Morgunblaðið - 26.08.1979, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.08.1979, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1979 IHttgmiÞlfifrUt Útgefandi Framkvaamdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fróttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og skrifstofur Auglýsingar Afgreiósla hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guómundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aöalstrnti 6, sími 10100. Aöaistrnti 6, sími 22480. Sími 83033 Áskriftargjald 3500.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 180 kr. eintakiö. tanríkisráðherra Tékkóslóvakíu kemur í opinbera heimsókn hingað til lands í septembermán- uði. Upplýst var um þessa heimsókn hinn 21. ágúst sl. þegar þess var minnzt, að ellefu ár voru liðin frá inprás Sovétríkjanna og leppríkja þeirra í Varsjár- bandalaginu í Tékkó- slóvakíu. Á sama tíma og ráðherrann á að njóta gistivináttu okkar íslend- inga, sitja veizlur forsvars- manna þjóðarinnar og skála við þá, stendur ríkis- stjórn þessa manns fyrir einhverjum stórfelldustu réttarhöldum, sem um get- ur sl. 30 ár í A-Evrópu. Það er auðvitað reginhneyksli að bjóða ráðherra frá of- beldisstjórn Husaks í opin- bera heimsókn til íslands. Eins og Morgunblaðið hefur skýrt frá standa nú fyrir dyrum í Tékkó- slóvakíu réttarhöld yfir 10 andófsmönnum þar í landi. Sumt af þessu fólki er þekkt á Vesturlöndum — annað ekki. Þessum réttar- höldum hefur verið lýst sem einhverjum mestu sýndarréttarhöldum, sem fram hafa farið í A-Evrópu frá alræmdum réttarhöld- um í Tékkóslóvakíu upp úr 1950. Sakborningar hafa ekkert til saka unnið annað en það, að hafa aðrar skoð- anir en ráðamenn Tékkó- slóvakíu. Sumir þeirra hafa meira að segja ekki einu sinni látið uppi aðrar skoð- anir en Husak hefur, þeir hafa gert það eitt að dreifa upplýsingum, sem teknar eru orðréttar upp úr dóms- málabókum víðsvegar um Tékkóslóvakíu um dóma yfir andófsmönnum í land- inu! Þeir hafa ekki lagt út af þessum upplýsingum, þeir hafa ekki látið í ljós skoðun á þeim, þeir hafa unnið það eitt til saka að dreifa orðréttum texta upp úr dómsmálabókum komm- únista í Tékkóslóvakíu! Aðfarir tékkóslóvakískra yfirvalda gegn andófs- mönnum þar í landi eru svívirðilegar. Lögreglan reisti sér kofa í námunda við sumarbústað þekkts rit- höfundar. Þaðan fylgdist hún með hverri hreyfingu hans. Ef hann fór út að ganga með hundinn sinn, fylgdi lögreglan fast á eftir. Ef hann fór í búð var lögreglan á hælum hans. Talið er, að þessi maður eigi yfir höfði sér 10 ára fangelsisvist. Jafnvel börnum andófs- manna er ekki hlíft. Þau eru yfirheyrð ekki síður en hinir fullorðnu og lögreglu- yfirvöldin ganga svo langt, að leitað var á 9 ára gam- alli stúlku, dóttur eins and- ófsmanna í landinu, eftir „sönnunargögnum". Fólk er ákært og dæmt fyrir ótrú- legustu hluti í Tékkó- slóvakíu um þessar mundir. Tveir prestar fluttu messu á esperanto. Þeir voru ákærðir fyrir að meina yfirvöldum yfirumsjón með guðsþjónustum! Móðir kvartaði undan meðferð á syni sínum í fangelsi. Hún var sjálf dæmd, sökuð um aðsúg að opinberri stofnun! Rithöfundur var sendur í fangelsi fyrir bók sem var ekki komin út! — og hefði sjálfsagt aldrei komið út. Ungt fólk var dæmt fyrir að hlusta á tónlist, sem ekki var viðurkennd af op- inberum aðilum. Þannig mætti lengi telja. Þessi upptalning sýnir, að yfirvöld í Tékkóslóvakíu eiga ekkert eftir annað en það að dæma fólk fyrir hugrenningar þess — hvenær skyldi koma að því? Utanríkisráðherrann, sem kemur hingað í september, er fulltrúi þess- arar stjórnar. Hann ber sjálfur ábyrgð á þessum stjórnarháttum. Hann er fulltrúi einhverrar svívirði- legustu harðstjórnar, sem um getur í okkar heims- hluta. Hann kemur hingað í opinbera heimsókn. ís- lenzkir ráðherrar taka á móti honum og brosa. Þeir bjóða honum til veizlu og skála við hann á sama tíma og lögreglumenn eru að hundelta fólk í heimalandi hans fyrir það eitt að hafa aðrar skoðanir en hann. Þessi maður hefur ekkert hingað að gera. Benedikt Gröndal kveðst þurfa að sinna mörgum kurteisis- skyldum. Morgunblaðinu kemur ekki til hugar, að hann sinni þessari skyldu með glöðu geði. En hann þarf ekki að sinna henni. Við ráðum því sjálfir hverj- um við bjóðum hingað og hvenær. Þessi maður er óvelkominn hingað og ríkisstjórnin á að sjá sóma sinn í að afþakka komu hans. Óvelkominn gestur | Reykjavíkurbréf *►♦♦♦♦♦ ♦♦♦♦♦♦♦-Laugardagur 25. ágúst Sex stór mál Sex stór mál eru nú á döfinni í íslenzkum þjóðmálum og munu móta stjórnmálaumræður hér