Morgunblaðið - 28.06.1979, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ1979
Húnaversgleðin
’79 um helgina
HIN árlega Húnaversgleði verð-
ur haldin í sjöunda skipti um
helgina, föstudag 29. og laugar-
dag 30. júní, í Húnaveri í A-Hún.
Að þessu sinni skemmta Brim-
kló og Halli & Laddi, en Gísli
Sveinn Loftsson mun sinna þörf-
um diskóunnenda með diskóteki
og ljósasýningu.
Ágæt aðstaða er á staðnum
fyrir tjaldbúa og aðra ferðamenn,
næg tjaldstæði og veitingasala.
Dansleikir verða bæði kvöldin þar
sem Brimkló leikur fyrir dansi á
milli þess sem brandarakarlarnir
Halli & Laddi kitla hláturtaugar
mótsgesta og Gísli Sveinn hamast
í diskótekinu. Síðdegis á laugar-
dag 30. juní fer fram hin hefð-
bundna knattspyrnukeppni milli
skemmtikrafta og mótsgesta.
Skemmtikraftarnir ku hafa í
hyggju að hefna rækilega fyrir
ófarirnar í fyrrasumar.
Sætaferðir á gleðina verða frá
Reykjavík, Blönduósi, Skaga-
strönd, Siglufirði, Sauðárkróki og
Akureyri.
James Dean sem Jett í „Risanum".
„Risinn,,, síðasta
mynd James Dean
Risinn neínist síðasta myndin sem bandaríski kvik
myndaleikarinn James Dean lék í og er hún sýnd um
þessar mundir í Austurbæjarbíói. Myndin er byggð á
samnefndri skáldsögu eftir Ednu Ferber. Leikstjóri er
George Stevens en kvikmyndahandritið er eftir Fred
Guiol og Ivan Moffat. Aðalhlutverkin í myndinni, auk
Dean, leika Rock Hudson,
Baker.
Ungur piltur, Jett Rink, vinnur
hjá óðalsbónda nokkrum í Texas,
Bick Benedict. Bick er giftur
fagurri ungri konu, Leslie. Jett
elskar Leslie en hatar Bick og
neitar að selja honum landskika
sinn þrátt fyrir að honum sé boðið
stórfé. Hann byggir sér húskofa
og borar eftir olíu og verður brátt
flugríkur.
Ein dóttir Bicks er ástfanginn
af Jett sem er nokkuð undarlegur í
háttum og orðinn mjög drykk
felldur. I veislu mikilli þar sem
Elizabeth Taylor og Caroll
saman eru komnir 2500 ríkisbubb-
ar úr Texas verður Jett sér til
skammar og fellur loks í dauðadái
ofan á veisluborðið. Allir gestirnir
yfirgefa boðið og dóttir Bicks
einnig )g segir þar að fullu skilið
við elskhuga sinn. Þegar heim
kemur finna þau Leslie og Bick að
þrátt fyrir mikil auðæfi Jetts mun
hann aldrei öðlast það sem þau
eiga, hamingju og rósemi hugans.
James Dean sem leikur Jett var
upprennandi stjarna í Kvikmynda
heiminum er hann lést í bílslysi í
Bakerfield 30. september 1955.
íslenzka landsliðið sem fer til Sviss. Talið frá vinstri: Ríkarður Steinbergsson fyrirliði, Örn
Arnþórsson, Símon Símonarson, Jón Ásbjörnsson, Guðlaugur R. Jóhannsson og Hjalti Eliasson. Á
myndina vantar Ásmund Pálsson.
/
Landslið Islands
í bridge tilkynnt...
Evrópumótið í bridge hefst á
sunnudaginn kemur f Lausanne
í Sviss og verður ísland meðal
þátttakenda f karlaflokki.
Var liðið tilkynnt á blaða
manna fundi í gær og verður
sjkipað eftirtöldum spilurum:
Ásmundi Pálssyni, Hjalta Elí
assyni, Guðlaugi R. Jóhanns
syni.Erni Arnþórssyniv Sfmoni
Símonarsyni og Jóni Ásbjörns
syni
í máli forseta BSÍ Hjalta
Elíassonar kom fram að ekki var
hægt að tilkynna liðið fyrr vegna
þess að það var ekki vitað fyrr en
sl. mánudag hvort af förinni yrði
en þá kom grænt ljós frá mennta
málaráðuneytinu varðandi styrk
sem Bridgesambandið hafði ósk-
að eftir. Þá vék Hjalti að blaða
skrifum sem orðið hafa varðandi
val á landsliði. Sagði hann að
skrif nokkurra blaða um leynd
væru ekki á rökum reist og
þjónuðu engum tilgangi. Sagðist
Hjalti ekki skilja þessi skrif og
ítrekaði að engin leynd hefði
verið varðandi landsliðið. Blaða
mönnum væri í lófa lagt að hafa
samband við stjórnarmeðlimi
BSI og óska eftir upplýsingum.
Undirritaður hefir lítið bland-
að sér í þessi skrif undanfarið en
getur þó ekki orða bundist varð-
andi þetta yfirklór forseta BSÍ.
Vinnubrögð stjórnar BSÍ og
landsliðsnefndar eru fyrir neðan
allar hellur. Það er ekki hægt að
ætlast til þess að blaðamenn séu
að eltast við frétt sem þessa.
Svona frétt verður að senda
fjölmiðlum í formi fréttatil
kynningar. Þetta er ekkert einka
Brldge
eftir ARNÖR
RAGNARSSON
mál BSÍ. Við skulum gera okkur
grein fyrir því að það hljóta allir
bridgespilarar á landinu að
koma til álita í landslið og þeir
eiga kröfu á því að vita að þeir
komi ekki til greina í þetta
sinn.Bridgeþáttur Morgunblaðs-
ins er opinn öllum fréttum, sem
berast og látið er vita af en það
kemur ekki til greina að blaða
maður eltist við frétt sem þessa.
