Morgunblaðið - 28.09.1979, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1979
Norræn ráðstefna
um lyfj aupplýsingar
NORRÆNA lyfjaneíndin (NLN)
gengst fyrir ráðstefnu dagana
4.-5. október n.k. í Oslo, um
fræðslu- og upplýsingastarfsemi
um lyf óháða lyfjaframleiðend-
um.
Ráðstefnuna sækja fulltrúar
flestra greina heilbrigðisstétta
og heilbrigðisyfirvalda, s.s. lyfja-
búða, lyfjaiðnaðarins, lækna og
ráðuneyta.
Fræðslustarfsemi um lyf á
Norðurlöndum mun kynnt. Þörf
slíkrar starfsemi í hinu daglega
lífi mun rædd, svo og þörf mis-
munandi heilbrigðishópa á hlut-
lausum upplýsingum.
Fulltrúar landanna munu
kynna þá fræðslustarfsemi, sem
áformuð er í hverju landi með
hliðsjón af samræmingu og auk-
inni norrænni samvinnu. Ráð-
stefnunni mun svo ljúka með
umræðum á breiðum grundvelli
um þetta atriði.
Eins og áður sagði, er það
norræna lyfjanefndin sem gengst
fyrir þessari ráðstefnu, en hún er
ráðgefandi nefnd fyrir heilbrigðis-
yfirvöld Norðurlanda. Aðaltil-
gangur norrænu lyfjanefndarinn-
ar er að vinna að auknu norrænu
samstarfi á sviði lyfjamála.
Þjóðleikhúsið:
Stundarfriður
á nýjan leik
STUNDARFRIÐUR, leikrit Guð-
mundar Steinssonar, sem sýnt
var yfir 30 sinnum á liðnu vori i
Þjóðleikhúsinu, verður nú tekið
til sýninga að nýju eftir sumar-
leyfin.
Leikurinn gerist á heimili
„nútíma“-fjölskyldunnar sem er
að yfirkeyra sig á lífsgæðakapp-
hlaupinu og einkennist öll tilvera
heimilisfólksins af rafknúnum
hjálpartækjum. Þannig leika t.d.
sími, dyrabjallan, hljómflutn-
ingstækin og sjónvarpið stór hlut-
verk í leiknum.
Leikstjóri er Stefán Baldursson
og leiktjöld eru eftir Þórunni
Sigríði Þorgrímsdóttur en með
stærstu hlutverk fara Helgi
Skúlason, Kristbjörg Kjeld, Sig-
urður Sigurjónsson, Lilja Þor-
valdsdóttir, Guðrún Gísladóttir,
Guðbjörg Þorbjarnardóttir og
Árni Tryggvason. Tekur Árni nú
við hlutverki afans um stundar-
sakir í veikindaforföllum Þor-
steins ö. Stephensens.
Fyrsta sýning á þessu hausti á
leiknum verður sunnudaginn 30.
september n.k.
Norrænir skólafulltrú-
ar ræða umferðarmál
DAGANA 12.—14. september var
haldinn á Hótel Loftleiðum fund-
ur norrænna forskóla- og skóla-
fulltrúa i umferðarfræðslu.
Fundinn sóttu fulltrúar frá
Finnlandi, Færeyjum, Noregi og
Svíþjóð auk íslensku fulltrúanna.
Af óviðráðanlegum orsökum gat
fulltrúi Danmerkur ekki sótt
fundinn að þessu sinni.
Norrænu umferðarráðin hafa
haft náið samstarf á undanförn-
um árum einkum hvað varðar gerð
námsefnis fyrir börn á forskóla-
og skólaaldri. Fulltrúar frá þess-
Tónleikar
íNjarðvík
Á morgun heldur Jónas Ingi-
mundarson píanóleikari einleiks-
tónleika í Ytri Njarðvíkurkirkju.
Undanfarnar vikur hefur hann
haldið tónleika m.a. með Ágústu
Ágústsdóttur á Vesturlandi. Þess-
ir tónleikar eru þeir fyrstu af
fjölmörgum, sem verða í Ytri
Njarðvíkurkirkju á þessum vetri.
