Morgunblaðið - 01.08.1979, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 01.08.1979, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1979 Charan Singh hefur svarið em- bættiseið sem forsætisráð- herra Indlands og ýmsir aldn- ir menn eru hnuggnir, þar með er horfinn í bili möguleiki þeirra á því að verða forsætisráðherra í þessu fjölmennasta lýðræðisríki heims. Diplómatar og sérfræðingar um indversk stjórnmál eru yfirleitt á einu máli um, að það sem fyrst og fremst varð Janata- bandalaginu fjötur um fót hafi verið að persónuieg valdabarátta nokkurra gam- alla manna, sem hefur dreymt um það alla ævi að verða forsætisráðherrar. Þetta hafi meðal annars átt sinn þátt í því að Janatabandalagið gat aldrei kom- ið sér saman um sameiginlega málefna- skrá og því hefur til dæmis sjöttu fimm ára áætluninni ekki enn verið hrint í framkvæmd en hún átti að hefjast í apríl 1978. Þrátt fyrir hagstætt árferði á Indlandi síðustu tvö ár og þar af leiðandi meiri uppskeru en oft áður, er innanlands- ástandið þar ekki til neins sóma. Kippur hefur hlaupið í verðbólguna, eftir tiltölu- legan stöðugleika næstu þrjú ár á undan, atvinnuástandið hefur stórversnað, kjör almennings eru bág og varla ofmælt að rösklega fjörutíu prósent þjóðarinnar búi við sárustu eymd og hafi ekki í sig né á. Jóhanna Kristjónsdóttir Út um allt Indland eru milljónir manna að reyna að draga fram lífið og skeyta ekki pólitísku brambolti í Delhi. greip forsætisráðherrann Singh til þess vafasama ráðs að láta handtaka Gandhi, nú biðlar hann til hennar um stuðning. Þetta sýnir auðvitað hversu makalaus tök Gandhi hefur og sé hinn almenni borgari spurður nú hver ætti að taka við stjórn Indlands myndu sennilega átta af hverjum tíu hreint ósjálfrátt nefna hennar nafn. Áróðursherferð hennar gegn Janatabandalaginu hefur verið kænlega rekin og henni hefur tekizt að vekja samúð fólks með því sem hún segir að séu hamslausar ofsóknir á hendur sér og fjölskyldu sinni. Þó hefur svo sem ekki allt gengið átakalaust fyrir sig heldur í flokki Gandhis og nýlega sögðu allmargir sig úr honum eftir að upp kom hinn ferlegasti ágreiningur milli Gandh- is og Devraj Urs, áhrifamikils leiðtoga Kongressflokksins í Karnataka í suður- hluta landsins. Urs skrifaði Indiru óvæg- ið bréf og sagði að hún mætti gæta sín á því að hrinda ekki frá sér öllu gegnu og góðu fólki, á endanum sæti hún þá uppi með smjaðrandi hræsnara. Indira brást hin versta við, vék Urs úr flokki sínum og allmargir áhangendur hans fóru líka og við það rýrnaði svo staða Kongress- flokks Indiru að hann var nú ekki lengur stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn. Vanhæfni Desai til að stjórna hefur verið með ólíkindum í sjálfu sér þurfti hrun Janatabanda- lagsins ekki að koma á óvart, meðal Singh og hinir gömlu mennimir vita að Indira ein myndi hagnast á kosningum Og Janatabandalagið hefur verið sundrað frá fyrstu tíð. Það er skrítin sambræðsla fimm flokka allt frá sósíal- istum til hægri flokksins Jan Sangh og í raun áttu þessir flokkar ekkert sameig- inlegt nema þá brennandi hugsjón að fella Indiru Gandhi úr valdastóli. For- ystumenn allra þessara flokka og flokks- brota áttu það líka sameiginlegt að hafa einhvern tíma gegnt ráðherraembætti í stjórn Gandhis og hafa síðan verið varpað í fangelsi fyrir hennar tilstilli á undanþágutímabilinu sem illræmt varð. Almenningur hefur takmarkaða möguleika á að fylgjast með Sú pólitíska spenna sem hefur verið á Indlandi síðustu dagana hefur verið nokkuð bundin við ákveðna hópa pólitík- usa. Það er ekki trúlegt að indverskur almenningur hafi sett sig sérstaklega inn í þessi metorðamál gömlu mannanna. Af 650 milljónum Indverja búa meira en 500 milljónir í smærri bæjum og þorpum. Og þó að blöðin hafi óspart skrifað um ástandið og ekki vandað stjórnmála- mönnunum — í stjórn eða stjórnarand- stöðu — kveðjurnar hefur það takmark- að gildi, því að blöð á öllu Indlandi koma aðeins út í tíu milljónum eintaka 'og sextíu prósent þjóðarinnar eru aukin heldur ólæs. Ríkisútvarp landsins nær til fleiri, en þó skyldi það haft bak við eyrað að