Morgunblaðið - 01.08.1979, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1979
t
Móðir mín,
HÓLMFRÍÐUR JÓNASDÓTTIR,
lést 30. júlí aö heimili sínu Flókagötu 13.
Brynjólfur Brynjólfsson.
t
Utför
SÓLRÚNARJÓNASDÓTTUR,
er andaðist aö Elliheimilinu Grund, 26. þ.m. fer fram frá
Fossvogskirkju, fimmtudaginn 2. ágúst kl. 3.
Vandamenn.
t
Móöir okkar og tengdamóöir,
STEINUNN HARALDSDÓTTIR,
frá Geirmundarstöðum,
andaöist á Elliheimilinu Grund 28. júlí.
Jaröarförin fer fram frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 7. ágúst kl. 3
e.h.
Börn og tengdabörn.
GUÐRÍOUR INGIMUNDARDÓTTIR,
Nýbýlavegi 84,
sem lést 23. þ.m. veröur jarösungin frá Kópavogskirkju
fimmtudaginn 2. ágúst kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuö, en þeir sem vilja minnast hinnar
látnu, láti Irknarstofnanir njóta þess.
Fyrir hönd vandamanna. „ .. „ ,
Margrét Helga Halldórsdóttir,
Júlíus Egílsson.
t
Maöurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
BJÖRN AÐALSTEINSSON,
Laufvangi 16,
veröur jarösunginn frá Þjóökirkjunni í Hafnarfiröi föstudaginn 3.
ágúst kl. 1.30.
Fyrir mína hönd, barna okkar, tengdabarna og barnabarna,
Hanna Fríðjónsdóttír.
t
Móöir okkar, tengdamóöir, fööursystir, amma og langamma,
KRISTÍN JÓNSDÓTTIR,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 2. ágúst kl.
1.30 e.h.
Sigurjón Jóhanneason,
Sigrún Guðmundsdóttir,
Sólmundur Jóhannesson,
Sígríöur Elíasdóttír,
Sigurfljóð Jónsdóttir og fjölskylda,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Sonur okkar og bróðir,
RAGNAR BJARNI STEINGRÍMSSON,
Lést at slysförum þann 29. júlí.
Hjördís Þorsteinsdóttir, Steingrímur Gunnarsson,
íris Dóróthea Randversdóttir,
Randver Þorvaldur Randversson,
Lára Björk Steingrfmsdóttir,
Margrét Hildur Steingrímsdóttir,
Rafnar Steingrímsson.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö fráfall
eiginmanns, sonar og fööur,
KRISTINS M. GUNNARSSONAR,
írabakka 12, Rvík.
Svanhildur Jónsdóttir,
Sigurjóna Kristinsdóttir,
og börn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
GUÐBJARGAR R. GUÐMUNDSDÓTTUR,
Fýlshólum 1.
Snorri Guðnason,
Björk E. Jónsdóttír, Bryndís Dagsdóttir,
Svala S. Jónsdóttir, Einar S. Einarsson,
Jón Smári Einarsson, Eydís S. Einarsdóttir,
Einar Snorri Einarsson.
SKAPTIÓLAFSSON
—MINNINGARORÐ
Fæddur 21. maí 1889
Dáinn 16. júlí 1979.
Það er löng ævi níutíu ár, og þá
er þreyttum ljúft að hvílast.
Þannig var það með tengdaföður
minn Skapta Ólafsson. Hann
þráði að komast heim, eins og
hann orðaði það. Hann hafði lifað
við góða heilsu mestan hluta
ævinnar, en nú var hann farinn að
kröftum, vildi því hverfa, og það
var hinum tilhlökkun, því hann
var trúaður maður, og var viss um
að látnir ástvinir tækju á móti
honum þegar þar að kæmi. Nú er
hann horfinn á vit feðra sinna,
hann lést að kveldi 16. júlí síðast-
liðinn.
