Morgunblaðið - 28.09.1979, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 28.09.1979, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1979 VERKSMIDJU- SALA SAMBANDSVERKSMIÐJANNA SÝNINGAHÖLUNNIBÍLDSHÖFÐA 27. SEPT,-6.0KT. FRÁ GEFJUN Ullarteppi Teppabútar Áklæöi Gluggatjöld Buxnaefni Kjólaefni Ullarefni Sængurveraefni Garn Loöband Lopi o.m.fl. Wimimá . FRA FATAV.SM HEKLU Dömu-, herra- og barnafatnaður FRA SKOVERK.SM IÐUNNI Karlm. skór Kvenskór Kventöfflur Unglingaskór FRA INN- FLUTNINGSDEILD Vefnaöarvörur Búsáhöld Leikföng FRA HETTI OG SKINNU Mokka jakkar Mokka húfur Mokka lúffur " : : ; v . Str æt isvag na f eröir frá Hlemmi með k leið 10 FRA LAGER Tískuvörur úr ull Peysur Fóöraöir jakkar Prjónakápur Pils Vesti Ofnar slár Kaffidagur Eyfirðinga- félagsins á sunnudaginn Það er þegar orðin árleg hefð á hverju hausti, að Eyfirðingafélag- ið í Reykjavík efnir til kaffidags að hótel Sögu þar sem öllum Eyfirðingum 67 ára og eldri er boðið til kaffiveizlu, auk þess sem sitthvað annað er á dagskrá. Að þessu sinni er kaffidagur Eyfirðingafélagsins nk. sunnudag, 30. september, að vanda á Hótel Sögu og verður húsið opnað kl. 2 (Súlnasalur). Mörg undanfarin ár hefur mikið fjölmenni komið á Sögu þennan dag og er það von félagsins, að sem allra flestir fjölmenni, bæði hinir sérstöku boðsgestir sem og allra flestir norðanmenn, bæði til að styrkja gott málefni og hitta vini og kunningja. Eins og á fyrri kaffidögum verður basar með miklu úrvali muna og eins og fyrr mun allur ágóði renna til menningar- og góðgerðarmálefna í Eyjafirði. Margt verður á dagskrá hjá félag- inu á næsta ári, en þá heldur það hátíðlegt 40 ára afmæli sitt, sem síðar verður skýrt frá. (Fréttatilk.) Bústaðasókn: Félagsstarf aldraðra hef st í næstu viku TVO síðustu vetur hefur öldruðum verið boðið í Safnaðarheimili Bú- staðakirkju miðvikudagseftirmið- daga. Er þessi starfsemi áformuð einnig nú í vetur, enda hefur hún verið einstaklega vel þegin. Verður byrjað núna á miðvikudaginn kem- ur, þann 3. október. Þetta félagsstarf byggist annars vegar á því, að þátttakendur sinna ýmsu því, sem helzt vekur áhuga hvers og eins, má þar nefna sauma- skap, alls kyns föndur og hnýting- ar, eða þá að sezt er að spilum og leitazt við að sigra í slemmu eða grandi í whist og safna saman punktum í bridge. En auk bessa eru venjulega einhver gestur, sem bæði fræðir, og skemmtir heimafólki. Hafa ýmsir komið á liðnum starfs- tíma og rómað móttökur, en fram- lag þeirra sjálfra verið vel þegið. Þá leggur heimafólkið einnig sitt fram. Kvenfélagskonur hafa staðið fyrir kaffiveitingum, og organisti Bústaðakirkju, Guðni Þ. Guð- mundsson hefur verið óþreytandi í að spila sjálfur og koma með ýmsa aðra listamenn með sér. Forstöðu- kona verður áfram sem hingað til frú Áslaug Gísladóttir, en hún er formaður Safnaðarráðs Bústaða- sóknar, sem skipuleggur starfið, en að því standa öll félög safnaðarins, sóknarnefnd og sóknarprestur. Sem fyrr segir hefst starfið að nýju núna á miðvikudaginn eftir sumarleyfi og eru allir hjartanlega velkomnir. En í sumar var farið í ferðalag upp í Borgarfjörð og var sú ferð einstaklega ánægjuleg eins og þær, sem efnt hefur verið til fyrir aldraða á vegum safnaðarins á liðnum árum. Er þeim prestum séra Leó Júlíussyni, prófasti á Borg og séra Jóni Einarssyni í Saurbæ sérstaklega þakkað fyrir frábærar móttökur, er ferðalangar komu á þá sögufrægu staði, sem þeir veita nú forystu, og með þekkingu sinni og ljúflyndi opna prestarnir liðna tíma fyrir gestum og tengja þá um leið samtímanum. Má í þessu sam- bandi einnig geta þess, hversu hótelstjórinn í Hótel Borgarnesi lagði sig fram við móttökur gest- anna og opnaði sali hótels síns, svo að þar mætti öllum líða sem bezt. Hafi þeir allir þökk. (Frá Bústaðasöfnuði)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.