Morgunblaðið - 01.08.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.08.1979, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1979 Hæstiréttur staðfesti úrskurð sakadóms um framsal Islendingsins MEIRIIILUTI Hæstaréttar staðfesti í gær úrskurð sakadóms Reykjavíkur um að skilyrði séu fyrir hendi samkvæmt lögum fyrir framsali gæzluvarðhaldsfanga til Svíþjóðar, en sænsk yfirvöld hafa sem kunnugt er krafizt framsals hans vegna ffkniefnamálsins í Gautaborg. Þrír af fimm dómurum Hæsta- réttar komust að þessari niður- stöðu, þeir Björn Sveinbjörnsson, Benedikt Sigurjónsson og Magnús Þ. Torfason. Tveir dómarar, Ár- mann Snævarr og Logi Einarsson, skiluðu sératkvæði og töldu að eigi væri fullnægt skilyrðum laga nr. 7/1962 fyrir framangreindu fram- sali. Dómsmálaráðuneytið mun nú taka um það akvörðun hvort íslenzki gæzluvarðhaldsfanginn, sem er tæplega þrítugur að aldri, verði framseldur til Svíþjóðar eða ekki. Eins og fram hefur komið í Mbl. leiddu upplýsingar mannsins til handtöku allmargra íslendinga í Gautaborg. Mikið framboð er nú af notuðum bflum á flestum bflasölum borgarinnar. Segja bflasalar sölu nokkru minni nú en oft áður á þessum tíma, mjög margir bflar, en fáir kaupendur og beinist áhugi manna sífellt meira að sparneytnum bflum. Ný deila í uppsigl- ingu um launakjör á ríkisspítölum? Forstjóraskipti hjá Eimskip FORSTJÓRASKIPTI verða hjá Eimskipafélagi íslands hf. í dag. Óttarr Möller hefur látið af starfi forstjóra, en starfinu hefur hann gengt í 17 ár, eða sfðan 1962 en við tekur Hörður Sigurgestsson. Meðfylgjandi myndir voru teknar á stjórnarfundi félagsins í gær, en það var síðasti stjórnar- fundurinn sem Óttarr Möller situr. Á stærri myndinni eru talið frá vinstri: Indriði Pálsson, Thor R. Thors, Óttarr Möller, fráfarandi forstjóri, Halldór H. Jónsson, stjórnarformaður, Hörður Sigur- gestson, núverandi forstjóri, Ingvar Vilhjálmsson, Pétur Sigurðsson og Axel Einarsson. Á myndina vantar Halldór E. Sigurðsson. Á minni myndinni eru fráfarandi og núverandi forstjóri ásamt stjórnarformanni félagsins. Ljósm. Ól. K. Mag. 600 milljónir til vega- gerðar á hafíssvæðum .FJÁRMÁLARÁðUNEYTIÐ hefur tilkynnt okkur. að frá og með 1. nóvemher verði breyting á vinnutil- högun starfsfólks á sjúkrahúsunum og hefur þessi breytta tilhögun það í för með sér að um mikla kjaraskerð- ingu er að ræða." sagði Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir. formaður Starfs- stúlknafélagsins S<)knar í samtali við Morgunhlaðið í gær. Ilefur fjármálaráðuneytið í hyggju að hengja upp um þetta tilkynningu á sjúkrahúsunum innan ti'ðar. Aðalheiður kvaðst ekki hafa á reiðum höndum tölulegar upplýsing- ar um það, hve mikil kjaraskerðingin væri vegna þessa, en hún kvað þessa breyttu tilhögun myndu bitna hvað harðast á því starfsfólki sem sízt skyidi, lægst launaða starfsfólkinu, og þá helzt konum, sem ynnu allan daginn. Kvað hún konur sem þannig væri ástatt f.vrir oftast vera konur, sem þyrftu einar fyrir heimili að sjá. Formaður Sóknar sagði að fjár- málaráðuneytið ætlaði sér með þess- um breytingum að minnka vinnu starfsfólksins úr 100% í 96% og ná þannig af 25 mínútum, sem væru Jón L. efstur JÓN L. Árnason er nú efstur ásamt Österberg írá Svíþjóð með 5 vinn- inga á Norðurlandamótinu í skák sem nú fer fram í Svíþjóð. Nastir koma þeir Nikopp og Niklasson með 1.5 vinninga og biðskák hvor á móti öðrum. en þar er Niklasson talinn standa betur. Næstur er Aijálá frá Finnlandi með 4 vinninga og biðskák, og þar á eftir koma með 4 vinninga þeir Bragi Halldórsson, Ásgeir Þór Árnason, Áskell Örn Kárason og fleiri. í kvennaflokki eru þær Guðlaug Þorsteinsdóttir og Laundry frá Finnlandi efstar með 3 vinninga og biðskák að loknum 5 umferðum. umsamdar sem yfirvinna. