Morgunblaðið - 28.06.1979, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1979
29
fólk í
fréttum
+ ÞETTA ógæfusama fólk hefur svo sannarlega verið „fólkið í fréttunum/4 að
undanförnu. — Myndin er tekin í Hong Kong í bráðabirgðahúsnæði sem
yfirvöldin hafa skotið yfir 10.000 flóttamenn frá Víetnam í einum af
hafnarskálunum í borginni. Þrengslin í þessum flóttamannabúðum eru
yfirgengileg. — Þar í borg eru nu rúmlega 50.000 flóttamenn frá Víetnam, sem
bíða og bíða eftir því að fá einhversstaðar að setjast að fyrir fullt og allt. — Og nú
er röðin komin að íslendingum að svara áskorun Sam. Þjóðanna um að bjóða
fram aðstoð.
Heimsókn
til
vestursins
+ í NORSKUM blöðum
kom þessi mynd af forsæt-
isráðherra Noregs. — Ný-
stárleg þótti myndin af
ráðherranum. Það áttuðu
sig ekki allir á því fyrst, að
hér væri sjálfur forsætis-
ráðherra landsins. — Það
gerði kúrekahatturinn. —
En Odvar Nordli og kona
hans Margit hlutu innileg-
ar móttökur í Houston höf-
uðborg Texasfylkis, er þau
komu þangað fyrir
skömmu. Borgarstjórinn
færði forsætisráðherranum
kúrekahattinn að gjöf og
afhenti honum til minning-
ar um heimsóknina borgar-
lyklana.
+ ÞÓ AÐ SÆNSKI sakamaðurinn Clark Olofson. sem afplánar
refsidóm í Gautaborg. sé bak við lás og slá. var hann fyrir stuttu í
fréttum Skandinavísku pressunnar. — Fyrir nokkru fékk hann
frí frá fangelsisvistinni, til þess eins að mæta fyrir dómi. vegna
meiðyrðamáls, sem norsk stúlka BjörK Aaseby frá Ósló hefur
höfðað gegn honum og krefst hún 15.000 sænskra króna í
skaðabóta úr hendi Olofsons. vegna meiðandi ummæla hans um
hana í bók sem Olofson hefur skrifað: „Texter om herr M.s.
samhallsnyttiga verksamhet.'* Þá krefst hún þess að hókin verði
tekin úr umferð.
Þessi bók Olofsons byggir á um 400 sendibréfum sem Björg hin
norska skrifaði honum í fangelsið. Það var ætlun hennar þá að
sýna fólki fram á að hann væri ekki jafn samviskulaus og
almenningur hefði talið. — Gífuryrðin í bók Olofsons um Björgu
frá Ósló voru m.a. þau að hún væri geggjuð padda. Myndin er af
þeim Olofson og Björgu.
Verðlaunahafar í mynd-
getraun Þjóðleikhússins
í leikskrá að barnaieikritinu Krukkuborg. sem Þjóðleikhúsið sýdi í
vetur, var myndagetraun og áttu leikhúsgestjr að geta sér til um. úr
hvaða sýningum nokkrar ljósmyndir voru. Ákveðið var að veita 15
bókaverðiaun fyrir réttar ráðningar og gáfu bókaútgáíurnar Örn og
Örlyngur. Iðunn og Mál og menning barna- og unglingabækur til
verðlauna. Rétt ráðning var: Myndirnar voru úr sýningum Þjóðleik-
hússins á Dýrunum í Ilálsaskógi. Kardemommubænum. Karlinum á
Þakinu. Öskubusku og Milli himins og jarðar. Dregið hefur verið úr
réttum ráðningum og hljóta eftirtaldir aðilar verðlaun:
Gunna Vala Asgeirsdóttir,
Garðaflöt 21
Margrét Hjartardóttir, Suður-
götu 51, Hafnarfirði
Stella Stefánsdóttir, Skólavöll-
um 3, Selfossi
Eðvarð Þór Williamsson, Víði-
lundi 1
Una Margrét Jónsdóttir, Ljós-
vallagötu 32
Hildur Njarðvík, Skerjabraut 3,
Seltjarnarnesi
Magnús Edvaid Björnsson,
Fálkagötu 21, Rvík
Björg Sigurjónsdóttir, Sæbóli
við Nesveg, Seltjarnarnesi
Hafdís Birna Baldursdóttir,
Tjarnargötu 16, Rvík
Svanur og Hilmar Sævarssynir,
Borgarheiði 10, Hveragerðí
Hugrún Ragnheiður Hólmgeirs-
dóttir, Hraunbæ 108, Rvík
Lilja Guðrún Lange, Víði-
hvammi 28, KópavogL
Ester og Ásta Andrésdætur,
Laugarnesvegi 112, Rvík
Kristófer Pétursson, Skaftahlíð
12, Rvík
Jón Arnar Þorbjörnsson, Vall-
arbraut 5
Af ofannefndum nöfnum voru
dregin út nöfn þriggja, sem að
auki fá óke.vpis aðgöngumiða að
barnaleikriti næsta leikárs og
komu eftirtalin nöfn upp:
Eðvarð Þór Williamsson, Hafdís
Birna Baldursdóttir og Hugrún
Ragnheiður Hólmgeirsdóttir.
Vélskólinn braut-
skráir 400 vélstjóra
BRAUTSKRÁNING nemenda Vél-
skóla íslands í Reykjavík fór fram
laugardaginn 19. maí sl. Um 450
nemendur stunduðu nám við skól-
ann á liðnum vetri, þar af 400 í
Reykjavík en vélskóladeildir eru
einnig á Akureyri, í Vestmannaeyj-
um. á ísafirði, f Keflavfk og á
Akranesi.
Um 400 vélstjórar útskrifuðust á
þessu vori með vélstjóraréttindi af
ýmsum stigum en undir lokapróf
gengu 87 nemendur, 70 stóðust
prófið. Bestum árangri í sérgreinum
skólans náðu eftirtaldir nemendur:
Eyvindur Jónsson á 1. stigi, Eggert
Atli Benónýsson á öðru stigi, Hörður
Kristjánsson á 3. stigi, en hann
hlaut jafnframt silfurbikar fyrir
bestan árangur í vélfræðigreinum 3.
stigs, og Ómar Grétar Ingvarsson á
4. stigi. Einnig voru veitt verðlaun
fyrir góðan árangur í ýmsum tungu-
málum og hlutu þau nokkrir nem-
endur.
Skólinn hlaut myndastyttu að gjöf
frá 10 ára afmælisárgangi vélstjóra
en hún mun prýða anddyri skólans.
Að lokum þakkaði skólastjóri
rausnarlegar gjafir og sagði skólan-
um slitið.
Tísku -
sýníng
Föstudag kl. 12.30—13.30.
Sýningin, sem verður i Blómasal Hótels Loftleiða er
haldin á vegum Rammagerðarinnar, íslensks Heimilisiðn-
aðarog Hótels Loftleiða
Sýndir verða sérstakir skartgripir og nýjustu gerðir fatn-
aðar, sem unnin er úr íslenskum ullar- og skinnvörum.
Módelsamtökin sýna.
Hinir vinsælu réttir kalda borðsins á boðstólum
Verið velkomin.
HOTEL
LOFTLEIÐIR
Sími 22322