á næstu misserum. Fyrst ber að nefna óðaverðbólguna. Núverandi ríkisstjórn var mynduð um það eitt að ná tökum á verðbólgunni. Svo mikilsvert var þetta markmið talið, að Alþýðubandalagið var tilbúið til að falla frá mesta baráttumáli þess flokks og forvera hans í þrjá áratugi, brottför bandaríska varnarliðsins, til þess að taka þátt í ríkisstjórn, sem var mynduð um þetta verkefni í sam- vinnu við verkalýðshreyfinguna. Fyrirfram mátti ætla, að þess- ari ríkisstjórn mundi takast að ná þessu marki. Verkalýðshreyfingin bauð upp á samstarf, sem var í því fólgið, að verkalýðsforingjarnir skyldu sjá um að halda grunn- kaupi óbreyttu meðan ríkisstjórn- in réði niðurlögum verðbólgunnar. Verkalýðsforingjarnir hafa að vísu ekki alveg getað staðið við þetta loforð vegna þess, að hópur opinberra starfsmanna neitaði að láta foringja sína stjórna sér með þeim hætti. En niðurstaðan er sú, að á 16 mánaða tímabili a.m.k. verða aðeins 3% grunnkaups- hækkanir. Þetta er auðvitað ein- stakt tækifæri og hefði mátt ætla, að árangur yrði verulegur. Það hefur farið á annan veg. Ríkisstjórninni hefur mistekist eina ætlunarverk sitt. Verðbólgan er nú meiri en nokkru sinni fyrr. Á síðustu þremur mánuðum er hún svo mikil, að hún nemur 66% á ári. Gert er ráð fyrir, að frá byrjun til loka þessa árs verði hún 50—55% og hefur aldrei verið meiri frá upphafi til loka árs. Ólafur Jóhannesson er kominn vel á veg með að slá sitt fyrra verð- bólgumet. í stjómmálasögu þessa tímabils verður Ólafs Jóhannes- sonar minnzt sem stjórnmálafor- ingjans, sem leiddi yfir þjóðina óðaverðbólguna í tvígang á einum áratug. Hann er orðinn sannkall- aður verðbólgukóngur. Eftir fyrra verðbólgumet Ólafs Jóhannessonar haustið 1974 tók Geir Hallgrímsson við stjórnar- taumunum. Hann hefur náð meiri árangri í baráttu við verðbólguna á þessum áratug en aðrir íslenzkir stjórnmálamenn. Honum tókst að ná verðbólgunni úr 54%, þegar hann tók við, í 26% vorið 1977. Þegar sá árangur lá fyrir tóku Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag, verkalyðshreyfingin og að nokkru leyti Ólafur Jóhannesson sjálfur höndum saman um að eyðileggja þennan árangur. Enginn þessara aðila gat sætt sig við það, að Geir Hallgrímsson og Sjálfstæðisflokk- urinn næðu þeim ’árangri að ná tökum á verðbólgunni. Því fór sem fór. Nú hlýtur það aðeins að vera spurning um vikur eða mánuði hvenær ólafur Jóhannesson legg- ur frá sér stjórnartaumana. Hon- um hefur tvisvar sinnum mis- tekizt svo hrapallega að stjórna málum íslenzku þjóðarinnar, að tæplega verður lengra komizt í þeim efnum. Hann gerir sér auðvitað grein fyrir því sjálfur og hefur áreiðanlega ekki skapsmuni til þess að sitja í forsætisráðu- neytinu og láta reka stjórnlaust mánuðum saman. Geir Hallgrímsson sýndi það á fyrstu þremur árum forsaétisráð- herraferils síns, að óðaverðbólgan er ekki óviðráðanleg. Það er hægt að ná tökum á henni. En til þess að svo megi verða þarf ábyrgð og festa að ríkja við stjórnvölinn. Þegar núverandi ráðherrar hafa að lokum sætt sig við það, sem óhjákvæmilega blasir við þeim, að yfirgefa ráðuneytin innan tíðar, hlýtur þjóðin að snúa sér til Geirs Hallgrímssonar og Sjálfstæðis- flokksins á ný og fela honum og flokki hans að halda áfram því verki, sem var komið svo vel á veg vorið 1977. Ljóst er af stefnuyfir- lýsingu þeirri, sem Sjálfstæðis- flokkurinn birti í vetur í efnahags- málum, að við það verk mun Sjálfstæðisflokkurinn í senn byggja á auknu frelsi í efnahags- og atvinnumálum og því aðhaldi, sem nauðsynlegt er á öllum sviðum fjármála. Óðaverðbólguna er hægt að ráða við. Það hefur verið sýnt í verki. Þjóðin þarf að veita Sjálfstæðisflokknum afdráttarlaust umboð til þess að halda áfram því verki, sem komið var vel á veg, þegar afbrýði og öfund náði tökum á þremur stjórnmálaflokkum og nokkrum verkalýðsforingj um. Kjördæma- málið Annað stórt mál, sem nú er á döfinni, er kjördæmamálið. Ný- Iega var gerð sérstök samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs að frum- kvæði bæjarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins um skiptingu Reykja- neskjördæmis til þess að leiðrétta það ranglæti, sem farið hefur vaxandi á undanförnum tveimur áratugum í atkvæðarétti fólks. Þar sem vægi atkvæða er mest hefur kjósandi rúmlega 6 atkvæði á móti hverju einu atkvæði kjós- anda í Reykjaneskjördæmi. Þess vegna er skiljanlegt og eðlilegt, að einmitt sveitarstjórn í Reykja- neskjördæmi hafi frumkvæði um að vekja athygli á nauðsyn breyt-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.