Morgunblaðið - 26.08.1979, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 26.08.1979, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1979 15 Innnesingar komu á netavertíð- ina. Þeir áttu verbúð en flest heimili hýstu vermenn. Þá var oft þröng á þingi. Hjá okkur voru að jafnaði tvær skipshafnir á vertíð- inni. Önnur hafðist við úti í hlöðu, hinir lágu á gólfunum milli rúm- anna. Skemmtanir voru öðru hverju. Það var dansað og leikið undir á einfalda harmoníku. Stundum voru leiksýningar, unga fólkið hafði gaman af að taka þátt í þeim. Ég man eftir einni þeirra, „Fólkið í húsinu“ hét hún. Svo var starfandi bindindisfélag og barna- stúka. Það var alltaf eitthvað um að vera. En nú þætti mönnum þetta kannski snautlegt líf. Fólk veitti sér ekkert. Allir voru eins, höfðu til hnífs og skeiðar og þeir gáfu sem gátu. Móðir mín var rausnarkona og sendi oft mjólk og rjóma til vinkvenna sinna. Allir sem voru aflögufærir gáfu og var ekkert sérstaklega um það talað. Svo fór fólkið úr Leirunni — þegar dekkbátarnir tóku við af árabátunum og hvergi var skjól fyrir þá. Menn fluttu sig þá margir yfir í Sandgerði. Um og fyrir aldamótin fóru nokkrar fjöl- skyldur vestur um haf, það var ekki ævintýraþrá sem rak fólkið. Það var þessi sára fátækt sem ýtti eftir því að fara, vonir um að ná betri afkomu annars staðar. Það svalt kannski enginn beinlínis en það var ekkert meira en það. Systur mínar tvær fóru vestur, Elísabet og Sveinólína. Elísabet kom aldrei aftur. Hún vann árum saman fyrir sér með saumum vestra, svo giftist hún manni af skozkum ættum og þau bjuggu í Winnipeg. Sveinólína kom tvívegis heim og hún dó hér. Ég skal segja þér frá því á eftir. Guðjón bróðir minn drukknaði við þriðja mann árið 1912 vestur í Garðssjó. Þeir voru á litlum bát og búnir að fiska vel og það hvessti á þá. Isleifur bróðir minn fór í Flens- borg og svo kom hann heim og kenndi í Leirunni í tvo vetur. Bindindisfélagið átti nokkuð myndarlegt hús og þar var skól- inn. Við vorum milli 15 og 20 nemendur. ísleifur var ágætur kennari. Hann var mikill spaugari og hagyrðingur og hvarvetna vel látinn. Hann kenndi ár á Fáskrúðsfirði, en staðfestist í Skagafirði og bjó á Sauðárkróki í sextíu ár. Hann varð 87 ára gamall, hress og hvikur fram á síðasta dag. Margir þekkja vísur hans sem urðu fleygar. Þessi er ein af þeim: Detta úr lofti dropar stórir dignar um í sveitinni, tvisvar sinnum tveir eru fjórir taktu í hornið á geitinni. Hann var léttur maður hann ísleifur og sá alltaf spaugilegu hliðina á hlutunum. Önnur þekkt vísa er: Ég virði hans skalla að vonum en vorkenni þvílíka nekt að standa upp í hárinu á honum það held ég sé ómögulegt. Hann orti bílavísur og margar svokallaðar Gudduvísur. Hann hafði litla verzlun á Króknum. Fólk sótti í að koma til hans til að fá vísur og skrafa. Auglýsingar hans voru t.d. alltaf í bundnu máli. — Já, ég hef alltaf haft gaman af vísum, og var fljót að læra þær. Að ég hafi sett saman vísu. Það hefur þá verið lítið eitthvað við vinnu til að stytta mér tímann. En ég hef kunnað margar vísur og hef