Tónleikarnir hefjast kl. 16 á morg-
un, sunnudag.
um löndum hittast einu sinni á ári
til þess að bera saman bækur
sínar. Þetta er í fyrsta sinn sem
slíkur fundur er haldinn á íslandi.
Auk forskóla- og skólafulltrúa
sátu fundinn Leif Agnar Ellevset
framkvæmdastjóri Trygg Trafikk
(norska umferðarráðsins) og Óli
H. Þórðarson framkvæmdastjóri
Umferðarráðs.
Á fundinum voru tekin fyrir
mörg mál er varða umferðar-
fræðslu í skólum og forskólum.
Sýndar voru ýmsar fræðslumynd-
ir bæði fyrir sjónvarp og til
notkunar í skólum þ. á m. um
vandamál ungra ökumanna.
Slysaskýrslur frá hinum ýmsu
löndum Evrópu sýna að slysatíðni
er alls staðar mest hjá yngri
ökumönnum.
Af málum sem tekin voru til
umræðu má einnig nefna sam-
vinnu umferðarráðanna við fjöl-
miðla, akstur unglinga á vélhjól-
um og samvinnu við frjáls félaga-
samtök.
Fundarstjóri var Margrét Sæ-
mundsdóttir forskólafulltrúi Um-
ferðarráðs. Aðrir þátttakendur
frá íslandi voru Guðmundur Þor-
steinsson námstjóri í umfprðar-
fræðslu og Sigurður Agústsson
fulltrúi Umferðarráðs.
i
Veiting skólastjórastöðunnar við Grunnskóla Grindavíkur:
Aðeins annar umsækjenda hefur
embœttísgengi samkvœmt lögum
segir formaður Sambands gnmnskólakennara
„ÉG ER undrandi á þessari
veitingu. Fulltrúar þriggja
stéttarfélaga kennara voru
kallaðir á fund deildarstjóra
menntamálaráðuneytisins
gagngert vegna þessa máls, og
þar bentu þeir á að aðeins
annar umsækjenda hefði emb-
ættisgengi samkvæmt lögum
um embættisgengi skólastjóra
og kennara, auk þess sem þarna
er gengið í berhögg við vilja
meirihluta skólanefndar og yf-
irlýstan vilja kennara við skól-
ann,“ sagði Valgeir Gestsson
formaður Sambands grunn-
skólakennara i samtali við
Morgunblaðið í gær, er hann
var inntur álits á setningu
Hjálmars Árnasonar i stöðu
skólastjóra Grunnskóla
Grindavíkur.
Valgeir sagði að ljós væri að
menntamálaráðherra hefði ekki
framið lögbrot með því að ganga
framhjá Boga Hallgrímssyni og
setja réttindalausan mann,
Hjálmar Árnason í starfið.
Hjálmar væri settur í stöðuna
en ekki skipaður, og því stæðist
það lagalega. Sagði Valgeir það
vera sitt hvað, að hafa lagalegan
rétt í þessu máli, eða að hafa
„móralskan" rétt. Valgeir sagði
að á stjórnarfundi sem halda
átti klukkan 17 í gær yrði málið
rætt, og afstaða tekin til þess
hvernig við skyldi bregðast. Mál
af þessu tagi kvað Valgeir ekki
hafa komið til kasta stjórnar-
innar áður. Valgeir sagði að
vandamál væri hjá kennurum,
að þeir hefðu ekki lögverndað
starfsheiti, eins og til dæmis
iðnaðarmenn, og þar stæði hníf-
urinn í kúnni.
Valgeir sagði það vera alrangt,
sem haldið var fram í einu
dagblaðanna í gær, að mennta-
málaráðherra hefði tryggt sér
stuðning forystumanna kenn-
arasamtakanna áður en hann
setti Hjálmar í starfið. Þvert á
móti hefðu fulltrúar þessara
aðila verið boðaðir á fund í
ráðuneytinu þar sem þeir bentu
á að aðeins annar umsækjandinn
hefði réttindi, og þvi bæri að
veita honum starfið. „Þetta er
afleitt mál, alveg afleitt mál,“
sagði Valgeir Gestsson, formað-
ur Sambands grunnskólakenn-
ara að lokum.
