Morgunblaðið - 01.08.1979, Síða 1

Morgunblaðið - 01.08.1979, Síða 1
32 SÍÐUR 174. tbl. 66. árg. MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dalnr lia'kkar Lundúnum. 31. júlf. AP. Bandaríkjadalur hækkaði verulega gagnvart helztu Evrópu-gjaldmiðlum í dag, en ýmsir efnahagssérfræðingar eru þó efins um að áframhald verði á batnandi stöðu hans. 1 Lundún- um og ZUrich lækkaði gengi gulls um allt að sjö dali únsan, en hækkað nokkuð á ný. Mest varð hækkun bandaríkja- dals gagnvart pundi og þegar gjaldeyrismarkaði var lokað stóð pundið í 2.2560, en í gær var gengið 2.3178. JafnóvinsæU Wa»hinKton — 31. júlí — Reuter NIÐURSTÖÐUR nýrrar skoðana- könnunar Harris-stofnunarinnar gefa til kynna að Carter forseta hafi mistekizt að afla sér á ný trausts bandarísku þjóðarinnar, en vinsældir hans virðast nákvæm- lega jafnrýrar og um síðustu mán- aðamót. Enda þótt Carter hafi gert ýmsar ráðstafanir á síðustu vikum í því skyni að bæta stjórn sína virðast aðeins 25% ánægðir með frammistöðu hans og enn færri, eða 23% telja hann gæddan for- ystuhæfileikum. HAWKER SIDDELEY 748 - Flugvél eins og sú, sem fórst. Sautján fórust í flug- slysi við Hjaltland Hollendingar staðfesta í raun fyrri niðurstöður Haag. 31. júlf. AP. Reuter. HOLLENZK rannsóknarnefnd hefur komizt að þeirri niður- stöðu, að misskilningur mzlli flugstjóra og flugturns hafi valdið mesta flugslysi sögunnar, en það varð þegar breiðþotur frá KLM og Pan American-flug- félögunum skullu saman á flug- braut á Tenerife í marz 1977 með þeim afleiðingum að 583 létu h'fið. Rannsóknarnefndin lætur hjá líða að lýsa skoðun sinni á því hver hafi átt sök á slysinu, en lætur þess þó getið að áhöfn KLM-þotunnar hafi aldrei fengið formlegt leyfi flug- turnsins til flugtaks. Rannsókn hollenzku nefndar- innar hefur þótt orka tvímælis og spönsk yfirvöld mótmæltu Carter gagnrýndur í upphafi viðræðna „Ép sá vini mlna Uggja hreyfingar- lausa i logunum" (I) « HlDNA IÞHÖTTABt-AOI KLM-þotan rakst beint framan á )wtu Pan Am henni er hún var um það bil að hefjast fyrir tveimur mánuðum á þeirri forsendu, að atvik málsins lægju ljóst fyrir og kæmu fram í skýrslu þeírra, sem birt var í október í fyrra, en þar er Van Zanten, flugstjóri KLM-þotunn- ar, talinn eiga meginsök á þvf hvernig til tókst. Talsmaður hollenzka samgöngumálaráðu- neytisins sagði í dag að rann- sóknarnefndin hollenzka hefði ekki talið ástæðu til að kveða upp úr með það hverjum kenna mætti um slysið, þar sem allir um borð í KLM-þotunni hefðu látið lífið í slysinu. Hann benti á að í skýrslu nefndarinnar væri mælt með því að orðin „take-off“ væru fram- vegis ekki notuð í sambandi við flugtök nema þegar flugturn gæfi flugstjóra leyfi til flugtaks, en þessi orð hefðu valdið þeim misskilningi, sem orsakaði slysið. BAKTIAR í PARÍS — Baktiar fyrrverandi forsætisráðherra írans er kominn fram í dagsljósið eftir að hafa farið huldu höfði síðan byltingarstjórnin tók öll völd í íran í febrúar s.l. Baktiar ræddi við fréttamenn í París í gær. Sjá frétt á síðu 15. Leirvík. Hjaltlandi. 