þær oft yfir mér til skemmtunar. Hefurðu heyrt þessa: Fæðast, gráta, reiðast, ruggast, ræktast, bera, standa gá tala, leika, hirtast, huggast, harðna, vaxa, þanka fá elska, biðla, giftast greitt girnast þetta, hata eitt, mæðast, eldast, andast, jarðast ævi mannleg svo ákvarðast. Þetta mælti við okkur kona á reitunum þegar við vorum að vaska fisk í Garðinum, nokkrar ungar stúlkur. Mamma mín Elsa Dóróthea var hagmælt og mælti vísur af munni fram. ísleifur hafði hagmælskuna frá henni. Nú man ég aðeins tvær af vísunum hennar. önnur var gerð þegar hún var komin á áttræðisaldur. Þá var hún stödd á Búðum á Snæfellsnesi. Ungur maður, hagleiksmaður góður, var að gera við bát undir húsi. Mamma gekk þar hjá. Hann bað hana gera vísu með nafni sínu. Hún svaraði: Manndómsríkur menntafús maður vanur starfi bætir skip og byggir hús Bjarni Kjartansarfi. Ég man eftir annarri: Fiður þétt á fugl er sett fjaðrir spretta niður hoppar nettur klett af klett korna rétt um biður. ísleifur leitaði oft með sínar vísur til mömmu þegar hann var að byrja að setja þær saman, unglingur. Hún lagaði þær oft til. Ég held að ísleifur hafi verið vel að skapi mömmu, hann var svo líkur henni í lundinni, léttur og jafnlyndur. — Ég fór fyrst að heiman um þrettán ára aldur. Var um tíma í Höfnunum. Mér sárleiddist, eins og ég hafði hlakkað til verunnar. Pabbi hafði selt Katli í Kotvogi kvígu og leyft mér að koma með sér út í Hafnir. Mér þótti allt svo fallegt og vel hirt. Hjónin sem ég var hjá í Höfnunum leigðu stofu hjá maddömmu Steinunni í Kirkjuvogi. Þetta var allt myndar- legt, það vantaði ekki, en ég sá þar aldrei glaðan dag. — Fjórtán ára fór ég út í Garð til Finnboga kaupmanns Lárus- sonar og Bjargar konu hans. Ég átti að gæta yngsta barns þeirra. Þarna kynntist ég manninum mínum, sem síðar varð, Þorleifi Þorsteinssyni. Hann var þá 18 ára. Hann var á heimilinu vegna skyld- leika við þau hjónin. Þorleifur var með bát og þegar hann fór á sjó hafði hann fyrir sið að kveðja frænkur sínar á heimilinu, Björgu, Sigurbjörgu og Guðbjörgu, með kossi. Einn af fyrstu dögunum, sem ég var þarna er hann að fara og gerir þetta að venju og þá segir Björg: „Ætlar þú ekki að kveðja hana Theu líka“ Það var engin undankoma. En svo sneyddum við hvort hjá öðru lengi á eftir — en við áttum hvort annað eftir þetta. Árið 1906 flutti Finnbogi að Búð- um á Snæfellsnesi og við fórum með. Giftum okkur hér í Reykja- vík, á heimili sr. Haraldar Níels- sonar 1909 og bjuggum á Búðum fyrstu árin. Fluttum í Hólkot 1914 þegar Finnbogi hélt suður aftur. Við höfðum ekki stórt bú og Þorleifur fór alltaf suður á vertíð, alveg frá í janúar fram í maí. Ég hafði verið því fylgjandi að við flyttum í sveit, því að ég var alltaf hrædd um hann á sjónum. En hann vildi þetta. Það var ekkert um annað að ræða. Tengdafaðir minn kom til okkar, hann sá að mestu um búskapinn þegar Þorleifur var svona langdvölum í burtu. Ég hef aldrei búkona verið — ekki þekkt hund frá kind, blessuð vertu. En okkur lánaðist sambúðin og eignuðumst tvö börn og nú bý ég í Hólkoti með syni