ekki eru til nema 20 milljón útvarps- tæki. Allt þetta verður óhjákvæmilega til þess að almenningur hefur ekki sérlega greiðan aðgang að því sem er að gerast. Og um þessar mundir nú hafa Indverjar án efa um ýmislegt annað að hugsa en persónulegt valdabrölt pólitík- usa, monsúnrigningarnar eru hafnar og flóð og óáran ríða yfir víða um landið, og fólk hefur dáið í hundraðatali. En þeir sem með málum fylgjast eru gramir og margir borgarar hafa síðustu mánuði skrifað blöðunum og reynt að vekja athygli á óánnægju sinni. „Landið er fullt af sjúkum stjórnmálamönnum. Svo sjúkum að mjög sterkt meðal þajf til að lækna þá.“ Og annar kvaðst vilja minna á það að meðan um helmingur þjóðarinnar byggi við það að eiga ekki í sig dagsdaglega, væri varla við því að búast að áhugi á pólitíkinni væri sérlega mikill. Charan Singh hefur lengi beðið og vonað að hann kæmist í forsætisráð- herrastólinn. Jagjivan Ram hefur sem stendur orðið undir í forsætisráðherrakeppninni, en mörgum hefði þótt hann líklegri til að koma saman starfhæfri stjórn en Singh. Indira Gandhi — hún myndi hagnast á Desai: áhugamál hans um skírlífi og kosningum nú. ' áfengisbann hafa tekið hug hans allan. Aðeins Indira myndi græða á kosningum Enginn flokkur á Indlandi myndi hagnast á kosningum nú, nema Kongr- essflokkur Indiru Gandhi. Enginn leið- togi eins flokks hefur almennari þjóð- arskírskotun en hún þrátt fyrir allt. Um það eru allir sammála, meira að segja gömlu skarfarnir. Og því unnu þeir af kappi gegn því að Reddy forseti þyrfti að grípa til þess ráðs. Komu sér jafnvel saman um Singh að nafni til. En Indira Gandhi hefur vitanlega fengið ýmiss Jtonar uppreist, spádómar hennar um stjórnleysi og sundrung Janatabanda- lagsins hafa allir reynzt réttir og þegar Desai sagði af sér embætti var Gandhi einn þeirra foringja sem Indlandsforseti kvaddi fljótlega á sinn fund til skrafs og ráðagerða. Fyrir fáeinum mánuðum annars vegna þess stefnuleysis banda- lagsins sem í upphafi var vikið að. Moraji Desai reyndist líka gersamlega óhæfur leiðtogi og það svo, að með ólíkindum er hversu framganga hans hefur verið. Hann hefur einbeitt sér að því að koma á áfengisbanni, ferðast milli héraða og fylkja og haldið fjálgar lofræður um árangur þessarar viðleitni sinnar — sem er afkáranlega hvernig sem á málin er litið. I fyrsta laga vegna þess ástands sem er á Indlandi og í öðru lagi vegna þess að Indverjar neyta yfirleitt ákaflega lítils áfengis. Hann hefur talað um að hindu verði lögleitt sem opinbert mál og það þó að milljónir Indverja hvorki skilji það né tali. Hann hefur komið fram við samráðherra sína eins og strangur lærifaðir og lítt gefið þeim tækifæri til að láta ljós sitt skína hvað þá heldur að framkvæma eitthvað af viti. Á ríkisstjórnarfundum hefur honum iðulega orðið tíðrætt um það áhugamál sitt að fólksfjölgun verði haldið í skefjum með skírlífi, og sjálfur kveðst Desai ekki hafa kennt konu í góð fimmtíu ár og er ánægður með. Á indversku læknaþingi sem hann var fenginn til að ávarpa eyddi hann mest öllum tíma sínum í að spjalla um hversu nauðsynlegt væri að útbreiða þann sið, að menn drykkju að staðaldri pissið úr sjálfum sér og þótti viðstöddum þessi málaflutningur og boðun erindisins ekki rismikil, all sérstæður. Útlitið ekki bjart fyrir Singh Þó að Charan Singh hafi nú verið falið að stýra stjórn er í fljótu bragði erfitt að sjá hvernig hann ætlar að framkvæma það. Kongressflokkurinn gamli er nú skiptur í fjórar fylkingar — tvær þeirra tengjast Janata og tvær eru í stjórnar- andstöðu. Hugmyndafræðileg umræða er ekki á háu plani í indverskri pólitík, í stað þess að grípa á málum er deilt um persónur og afkáraleg smámál. En þó að Charan Singh sé ekki líklegur til stórra afreka mun hann án efa reyna að forðast að komast í þá stöðu að efna verði til kosninga. Hann veit eins og hinir gamlingjarnir að það væri aðeins Gandhi til framdráttar, og þó að hann geti hugsað ser að þiggja stuðning hennar vill hann ekki eiga það á hættu að hún stæði uppi sigurvegari í kosningum nú. h.k.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.