Morgunblaðið - 01.08.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1979
sýningunni í Listasafni íslands.
Sýningin virkar vissulega mjög
einhæf í fyrstu, en við nánari
skoðun og fleiri heimsóknir kem-
ur í ljós, að þær eru jafn ólíkar
og Kínverjar eða Eskimóar inn-
byrðis, er maður kynnist þeim að
ráði, en alkunna er, að ókunnug-
ir álíta, að slíkir séu allir eins á
báða vegu. Myndirnar eru líkast-
ar stefni í ótal tilbrigðum, og
þær vinna á sem slíkar við
nánari kynni. — Hið næma auga
skynjar ótal listræn tilbrigði og
örfín blæbrigði á sama hátt og
hið næma eyra skynjar mismun
í „glissando" í tónlist. — Vísast
er ekki öllum gefið að meðtaka
þetta og íslendingar vilja t.d.
helst skrautlegar, glaðklakka-
lega og skæra litatóna í mál-
verkum sé mið tekið af eftir-
spurn og sölu. Kóloristi er þó
ekki síður, og öllu frekar sá, er
bregður fyrir sig hinum hárfínu
blæbrigðum, en hinn, er notar
sterkustu litasamböndin.
Grafíkmyndirnar á sýning-
unni eru gerðar í um 100 og allt
upp í 400 eintökum, en allmargar
eru merktar E.A., sem mun
merkja tilraunaþrykk eða þrykk
í einu eintaki. Að sjálfsögðu eru
hin síðarnefndu stórum verð-
mætari, en sem kunnugt er, þá
er möguleiki á meiri dreifingu og
lægra verði því fleiri, sem ein-
tökin eru. Hér eru myndir nr. 8
og 32 gott dæmi um snilld
listamannsins.
Ef ég ætti að nefna íslenzkan
málara, sem skyldur er Bram
van Velde í myndhugsun, þá
væri það helst Svavar Guðnason,
en Svavar hefur notað öllu
kröftugari litasambönd en Van
Velde í málverkum sínum, — en
nota bene, Svavar hefur svo ég
veit ekki unnið í litografíu og við
höfum ekki kynnst hér málverk-
um van Velde í sama mæli og
grafíkinni.
Gjöf Bram van Velde er fá-
dæma höfðingleg og er leitt, að
við skulum ekki í slíkum tilvik-
um geta borið viðkomandi upp á
dvöl í mannsæmandi húsakynn-
um fyrir myndlistarmenn, t.d.
Kjarvalshúsið á Seltjarnarnesi.
Ég vil enn einu sinni árétta og
minna á þá miklu þýðingu, sem
það hús gæti haft til virkjunar
og heilla íslenzkri myndlist og
sjónmenntun í heild. Heims-
kunnir listamenn myndu þiggja
það með þökkum að búa þar í
lengri eða skemmri tíma og
miðla íslenzkum starfsbræðrum
sínum af þekkingu sinni og
reynslu, — jafnvel gætu þeir
kennt okkur margvísleg tækni-
brögð og vinnslu í efni, sem hér
eru óþekkt.
Hér gildir krafan um, að hið
besta sé aðeins nógu gott og að
við eigum ótrauðir að sækja á
brattann og vera engra eftirbát-
ur í heiminum.
Þökk sé Bram van Velde fyrir
stórhuga gjöf hans og Listasafni
íslands fyrir sýninguna.
Bragi Asgeirsson.
Eitt af verkum Bram van Velde f Listasafni íslands.
París og hefur dvalist þar
lengstum síðan, hélt þó til í
Mallorca í 4 ár samfleytt 1932—
36 og í Korsíku í eitt ár (1930). í
París var það liturinn, er kom til
með að verða ríkjandi þáttur í
myndheildum hans og upphaf-
lega með áhrifum frá „Fauvist-
unum“. í Mallorca hlóð hann
myndir sínar eins konar lauf-
skurðarformun (arabeskum), en
frá árinu 1940 hurfu flest þekkj-
anleg form úr myndum hans,
nema hvað bregður fyrir form-
un, er geta minnt á grímur eða
fugla. Litir hans eru annað
tveggja dökkir og þungbúnir eða
lýsandi bjartir.
Með „Árt Informel" er átt við
að stefnan hafi verið tekin burt
frá öllum yfirveguðum formum
og línum til hags fyrir sjálfráð
og óþvinguð vinnubrögð borin
fram af skaphita og tilfinning-
um listamannsins fyrir um-
hverfinu og augnablikinu hverju
sinni. Frjálst hugmyndaflug
sprengir hér allar viðteknar
reglur og kenningar, og menn
nota hvaða efnivið, er þeim
kemur í hug í verk sín. Þrátt
fyrir allt þróaðist þetta til að
verða mjög hnitmiðað og fram
komu mjög persónulegir iðkend-
ur listgreinarinnar. Þetta er eins
konar sálfræðileg athöfn sem
Paul Klee lagði grunninn að með
rannsóknum sínum en þekktustu
Mynöllsl
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
iðkendur listgreinarinnar á síð-
ari tímum má nefna Pollock,
Hartung, Mathieu, Fautrier,
Dubuffet, de Kooning, Michaux
og Jaroslav Serpan. Hinir svo-
kölluðu „Fauvistar" (Matisse,
Derain, Dufy, van Dongen o.fl.)
spenntu listina upp til hins
ítrasta, notuðu þá beint úr túb-
unum og dreifðu um lefeftið af
miklum krafti, — ismanafnið
útleggst einmitt „Villidýrin".
Af framanskráðu má auð-
veldlega ráða, hve liturinn gegn-
ir miklu máli í list Bram van
Velde, sem gjörla má greina á
"HafiÖ þiö hcyrt um hjónin sem
máluöu húsiÖ sitt
meö HRAUNl fyrif 12 ánim,
os ætla nú að endutmála það í sumai
bara til að bteyta um litT
Sögurnar um ágæti þessarar
sendnu akrýlmáiningar,
HRAUN-málningarinnar frá
Málningu h/f magnast með
árunum, og hróður hennar
eykst með hverju árinu, sem
líður.
Nú, eftir að HRAUN hefur
staðið af sér íslenska veðráttu í
rúmlega 10 ár, er enn ekki
vitað um hinn raunverulega
endingartíma þess, sé þaö
notaö rétt í upphafi.
Þess vegna gerir þú góð kaup,
þegar þú velur HRAUN á
húsið.
HRAI málninghlf
óskar eftir
blaðburðarfólki
Austurbær:
□ Hverfisgata frá
63—125
Uppl. í síma '*
35408
□ Hraunteigur
□ Hrísateigur
□ Hrísateigur
□ Úthlíö
□ Óðinsgata
Vesturbær:
□ Grenimelur
\wm
\
09 frítt fyrir börn innan 10 ára-
B&MummWmÐestu kjörin, hagkvæmasta veröiö.
Beint leiguflug.
Reyndir fararstjórar,
Seljum farseöla á hag-
kvæmasta veröi um
allan heim.
Benidorm einn veöur-
sælasti staður Spánar.
Ferðamiðstöðin hf.
Aðalstræti 9 Reykjavík. Símar: 11255—12940.