mínum. Þorleif missti ég 1938, það var mér erfitt. Ári síðar lagðist Sveinólína systir mín svo banaleguna. Hún hafði átt við veikindi að stríða og það var tekið úr henni nýrað og hún náði sér nokkuð og gat unnið létta vinnu. Hún var meðal annars stúlka um tíma hjá Jónasi Þorbergssyni og sumartíð hjá Einari skáldi Benediktssyni. Hún minntist þessara fjölskyldna allt- af að öllu góðu. Ég spurði Svein- óiínu hvort hún kviði dauðanum. „Ég er búin að fara svo víða“ sagði hún „og sjá fegurð sköpunarverks- ins í svo mörgu. Nú hlakka ég til að sjá hvernig það lítur út hinum megin.“ Ég spurði hana hvort hún vildi skila kveðju frá mér ef henni yrði leyft það. Hún dó að kvöldi og ég var svo ein og yfirgefin og fannst ég hafa misst svo mikið á stuttum tíma. En nokkrum kvöldum síðar er ég í herberginu mínu, ég geri mér ekki grein fyrir hvort ég er sof- andi eða vakandi. Þá opnast hurð- in og þau koma inn og leiðast arm í arm, Sveinólína og Þorleifur minn og hún segir „Sjáðu hvort ég ^er ekki búin að finna manninn þinn.“ Þú getur ekki trúað því hvað þetta varð mér mikil huggun. Mér fannst það hrein eigingirni í mér að vera að syrgja þegar ég vissi þetta. Nú átti ég bara að standa mig. Um annað var ekki að ræða, og ég var aldrei of góð til þess, eftir þetta. — Það er langlífi í ættinni minni og góð heilsa, einkum í föðurætt. A yngri árum fékk ég ýmsa kvilla, var nærri dáin úr barnaveiki, var þá gefið blásteins- vatn og hjarnaði við. Mislingar gengu nærri mér eins og algengt var á þeim tíma. Einu sinni kom taugaveiki upp í Ráðagerði, allir veiktust nema pabbi minn og annar formaðurinn hans dó. — Ef einhver hefði nú sagt það við mig á miðjum aldri að ég ætti eftir að komast á tíræðisaldur er ég hrædd um mér hefði þótt nóg um. Dótturdóttir mín segir að hún gæti alveg hugsað sér að verða gömul ef hún héldi minni heilsu. Á miðjum aldri var ég stundum hrædd við að deyja, þá voru börnin að vaxa og ég gat ekki hugsað mér að fara. Eftir því sem árin líða breytist þetta viðhorf. En ég er enn svo hress, að ég get hugsað um matseld og þetta heimilishald hjá okkur. Ég hef fjarska gaman af því að fást við myndirnar mínar, ég sit við það löngum. Ég hef líka gaman af því að skrifa vinum og kunningjum, einn daginn skrifaði ég sjö bréf. Ég er fegin að geta þetta og geta enn notið margs. Ég hef kannski ekki farið eins víða og hún Svein- ólína systir mín, en ég hugsa öðruvísi um lokastundina en á yngri árum. Nú hlakka ég til að fara. Það hefur verið gert svo vel við mig. h.k. Klippmynd Texti: Jóhanna Kristjónsdóttir Myndir: Ólafur K. Magnússon Málverkauppboð 2. sept. 1979 aö Hótel Sögu kl. 3. Bókauppboð 8. sept. 1979 aö Klausturhólum, Laugavegi 71. Myntuppboð 9. sept. 1979 aö Klausturhólum, Laugavegi 71. BJORNINN Skúlatúni 4 Simi 25 1 50. Reykjavík Kantlímdar — smíðaplötur (Hobby-plötur) fyrir fagmenn og leikmenn. ! ^Pónlagdar neöKOTO- Mahogny. e’íkar 29 furusPæni. Ulva/iö til skápa. Hvítar plast- hillur 30 cm 50 cm og 60 cm breiöar lagðar Plasthillur Rteð teak

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.