Morgunblaðið - 26.08.1979, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.08.1979, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1979 17 Hlekktist á í Krossá J SUMAR hafa idulega orðið óhöpp af þessu tagi hér við érnar inn í Wrsmörk,“ sagði Valgeir Guðmundsson, Itígregiumaður á Hvolsvelli. Meðfylgjandi myndir eru af jeppabifreið sem hlekktist á í Krossá um sfðustu helgi. Voru þarna á ferð Þjóðverjar á leið inn í Húsadal og sést gltíggt á myndunum hvernig vatnsflaumurinn hefur skyndilega grafið undan bflnum tíðrum megin. Valgeir sagði að þetta óhapp og önnur sýndu hversu fólk sinnti lítið aðvörunarskiltum, sem ætlað væri að vara fólk við þessari hættu. í 100 til 200 metra fjarlægð frá þessum stað væru aðvörunarskilti með áletrunum bæði á íslensku og ensku en þrátt fyrir þessar aðvaranir virtist fólk ana nær hugsunarlaust út í ána. Annað óhapp hefði orðið þarna á þessum slóðum skömmu síðar þennan sama dag en þá hefði Bronkó-jeppi verið á leið úr Húsadal og komist að árbakkanum hinum meginn. Þar drap bíllinn á sér og skipti engum togum að hann valt en fólkið náði að komast að landi. „Enn eitt dæmið um hversu lítið fólk skeytir aðvörunarskiltum jr, að við afleggjarann inn í Þórsmörk hjá Markarfljótsbrúnni er skilti, sem á stendur: „Vegfarendur, Þórsmerkurvegur %r aðeins fyrir torfærubifreiðar. Sýnið aðgát við vatnsföllin. Forðist slysin. LögreglanEngu að síður fara menn á fólksbílum s.s. Skoda allt inn í Bása,“ sagði Valgeir. HBOSSR ER HÍETTUIEG '• VFIREERDRR CROSSING THIS RIVER BE DRNGEROUS LOGRÍGlfiN • POUCÍ inga. Eins og áður hefur verið vikið að hér í Morgunblaðinu er óhjákvæmilegt, að þessi breyting verði gerð fyrir næstu kosningar. Kjósendur í Reykjavík og Reykjaneskjördæmi munu ekki sætta sig við það að búa endalaust við minni atkvæðisrétt en íbúar annarra kjördæma. Þess vegna má ekki láta leiðréttingu í þessum efnum bíða alhliða endurskoðunar stjórnarskrár, sem áreiðanlega tekur mun lengri tíma. Ýmsar hugmyndir hafa komið fram um það, hvernig leiðrétta eigi þetta ranglæti. Ljóst er, að mest fylgi er við þá hugmynd að fjölga þing- mönnum Reykjavíkur t.d. um þrjá og skipta Reykjaneskjördæmi t.d. í tvö fimm manna kjördæmi. Er þetta mjög í samræmi við þær tillögur, sem Oddur Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi, lagði fram á þingi vorið 1978. Aðrar betri hugmyndir hafa ekki komið fram. Full ástæða er því til, að þing- flokkarnir kanni sín á milli hvort samstaða getur tekizt um þessa breytingu, sem líklega mundi hafa í för með sér fjölgun þingmanna og vinni þá að því að hún nái fram að ganga á þingi í vetur. Landbúnaðar málin Þriðja stóra máiið, sem nú er á döfinni eru landbúnaðarmálin. Bæði bændum og skattgreiðend- um í þéttbýli er löngu orðið ljóst, að núverandi skipan landbúnaðar- mála okkar dugir ekki. Kostnaður- inn við að haida uppi mikilli umframframleiðslu á búvörum og flytja hana út fyrir brot af fram- leiðsluverði er orðinn svo mikill, að hvorki framleiðendur sjálfir né skattgreiðendur geta sætt sig við hann. Hér er ekki einvörðungu um fjárhagslegt málefni að ræða heldur er Ijóst, að óbreytt skipan eitrar sambúð fólks í þéttbýli og strjálbýli og stuðlar að sundrungu meðal þjóðarinnar. Óprúttnir stjórnmálamenn eru fljótir að finna