Morgunblaðið - 28.06.1979, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ1979
35
Baldur Hannesson, nr. 11, skorar annaö mark Þróttar í leiknum í gær. Fékk hann góða sendingu frá Jóhanni Hreiðarssyni sem er lengst til
vinstri á myndinni og skoraði viðstöðulaust.
Tap hjá
norsku
Víkingunum
HEIL umferð hefur farið
fram í norsku deildarkeppn-
inni í knattspyrnu á sfðustu
dögum. Bar þar helst til
tíðinda, að Víkingur frá
Stavangri, lið Tony Knapps,
tapaði loks og hefur forskot
liðsins þvi minnkað niður í 2
stig, Víkingur hefur 17 stig,
en Rosenborg 15. Það var
einmitt Rosenborg sem varð
liða fyrst til að leggja Vík-
ing að velli í sumar. En
lítum á úrslit leikja.
Bodö Glint — Moss 0—2
Bryne — Mjöndalen 0—0
Hamkam — Brann 4—1
Rosenborg — Viking 1—0
Skeid — Valerengen 1—2
Start — Lilleström 3—1
Sem fyrr segir, hefur Vík-
ingur 17 stig og Rosenborg
15. í þriðja sæti er Start með
14 stig, Bryne hefur 13 stig og
Moss og Valerengen hafa 12
stig hvort félag.
Þróttur
— KR
Lið KR-inga var afarslakt í
þessum leik. Getur það verið að
það hafi vanmetið andstæðinginn?
Varla, til þess eru liðin í 1. deildin
of jöfn. Þar getur allt gerst.
Baráttuna, eitt aðalmerki KR í
leikjum liðsins að undanförnu,
vantaði. Þá náði framlínan aldrei
saman.
I stuttu máli.
íslandsmótið 1. deild. Laugar-
dalsvöllur 27. júní Þróttur — KR
5-1(3-0)
Mörk Þróttar: Halldór Arason á
4., 38. og 49. mínútu. Baldur
Hannesson á 17. mínútu og Daði
Hjartarson úr vítaspyrnu á 67.
mínútu.
Mark KR: Sverrir Herbertsson
á 80. mínútu.
Áminning. Engin.
Áhorfendur 984.
Dómari. Sævar Sigurðsson.
-Þr.
Cunningham
líklega til
Real Madrid
NÚ virðist nokkuð öruggt,
að Laurie Cunningham,
enski landsliðsmaðurinn hjá
WBA, gerist leikmaður með
spænska meistaraliðinu
Real Madrid næsta keppnis-
tímabil.
Samningur blökkumanns-
ins Cunninghams við WBA er
á enda og hann gerði sjálfur
hosur sínar grænar fyrir
spænska félaginu, en ekki
öfugt eins og venja er. Kapp-
inn gat sér gott orð á Spáni
er WBA sló Valencia út úr
UEFA-keppninni í vetur sem
leið og því hafði Real strax
áhuga á að fá hann í sínar
raðir. Ekki síst vegna þess, að
Daninn Henning Jensen
hverfur nú heim til Dan-
merkur. Cunningham mun
fylla það skarð sem Jensen
skilur eftir sig. Það sem Real
Madrid borgar fyrir Cunn-
ingham, verði úr öllu saman,
er talið munu nema um
735.000 sterlingspundum.
Islandsmót 79
Handknattleiks
utan húss
Hefst í Hafnarfiröi 14. júlí n.k. Keppt veröur í
meistaraflokki karla og kvenna og öörum flokki
kvenna.
Þátttökutilkynningar berist fyrir 5. júlí n.k. í pósthólf
144, Hafnarfiröi.
• Laurie Cunningham
upp samleik. Þá var samvinna
leikmanna góð og dugnaður mikill.
Halldór Arason var svo
sannarlega í essinu sínu, og átti
góðan leik. Þá var Ágúst Hauks-
son mjög frískur og sköpuðu
margar góðar sendingar hans
mikla hættu við mark KR.
Þróttur vann sinn stærsta
sigur í 1. deiid
ÞRÓTTUR kafsigldi lið KR-inga í leik liðanna í 1. deild á
Laugardalsvellinum í gærkvöldi. 5—1 sigur Þróttar var sanngjarn
miðað við gang leiksins og hefði svo sannarlega getað orðið enn
stærri. Þau voru ekki ófá marktækifærin sem fóru forgörðum hjá
Þrótturum, stundum fyrir þeirra eigin klaufaskap og nokkrum
sinnum björguðu heilladísirnar vesturbæjarliðinu. Halldór Arason
Þrótti náði að skora hina eftirsóttu þrennu í leiknum og var mjög
nálægt því að bæta fjórða marki sínu við. En lítum nú á minnisbókina.
