Morgunblaðið - 01.08.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1979
19
V estmannaeyjar:
4,5 milljónir kr. í
olíukyndingu á dag
í GREIN Guðlaugs Gfslasonar í
blaðinu í gær um hraunhitaveit-
una í Vestmannaeyjum íéll niður-
lag greinarinnar út, en það fer
hér á eftir:
Olía fyrir 4%
millj. á dag
Olíusparnaður er nú mjög á
dagskrá hjá stjórnvöldum, eins og
eðlilegt er. í þessu sambandi er
rétt að benda á, að miðað við 157
kr. olíuverð eins og lítrinn raun-
verulega kostar nota Vestmanna-
eyingar 4,5 milljónir kr. á dag til
kyndingar húsa og er þá ekki
reiknað með þeim hluta baejarins
sem nýtir hraunhitann. Stjórn-
völd ættu því svo sannarlega að
beita áhrifum sínum til þess að
hitaveituframkvæmdum í Eyjum
yrði lokið þegar fyrir næstu ára-
mót eins og aðstaða er til ef rétt er
á málum haldið og spara þannig
þann gjaldeyri sem til þessara
olíukaupa fer.
Guðlaugur Gíslason.
Seldu í
Bretlandi
L-Æ-J
samsvarar 31 krónu pr. lítra.
Allir sem fást við stillingar bílvéla vita, að benzíneyðslan
eykst um 10—25% milli kveikjustillinga.
Eftir ísetningu LUMENITION kveikjunnar loona bíleig-
endur algjörlega við þá eyðsluaukningu, sem slitnar
platfnur valda, því f þeim búnaði er ekkert, sem slitnar eða
breytist.
Með LUMENITION vinnur vélin alltaf eins og kveikjan vaeri w
nýstillt.
LUMENITION fylgir 3ja ára ábyrgð.
Verð miðað við gengi 20.7.79: Kr. 46.000.-.
HABERG ht 5.84788. J
Meö kaupstefnuferð
KAUPMANNAHÖFN
— LEIPZIG
TIL LEIPZIG
1/9—9/9
daglega..............frá 11.20 til 12.30 IF 101 Y T134
1/9—9/9
daglega............ frá 18.15 til 19.30 SK 753 Y DC-9
FRÁ LEIPZIG
2/9—9/9
daglega.............. frá 9.20 tll 10.30 IF 100 Y T134
1/9—9/9
daglega............ frá 20.15 til 21.20 SK 754 Y DC-9
Réttur til breytinga áskilinn
Beint samband viö haustkaupstefnu í Leipzig
1979 þar sem alþjóða kaupsýsiufólk hittist
Milli flugvallarins í Leipzig og miöborgarinnar eru
, reglubundnar rútuferöir.
Upplýaingar
DDRs Trafikrepræsentation
Vesterbrogade 84
1620 Kdbenhavn V.
Tlf.. (01) 24 6866
Telex. 15828
Upplýaingar og bókanir
SAS Terminalrejsebureau
Hammerichsgade
1611 Kpbenhavn V.
eller
SAS pladsbestilling, Tlf.: (01) 595522
samt hos alle lATA-bureauer
Den Tyske Demokratiske Republiks luftfartsselskab
Góð veiði hjá
togurum BUR
ÞORSKVEIÐIBANN hófst
í gær, en það nær yfir
tímabilið frá 31. júlí til 6.
ágúst.
Bannið tekur til allra
þorskveiðiskipa, nema
þeirra togara sem hlíta
verða 70 daga þorskveiði-
banni.en 30 dagar þess
verða að takast út í júlí og
ágúst.
Bannið stendur sem fyrr
segir til 6. ágúst, og mega
veiðar því hefjast á ný
þann 7. sem er þriðjudag-
urinn eftir frídag verslun-
armanna.
TOGARAR Bæjarútgerðar
Reykjavíkur hafa aflað vel að
undanförnu og um helgina hafa
þannig Ingólfur Arnarson og
Snorri Sturluson komið inn með
fullfermi eða kringum 300 tonn,
svo til eingöngu þorsk.