lyktina af slíkri sundrungu og hika ekki við að notfæra sér hana sjálfum sér og flokki sínum til framdráttar. Þann leik hefur Alþýðuflokkurinn leikið áður og ætlar áreiðanlega að bjarga sér í kosningum, þegar að því kemur með þvi að kynda undir óánægju skattgreiðenda í þéttbýli vegna hins mikla kostnaðar við landbún- aðinn. Þess sjást merki nú þegar, að Alþýðuflokkurinn ætli að leika þennan ljóta leik. Enginn ábyrgur flokkur eða stjórnmálamaður get- ur hins vegar verið þekktur fyrir það að leita eftir ávinningi í kosningum með því að kynda undir úlfuð og sundrungu meðal þjóðarinnar. Þess vegna er mikils- vert, að aðrir flokkar taki ekki þátt í þessum ljóta leik Alþýðu- flokksins heldur taki höndum saman um að leysa vandamál landbúnaðarins á þann veg, að báðir geti unað við sinn hlut, bændur og skattgreiðendur. Um- framframleiðsla í landbúnaði er ekki einstakt vandamál hér heldur alls staðar í nálægum löndum. Aðildarríki Efnahagsbandalags- ins eiga við mikinn vanda að stríða í þessum efnum. Þau leita margvíslegra leiða til þess að draga úr búvöruframleiðslu. Þau greiða bændum stórfé til þess að draga úr framleiðslu einfaldlega vegna þess, að það borgar sig betur að leggja fram fé með þeim hætti heldur en til þess að halda umframframleiðslunni uppi. Við verðum að leita allra ráða til þess að draga úr offramleiðslu landbúnaðarvara. Sjálfsagt er, að við kynnum okkur betur en gert hefur verið hvaða aðferðum er beitt i nálægum löndum. Núver- andi ástand er óþolandi fyrir skattgreiðendur á þéttbýlissvæð- um og þjóðarbúið í heild en því má ekki gleyma, að bændur eiga líka sinn rétt. Fiskvemdar- málin Fjórða stóra málið. sem til meðferðar er og verður á næstu mánuðum og misserum eru fisk- verndarmálin. Hvernig á að standa að uppbyggingu og vernd- un fiskstofnanna? Líklega er meiri ágreiningur um þetta mál en nokkurt annað, sem nú er til umræðu. Sá ágreiningur fer ekki eftir því í hvaða flokki menn eru heldur eftir því hvar menn búa. Þess vegna er hann hættulegur. Af honum getur sprottið stríð milli landshluta — eins konar borgarastyrjöld um þorskinn. Þetta er erfiðasta og hættulegasta mál, sem við þurfum að kljást við um þessar mundir. Menn greinir á um margt. í fyrsta lagi er ágreiningur um það, hvort fiskifræðingar hafi rétt fyrir sér um ástand fiskstofna eða ekki. Margir þeir, sem stunda sjóinn eða þekkja til fiskveiða af eigin reynslu telja að fiskifræð- ingar hafi rangt fyrir sér, ástand fiskstofna sé mun betra en fiski- fræðingar telji. í öðru lagi er ágreiningur milli landshluta um það hvernig standa skuli að fiskvernd. íbúar Suður- nesja hafa ekki sömu skoðun á þvi og Vestfirðingar og Norðlendingar svo dæmi sé tekið. í þriðja lagi skjóta upp koilinum hugmyndir um gjörbyltingu fisk- veiða okkar með sölu veiðileyfa eða auðlindaskatti. Þeir, sem vinna að sjávarútvegi og fisk- vinnslu mega ekki heyra slíkar hugmyndir nefndar á nafn. Aðrir telja að þær séu forsenda þess, að við getum rekið fiskveiðar á árangursríkan hátt og um leið haldið uppi skynsamlegri fiskverndarstefnu. Enginn stjórnmálaflokkanna hefur mótaða samræmda stefnu í þessum efnum. Allir eru þeir klofnir ofan í kjöl, þegar til þessara vandamála kemur. Af- staða einstakra þingmannk fer eftir því hvaða kjördæmi