Morgunblaðið - 01.08.1979, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1979
„Blessaður vertu, þetta hefur verið eins og skemmtilegasta útilega & öræfum, “ sögðu
Pétur Jóhannsson (t.h.) og Baldur Guðjónsson. Sfðustu 5 vikur hafa aukastundir og
frístundir fbúanna farið f það að steypa gangstéttir sem þá var farið að lengja eftir
að bærinn legði.
lL.JO8m.M0l.KAA)
Bergþóra Bergsteinsdóttir sagði okkur að nágrannarnir væru alveg „súperu. Eftir
steypuvinnu buðu konurnar til kaffidrykkju og kökuáts langt fram á nótt.
Ibúar Langholts í Keflavík:
Steyptu siálfir gangstéttirnar
Við vorum orðin iangeyg eftir
gangstétt I götunni og þess
vegna ákváðum við að koma
henni sjálf upp. Það hefði ella
ekki gerst á næstu árum,“
sögðu þeir Pétur Jóhannsson
vélstjóri og Baldur Guðjónsson
ráðningarstjóri. Þeir búa báðir
í Langholti í Keflavfk en íbú-
arnir þar tóku sig til nú á
dögunum og steypu gangstétt-
irnar upp á eigin spýtur.
Þeir félagarnir Pétur og
Baldur sögðu að fbúar götunn-
ar hefðu allir staðið einhuga að
baki framkvæmdunum, „því
annars hefði það ekki verið
mögulegt.“ Þetta hefur verið
aukavinna fbúanna síðastliðnar
5 vikur og verið unnið á kvöldin
eftir að fólk var búið f sinni
vinnu. Verkið var unnið í lotum
þannig að steypt var gangstétt
fyrir framan rúmlega 2 hús
hverju sinni. Alls voru steyptar
gangstéttar fyrir framan 20
hús f 8—10 lotum.
Bærinn sá um að skipta um
jarðveg undir gangstéttarnar en
uppsetningu móta og steypu-
vinnu sáu íbtíarnir um. Þeir
borguðu einnig steypuna sem í
framkvæmdirnar fóru. Þeir
kumpánar sögðu að það mætti
reikna með því að gangstéttirnar
kostuðu 120—130 þúsund krónur
fyrir hvert hús.
„Blessaður vertu, þetta hefur
verið eins og skemmtilegasta
útilega á öræfum. Nú eru allir
meira en bara nágrannar, nú eru
allir kunningjar í götunni. Nú
tala allir saman í stað þess að
heilsast bara áður," sögðu Pétur
og Baldvin.
Langholt er tiltölulega ný gata
í vesturhluta Keflavíkur. „Þeir
fyrstu byrjuðu að byggja árið
1964, fyrir 15 árum og enn var
ekki farið að hilla undir gang-
stéttina. Þannig að okkur fannst
tími til þess kominn að láta
drauminn verða að veruleika."
Sagði Baldur að Keflavík hefði
byggst upp á mjög stuttum tíma
og bærinn hefði varla við að sjá
íbúunum fyrir nauðsynlegri
þjónustu. „Og í stað þess að vera
gangstéttarlaus í nokkur á r til
viðbótar þá fannst okkur íbúun-
um vel þess virði að standa
sjálfir fyrir því.“
Bergþóra Bergsteinsdóttir,
sem einnig býr í Langholti sagði
að þessi tími sem fór í að reisa
gangstéttarnar hefði sýnt þeim
að nágrannarnir væru meira en
„bara nágrannar" — væru „alveg
súper". Bergþóra sagði að verka-
skipting hefði verið með kynjun-
um við þessar framkvæmdir og
engir látið sitt eftir sitja. Karl-
arnir sáu um steypuvinnuna en
þegar dagsverkinu var lokið
buðu konurnar körlum sínum til
kaffidrykkju og kökuáts. Oft
lauk vinnunni við steypuna ekki
fyrr en 2 eða 3 tímar voru liðnar
fram yfir miðnætti og þá fyrst
var hægt að kveðja daginn með
kaffi og pönnukökum."
Gangstéttirnar koma vonandi
til með að standa af sér veður og
vinda og vitna um það hvað hægt
er að gera ef viljinn er fyrir
hendi. Og rúsínan í pylsuendan-
um er auðvitað sú að samskipti
ibúanna eru önnur og betri eftir
að hafa staðið í þessum fram-
kvæmdum saman. Það sýnir
framtak íbúanna í Langholti
okkur.
Ljósm. Ól.K.Mag.
Ekkert má nú, hafa þessir herramenn vafalaust sagt, þegar vörður laganna gerði athugasemdir við það að
þeir væru að sóla sig á Austurvelli berir að ofan.
Flugleiðir segja upp
24 af 212 starfsmönn-
um sínum vestanhafs
Minnka sætaframboð sitt
FLUGLEIÐIR hafa sagt upp 24 af
212 starfsmönnum si'num í Ðanda-
ríkjunum. að því er Helga Ing-
ólfsdóttir blaðafulltrúi sagði í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins síðdegis í gær. Af þeim
sem sagt hefur verið upp eru 4
íslendingar. en 20 Bandarikja-
menn. 18 þeirra störfuðu á John
F. Kcnnedy-flugvelli í New York,
en hinir í Ilouston í Texas, í Los
Angeles og á Maimi. Að sögn
Helgu Ingólfsdóttur var cingöngu
farið eftir starfsaldri starfsmann-
um a.m.k. 454 sæti á viku
anna þegar ákveðið var hverjum
yrði sagt upp.