31. júlí. AP. TVEGGJA hreyíla ílugvél af gerðinni Ilawker Siddeley 748 fórst í flugtaki frá Sumburgh-flugvelli í dag. 48 manns voru um borð, og er talið að 17 hafi farizt. Vélin var í eigu flugfélagsins Dan Air, en Shell-olíufélagið hafði hana á leigu. Farþegarnir, 44 að tölu, voru allir starfsmenn á olíuborpalli í Norðursjónum, en voru á leið til Aberdeen í Skot- landi. Sumburgh flugvöllur er skammt fyrir sunnan Leirvík, og gengur flugbrautin þar í sjó fram. Vélin hrapaði í sjóinn og sökk skömmu síðar. Sex lík höfðu fundizt í kvöld, en talið er að ellefu lík séu föst í flakinu. Þeir, sem björguðust, 31 að tölu, voru fluttir með þyrlu í sjúkrahús í Leirvík. Ekki er vitað hvað slysinu olli. Skyggni var slæmt er slysið varð, en björgunarsveitir komu á slysstaðinn fáeinum mínútum eft- ir að vélin stakkst í sjóinn. Stóð stélið þá enn upp úr, en neyðar- útgangur var tveimur metrum fyrir neðan yfirborð sjávar. Voru margir farþeganna á sundi um- hverfis flakið og var þeim flestum bjargað um borð í þyrlu frá British Airways og togara, sem staddur var rétt við slysstaðinn, en nokkrum tókst að komast í land af sjálfsdáðum. Meinsemdirnar sex London — 31. júlí — Reuter ÞAÐ ERU „sex tegundir af banvænu eitri“, sem hafa áhrif á efnahag Bretlands, sagði Keith Joseph iðnaðarráðherra brezka íhaldsflokksins í útvarpsviðtali f gærkvöldi. „Hjá flestum keppínautum okkar er að finna eina af þessum eiturtegundum — hjá sumum tvær. En þetta eina landið í heiminum þar sem þær eru allar sex.“ Ráðherrann sagði að þessar meinsemdir væru: pólitísk stéttar- félög, mikil ríkisútgjöld, háir skattar, of mikil eignaraðild ríkisins í iðnaði, og samfélag, sem sæktist eftir algerum jöfnuði þegnanna, enda þótt það (númer sex) teldi kaupsýslu hálf mannskemmandi. Kissinger mælir með Salt hækki framlög til varna WashinKton — 31. Júlí — AP HENRY Kissinger. fyrrum utan rfkisráðherra Bandaríkjanna. tjáði utanríkismálanefnd öldungadeildar Bandarfkjaþings í dag, að hann gæti því aðeins mælt með því að SALT—II yrði staðfestur að fjárveitingar til varna yrðu hækkaðar verulega. Kvað hann aukin framlög til varna nauðsynleg ef takast ætti að koma í veg fyrir röskun hernaðarjafnvægis, en í því efni væri farið að „halla ískyggilega á Bandaríkin“. „í mannkynssögunni hefur það vart gerzt að þjóð hafi sætt sig við svo róttækar breytingar á valda- jafnvægi með þvílíku aðgerðar- leysi“,sagði Kissinger í ræðu sinni, sem hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. „Ef haldið verðu áfram á sömu braut stöndum við frammi fyrir þeim óhugnanlegu möguleikum að heimurinn verði smátt og smátt stjórnlaus, að svo mjög dragi úr hernaðarmætti okkar miðað við aðrar þjóðir, að hægt sé að kúga okkur þar sem efnahags- legri lífæð okkar sé ógnað, að herir óvinveittra þjóða eflist meira en möguleikar okkar á að vérjast þeim, og að færri og færri vinaþjóðir okkar fái rönd við reist,“ sagði Kissinger ennfremur. Kissinger, sem löngum hefur ver- ið talinn einn helzti spekingur Bandaríkjanna í öryggismálum, lýsti þeirri skoðun sinni jafnframt, að staðfestingu hins nýja SALT-samnings um takmörkun ger- eyðingarvopna hlyti að fylgja skor- inorð yfirlýsing öldungadeildarinn- ar þar sem Sovétmenn væru teknir alvarlega til bæna fyrir pólitíska ævintýramennsku víða í heiminum. Meðal annars taldi Henry Kiss- inger hina óheillavænlegu þróun í varnamálum stafa af ýmsum ákvörðunum núverandi stjórnar, af ólgu innanlands í kjölfar Víetnam- stríðsins, og því að mistök hefðu verið gerð við mörkun stefnu í hermálum. Henry Kissinger

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.