Morgunblaðið - 26.08.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.08.1979, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1979 Hvalveiðamar hafa sjaldan gengið jafn vel 357 hvalir veiddir, 319 á sama tíma í fyrra HVALVEIÐARNAR hér við land hafa sjaldan eða aldrei Kengið jafn vel og í sumar, samkvæmt þeim upplýsingum sem Mbl. fékk í gær á skrifstofu Hvals hf. og til marks um það má nefna að enginn dagur hefur fallið úr vegna brælu frá því í gær höfðu veiðst 357 hvalir en á sama tíma í fyrra höfðu veiðst 319 hvalir og hófust þó veiðarnar 12 dögum seinna í ár. Skiptingin er sú að veiðst hafa 250 langreyð- ar, 48 búrhvalir og 59 sandreyðar. Á sama tíma í fyrra höfðu veiðst 217 langreyðar, 101 búrhvalur og aðeins ein sandreyður. veiðarnar hófust 10. júní. Hvalveiðum lýkur venjulega um 20. september og ef sæmilega veiðist síðasta mánuðinn fer veið- in væntanlega eitthvað yfir 400 hvala markið en undanfarin ár hafa veiðst á bilinu 380—430 hvalir árlega. Þess má geta að hámarksveiði á langreyði er 304 dýr og hámarks veiði á sandreyði er 84 dýr. Ákvörðun um fyrir- komulag gæzlu í Þórsmörk í vetur í SUMAR hafa tveir starfsmenn á vegum Skógræktar rfkisins verið við störf í Þórsmörk auk þeirra tveggja skálavarða sem um árabil hafa sinnt eftirliti með Skagfjörðsskála Ferðaféiagsins í Þórsmörk. Voru þessir starfs- menn Skógræktarinnar ráðnir með nokkrum fjárstuðningi frá dómsmálaráðuneytinu og er starf þeirra einkum fólgið í að fylgjast með umgengni ferðamanna, vera Deildu um vara- mannssæti HATRÖM deila hefur staðið milli Guðrúnar Helgadóttur borgarfulltrúa Alþýðubanda- lagsins og Sjafnar Sigur- björnsdóttur borgarfulltrúa Alþýðuflokksins um það hvor þeirra væri varamaður Kristjáns Benediktssonar, borgarfulltrúa Framsóknar- flokksins í borgarráði. Var deilt um þetta fyrir fund borgarráðs, þar sem afstaða var tekin til ráðningar fram- kvæmdastjóra Æskulýðsráðs. Niðurstaða í deilunni fékkst ekki fyrir fundinn, svo að bæði Guðrún og Sjöfn sóttu hann. Fyrir fundinn tók Björgvin Guðmundsson sér síðan frest og sat á fundi með Agli Skúla Ingibergssyni borgarstjóra, þar sem þeir ræddu málin. Niðurstaða þeirra varð sú, að Sjöfn Sigurbjörnsdóttir væri varamaður Kristjáns. fólki til leiðbeiningar til dæmis við ferðir yfir árnar þarna og þá sérstaklega Krossá. Einnig sinna þessir starfsmenn innheimtu á tjaldleigu og halda sauðfé frá Mörkinni en hún er friðuð fyrir fénaði. Böðvar Bragason sýslumaður Rangárvallasýslu sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði sl. föstudag farið inn í Þórsmörk ásamt yfirlögregluþjóni sýslunnar og formanni Náttúruverndar- nefndar sýslunnar og hefðu þeir rætt við fólkið, sem starfað hefur í Þórsmörk í sumar og reynsluna af störfum þeirra í ljósi þeirra óhappa, sem orðið hafa í Krossá í sumar. Sagði Böðvar að í vetur væri ætlunin að þeir aðilar, sem hagsmuna hafa að gæta í Þórs- mörk reyndu að komast að niður- stöðu um það hvernig best væri að haga gæzlu við árnar í Þórsmörk og á svæðinu almennt í framtíð- inni. Einn möguleikinn væri að auka þar gæzlu á vegum lögregl- unnar og annar að auka gæzlu á vegum sumsjónaraðila Þórsmerk- urinnar, sem er Skógrækt ríkisins, en í umboði hennar hefur Ferða- félag íslands þar aðstöðu. „Þetta er mjög stórt og erfitt verkefni úrlausnar, því í Þórs- mörkina sækir margt fólk og aðstæður í ánum er stöðugt að breytast," sagði Böðvar og tók fram að þeir aðilar, sem myndu fjalla um þetta mál í vetur yrðu Skógrækt ríkisins, Ferðafélag íslands, Náttúruverndarráð og yfirvöld í sýslunni. INNLENT Miklar hækkanir á verði fasteigna: 4 herbergja íbúðir hafa hœkkað um 9 milljónir kr. frá áramótum MIKLAR verðhækkanir hafa orðið á fasteignum að undanförnu, eins og raunar hefur komið fram í fréttum frá Fasteignamati rfkisins, en þar er frá því skýrt að fasteignaverð muni hækka um 63—68% milli áranna 1978 og 1979. Morgunblaðið hefur leitað til fasteignasala, og beðið þá um að nefna dæmi um hækkanir á verði íbúðarhúsnæðis frá áramótum. Er ljóst að um miklar verðhækkanir hefur verið að ræða, og voru nefnd dæmi um allt frá 40% hækkun upp í 46%. Tveggja herbergja íbúðir í blokk hafa til dæmis hækkað í verði frá því í janúar um 5.5 milljónir króna, úr 12,5 milljónum í 18 milljónir. Hér fara á eftir nokkur dæmi um verðhækkanirnar, en tekið skal fram að verðið er miðað við nýlegt húsnæði í Reykjavík. Verð í Verð í Hækk- Hækk- Tegund húsnæðis jan. ágúst un í kr. un í % Raðhús tilb. u. tréverk og málingu. 