Skapti var gæfumaður, hann
hefur lifað undir heillastjörnu sé
hún til. Hann var hraustur,
sterkur atorkumaður, sem flanaði
ekki að neinu, og naut trausts og
virðingar í öllum þeim störfum er
hann tók sér fyrir hendur.
Skapti var fæddur 21. maí 1889
á Eyrarbakka. Foreldrar hans
voru hjónin María Þorvarðar-
dóttir Jónssonar prests á Prests-
bakka á Síðu, og Ólafur Bjarnason
söðlasmiður Gissurarsonar bónda
Steinsmýri í Meðallandi.
Skapti fluttist með móður sinni
upp á Kjalarnes árið 1895 og var
þar þar til hann fluttist ungur að
árum með móðurbróður sínum,
séra Þorvarði Þorvarðarsyni,
síðar prófasti í Vík í Mýrdal,
norður að Víðirhóli á Fjöllum, og
dvaldi þar hjá honum við nám um
þriggja ára skeið. Sú menntun
varð honum gott veganesti út í
lífið því Skapti var námfús, og
séra Þorvarður framúrskarandi
kennari. Sautján ára hóf hann
nám í skipa- og húsasmíði og lauk
sveinsprófi tuttugu og eins árs.
Hann stundaði síðan trésmíðar og
einnig önnur störf er' til féllu, svo
sem við hvalskurð, með
Norðmönnum austanlands, var til
fiskjar á kútterum, verkstjóri og
beykir hjá þeim fræga útgerðar-
og athafnamanni Óskari
Halldórssyni. Óskar lét sig ekki
muna um að borga Skapta þrefalt
kaup, er gert var upp við síldar-
vertíðarlok, og má ráða nokkuð af
því um dugnað Skapta.
Skapti var verkstjóri hjá Vega-
gerð ríkisins um nokkur ár, en
stofnaði síðan verzlunina Málar-
ann, ásamt Pétri Guðmundssyni,
og var á sama tíma skipaður
húsamatsmaður árið 1928 hjá
Veðdeild Landsbanka íslands, og
vann hann á báðum þessum
stöðum um nokkurt skeið. Hann
seldi síðar hlut sinn í Málaranum,
en eftir það vann hann hjá
Veðdeildinni yfir fjörutíu ár. Hjá
Veðdeildinni naut Skapti sín vel,
og taldi að hvergi hefði hann haft
betri húsbændur en þar. Það
gegndi furðu hvað Skapti var
léttur á fæti, því að jafnvel eftir
að hann var áttræður hljóp hann
upp og niður stiga í margra hæða
húsum eins og að ekkert væri,
þegar hann var að meta þau, og
vann oft og tíðum við skriftir fram
á nótt. Hann vann fullt starf þar
til hann var áttatíu og tveggja
ára, en þá leyfði heilsan ekki meir.
Skapti var orðheppinn vel, fynd-
inn og skemmtilegur glaður í
góðra vina hópi, en hann gat líka
verið harður í horn að taka í
orðaskiptum og lét engan eiga
neitt hjá sér ef hann komst í þann
ham.
Skapti kvæntist 15. apríl 1911,
Sveinborgu Ármannsdóttur, Jóns-
sonar bónda og skipasmiðs á
Saxhóli á Snæfellsnesi og konu
hans Katrínar Sveinsdóttir.
Skapti og Sveinborg eignuðust
þrjú börn, sem öll eru á lífi, þau
eru Gísli trésmiður, kvæntur
Sigríði Vilhjálmsdóttur, Katrín
gift Jóni Jóhannessyni stórkaup-
manni og Aðalheiður gift undir-
rituðum.
