Morgunblaðið - 26.08.1979, Page 7

Morgunblaðið - 26.08.1979, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1979 7 Umsjónarmaður Gísli Jónssön 15. Þáttur Fyrr í þessum þáttum hef- ur verið stungið upp á nýyrð- inu vímill um þann sem tíðum væri undir áhrifum svonefndra vímugjafa. í beinu framhaldi af því leyfi ég mér að birta hér bréf frá Herði Jónassyni á Höfn í Hornafirði. Þó að bréfið sé stílað til mín persónulega, þykir mér sem það eigi erindi í þennan þátt og vona að Hörður virði mér til vork- unnar, þótt ég birti það, en meginefni bréfsins er svo: „Tilefni þessa bréfs er að undirritaðan langaði til að leita álits yðar á smá hug- mynd sem varð til hjá „mér“ fyrir nokkru síðan. Þetta kom til af því að mér fannst orðið „dópisti" ljótt og sjálfsagt ekki íslenskt og einnig að orðið eiturlyfja- neytandi er ekki nógu mikið notað og fannst mér því að fíkill gæti átt við í þessu tilefni. Þetta er í ætt við að vera fíkinn í eitthvað. Því miður fjölgar fíklum hér á landi en betur væri hið gagnstæða. Gaman væri að þér gætuð svarað mér fljótlega og sagt mér hvað vður finnst um þetta orð og hvar ég gæti komið því á framfæri. Er ekki til einhver nýyrða- nefnd?" Nýyrðanefnd mun vera til, en svar mitt við spurningum Harðar Jónassonar felst í birtingu bréfsins. Eins og hann segir réttilega væri fíkill myndað í samræmi við lýsingarorðið fíkinn, og nafnorðið fíkn, en fyrir skömmu var þess einnig minnst í þessum þáttum að til væri eða hefði að minnsta kosti verið sögnin að fíkjast (á) eitthvað = girnast. Þetta er svo aftur í svokölluðum hljóðskiptum við orð eins og feikn og feikilegur, sem ýmsum hættir til að skrifa með y af því að þeir hugsa sér þau af öðrum uppruna. Þá var hér fyrir skemmstu fjallað um hortitti, svo í bundnu máli sem óbundnu, og tekin sem dæmi vísa eftir þekkt skáld, þar sem það leikur sér að því að færa „hefðbundinn" hortitt ann- arrar braglínu yfir í hina fjórðu og síðustu. Vísnasmið- ir hafa gaman af að bekkjast til hvor við annan og hafa í frammi glettingar, og einn þeirra hringdi til mín og stakk upp á því að best væri að rýma hortittinum alveg í burtu og hafa hringhenduna þannig: Fáum þekkur, fíflar víf, finnur ekki strikið. t>að er brekka þetta líf, þó menn drekki mikið. Nokkrir hafa komið að máli við mig út af orðinu örverpi og hafa ekki allir haft á því nákvæmlega sama skilning. Merkingarmismun- ur kemur fram í málvitund manna. Hyggjum þá fyrst að því hvernig orðið er skil- greint í bók Menningarsjóðs: l)lítið egg, sem fugl verpir síðast; síðasta egg í hreiðri, hreiðurböggull; síðasta barn í fjölskyldu; mjög smávaxið afkvæmi. 2) dugleysi, þrótt- leysi. Ágreiningur viðmælenda minna hefur einkum verið fólginn í því, hvort langur tími þurfi að líða milli burð- ar örverpis og fyrra afkvæm- is og einnig í því hvort móðir örverpis þurfi að vera orðin mokkuð fullorðin. Sumir skilja örverpi svo þröngt að það sé barn sem fæðist löngu eftir að eldri systkin komu í heiminn og fætt af móður sem menn héldu helst að væri komin úr barneign. Lík- ur eru svo taldar á því að það verði lítið og vanmáttugt. Þetta er ekki minn eigin skilningur, en fróðlegt væri að heyra frá lesendum hvaða skilning, nákvæmlega, þeir leggja í þetta orð. Því má bæta við að ég held að forskeytið ör- í þessari samsetningu hafi neikvæða merkingu, sbr. örbirgð, bjargarleysi og örvænting — vonleysi, svo að einhver al- kunn og augljós dæmi séu tekin. En forskeytið ör- er af ýmsum öðrum uppruna ög hefur þá annars konar merk- ingu. í nokkrum orðum merkir þar frum-, eitthvað upphaflegt eða ævagamalt, svo sem í orðunum örnefni, örkuml og örlög. Víkjum aðeins að örverp- inu aftur og þeirri orðabók- arskilgreiningu að það sé síðasta barn í fjölskyldu. Þær fjölskyldur eru til að þar er sama barnið bæði hið fyrsta og síðasta, og gæti þá vandast málið. Hlymrekur handan kvað: Þótt eggjar á grindinni gjörskerpi. í gremju ég tungu að vör herpi; það er vandamál vort að menn vita ekki hvort að kalla má einbirni örverpi. Að lokum er frá því að segja, að Baldvin Ringsted á Akureyri kenndi mér enn eitt dæmi um títtnefndan samruna (contamination). Þjóðkunnur ágætismaður sagði eftir hættuleg veikindi og sára kröm að hann hefði lengi legið milli heims og sleggju. 14 kt, gull hálsfestar veré frá kr. ÍÚM Kjartan Asmundsson, gullsmíðaverkstæöi, Aðalstræti 8 JANE HELLEN kynnir nýja hárnæringu JANE’S RINSE mýkir hárið án þess að fita það. Jane’s Shampoo + Jane’s Rinse = Öruggur árangur. UHLM.rÁ . . CMftterióteCl" Tunguhálsi11,R. Síml 82700 Hitinn er dýr - lokið kuldagjóstinn úti -5- VINDSÚGUR = LÁGMARKSHITATAP Fallegar útihurðir af mörgum gerðum — öflugar og viðnámsgóðar — þrautreynd og rannsökuð hurðar- bygging með tvöfaldri málmvörn og spónalögum — Þéttar og loka úti súg og raka — Karmur með gúmmíhéttilista — 2 ára ábyrgð. — Scadania-hurðir. BÚSTOFN Adalstræti 9, Reykjavík, símar 29977 — 29979 Bás nr. 20 ALÞJÓÐLEG VÖRUSÝNING INTERNATIONAL FAIR^1979 REYKJAVÍK 24. ÁGÚST-9.SEPTEA4BER

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.