Morgunblaðið - 01.08.1979, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1979
15
Rannsóknin á DC-10
beinist nú að viðhaldi
Chicago. 31. júlí. Reuter.
RANNSÓKNIN á flugslysinu mikla við Chicago í maí,
þegar 273 manns fórust með farþegaþotu af gerðinni
DC-10, beinist í dag aðallega að viðhaldsvinnu við
hreyfla þotunnar. Telur rannsóknarnefndin að röng
vinnubrögð við viðhald hreyflanna geti hafa valdið
slysinu.
Þrír flugvirkjar frá American
Airlines flugfélaginu komu fyrir
rannsóknarnefndina og skýrðu frá
því að þeir hefðu ekki vitað til
þess að neitt tjón hefði orðið á
þotunni þegar vinstri vænghreyf-
ill hennar var tekinn frá til að
skipta um legu í Tulsa, Oklahoma,
tveimur mánuðum fyrir slysið. En
einn flugvirkjanna sagði áiðar að
lyftari hefði verið notaður við
verkið, og hann orðið benzínlaus í
miðju verkinu og þar af leiðandi
tapað lyftiorku.
Það var einmitt
þessi vinstri vænghreyfill, sem féll
af þotunni í flugtaki frá O’Hare
flugveili við Chicago.
Veður
víða um heim
Akureyri 8 alskýjaö
Amsterdam 21 akýjaó
Apena 34 heióskyrt
Bankok 32 heíóakírt
Barcelona 29 bokumóóa
Berlin 24 léttskýjað
Brilssel 20 akýjað
Chicago 31 akýjaó
Feneyjar 30 akýjaó
Frankfurt 25 akýjað
Genf 25 ekýjað
Kaupm.höfn 20 skýjað
Lisaabon 27 léttskýjað
London 21 rigning
Loa Angeles 29 haiðakírt
Madrid 38 léttskýjað
Malaga 33 haiðakírt
Mallorca 32 léttakýjað
Miamí 32 akýjað
Moskva 20 léttskýjað
Nýja Delhi 35 rigning
New York 31 skýjað
Osló 15 skýjað
París 25 rigning
Reykjavík 13 léttskýjað
Rio de Janeiro 29 heiðskírt
Róm 33 léttakýjað
Stokkhólmur 18 skýjað
Sydney 17 skýjað
Teheran 37 heiðskírt
Tel Aviv 30 léttskýjað
Tókýó 34 léttskýjað
Vanvouver 26 léttakýjaö
Vínarborg 28 heiðakírt
Marcuse látirm
Los Angeles, 31. júlí. AP.
HEIMSPEKINGURINN og marxistinn Herbert Marcuse, einn
fremsti leiðtogi stúdentaóeirða í Bandaríkjunum á síðasta
áratug, lézt í Starnberg í Vestur-Þýzkalandi á sunnudag. Hann
var nýiega orðinn 81 árs.
Marcuse fæddist í Berlín 19.
júlí 1898, en fluttist frá Þýzka-
landi við valdatöku Hitlers, og
settist að í Bandaríkjunum árið
1934. Þar starfaði hann fyrst við
Columbia og Harvard háskólana,
varð svo professor í heimspeki og
stjórnmálum við Brandeis há-
skóla, en fluttist til Kaliforníu-
háskóla í San Diego árið 1965 þar
sem hann varð prófessor í heim-
speki. Auk þess starfaði hann
fyrir bandarísku leyniþjónustuna
OSS árin 1941-50.
Marcuse hefur skrifað margar
bækur um heimspeki og marx-
isma, og má þar nefna „Soviet
Marxism" (1958), og „Counter-
revolution and Revolt" (1972).
Marcuse hætti að mestu
kennslu árið 1970, en var þó
daglegur gestur hjá Kaliforníu-
háskóla í San Diego. Á árunum 1
968—69 flutti Marcuse þar reglu-
lega fyrirlestra, sem báru nafnið
„Kenningar og þjóðfélög", og
komust þar jafnan færri að en
vildu.
Á sjöunda áratugnum var
Marcuse oft nefndur „faðir nýju
vinstristefnunnar" og hugsjóna-
leiðtogi uppivöðslusamra stúd-
enta. Þegar fregnin af láti hans
barst til háskólans í San Diego,
fullyrtu sumir starfsbræðra hans
þar að hann hefð verið „einn
mesti hugsuður tuttugustu aldar-
jnnar“.
Bakhtiar í París:
Ny einræðisstjóm
í Iran leysti
þá gömlu af hólmi
Parfe, 31. júlí. Reuter.
