Morgunblaðið - 26.08.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 26.08.1979, Blaðsíða 3
t/l/ Dagflug vikulega 2 eða 3 vikur Austurstræti 17, II. hæ^ símar 26611 og 20100. Feróaskrifstofan OTSÝN MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1979 Lokafundur hafréttarráðstefnu á næsta ári: Útlit fyrir að íslenzkum hags- munum verði vel borgið ÁTTUNDA íundi hafréttarráðstefnunnar lauk í gær í New York. Ákveðið var að halda einungis einn fund til viðbótar. Verður hanri á næsta ári og er skipt í tvo áfanga. Verður sá fyrri í New York og sá síðari í Genf. Hans G. Andersen formaður íslenzku sendinefndarinnar, sagði í gær, að allt útlit væri fyrir að þau mál, sem Island varðar mestu yrðu endanlega afgreidd þannig, að okkar hagsmunum yrði vel borgið. „Á þessum fundi hefur talsverð- ur árangur náðst,“ sagði Hans G. Andersen. „Alþjóðahafsbotns- svæðið hefur valdið miklum erfið- leikum og gerir enn, ekki sízt varðandi skipan raðs alþjóðahafs- botnsstofnunarinnar og atkvæða- magn þar og ýmis atriði varðandi fjármálaskuldbindingar. Verið er að reyna að brúa bilið og hefur talsverður árangur náðst. Sama er að segja um önnur óleyst atriði sem önnur og þriðja aðalnefnd ráðstefnunnar hafa fjallað um, svo og lokaákvæði uppkastsins að hafréttarsáttmála. Nú er svo komið að næsti fundur, hinn níundi í röðinni, hefur verið ákveðinn og skal það verða lokafundur áður en undir- skrift fer fram. Eru það mikil tíðindi því að áður hafa menn ekki treyst sér til að taka slíka ákvörð- un. Sá fundur verður í tveimur áföngum, hinn fyrri verður í New York í vetur eða frá 3. marz til 3. apríl, en hinn síðari næsta sumar í Genf frá 28. júlí til 29. ágúst. Hans sagði að á New York fundinum yrði gengið frá síðasta uppkasti að hafréttarsáttmálan- um og lagðar fram breytingatil- lögur við það. Genfarfundurinn mun síðan ganga endanlega frá textanum og getur þá komið til atkvæðagreiðslna. Mbl. spurði Hans G. Andersen, hvernig mál stæðu að öðru leyti við lok þessa fundar. Hann sagði: „Ég vil fyrst taka fram að í sambandi við viðtal sem við áttum nýlega ræddum við um neðansjáv- arhryggi, þar á meðal tillögu Sovétríkjanna um 350 milna mörk varðandi þá. Yfirskrift blaðsins hefur valdið misskilningi. Þar var sagt að meirihluti ráðstefnunnar fylgdi 350 mílum. Eins og fram kemur í viðtalinu sjálfu, var það miðað við neðansjávarhryggi, en ekki almenn mörk landgrunns, sem rætt er um í 76. grein uppkastsins, en þar er um að ræða mjög flóknar reglur og miðað við að strandríkið geti valið á milli tvenns. Annars vegar er ákveðin þykkt setlaga og hins vegar 60 mílna mörk frá brekkufæti. Síðan segir að ytri mörk geti ekki náð lengra en 100 mílur frá 250 metra dýptarlínu, eða 350 sjómílur frá ströndum. En til þess að þeirri fjarlægð verði náð verður að uppfylla þau skilyrði sem tilgreind eru og því ekki hægt að segja að þau eigi alltaf við. Þetta verður að hafa í huga. Auk þess koma reglurnar um skiptingu svæða milli landa, sem leiða til ýmissa takmarkana eftir aðstæðum. Þegar á allt er litið,“ sagði Hans að lokum, „eru aðalatriðin fyrir Island þau, að þessum störfum verður lokið á næsta ári og allt útlit er fyrir, að þau mál sem Islendinga varðar mestu verði endanlega afgreidd þannig, að okkar hagsmunum verði vel borg- ið.“ VIÐRÆÐURNAR við Norðmenn vegna Jan Mayen-deilunnar fara fram í Reykjavfk á miðvikudag. í viðræðunefnd Norðmanna verða m.a. Knut Frydenlund, utanríkis- ráðherra, Eivind Bolle, sjávar- útvegsáðherra og Jens Evensen, hafréttarfræðingur. íslenzka viðræðunefndin er nú fullskipuð og sitja í henni ráðherr- arnir Benedikt Gröndal, Kjartan Jónasson, þingmennirnir Matth- íaas Bjarnason, Einar Águstsson og Ólafur R. Grímsson. Frá utan- ríkisráðuneytinu eru í nefndinni Hans G. Andersen, sendiherra Ólafur Egilsson, deildarstjóri, Guðmundur Eiríksson, aðsðar- þjóðréttarráðunautur, og Berglind Asgeirsdóttir, fulltrúi. Frá sjávar- útvegsráðuneytinu eru í nefndinni Jón Arnalds, ráðuneytisstjóri, Þórður Ásgeirsson, skrifstofu- stjóri, Már Elísson, fiskimála- stjóri, Kristján Ragnarsson, for- maður LÍU, og Filip Höskuldsson skipstjóri. Viðræðunefndin kemur saman til fundar á mánudag kl. 2 til undirbúnings. Um 4000 manns komu í Höllina MILLI 3800 og 4000 manns heim- sóttu Alþjóðlegu vörusýninguna á fyrsta degi hennar á föstudag og er það svipaður fjöldi og heimsótti sams konar sýningu árið 1977 á fyrsta degi. Sýningin verður í dag, sunnuddag, opin frá kl. 13 til 22 en sýningarsvæðinu verður lokað kl. 23. Þrjár tískusýningar verða í Laugardalshöllinni í dag eða kl. 16, 18 og 21.30. Þá heimsækir hljómsveitin Brunaliðið sýning- una kl. 14 og Þjóðleikhúsið sýnir Flugleik kl. 20.30 og kl. 22. Á mánudag verður sýningin opin frá kl. 15 til 22 en sýningarsvæðinu verður lokað kl. 23. Tískusýningar verða á mánudag kl. 18 og 21.30. Að sögn Bjarna ðlafssonar, fram- kvæmdastjóra sýningarinnar, hafa ýmsar tækninýjungar, svo sem tölvur af margvíslegum gerð- um, vakið sérstaka athygli á þessari sýningu. Lesbók Þau mistök urðu, að Lesbók, sem fylgir blaðinu núna um helgina. er dagsett 1. sept. í stað 25. ágúst. Einnig er þetta 30. tölublað en ekki 31. eins og stendur á blaðinu. Islenzka viðræðu- nefndin fullskipuð Sér- tilboð Frítt fyrir einn í 5 manna hópi. ' Sérstakur barnaafsláttur. Útborgun 40 pús. Eftirstöövar á 5 mán. Gildir aöeins í eftirtaldar feröir: COSTA DEL SOL 14. og 22. september LIGNANO 2. og 9. september PORTOROZ 2. og 9. september f IsU 0(As 11 (sWj! T^Sskjf-''• * A,:- I’ %-mrn \ .. í - i/ $ I * f * I /t | ' : f m* * 1H : / '.s ^ V&: \ * * V£■ ' i —^TlÍ ’mmrn FeröaÞjónusta í sérflokkí Látiö sérhæft starfáfólk Útsýfjat-eöSfóöa ykkur aö velja réttu feröina meö hagstæöustu kjörum og greiöslu- skilmálum. WÉCiéKÍ, 'dCriNI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.