Morgunblaðið - 28.06.1979, Page 21
I
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1979
21
Verð á hörpudiski
og rækju ákveðið
Yfirneínd Verðlagsráðs
sjávarútvegsins hefur ákveðið
eftirfarandi lágmarksverð á
rækju frá 1. júní til 30. september
1979.
Rækja, óskelflett í vinnsluhæfu
ástandi:
a) 160 stk. og færri f kg...... kr. 342.00
b) 161 til 180 stk. (kg........ kr. 296.00
c) 181 til 200 stk. (kg........ kr. 274.00
d) 201 til 220 stk. (kg........ kr. 246.00
e) 221 til 240 stk. (kg........ kr. 215.00
f) 241 til 260 stk. í kg....... kr. 194.00
g) 261 til 280 stk. í kg....... kr. 177.00
h) 281 til 310 stk. (kg........ kr. 157.00
Verðflokkun byggist á talningu
Framleiðslueftirlits sjávarafurða
eða trúnaðarmanns, sem tilnefnd-
ur er sameiginlega af kaupanda og
seljanda.
Verðið er miðað við að seljandi
Fiskmjöl
hækkar
NOKKUR hækkun hefur
undanfarnar vikur orðið á
verði fiskmjöls á alþjóða-
markaði og Gunnar Peter-
sen hjá Bernh Petersen
sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að
þessi hækkun væri um 4%
Síðustu tvo mánuði hefði hver
próteineining pr. 1000 kíló selst á
6,20 til 6,25 dollara en talið væri
að heimsmarkaðsverð nú væri
milli 6,45 dollarar til 6,50. Gunnar
sagði að þessi hækkun hefði í heild
lítil áhrif á verðmæti fiskmjölsút-
flutnings landsmanna á þessu ári,
því litlar birgðir væru til af
fiskmjöli í landinu á þessum
árstíma
skili rækju á flutningstæki við
hlið veiðiskips.
Ennfremur hefur yfirnefndin
ákveðið eftirfarandi lágmarksverð
á hörpudiski frá 1. júní til 30.
september 1979.
Hörpudiskur í vinnsluhæfu
ástandi:
a) 7 cm á hæð og yfir.... kr. 73.00
b) 6 cm að 7 cm á hæð.... kr. 58.00
Verðið er miðað við, að
seljendur skili hörpudiski á flutn-
ingstæki við hlið veiðiskips og skal
hörpudiskurinn veginn á bílvog af
löggiltum vigtarmanni á vinnslu-
stað og þess gætt, að sjór fylgi
ekki með.
Verðið miðast við gæða- og
stærðarmat Framleiðslueftirlits
sjávarafurða og fari gæða- og
stærðarflokkun fram á vinnslu-
stað.
Samkomulag varð í yfirnefnd-
inni um verð þessi en í yfirnefnd-
inni áttu sæti: Bolli Bollason, sem
var oddamaður, Ágúst Einarsson
og Óskar Vigfússon af hálfu
seljenda og Eyjólfur ísfeld
Eyjólfsson og Árni Benediktsson
af hálfu kaupenda.
Reykjavík, 27. júní 1979.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
Vísnasöng-
ur í Viðey
Vísnavinir efna til vísna-
ferðar út í Viðey n.k.
föstudagskvöld, 29. júní, ef
veður leyfir og verður lagið
tekið þar í samvinnu við undir-
spil frá Ægi gamla. Farið
verður frá Hafnarbúðum kl. 20
og eru menn minntir á að gá til
veðurs áður en þeir ferðbúast.
Nýr umdæmisstjóri Rotary
Baldur Eiríksson hefur verið
útnefndur umdæmisstjóri
Rotaryhreyfingarinnar á íslandi
tímabilið í. júlí 1979 til 30. júní
árið 1980. Baldur er félagi í
Rotaryklúbbi Akraness.
Rotaryhreyfingin verður 75 ára
á næsta ári, 1980, og nú eru
starfandi meira en 18 þúsund
Rotaryklúbbar í heiminum. Félag-
ar eru um 840 þúsund talsins í 150
þjóðlöndum.