6 hb. 19.5 m 28.5m. 9.0 m. 46% 2ja hb. íbúð í blokk 12.5 m. 18.0 m. 5.5 m. 44% 3ja hb. íbúð í blokk m/bflskúr 16.5 m. 24.0 m. 7.5 m 45% 4ra hb. hæð í fjórbýlishúsi 22.0 m 31.0 m. 9.0 m. 40% 6 hb. hæð í fjórbýlishúsi 32.0 m. 45.0 m. 13.0 m. 40% Framangreint verð er að sjáifsögðu breytilegt eftir því hvar húsnæðið er í Reykjavík, eftir því í hvernig ástandi viðkomandi eign er, eftir því hvernig semst um útborgun, eftir því hvenær seld eign afhendist o.sv.frv. Dæmin eru meðaltal og ættu að gefa góða mynd af verðhækkunum á umræddu tímabili. Sáralítil loðnuveiði SÁRALÍTIL loðnuveiði var á miðunum djúpt norð-austur af landinu í fyrrinótt þrátt fyrir mjög gott veiðiveður. Virðist svo sem loðnan hafi staðið svo djúpt að hún náðist ekki. Nokkrir bátar köstuðu á smátorfur en fengu aðeins 10—20 lestir. Loðnuverð tilskipta 17,57 kr. SKIPTAVERÐ þeirrar loönu, sem að undanförnu hefur verið að veiðast er 17,57 krónur fyrir hvert kg. Grunnverðið miðað við 11% fituinnihald og 16% þurrefni er 17,05 krónur á hvert kg, en heildarverðið, þ.e. verðið ásamt olíu- gjaldi og gjaldi í stofn- fjársjóð fiskiskipa er 21,32 krónur á hvert kg. Eins og fram hefur komið í fréttum ákvað Verðlagsráð sjávarútvegsins hinn 21. ágúst lágmarksverð á loðnu veiddri til bræðslu frá og með 20. ágúst til loka haustloðnuvertíðar 1979. Er verðið uppsegjanlegt frá og með 1. október 1979 með viku fyrirvara. Ákvörðun ráðsins var að hvert kg skyldi kosta 20,40 krónur og er þá miðað við 16% fituinnihald og 15% fitufrítt þurrefni. Er verðið síðan breytilegt eftir gæðum loðn- unnar, svo sem að framan greinir. Æfa leit og björgun í sjóogvötnum BJÖRGUNARSVEITIR Slysa- varnarfélags íslands á svæðinu frá Þjórsá að Snæfellsnesi hafa um þessa halgi verið með sérstak- ar æfingar fyrir leit í sjó og vötnum. Sveitirnar, sem eru 15 talsins, hittust í Ferstiklu í Hvalfirði s.l. föstudagskvöld en þar hafa þær bækistöð á meðan æfingarnar standa yfir. í gær, laugardag, æfðu þær leit í sjó við Hvítanes í Hvalfirði, en í dag, sunnudag, munu þær æfa leit og björgunar- aðgerðir í Geitabergsvatni í Svínadal. í æfingunum taka þátt froskmenn og kafarar sveitanna og aðrir björgunarmenn. Sveit- irnar hafa yfir góðum búnaði að ráða t.d. slöngubátum og einnig hafa þær haft björgunarbátinn Gísla J. Johnsen til umráða í þessum æfingum. Votabergið við bryggju á Eskifirði og engu er Ifkara en að báturinn sé orðinn frambyggður, þar sem húsið er komið fram á. (LJósm. Æv»r). Eskifjarðarbátur var dæmd- ur ónýtur eftir árekstur Eskiíirði, 22. áfcúst. VOTABERGIÐ frá Eskifirði lenti í árekstri á miðum Austufjarða- báta við Guðmund Kristin frá Fáskrúðsfirði fyrr í sumar. Mikl- ar skemmdir urðu á votaberginu og hefur skipið nú verið dæmt ónýtt, þar sem ekki er talið að svari kostnaði að gera við það. Á Eskifirði hefur verið unnið að því undanfarna daga að rífa skipið og hirða úr því það sem nýtilegt er, þ.e. tæki, vélar og slíkt. Síðan verður skipinu sökkt eða brennt. Votaberg SU 14 er byggt úr eik í Danmörku 1960 og er 70 lestir að stærð og eigandi er Austfirðingur hf. á Eskifiirði. Meðfylgjandi mynd var tekin á Eskifirði þegar verið var að rífa skipið. - Ævar. Úrslit ÚRSLITALEIKURINN í bikarkeppni KSÍ verður á Laugardalsvelli í dag, sunnudag, og hefst hann klukkan 14. Til úrslita leika Reykjavíkurliðin Valur og Fram. Dómari verður Þor- í dag varður Björnsson en heiðursgestur leiksins verður Björgvin Schram, fyrrverandi formaður KSI og mun hann afhenda sigur- liðinu bikarinn að leik lokn- um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.