þeir eru fulltrúar fyrir — ekki í hvaða flokki þeir eru. Stjórnmálaflokk- arnir komast hins vegar ekki hjá því að taka þessi vandamál til svo rækilegrar yfirvegunar, að merkj- anleg verði stefna hjá þeim hverj- um um sig. Það er forsenda þess, að þeir geti síðan gert tilraun til að ná saman um sameiginlega stefnu, sem sæmileg samstaða getur tekizt um. í þessum efnum þýðir ekki alfarið að beita ein- hverju meirihlutavaldi, sem kann að vera til staöar vegna þess, að það getur kallað á slíka þjóðar- sundrungu, að við sjáum ekki fyrir endann á því. En auðvitað verður að taka af skarið. Stóridjan Fimmta stóra málið, sem nú er að komast á dagskrá á ný er stóriðjan. Frá því að álverið var byggt höfum við sem þjóð ekki tekið afdráttarlausa afstöðu til þess hversu langt við viljum halda á þeirri braut að byggja hér upp orkufrekan iðnað. Til grundvallar byggingu álversins lá mikil hug- sjónabarátta. Hins vegar má segja að járnblendiverksmiðjan hafi verið byggð með hangandi hendi og lítill áhugi hafi verið á bygg- ingu hennar hjá almenningi í landinu. Nú stöndum við hins vegar frammi fyrir þeirri stað- reynd, að því eru takmörk sett hvað við getum ausið miklum auði upp úr hafinu. Þess vegna verðum við að leita að nýjum vaxtarbrodd- um í atvinnulífi okkar. Sumir segja, að sá vaxtarbroddur sé verksmiðjuiðnaðurinn, sem bæði framleiðir fyrir heimamarkað og útflutningsmarkað. Aðrir segja, að hann sé góður með, en úrslitum hljóti að ráða um lífskjör okkar á næstu áratugum hvernig við hag- nýtum aðra megin auðlind þjóðar- innar — orku fallvatnanna. Sú hætta er augljóslega fyrir hendi, að við missum fólk til annarra landa ef okkur tekst ekki að halda til jafns við aðrar þjóðir í lífskjörum. Þess sjást nú þegar merki, að við höfum dregizt aftur úr. „Við Islendingar erum eins og aumingjar í útlöndum," sagði merkur listamaður við höfund þessa Reykjavíkurbréfs fyrir nokkrum dögum og átti þá við það, að íslendingur á ferð í Mið- og Norður-Evrópu hefði einfaldlega ekki efni á því að lifa og búa með skikkanlegum hætti — svo langt hefðum við dregizt aftur úr ná- grannaþjóðum okkar í lífskjörum. Við eigum tvær auðlindir fyrst og fremst. Við höfum gengið svo nærri annarri, að við hljótum að setja okkur viss mörk í þeim efnum. Þá er að snúa sér að hagnýtingu hinnar — orku fall- vatnanna. Hvernig við eigum að gera það hlýtur að vera eitt helzta umræðuefni okkar á næstu mán- uðum og misserum. Auðæfi hafsbotns Þegar horft er til framtíðar- innar er ljóst, að til þess mun koma að þjóðir heims hefji hag- nýtingu auðlinda á hafsbotni í ríkara mæli en nú er. Hér getur verið um gífurleg verðmæti að ræða. Það kann að ráða miklu um líf þeirra, sem búa í þessu landi á næstu öld, hvernig við höldum á rétti okkar til hafsbotnsins í umræðum milli þjóða nú. Þess vegna ekki sízt er Jan Mayen-mál- ið mikilvægara en margir gera sér grein fyrir. Við eigum rétt til nýtingar auðlinda hafsbotns á Jan Mayen-svæðinu og við eigum líka rétt til auðlinda hafsbotns suð- og suðaustur af landinu — langt suður í Atlantshaf. Þótt það sé ekki fundið fé nú skulum við ekki gera lítið úr baráttu fraifisýnna manna til þess að tryggja þjóð okkar þann rétt, sem hún á í þessum efnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.