4. minúta
Halldór Arason fékk góða send-
ingu inn á vítateiginn og sneri
laglega á varnarmann KR og gott
skot hans hafnaði í netinu alveg
úti við stöngina. Virtist þetta
fyrsta mark koma KR-liðinu mjög
á óvart og alveg úr jafnvægi.
17. mínúta
Þróttarar fengu aukaspyrnu
rétt utan vítateigsins og Rúnar
Sverrisson gaf vel fyrir markið á
Jóhann Hreiðarsson sem nikkaði
boltanum laglega út til Baldurs
Hannessonar sem gerði sér lítið
fyrir og afgreiddi boltann með
þrumuskoti viðstöðulaust í netið.
Kom Magnús markvörður KR
engum vörnum við.
38. mínúta
Aukaspyrna á KR-inga rétt
utan vítateigs. Ágúst Hauksson
spyrnti fyrir Þrótt og góð sending
hans datt niður á markteig. Þar
náði Halldór Arason til boltans og
var ekki í vandræðum með að
skora af stuttu færi. Var með
ólíkindum hversu illa vörn og
markvörður KR-inga var á verði.
40. mínúta
KR-ingar fengu sitt besta tæki-
færi i fyrri hálfleik. Wilhelm
Frederikssen var í mjög góðu færi
á markteig en var of seinn að
skjóta og hættunni var bægt frá.
49. mínúta
Halldór Arason braust í gegn af
hörku og sleit af sér varnarmann
KR og skoraði þriðja mark sitt í
leiknum, 4—0 fyrir Þrótt. Var
þetta vel gert hjá Halldóri, skaut
islandsmötlð t. delld
Stjarnan fór
létt með Gróttu
Fáeinir leikir fóru fram í 3. deild íslandsmótsins í knattspyrnu á
mánudagskvöldið. í A-riðli léku Stjarnan og Grótta á Stjörnuvellinum
og vann Stjarnan þar vel verðskuldaðan sigur. Var lið Gróttu
furðuslakt og hefði sigur Stjörnunnar með heppni getað orðið stærri
en 3-1. Guðjón Sveinsson skoraði fyrst fyrir Stjörnuna, Gunnar
Lúðvíksson jafnaði fyrir hlé og mínúturnar á undan og eftir marki
Gunnars voru besti leikkafli Gróttu
En Grótta bauð ekki upp á nokkurn skapaðan hlut í síðari hálfleik
og Stjarnan vann því sinn fyrsta sigur í riðlinum. Ungur nýliði,
Dagbjartur Harðarson, skoraði bæði mörk Stjörnunnar í síðari hálfleik.
í sama riðli léku Ármann og Grindavík og vann Ármann 5-1. Viggó
Sigurðsson var atkvæðamikill hjá Ármanni, skoraði 2 mörk. Einn annar
leikur fór fram í deildinni, í B-riðli vann Óðinn mjög óvæntan sigur á
Leikni, 3-1.
hann jarðarbolta framhjá Magn-
úsi sem reyndi að bjarga með
úthlaupi.
55. mínúta.
Baldur Hannesson komst í gegn
um götótta vörn KR og brunaði
upp og átti aðeins markvörðinn
eftir, en Magnús sá við honum og
bjargaði vel með úthlaupi.
67. mínúta.
Ársæll Kristjánsson var felldur
innan vítateigs og dæmd var
frekar vafasöm vítaspyrna á KR.
Daði Hjartarson spyrnti af öryggi
og skoraði 5-0.
73. mínúta.
Misheppnað útspark Magnúsar
féll fyrir fætur Halldórs sem fékk
gullið tækifæri á að bæta fjórða
marki sínu við. En hann var
fullbráður með skot sitt sem fór
rétt framhjá.
80. mínúta.
Eina mark KR sá dagsins ljós.
Sæbjörn Guðmundsson náði
boltanum á miðju vallarins og
brunaði upp, sendi síðan góða
stungusendingu inn á Sverri
Herbertsson sem skoraði laglega
framhjá markverði Þróttar, Agli
Steinþórssyni. Var þetta eina
sólarstund KR-inga í leiknum.
Lið Þróttar lék nokkuð vel í
leiknum og reyndi ávallt að byggja
STAÐAN
STAÐAN í 1. deild er nú
>essi:
BK 6 3 3 0 11: 2
?ram 6 2 4 0 10: 5
A 6 3 2 1 11: 8
ÍBV 6 3 12 8: 3
KR 6 3 12 8:12
Valur 6 12 1 7: 7
Vík. 6 2 13 6:10
Þróttur 6 2 13 8:10
KA 6 2 0 4 8:11
Haukar 6 10 5 3:15
i Handknattleiksdeild F.H.