Morgunblaðið - 28.06.1979, Side 36
RR óskar eft-
ir 23% hækk-
imárafmagni
til heimila
— en 2,5% til
fyrirtækja
BORGARRÁÐ Reykjavíkur heíur
heimilað Rafmagnsveitu Reykja-
víkur að óska eftir því við iðnaðar-
ráðuneytið að leyfi fáist til að
hækka taxta rafmagnsveitunnar
að meðaltali um 14,1% frá og með
1. ágúst næstkomandi. Að sogn
Aðalsteins Guðjohnsen, rafmagns-
veitustjóra er samhliða þessari
hækkunarbeiðni óskað eftir þvf að
leiðrétting verði gerð milli taxta
og hækka taxtar rafmagnsveitunn-
ar af þeim sökum mismikið verði
þessi hækkunarbeiðni samþykkt.
Samkvæmt þessari breytingu ætti
rafmagn til heimilisnota að hækka
um 23,0% en rafmagn til flestra
iðnaðar- og atvinnufyrirtækja um
2,5%.
Aðalsteinn sagði að ástæða þess-
arar hækkunar væri 272 milljón
króna tekjuvöntun, sem gert hefði
verið ráð fyrir í fjárhagsáætlun
rafmagnsveitunnar fyrir árið 1979.
Til að mæta þessari tekjuvöntun
þyrftu taxtar rafmagnsveitunnar að
hækka um að meðaltali 14,1% en
leiðréttingar á töxtunum kæmu
ýmsum atvinnugreinum til góða.
Þannig ætti rafmagn til ljósa og
véla hjá minni fyrirtækjum að
lækka um 10,2% en heimilistaxti að
hækka um 7,8%. Ofan á þessar
taxtabreytingar komi fyrrnefnd
14,1% hækkun og því hækkaði
rafmagn til heimilisnota samtals
um 23% en rafmagn til atvinnu-
reksturs um 2,5%.
— Þegar þessar leiðréttingar
hafa náð fram verður aðeins um að
ræða einn svokallaðan almennan
taxta óháðan því til hvers rafmagn-
ið er notað nema varðandi stærri
atvinnufyrirtæki. Lagt er til að
rafmagn til stærri atvinnufyrir-
tækja hækki um 14,1% og einnig
verði hlutfalli afls og orku breytt til
hagsbóta fyrir þá, sem nýta orkuna
vel, sagði Áðalsteinn.
Málid gegn
FFSÍ þingf est
ÞINGFEST var í gær fyrir félags-
dómi mál vinnuveitenda gegn
Farmanna- og fiskimannasam-
bandi Islands vegna meintra ólög-
legra yfirvinnubannsaðgerða yfir-
manna á farskipum við lestun og
losun skipa í höfnum á Faxaflóa-
svæðinu og í heimahöfnum skip-
anna.
Veittir voru venjulegir frestir
til gagnaöflunar, en að öllum
líkindum mun FFSÍ fara fram á
að málinu verði vísað frá.
■
'
Hans Blix, utanríkisráðherra Svíþjóðar, er staddur hér á landi í opinberri heimsókn. Hann fékk sér sundsprett í Sundlaug
Vesturbæjar ásamt tveimur sonum sínum skömmu eftir komuna til íslands ígær. Sjá bls. 3. Ljósm. mi. Rax.
Pílagrímaflug með 25
þúsund Nígeríumenn
„ÞAÐ liggja fyrir frum-
drög að samningum um
pílagrimaflug með 25 þús-
und Nígeríumenn til
Jedda og til baka í október
og nóvember og reiknað er
með að þessi samningur
verði staðfestur í ágúst-
mánuði,“ sagði Leifur
Magnússon framkvæmda-
stjóri flugdeildar Flug-
leiða í samtali við Mbl. í
gærkvöldi þegar hann var
inntur eftir stöðunni í
leiguflugsamningum
félagsins.
Verið er að kanna mögu-
leika á leiguflugi fyrir allar
flugvélategundir Flugleiða og
fer þessi könnun fram víða
um heim með leiguflug fyrir
næsta haust og vetur í huga.
