa fyrir söfnun.
Að sögn Ásgeirs er ekki end-
anlega ákveðið hver muni sjá um
rekstur hjúkrunarheimilisins
þegar þar að kemur, en í öllu falli
yrði reynt að láta daggjöldin
standa undir kostnaði.
Stjórn Hjúkrunarheimilis aldr
aðra í Kópavogi skipa Ásgeir
Jóhannesson formaður, Hildur
Hálfdánardóttir ritari, Guð
steinn Þengilsson varaformaður,
Soffía Eygló Jónsdóttir gjaldkeri
og Páll Bjarnason meðstjórnandi.
Sigurður Líndal:
AÐ KÆFA UMRÆÐUR
SKÖMMU eftir sjónvarpsþáttinn
„Verkföll — verkbönn", sem var á
dagskrá 12. júní sl., fór Guðjón
Einarsson fréttamaður þess á leit
við mig, að ég kæmi í sjónvarps-
þátt, sem nefndist „Deilumál í
deiglunni", sem verða ætti þriðju-
daginn 26. júní (hann var í gær) og
ræddi þar í 25 mínútur við full-
trúa Alþýðusambands íslands um
þau efnisatriði, sem ég hafði
fjallað um í áðurnefndum sjón-
varpsþætti. Svaraði ég játandi.
Nokkrum dögum síðar skýrði Guð-
jón mér frá því, að Alþýðusam-
bandið neitaði með öllu þátttöku
og ekki yrði af þættinum. — Þessa
afstöðu Alþýðusambandsins skil
ég fullkomlega, ekki síst eftir að
hafa lesið skrif Jóhannesar Sig-
geirssonar hagfræðings þess, sem
birzt hafa í nokkrum blöðum, en
þeim mun ég senn gera viðeigandi
skil.
Hitt sýnist mér vera nokkurt
athugunarefni fyrir yfirstjórn
Sjónvarpsins, hvort aðiljar, sem
veitt er áhrifastaða í þjóðfélaginu,
eigi að losna við að standa reikn-
ingsskil gerða sinna með því einu
að neita þátttöku í umræðum. Er
ekki allt eins eðlilegt, að umræðu-
þáttur fari fram, en þeirra sess sé
þá auður?
Slík afstaða felur vissulega í sér
svar — svar, sem allir skilja.
Sigurður Líndal.