Þá komu fyrir helgina togararn-
ir Hjörleifur og Bjarni Benedikts-
son til hafnar með 147 tonn og 278
tonn, einnig svo til eingöngu þorsk
að því er Einar Sveinsson, for-
stjóri Bæjarútgerðarinnar, tjáði
Mbi. Sagði Einar, að togararnir
færu nú á karfa nema hvað Bjarni
Benediktsson myndi áfram verða
á þorskveiðum og Ingólfur fer
einn túr á karfa en síðan í vélavið-
gerð. Sagði hann að mikil vinna
væri nú við vinnslu afla úr togur-
unum.
Einar Sveinsson sagði, að búið
væri að breyta öllum Spánartog-
urunum þremur, þ.e. Bjarna,
Ingólfi og Snorra, til svartolíu-
notkunar og hefðu ekki komið upp
nein vandamál í sambandi við það,
en ekki væri enn ákveðið hvort
gerðar yrðu breytingar á Hjör-
leifi.
Heimsmeistaramót unglinga í skák:
Margeir sigraði
í fjórðu umferð
FIMM íslenzk fiskiskip
hafa selt afla í Bretlandi
það sem af er þessari viku
og hefur misjafnt verð
fengist fyrir aflann, þar
sem gæði hans hafa verið
mjög misjöfn.
í gær seldu tvö skip, Fylkir NK
seldi 36,6 tonn í Hull fyrir 8
milljónir króna, meðalverð 220
krónur fyrir kílóið og Rán GK
seldi 120,5 tonn, einnig í Hull og
fékk fyrir aflann 41 milljón, með-
alverð 340 krónur fyrir kílóið.
Á mánudaginn seldi Erlingur
GK 121,3 tonn í Hull fyrir 58
milljónir króna og var meðalverð-
ið mjög gott, 478 krónur kílóið.
Sama dag seldu í Fleetwood Haf-
berg GK 44,4 tonn fyrir 16 millj-
ónir, meðalverð 362 krónur og
Bjarnarey VE 37,5 tonn fyrir 8,5
milljónir, meðalverð 227 krónur.
Viku þorsk-
veiðibann
hófst í gær
MARGEIR Pétursson, sem keppir
nú á heimsmeistaramóti unglinga
í skák í Skien í Noregi, vann í gær
Rogers frá Ástralíu í fjórðu um-
ferð mótsins.
Margeir hafði svart og tefldi
skákina vel frá upphafi. Hann náði
að þrýsta á veikt peð og skipti
síðan upp í endatafl. Þessi veikleiki
andstæðingsins nýttist vel og Mar-
geir vann örugglega í 37 leikjum.
Hann er nú með tvo og hálfan
vinning, en staðan á mótinu nú er
mjög óljós vegna mikils fjölda
biðskáka. Efstur á mótinu er Ravi
Kumar frá Indlandi, en hann er
með fjóra vinninga, hefur unnið
allar skákir sínar, en Ravi þessi er
nú unglingameistari Asíu. Næstur
honum er Alexander Chernin frá
Sovétríkjunum með þrjá og hálfan
vinning. Margar biðskákir eru
ótefldar og getur því staðan breyst
nokkuð frá því sem nú er, en skákir
þessar átti að tefla seint í gær-
kveldi.
Sýna í Ásmundarsal
MIÐVIKUDAGINN 1. ágúst kl.
18 verður opnuð myndlistarsýn-
ing í Ásmundarsal við Freyju-
giitu í Rvk. Þau sem sýna eru
Ásta Björk Ríkharðsdóttir, Daði
Guðbjörnsson, Sveinn Sigurður
Þorgeirsson og Tumi Magnússon.
Þau hafa öll stundað nám við
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands, og einnig í Hollandi, nema
Daði.
Á sýningunni kennir margra
grasa í búningi ljósmynda, skúlp-
túra o.fl., o.fl. Öll verkin eru unnin
á þessu ári.
Sýning fjórmenninganna í Ás-
mundarsal er opin daglega frá
18—22, en hún stendur til 12.
ágúst nk.
Á myndinni eru talið frá vinstri:
Daði Guðbjörnsson, Tumi Magn-
ússon, sól í stað Ástu Bjarkar
fjarstaddrar — og Sveinn Sigurð-
ur Þorgeirsson.
6.113