(Ljósm. Mbls. Kristinn)
bessi glaði hópur sér um að skemmta fólki úti á landsbyggðinni á afmælishátíðum Sjáifstæðisflokksins.
Afmælishátíðir Sjálfstæðisflokksins í sumar:
Byggðir landsins sóttar
heim með gamni og glensi
í tilefni 50 ára afmælis Sjálfstæð-
isflokksins á þessu ári verða
haldnar vegiegar afmælishátíðir
um allt land í sumar. bessar
afmælishátíðir hefjast 29. júnf og
þá á I’atreksfirði og daginn eftir
verður samskonar gleði á Bol-
ungarvík. Siðan verður haldið
áfram með þessar skemmtanir
um allt landið þar tii f september
og staldrað við á 15 stöðum.
Afmælishátíðir þessar verða opn-
ar öllum án tillits til hvar þeir
skipa sér í stjórnmálum
Mjög verður vandað til skemmti
atriða á þessum afmælishátíðum.
Hljómsveit Ólafs Gauks og söng
konan Svanhildur munu syngja og
leika auk þess sem þau bregða sér
í hin ólíklegustu gervi.
Þeim til fulltingis verða þaul
vanir skemmtikraftar, þau Þóra
Friðriksdóttir, Jón Sigurbjörns
son og Jörundur. Þau munu flytja
stutt ieikatriði, glens, grín og
gaman. Ennfremur mun Diskótek-
ið Dísa verða með í ferðinni og sjá
fyrir nyjustu diskómúsíkinni á
markaðnum. Það mun meðal ann-
ars leika dynjandi músík á meðan
félagar úr Karon-samtökunum
sýna nýjustu tískuna. Og þessi
dálaglegi kokkteill verður síðan
kryddaður með diskódansi a la
Travolta.
Skemmtiatriðin verða byggð
upp á þeim grundvelli að vera
stutt en á milli verður skotið
diskódansi og tískusýningum. Öll
atriðin eru sérstaklega samin og
æfð fyrir þessar afmælishátíðir.
Á eftir skemmtidagskránni,
sem stendur frá kl. 9 til 10.30
verður stofnað til dansleikjar til
Tveir bát-
ar seldu
TVEIR bátar seldu í gær í Fleet-
wood en það voru Hafberg frá
Grindavík, sem seldi 41 tonn fyrir
17 milljónir króna, meðalverð
aflans var 417 krónur hvert kg.
Hinn báturinn var Þórir frá
Hornafirði, sem seldi 45 tonn og
fékk fyrir þau 17 milljónir, meðal-
verð 380 krónur.
kl. 02. Selt verður inn á ballið
sérstaklega þannig að fólk getur
látið sér nægja að fara á annað
hvort. Á böllunum sér hljómsveit
Ólafs Gauks um músíkina með
dyggri aðstoð Diskóteksins Dísu
með ljósasýningu og öllu með-
fylgjandi.
Aðgöngumiðaverði verður mjög
stillt í hóf á þessum skemmtunum.
Þannig mun kosta 1500 kr. inn á
skemmtunina og er þar innifalið
eitt bingóspjald. Miði á ballið
kostar 5000 kr. og honum fylgir
happdrættismiði. Aðalvinningur
er ferð til Mallorca á vegum
ferðaskrifstofunnar Urvals, en
auk þess verða margir smærri
vinningar.
Á skemmtununum verða flutt
tvö stutt ávörp og nú um helgina
munu þeir Ellert B. Schram og
Matthías Bjarnason flytja ávörp.
Sjálfstæðisflokkurinn hélt fyrir
nokkrum árum svonefnd Hér-
aðsmót sem á margan hátt voru
svipaðs eðlis og þessi afmælishá
tíðir. í tilefni 50 ára afmælisins
verður þó vandað alveg sérstak
lega til dagskrárinnar.
_______INNIMARKAÐUR
Opnar á morgun
í Iðnaðarhúsinu v/Hallveigarstíg
Gífurlegt úrval af fatnaöi og fleira á I
ótrúlegu veröi. I
Innimarkaður í Iðnaðarhúsinu I