Þetta er langstærsti leigu-
flugsamningur með píla-
gríma sem Flugleiðir hafa
sinnt, en á s.l. 5 árum hefur
yfirleitt verið um að ræða
10—12 þús. farþega á ári en
þó mest 15000.
Á meðan útlit er fyrir að
Flugleiðir taki að sér
Nígeríuflugið er ekki hreyft
öðrum möguleikum á þessum
tíma svo sem pílagrímaflugi
fyrir Indónesa. I pílagríma-
fluginu með Nígeríumennina
er miðað við að DC-10 þota
Flugleiða og tvær áttur sinni
flutningunum. Önnur áttan
verður þá Flugleiðavél, en hin
hugsanlega frá Air Kanada
sem hafa boðið vél í flutning-
ana.
Ráðherraviðræður
um Jan Mayenmálið
KNUT Frydenlund utan-
ríkisráðherra Noregs og
Eyvind Bolle sjávarút-
vegsráðherra eru væntan-
legir til Reykjavíkur á
morgun til viðræðna við
Benedikt Gröndal og
DC-10 þota Flugleiða:
Leigugjald í flugbann-
inu komið yfir 1(K) miilj.
SAMKVÆMT kaupleigusamn-
ingi Flugleiða við Seaboard
um DC-10 breiðþotuna þurfa
Flugleiðir að greiða um 5
milljónir króna á dag fyrir
vélina hvort sem hún flýgur
eða ekki. Tían hefur nú verið í
banni í 20 daga þannig að
þessi upphæð er orðin um 100
millj. kr.
Hins vegar er ekki ljóst
hvernig þetta dæmi verður gert
upp þar sem ekki liggur fyrir
ennþá hver muni bera ábyrgð-
ina á stöðvun vélarinnar. Tals-
menn Flugleiða sögðu að það
lægi ekki fyrir hver réttur
Flugleiða væri í þessu máli.
Leifur Magnússon fram-
kvæmdastjóri flugdeildar Flug-
leiða sagði í samtali við Mbl. í
gær að fluglið Flugleiða og
starfsfólk allt hefði lagt geysi-
lega hart að sér til þess að leysa
þau vandamál sem upp hafa
komið í flutningum á fólki
vegna flugbanns á tíuna.
Kjartan Jóhannsson um
lausn Jan Mayen málsins,
en á siðustu stundu hefur
verið hætt við embættis-
mannaviðræður, sem áttu
að fara fram í Osló. Á
þessum fundi verður reynt
til þrautar að komast að
samkomulagi til að af-
stýra „loðnustríði" við Jan
Mayen.
Benedikt Gröndal utanríkis-
ráðherra sagði í samtali við Mbl.
í gærkvöldi, að embættismanna-
viðræðurnar hefðu ekki borið
þann árangur sem menn von-
uðu. „Þeir hafa sótt á um
viðræður og við höfum haft
áhyggjur af loðnuveiðunum við
Jan Mayen, þannig að segja má
að báðir hafi jafnan áhuga á
ráðherraviðræðum um lausn
málsins", sagði Benedikt, er
Mbl. spurði, hver hefði átt
frumkvæðið að því að koma á
ráðherrafundi á föstudaginn, en
í Reykjavík var því haldið fram
í gær að Norðmenn hefðu beðið
um ráðherraviðræður og í Osló
var sagt, að viðræðurnar færu
fram að ósk íslendinga.
Búið að
veiða
69 h vali
í GÆR voru komnir á land í
hvalstöðinni í Hvalfirði 67 hvalir
og að sögn starfsmanna í stöð-
inni eru þetta nær eingöngu
langreyðar nema hvað 4 búrhval-
ir hafa veiðst.
Til viðbótar voru hvalbátarnir í
gær búnir að fá 2 hvali og voru
enn í hafi með þá. Hvalvertíðin í
ár hefur nú staðið í 17 daga og
hefur verið að sögn starfsmanna í
hvalstöðinni mjög góð og betri en
eftir sama dagafjölda í fyrra en þá
hófst vertíðin um hálfum mánuði
fyrr.