Það er lágmarkskrafa að látið sé
vita af fréttinni.
Svo vikið sé aftur að Evrópu
mótinu þá stendur það í hálfan
mánuð og munu yfir 20 þjóðir
taka þátt í mótinu og allir spila
við alla 32 spila leiki. í lokuðum
sal verða skermar notaðir milli
spilara. Fyrirliði landsliðsins er
Ríkarður Steinbergsson.
Þá var og tilkynnt val á
landsliði unglinga sem fer á
Norðurlandamót unglinga sem
fram fer í Gautaborg í Svíþjóð
dagana 1. til 4. ágúst n.k. Verður
þar spilað í tveimur aldursflokk-
um, annars vegar spilarar fædd-
ir 1954 og síðar og hins vegar
spilarar fæddir 1957 og síðar.
ísland mun taka þátt í eldri
flokknum og er landsliðið þannig
skipað: Guðmundur Hermanns
son, Sævar Þorbjörnsson, Skúli
Einarsson og Þorlákur Jónsson.
Fyrirliði unglingaliðsins verð-
ur Jakob R. Möller.
Landsliðsnefnd er skipuð
þremur mönnum, fyrirliða
landsliðsins Ríkarði Stein
bergssyni, Herði Arnþórssyni og
Páli Bergssyni.
Morgunblaðið mun birta frétt-
ir frá Evrópumótinu.
Unglingalandsliðið. Talið frá vinstri: Jakob R. Möller fyrirliði, Skúli Einarsson, Þorlákur Jónsson,
Guðmundur Hermannsson og Sævar Þorbjörnsson.
Krist ján Thorlacius:
Fríhafnardeilan
Aldamótahugarfar í kiaramálum
Um hvað snerist deilan?
Þessi deila í fríhöfninni snerist
einfaldlega um það, hvort gilda
ættu nútímastarfshættir í ráðn-
ingu starfsmanna og þá miðað við,
að stéttarfélög semji um kjara
mál, eða hvort færa eigi meðferð
þessara mála í það horf, sem var
um og eftir síðustu aldamót, að
atvinnurekandinn hefði einhliða
öll ráð í hendi sér og segði
einfaldlega við hvern einstakan
starfsmann, sem hann vildi ráða í
vinnu: Þessi laun býð ég, svona er
vinnutíminn og annað eftir því.
Vilt þú ráða þig samkvæmt þessu?
„Hinn dyggi þjónn“ að dómi at
vinnurekandans fékk svo oft betra
en aðrir, ekki síst ef hann talaði
blíðlega við húsbændur sína, en
aðrir gátu farið sína leið, ef þeir
undu ekki við þá mola, sem til
boða stóðu.
Til þess voru stéttarsamtök
stofnuð í heiminum, einnig hér á
landi, að forráðamönnum frá því
að standa í því sem einstaklingar
að semja um kjör sín, laun,
vinnutíma og önnur réttindi og
skyldur.
Tímaskekkja
ríkisvaldsins.
Afstaða fjármálaráðherrans í
þessu deilumáli er tímaskekkja,
sem ber að harma. í dagblaðinu
Tímanum 26. júní s.l. eru þessi
ummæli höfð eftir fjármálaráð
herranum:
„ ... auðvitað yrði ríkið að geta
haft forræði um vinnutíma og
það hvernig vinnubrögðum væri
hagað í þjónustustofnunum ríkis-
ins...“
Þröngt atvinnurekenda-
sjónarmið
Þessi ummæli fjármálaráðherr-
ans eru í fullkomnu samræmi við
þá afstöðu, sem embættismenn
hans í fjármálaráðuneytinu hafa
haft í Fríhafnardeilunni. Starfs-
mennirnir í Fríhöfninni, stéttar-
félag þeirra, sem er Starfsmanna
félag ríkisstofnana, og heildar
samtökin (B.S.R.B.) brugðu hart
við og höfnuðu einmitt þessu
sjónarmiði. Höfnuðu því, að á
árinu 1979, á tímum atvinnulýð
ræðisí nágrannalöndum okkar,
heimtaði sjálft ríkisvaldið hér á
landi, að það fengi að beita
aðferðum aldamótatímans og
semja við einstaklinga um kaup og
kjör.
Stéttarsamtök eða
einstaklingar
Spurningin sem menn þurfa að
velta fyrir sér í sambandi við
þessa deilu er almenns eðlis og
snertir allt launafólk og raunar
alla landsmenn:
Eiga stéttarsamtök að starfa á
íslandi og á að þróast hér atvinnu
lýðræði eða vilja menn snúa hjóli
tímans 70—80 ár til baka, ríkis-
vald og einstakir atvinnurekendur
taki við hlutverki stéttarfélaga og
maður semji við mann um verð-
gildi vinnunnar.
Þetta er kjarni málsins og þó
Fríhafnardeilan snerti fáa menn
beint, er hún stefnumarkandi
fyrir allt launafólk.
Þeir 10 starfsmenn, sem ef til
vill telja sér nú hag í því að ráða
sig upp á þau kjör, sem „faktor"
fjármálaráðherrans í Fríhöfninni
býður, verða líka að hugleiða þetta
mál út frá því sjónarmiði að hér er
á ferðinni stórmál, sem snertir
alla landsmenn.
Fjármálaráðherrann átti ekki
og mátti ekki komast upp með að
notfæra sér ótryggt atvinnu
ástand á Suðurnesjum og brjóta
niður kjarasamninga.