Það var fyrir rúmum fjörutíu
árum, að ég kynntist þeim hjónum
Skapta og Sveinborgu. Sveinborg,
sem látin er fyrir 14 árum, var
tíguleg kona, sem tekið var eftir
hvar sem hún fór, vel gefin, gott
skáld og lét sig ekki muna um að
snara fram vísum dýrt kveðnum
ef svo bar undir, og átti hún til
með að glettast við eiginmanninn
og senda honum vísu, en hann
kunni einnig margt fyrir sér í
þeim fræðum, enda átti hann til
þeirra að telja, því móðir hans
María Þorvarðardóttir var þekkt
skáldkona. Það var gaman að
heyra þau hjónin rifja upp gamlar
stökur er þau höfðu ort. Flestar
vísur Skapta eru glataðar, því
miður, en ýmislegt er til eftir
Sveinborgu, sem gaman væri að
sjá á prenti. Það var oft kátt í koti
hjá þeim, bæði vel lesin og höfðu
frá mörgu að segja. Þau kunnu
heil ósköp af kúnstugum vísum og
kvæðum, og þá voru margar
sögurnar ekki síðri. íslensk tunga
var þeim kær, þau töluðu fallegt
mál og höfðu næmt eyra fyrir
hrynjanda þess.
Þau hjónin voru tónlistarunn-
endur og höfðu góða söngrödd
Skapti hafði spilað á harmoniku á
sínum yngri árum, og frúin spilaði
á orgel og var oft mikið sungið
þegar gest bar að garði.
Þau hjónin voru kærleiksríkar
manneskjur, og var ekki sjaldan
að frú Sveinborg sendi dætur
sínar eða son, til að hygla ein-
hverjum sem í erfiðleikum átti. Ég
varð oft var við, að Skapti kom
hlaupandi heim til þess að ná í
eitthvað til að gefa, því í starfi
sínu fór ekki hjá því að hann sæi
margt fólk, sem bjó við þröngan
kost, og stundum átakanlega
þröngan, einkum fyrr á árum, og
það mátti Skapti ekki sjá. Þau
voru höfðingjar í lund, bæði tvö.
Þau horfðu ekki eingöngu á vand-
ann, þau leystu hann einnig.
Þannig man ég þau heiðurshjón.
Nú eru þau horfin okkar sjón-
um, ég finn til tómleika í hjarta,
en ég gleðst yfir því að Skapti
hefur fengið þráða ósk uppfyllta
og ég vona að draumurinn sem
hann dreymdi fyrir nokkru hafi
ræst, að hann hafi hitt konu sína
þar sem hún beið hans fyrir
framan bæinn við litlu tjörnina.
Að iokum votta ég aðstandend-
um samúð mína.
Þorgrímur Einarsson.
t
Þökkum auösýnda samúö og vináltu við andlát og Jarðarför,
MARGRÉTAR EINARSDÓTTUR,
Mosabaröi 9, Halnarfiröi.
Kjartanía Vílhjólmsdóttir, Jón Markússon,
Elín Vilhjálmsdóttir, Þórarinn G. Jónsson,
og barnabörn.
t
Hjartanlega þökkum viö öllum er vottuöu okkur samúö og vináttu
viö andlát og útför,
ODDS VAGNS HJÁLMARSSONAR,
Hvanneyrarbraut 60, Siglufiröi.
Gunnfríöur Friöriksdóttír,
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Þökkum vinarhug og samúö viö andlát og útför bróður okkar,
JÓNASAR ÓLAFSSONAR,
Fyrir hönd systra og annarra vandamanna,
Leo Ólafsson.
t
Hjartans þakkir færum viö öllum þeim, er sýndu okkur samúö og
kærleik viö andlát og útför
FELIX EINARSSONAR,
Hllöarvegi 9, Siglufiröi.
Faöir, systkini og aörir vandamenn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og útför konu minnar
og móöur okkar.
NÖNNU MAGNÚSDÓTTUR,
Mávahlíö 18
Dómald Ásmundsson,
Burkni Dómaldsson,
Kristín Dómaldsdóttir,
Magnús Dómaldsson,
Guörún Dómaldsdóttir.
Skrifstofa okkar
verður lokuð í dag
vegna jaröarfarar Skapta Ólafssonar.
Jón Jóhannesson & Co s.f.