Helga sagði, að uppsagnarfrest-
ur væri samkvæmt bandarískum
lögum tvær vikur, en að auki
bættist ein vika við fyrir hvert ár
sem viðkomandi starfsmaður hefur
unnið hjá félaginu. Ekki er um það
að ræða, að neinir þeirra starfs-
manna sem halda sínum störfum
lækki í launum og deildarstjórar á
Kennedyflugvelli verða áfram fjór-
ir eins og verið hefur.
Samþykkti mælingarnar þegar
hann fékk aðeins áminningu
Breyta þarf reglugerðinni frá 1975
LANDHELGISGÆSLAN setti menn
um borð f pólska togarann Ursus frá
Gdynia í gærmorgun, þar sem togar-
inn var enn að veiðum innan 200
mflna fiskveiðilögsögunnar á þvf
svæði, sem Norðmenn hafa gert
kröfu til að miðlfna gilti gagnvart
Jan Mayen. í Ijós kom að togarinn
hafði ekki verið á sfldveiðum, eins og
áhöfn landhelgisgæzluflugvélarinn-
ar taidi, er hún flaug yfir togarann f
fyrradag, heldur var afli togarans
eingöngu kolmunni. Skipstjórinn
viðurkenndi mælingar varðskipsins
eftir að honum varð ljóst að hann
yrði ekki færður til hafnar. heldur
aðeins áminntur.
Landhelgisgæzluflugvélin flaug
yfir togarann í fyrradag, skipaði hún
honum að fara út fvrir 200 mílna
mörkin, en hann reyndist þá 14 mílur
innan við þau. Togarinn sinnti ekki
boðum flugvélarinnar og var því
varðskipið Þór , sem var í grennd,
sent á vettvang. í ljós kom að
samkvæmt mælingum togarans
skakkaði um 50 sjómílum á mæling-
um togarans og varðskipsins og taldi
skipstjórinn sig vera 10 sjómílur utan
við mörkin. Neitaði hann í fyrstu að
viðurkenna mælingar varðskips-
manna, en eftir talsvert þóf og þá
einkum, er honum varð ljóst, að hann
hlyti aðeins áminningu, féllst hann á
útreikninga varðskipsmanna. Ástæð-
an fyrir því, hve mikil skekkja var á
mælingu togarans, var að hann not-
aði Decea-kerfi, sem er lítt nothæft á
þessum slóðum, en hins vegar betra
til notkunar á Norðursjó, eða á
suðlægari slóðum.
Varðskipið fylgdi síðan togaranum
út fyrir 200 mílna mörkin og mun
hann hafa tekið blátt strik í austur-
átt.
Menn hafa mjög velt því fyrir sér,
hvers vegna íslenzk stjórnvöld
ákváðu að færa ekki pólska togarann
Ursus frá Gdynia til hafnar, en veita
aðeins skipstjóranum áminningu.
Morgunblaðið spurði Steingrím
Hermannsson, dómsmálaráðherra að
þessu í gær og sagði hann það vegna
þess að í reglugerð, sem sjávarút-
vegsráðherra hafi gefið út á árinu
1975 á grundvelli fiskveiðilaga, segði
að henni skuli ekki beita á svæðinu,
sem þarna er um að ræða. Hins vegar
sagði hann, að í athugasemdum við
frumvarp til laga um efnahagslög-
sögu íslands segði að þetta væri fellt
úr gildi. „Slíkt getur aldrei staðizt,“
sagði Steingrímur, að athugasemdir
frumvarps, sem flutt er af ráðherra,
felli úr gildi ákvæði reglugerðar, sem
sett eru af öðrum ráðherra, þar sem
ekkert segir um þetta í lögunum
sjálfum."
Steingrímur kvaðst hafa leitað um-
sagnar lögfróðustu manna og þetta
hafi verið niðurstaða þeirra. Morg-
unblaðið spurði þá Steingrím hvort
formgalli væri á lögunum og kvað
hann svo ekki vera. Aðeins þyrfti
sjávarútvegsráðherra til þess að
breyta reglugerðinni frá 1975. Það
hafi hann enn ekki gert og taldi
Steingrímur það m.a. vera vegna þess
að utanríkisráðherra hafi verið í
sumarleyfi og við hann vildi sjávrút-
vegsráðherra hafa samráð í þessu
efni. Utanríkisráðherra var væntan-
legur heim frá Bandaríkjunum í
gærkveldi.
Að sögn Helgu hefur enn ekki
verið ákveðið hvort haldið verði
uppi flugi til Baltimore og Wash-
ington í vetur, en ferðum verður
fækkað til New York niður í fimm
ferðir á viku, og ferðum til Chicago
fækkar í tvær á viku. Vikulegt
sætaframboð minnkar þó ekki jafn
mikið og þessi fækkun flugferða
gæti gefið til kynna. Gert er ráð
fyrir að tvö breiðþotuflug verði á
viku til New York, og þrjú áttuflug,
og að til Chicago verði flogið á
breiðþotu félagsins einu sinni í
viku og einu sinni á áttu. Breiðþot-
an tekur 380 farþega en áttan 249. í
viku hverri verða því boðin 1507
sæti til New York, en í fyrra voru
þau 1843, er flogið var daglega á
DC-8. Til Chicago verða boðin 629
sæti, í stað 747 í fyrra. Samtals eru
því boðin 2136 sæti í flugi til
Bandaríkjanna í stað 2590 í fyrra,
eða 545 sætum færra, verði engar
breytingar á fluginu til Baltimore.
Virdum hámarks-
hraða, fækkum t:ys-
um.