Morgunblaðið - 01.08.1979, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1979
Gífurlega mikið af mink á höfuðborgarsvæðinu;
Vann á fimm dýrum við
vatnsból Hafnfirðinga
ODDUR Magnússon minkabani vann í gær á fimm minkum. læðu og
fjórum yrðlingum við greni við vatnsból Hafnfirðinga. Það voru
verðir við vatnsbólin sem höfðu orðið dýranna varir. Þeir gerðu Oddi
viðvart. og fór hann á vettvang með hunda sína. Oddur sagði í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins í gær, að gífurlega mikið væri nú um
mink hér á höfuðborgarsvæðinu, og hefði hann og félagar hans unnið
á ekki færri cn milli 50 og 60 dýrum frá því uiri aramót.
Oddur sagði að þegar hann
kom að vatnsbólinu í gær hefði
hann sleppt hundunum lausum,
og hefðu þeir fljótlega fundið
grenið þar sem læðan hélt til
ásamt hálfstálpuðum yrðlingum
sínum. Hefði hann þá grafið
grenið út að hluta, þannig að
hundarnir hefðu komist að. Drápu
þeir strax þrjú dýranna, en eitt
skaut Oddur þar sem það var að
ná til vatnsins. Einum yrðlingi
tókst að ná lifandi, og verður
hann notaður til að egna minka-
hundana til dáða áður en lagt er í
veiðiferð.
Að sögn Odds eru nú veittar
1500 krónur í verðlaun fyrir
minkaskottið, og hefur sú upphæð
verið óbreytt í fjögur ár. Sagði
hann upphæðina vera alltof lága,
sem gerði það að verkum að fólk
nennti ekki að eltast við minkinn.
Því hefði honum fjölgað svo mjög
að undanförnu, og væri hann
farinn að gerast nærgöngulli í
þéttbýli. Mikið væri af minki 'a
Elliðaársvæðinu, í Straumsvík, í
Gálgahrauni og við Vífilsvatn, og
einnig í Heiðmörk, en þar væri
nánast eins og uppeldisstöð fyrir
minka. Vegna þess hve lág verð-
launin eru fyrir hvern unninn
mink sagði Oddur að það þýddi
veruleg útgjöld að fara í veiðiferð
eins og í gær. Verðlaunin næðu
engan vegin því sem tapaðist í
vinnulaunum, bílakostnaði og
fleiru. Hundana kvaðst hann hins
vegar ekki þurfa að kosta sjálfur,
þar sem þeir væru hafðir á
hundabúi veiðistjóra í Þormóðs-
dal. Kvaðst Oddur raunar vinna á
vegum Sveins Einarssonar, og
hefði hann stundað minkaveiðar í
um það bil níu ár.
Oddur Magnússon með minkana sem hann vann á f gær, læðu og fjóra
yrðlinga. Einum yrðlingi náði hann lifandi. og ætlar hann að nota hann
til að örva hundana fyrir ieit að minkum. Oddur er með fjórar tíkur
sem hann notar við veiðarnar. og segir hann þær mun duglegri en
hunda sem oft vilji gleyma sér þegar mest á ríður. Ljósm.: Emílía.
Sendiherraskipti hjá Sovét:
Strelitsov
kemur í stað
Farafanovs
NÝR sendiherra Sovétríkjanna
kom til íslands í gær, og mun
hann afhenda forseta lslands
trúnaðarbréf sitt á morgun, 2.
ágúst, að því er Berglind Ás-
geirsdóttir fulltrúi í upplýsinga-
deild utanrfkisráðuneytisins
tjáði Morgunblaðinu í gær. Hinn
nýi sendiherra kemur til íslands
frá Moskvu. þar sem hann hefur
starfað að undanförnu. Hann
heitir Mikhail Nikolaevich Strel-
itsov. og er fimmtugur að aldri.
Strelitsov tekur við að Georgí N.
Farafonov, sem nú lætur af em-
bætti sendiherra Sovétmanna á
Islandi. Strelitsov hefur að und-
anförnu starfað í þeirri deild
utanríkisráðuneytisins í Moskvu
sem fer með málefni Norðurland-
anna, en áður hefur hann starfað
á vegum Sovétríkjanna á Norður-
löndunum, að sögn Berglindar
Ásgeirsdóttur. Strelitsov hefur
ekki áður gegnt stöðu sendiherra.
Það er og verður Philips
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3, SÍMI 20455 - SÆTÚNI 8, SÍMI 15655
Segir í vísunni og þú hefur sama háttinn á.
Þú ferðast um allan heiminn sitjandi í stofunni þinni og þá er
mikið atriði að sjá veröldina ekki í svart-hvítu, ekki í villandi
óeðlilegum litum, heldur í náttúrlegum litum, sem eru svo
eðlilegir að það er eins og þú værir sjálfur staddur á staðnum.
Myndgæði Philips litsjónvarpstækja eru einstök.
Þú vilt sjá hlutina í réttum litum og þér verður að ósk þinni
fyrir framan skerminn á Philips litsjónvarpstækinu.