Morgunblaðið - 26.08.1979, Page 22

Morgunblaðið - 26.08.1979, Page 22
2 2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1979 ólafur Jóhannesson svaraöi að bragði... Fyrir viku varpði ég fram fyrrihluta í vísnaleik og varð þess brátt vísari, að enn hafa menn gaman af því að spreyta sig á því að botna. Ég vil þakka þau bréf, sem mér hafa borizt. Öll voru þau ánægjuleg, og þótt hér birtist aðeins tveir botnar, er ekki endilega víst, að þeir hafi verið beztir. Á hinn bóginn er því ekki að leyna, að stundum var misfarið með stuðlana, þótt höfuðstafur- inn væri réttur. í þeim efnum get ég gefið þá þumalfingurs- reglu, að rétt er stuðlað, ef annar þeirra er í þriðja áherzluat- kvæði, en annars ekki: Dæmi: Stökur ortu stuðla-rétt.... Eða: Ortu stökur stuðla-rétt.... Eða: Vísnamálið lipurt, létt.... Vísan gæti þá orðið svona: Sökur ortu stuðla-rétt, stundum rímur sungu. Vísnamálið lipurt, létt leikur þeim á tungu. Mér þótti það með ólíkindum, að í einu bréfanna voru hvorki meira né minna en 103 botnar. Bréfritari í Hafnarfirði, sagði, að hann væri „nýlega farinn að stunda þá göfugu íþrótt íslenzku að hnoða saman vísu“ og þykir mér rétt að tilfæra hér einn af hans botnum: Ymsir bundu vonir við vinstra samstarf fyrir ári. Eflaust hefur íhaldið úthelt krókódílatári. Að norðan barst þetta: Allir vita að íhaldið eitt má létta þessu fári. Bjarni Jónson úrsmiður á Akureyri er löngu landskunnur fyrir stökur sínar, enda einn af okkar skemmtilegustu hagyrð- ingum. Á s.l. ári sendi hann frá sér ljóðabók, Vísur Bjarna fra Gröf. Þar er margt hnyttilega sagt, sem varpað hefur verið fram á förnum vegi, eins og (úrkast): Hér er bölvuð ótíð oft og aldrei friður. Það ætti að rigna upp í loft en ekki niður. Eða: Lífið er eins og ljótur poki, sem lafir á snúru í norðanroki, fyllist af vindi svo fýkur tuskan og fer einhvern djöfulinn út í buskann. Eða: Vanalega vísan hálf verður illa kveðin, ef hún kemur ekki sjálf eins og hjartagleðin. Eins og menn vita er sá háttur hafður á í þingveizlum, að eng- inn má tala í óbundnu máli nema forsetinn. Á hverju ári eru þeir, sem þær sitja, jafnhissa á því, hversu margir þingmenn leggja það fyrir sig að búa til vísu eða langar til þess. Að vísu er afraksturinn misjafn eins og jurtirnar í lystigarðinum á Akureyri, þar sem öllu ægir saman, illgresi og bláfjólu. í síðustu þingveizlu orti Halldór Blöndal (limra): Ólafur fór burt úr Fljótum. í flýti hér syðra skaut rótum. I verðbólgudans með sinn sjöunda sans hann svífur á afturfótum. ólafur Jóhannesson svaraði að bragði (gagaraljóð): Halldór skal fá hrós og þökk. Hann oft rímar fljótt og vel. En hugsunin er heldur skökk. í hjartanu þó norðlenzkt þel. Nokkra athygli hefur það vak- ið, að Árni Gunnarsson alþingis- maður, sem skaut eins og spútn- ik upp á hinn pólitíska stjörnu- himin fyrir síðustu kosningar og hefur verið talinn ákafur fylgis- maður vestrænnar samvinnu, hefur nú skrifað grein, þar sem hann mælir sterklega með sam- einingu Alþýðuflokks og Alþýðu- bandalags. Móri kvað (skamm- henda); Inn á þing hans endurkoma er sem borin von. Yfir kommum er að voma Árni Gunnarsson. Hér er svo að lokum fyrrihluti, sem gaman gæti verið að spreyta sig á, og ætli það sé ekki bezt að hafa hann nýhendu eins og síðast: Torfan vígð er tíma og stað, táknrænt dæmi um gamla bæinn. Ekki verður meira kveðið að sinni. H.BI. Bjarni írá Gröf er einn af skemmtilegustu hagyrðingum landsins. Chevrolet Malibu Malibu Classic 2 dr. El Camino. Véladeild Sambandsins Ármula 3 fíeyk/avik Simi 38900 Malibu Classic 4 dr. Malibu Classic Estate Það má lengi gera góðan bíl betri og nú hefur Qievrolet leikiðþað einusinnienn í sparaksturskeppni B.Í.K.R. í maí s.l. mældist Malibu eyða 12.16 lítrum af bensini á 100 kilómetrum. Þetta erathygl- isverð útkoma nú á tímum síhækkandi bensínverðs. 12.16 lítrar á hundraðið En það er fleira sem gerir Chevrolet Malibu eftirsóknarverðan. Tæknilegur búnaður, aksturseiginleikar, rými og ytri glæsileiki ásamt góðri endingu og lágum viðhaldskostnaði eru þeir kostir sem íslenskir bílakaupendur láta í vaxandi mæli ráða vali sínu. Næst velur þú Malibu, eins og hundruðir ánægðra Malibueigenda hafa gert á undan þér. Til afgreiðslu strax. Sýningarbílar. AUQLVSINQASTOFA SAMBANOSINS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.