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir kvað þessa bre.vt- ingu ekki aðeins koma illa við um- bjóðendur sína, félagana í Sókn, heldur einnig hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða. „Þetta er alveg ný aðferð, sem ríkisvaldið ætlar þarna að beita, að vaða inn í kjarasamninga og tilkynna með auglýsingu á vegg, að kjör starfsfólksins séu skert, án þess að það fái rönd við reist,“ sagði Aðalheiður og bætti við: „Við teljum þetta samningsbrot, þar sem þetta er untsamið og undirritað í samningum. Munum við bregðast við þessu með öllum ráðunt og láta ríkisvaldið ekki komast upp með að skerða kjör láglaunafólks." í PREDIKUN sinni í messu á Skálholtshátíðinni 22. júlí, sem útvarpað var sunnudaginn 29. júlí síðastliðinn, vék séra Guð- mundur Óli ólafsson prestur í Skálholti að Morgunblaðinu. Morgunblaðinu þykir ástæða til að birta þann kafla. Fara því upphafsorð predikunarinnar hér orðrétt á eftir: „Þeir eru fleiri en kerlingin í þjóðsögunni sem ekki þykir gaman af guðspjöllum. Það mætti ef til vill bjóða svo sem eins og eitt ævintýri í stað guðspjalls að þessu sinni. Og þó er ekki því að leyna að Páll gamli postuli varaði menn við ævintýrum. „Hafna þú vanheil- ögum kerlingarævintýrum," sagði hann meira að segja. En hann var nú Biblíufastur og kreddumaður eins og kunnugt er á Islandi. Mikið ef hann var ekki RÍKISSTJÓRNIN hefur falið Framkvæmdastofnun ríkisins að útvega sex hundruð milljónir króna, sem varið verði til upp- beinlínis á móti kristindóminum eins og orðsnajll maður sagði einu sinni um einn íslenskan prest. Nú,en ef farið er út í þá sálma kemur einnig upp spurn- ingin um hvar skuli skipa honum í flokkinn, Páli. Ekki verður því neitað að einhverja tilburði hafði hann í það fyrr á árum að líkjast Khómení. Án efa lét hann sér vel líka krossfestingin, Krists, og sjálfur var hann eins konar löggiltur vottur við aftöku annars manns. Eða var hann Morgunblaðs- maður? Farisei hefur hann verið kall- aður fyrr og síðar fullum fetum og snarringlaður heimspekingur, flæktur í alls kyns austrænt og heiðið kukl. Sleppum því og höfum ráð hans að engu þessu sinni og snúum oss að ævintýr- um.“ byggingar og lagfæringar á vegum á Norðaustur- landi. Er þetta gert að tillögu hafísnefndar, og er tilgangurinn sá að gera vegina þannig úr garði að auðveldara verði að nota þá til vöruflutninga að vetri og vori til ef ís haml- ar siglingum, að sögn Brynjólfs Ingólfssonar ráðuneytistjóra í samgönguráðuneytinu. FULLTRÚAR frá stjórn Félags Loftleiðaflugmanna gengu síðdegis í gær á fund Ragnars Arnalds samgöngu- ráðherra og greindu honum frá viðhorfum félagsins til uppsagna flugmanna Flug- leiða á sama tíma og ráðnir eru menn til Air Bahama að því er Mbl. var tjáð. Baldur Oddsson formaður Félags Loftleiðaflugmanna sagði í samtali við Mbl. í gær að ráðherra Snæbjörn Jónasson vega- málastjóri sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að Vegagerð ríkisins væri til- búin með tillögur um hvernig þessu fé yrði varið, ef tækist að útvega umrætt fjármagn. Enn væri hins vegar ekki búið að tryggja féð, og því væri of snemmt að ræða um það í einstök- um atriðum hvernig því yrði varið. hefði tekið þeim vel og hann myndi kynna sér málið frá báðum hliðum og kvaðst Baldur bjart- sýnn á að lausn þess gæti verið skammt undan. Baldur sagði að Bandaríkjamenn sem flygju hjá Air Bahama hefðu starfað mun skemur hjá félaginu heldur en þeir flugmenn FLF, sem sagt hefur verið upp störfum. Flygju þeir vélum skráðum á Islandi fyrir íslenzkt fyirtæki og væri því eðlilegt að þeim væri sagt upp fremur en íslendingum með lengri starfsaldur. Predikun á Skálholtshátíð: „Eða var hann Morgunblaðsmaður“ Loftleiðaflugmenn ganga á fund sam- gönguráðherra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.