SHAPUR Bakhitiar íyrrum forsætisráðherra írans, sem
farið hefur huldu höfði undanfarið hálft ár, er nú í
París, þar sem hann efndi til blaðamannafundar í dag.
Sagði hann að efnahagshrun vofði nú yfir landi sínu
undir byltingarstjórn trúarleiðtoganna, sem steyptu
keisaranum af stóli.
Bakhitiar sagði að fyrr á þessu
ári hefði hann spáð því að með
valdatöku trúarleiðtogans
Khomeinis væri aðeins verið að
skipta um einræðisstjórn í Iran,
og þessi spá væri nú að rætast. En
hann kvaðst ekki hafa séð fyrir
hve algjört einræðið yrði, né hve
fljótt það kæmist á. Hann sagði að
líkja mætti ástandinu í íran í dag
við hálfgerða borgarastyrjöld, og
ganrýndi fyrirætlanir Khomeinis
um að koma á íslömsku lýðveldi í
landinu. „Ef ekki hefur tekizt að
gera íran að íslömsku ríki undan-
farin 1400 ár, þá er það orðið of
seint", sagði hann. Þá vék hann að
því mikla fylgi, sem hugmyndin
um stofnun íslamsks ríkis fékk við
þjóðaratkvæðagreiðslu í landinu
s.l. vor, og sagði: „Eg fæ ekki
skilið, þegar 98,5% kjósenda vildu
stofnun íslamsks lýðveldis, hvers
vegna svo mikil ólga ríkir nú um
allt landið."
Bakhtiar neitaði að gefa nokkuð
upp um hvar hann hefði dvalizt
frá því hann hvarf í febrúar, en þá
hafði hann um mánaðarskeið
gegnt embætti sem síðasti for-
sætisráðherra þáverandi keisara,
en keisarinn fór úr landi í janúar.
Ekki vildi Bakhtiar heldur gefa
neinar ítarlegar upplýsingar um
framtíðaráælanir sínar, en minnti
þó á að Charles de Gaulle þáver-
andi leiðtogi Frjálsra Frakka
hefði unnið erlendis gegn hernámi
nazista í Frakklandi á árum síðari
heimssty rj aldarinnar.
Flóð og þurrkar
hrjá nú Indverja
Hundruð hafa farizt og uppskera spillzt
norðurhluta landsins hafa að
Nýju Delhi, 31. júl(. AP.
I FJÓRUM héruðum Norður-
Indiands hafa að undanförnu
verið mannskæð flóð, en í suður-
hiuta landsins er uppskeran f
hættu vegna þurrka.
í fréttum, sem borizt hafa til
Nýju Delhi segir að á stórum
svæðum í héruðunum Andhra
Pradesh, Maharashtra og Karna-
taka í suðurhluta landsins liggi öll
hveiti- og hrísgrjónauppskera
undir skemmdum vegna þurrka. í
minnsta kosti 1.000 manns farizt í
flóðum í Rajastan héraði einu.
Talið er að um fimm milljónir
manna hafi flúið heimili sín í
Uttar Pradesh, Bihar og Assam.
Það er gífurleg úrkoma, sem
flóðunum veldur í norðurhéruðun-
um, og hafa flóðin skolað burtu
hundruðum manna og þúsundum
húsdýra, flætt yfir akurlendi, og
skolað burtu vegum og járnbraut-
TIU BRUNNUINNI
CambridKe, Ohio. 31. júlí — AP
ELDUR brauzt út í Iloliday Inn gistihúsi við borgina Cambridge í
Ohio í nótt. Segja yfirvöld að tíu manns að minnsta kosti hafi brunnið
inni. og sextíu aðrir voru fluttir í sjúkrahús vegna brunasára eða
reykeitrunar.
í gistihúsinu voru 107 gistiherbergi, og öll nema fjögur leigð út þessa
nótt, en ekki er vitað nákvæmlega hve margir gestirnir voru. Eldurinn
kviknaði klukkan hálf fjögur um nóttina, og tók það slökkviliðið tvo og
hálfan klukkutíma að ráða niðurlögum eldsins.
r
v
/ Kaupmenn — verslunarstjórar! $
AVEXTIR | ÞESSARIVIKU
Ávextir til afgreiöslu í dag og næstu daga:
Appelsínur
Sítrónur
Greipaldin
Eplí rauð
Eplí græn Ferskjur
Melónur gular Perur
Vatnsmelónur Vínber
Plómur Bananar
Fast i öllum helstu matvöruverzlunum landsins.
AVEXTIR ALLA DAGA
Eggert Kristjánsson hf.
Sundagöröum 4, sími 85300