Morgunblaðið - 26.08.1979, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 26.08.1979, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1979 27 Björn G. Ólafsson: Athuga- semd vegna hvalveiða Á sviði náttúruverndar og auð- lindastjórnunar er naösynlegt aö íslendingar móti markvissa og ein- arðlega stefnu, jafn út á við sem inn á við. Að öðrum kosti verða mögu- leikar litlir til áhrifa í þessum mikilvægu málum. Aðalreglan sem ég tel að fara beri eftir við náttúru- vernd er sú að forðast beri að gera nokkrar óafturkallanlegar breyting- ar á lífrfki náttúrunnar. Reglur um verndun eða nýtingu fiski- og dýrastofna geta annarsveg- ar náð til einstakra svæða (landhelgi t.d.) hins vegar einstakra stofna eða teguna óháð staðsetningu. Svæðis- verndun stofna nær aðeins tilgangi sínum ef stofninn er staðbundinn allt æviskeið sitt. Vandamál varðandi sameiginlega nýtingu (eða verndun) óstaðbundinna stofna virðast að mestu óleyst á alþjóðavettvangi. Slík mál hafa þó mikla þýðingu fyrir íslendinga, samanber loðnu- og síld- veiðar. í þessu efni verða menn að vera sjálfum sér samkvæmir, ekki dugir að beita hentistefnu. Þannig er t.d. óskynsamlegt að áfellast Norðmenn fyrir að veiða loðnu sem telst uppalin innan íslenskrar landhelgi, en leyfa jafnframt veiðar á búrhval sem getur eins verið upprunninn frá friðuðu svæði í suðurhöfum. Stuðningsmenn hvalveiða halda því fram að hvalir séu ekki ofveiddir hér við land. Því sé réttlætanlegt að halda áfram hvalveiðum héðan. Jafn- framt þurfi íslendingar ekki að styðja Álþjóðlegt bann við hvalveið- um. Spurningunni um hvort hvala- stofnar séu ofveiddir hér við land verður ekki svarað hér. Fullyrða má þó að þekking á stofnum í Norður-Atlantshafi er mjög ábóta- vant. Aðalatriðið í málinu er hvort íslendingar eigi að styðja alþjóðlegt bann á hvalveiðum. Þá er gengið út frá því að ýmsar hvalategundir séu í útrýmingarhættu víðsvegar um heim, jafnvel þótt sýna megi fram á að stunda megi veiðar héðan um langt skeið. Ákvarðanir um þetta atriði ber stjórnmálamönnum að taka sem og ákvarðanir um hámarksveiði á fiski- stofnum innan eigin landhelgi. Slík ákvörðun er ekki í verkahring t.d. vísindamanna, eigenda vinnslustöðva eða embættismanna. Upplýsingar frá slíkum aöilum um stærð og stofna hagkvæmni veiða eru þó að sjálf- sögðu mikilvægar fyrir stjórnvöld ef taka á skynsamlega ákvörðun. í því tilfelli að óvissa ríki um ástand stofna ber að taka afstöðu friðunar- sjónarmiðum í vil. Ábyrgð Islendinga gagnvart kom- andi kynslóðum á afdrifum hvalateg- unda er ótvíræð. Vitað er að hvalir voru mun fleiri í norðurhöfum áður fyrr. Þar sem umhverfisskilyrði eru enn hagstæð myndi hvölum því fjölga verulega ef veiðar hættu hér við land. Þá lifa sömu hvalategundir og hér halda sig einnig í öðrum höfum. Veiðar okkar hafa því varan- leg áhrif á heildartölu hvala í heims- höfunum. íslendingar eiga eftir að semja við aðrar þjóðir um nýtingu ýmissa fiskistofna utan landhelginnar. Auk þess höfum við mikilla markaðshags- muna að gæta. Varast ber því að stefna almenningsáliti gegn okkur í náttúruverndarmálum. Undanfarin ár hafa margar virtar erlendar stofnanir látið í ljós áhyggjur vegna afstöðu íslendinga í hvalveiðimálum. Einnig eru sniðgengnar hugmyndir um „mannúðlega" aflífun spendýra við hvalveiðar að margra áliti. Er auðvitað ótækt að reglur um slíkt nái ekki yfir spendýr í sjó. Ég tel að það sé í samræmi við skynsamlega alþjóðlega náttúru- verndarstefnu og hagsmuni íslend- inga varðandi nýtingu auðæfa hafs- ins að styðja algert bann við hval- veiðum um tíma, eða þar til tryggt er að stofnar sjaldgæfra hvala rétti við og traustar upplýsingar um veiðiþol tegunda liggja fyrir. Reykjavík í ágúst 1979, Björn G. ólafsson. flfofgmiklftfcifc óskar eftir blaðburðarfólki Austurbær: Lindargata Hverfisgata 4—62 Sóleyjargata Skipholt 35—55 Kjartansgata Stigahlíö 26—97 Vesturbær: Garöarstræti Miöbær Uppl. í síma 35408 JÖFUR hf AUOBREKKU 44-46 - KÓPAVOGI - SÍMI 42600 árgerö Skoda Amigo á gamla veröinu. Aöeins 50 bílar til ráöstöfunar. Tilboö sem aðeins stendur skamma stund og veröur ekki endurtekiö. Grípið tœkifœrið og trgggið gkkur nýjan Skoda Amigo strax Verö frá kr. 2.195.000.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.