Aðeins annar umsœkjandinn hefur
tilskilda menntun tilstarfsins
segir deildarstjóri grunnskóladeildar menntamálaráðuneytisins
„ÞAÐ er alveg ljóst, að aðeins
annar umsækjandinn, Bogi
Hallgrimsson, hefur tilskilda
menntun,“ sagði Sigurður
Helgason deildarstjóri
grunnskóladeildar mennta-
málaráðuneytisins í samtali við
Morgunblaðið í gær er hann var
spurður um menntun umsækj-
enda um stöðu skólastjóra
Grunnskóla Grindavíkur.
Sagði Sigurður að Bogi hefði
íþróttakennarapróf og handa-
vinnukennarapróf, og þar með
réttindi til kennslu og skipunar
við grunnskóla. Sigurður sagði
hinn umsækjandann, Hjálmar
Árnason, hafa lokið sem svarar
fimm sjöttu af B.A.-prófi, og
veitti sú menntun ekki réttindi
til kennslu á grunnskólastigi.
Sagði Sigurður að jafnvel þótt
Hjálmar lyki B.A.-prófi ætti
hann enn eftir að taka uppeldis-
og kennslufræði sem veitti rétt-
indi. „Því er ljóst að aðeins
annar umsækjandinn hefur til-
skilda menntun," sagði Sigurður,
„en hitt er svo að samkvæmt
nýju lögunum er ekki bannað að
setja menn án réttinda, enda er
það ekki hægt þar sem ekki fást
nægilega margir kennarar með
réttindi til starfa. En í þessu
tilviki er það alveg ljóst að
annar umsækjandinn hefur rétt-
indin en hinn ekki eins og ég
sagði fyrr.“
Ég mœlti með réttindamannin-
um, sem var Bogi Hallgrímsson
segir fræðslustjóri Reykjanesumdæmis
„ÉG MÆLTI með réttinda-
manninum i stöðu skólastjóra
grunnskóla Grindavíkur, það
er Boga Hailgrimssyni,“ sagði
Helgi Jónasson fræðslustjóri
Reykjanesumdæmis í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins
í gær, er hann var spurður með
hvorum umsækjenda hann hefði
mælt.
„Ástæðan fyrir þeim meðmæl-
um er fyrst og fremst sú, að
annar hefur réttindi en hinn
ekki,“ sagði Helgi ennfremur,
„en ég tók eingöngu afstöðu til
þeirra réttinda sem mennirnir
hafa.“
Helgi sagði að umsóknarfrest-
ur um stöðuna hefði verið níu
eða tíu dagar, en hann kvaðst
ekki muna hvað væri lögbundinn
umsóknarfrestur. Venja væri
hins vegar að fresturinn væri
fjórar vikur.
Umsögn sína kvaðst Helgi
hafa gefið á fundi skólanefndar,
og síðan hefði hann sent hana í
bréfi til ráðuneytisins. Síðan
kvaðst Helgi ekkert hafa heyrt
frá menntamálaráðuneytinu um
þetta mál fyrr en tilkynning
barst um að Hjálmar Árnason
hefði verið settur skólastjóri.
Samband grunnskólakennara:
Mótmælir að réttindalaus
maður sé settur í stöðuna
STJÓRN Sambands grunnskóla-
kennara kom saman til fundar í
gær og ræddi stöðuveitinguna í
Grindavík og var á fundinum
samþykkt eftirfarandi ályktun:
Stjórn Sambands grunnskóla-
kennara mótmælir harðlega þeirri
ákvörðun menntamálaráðherra að
setja réttindalausan mann í stöðu
skólastjóra í Grindavík, enda þótt
um stöðuna hafi einnig sótt maður
með full kennsluréttindi.
í 8. grein laga um embættis-
gengi kennara og skólastjóra sem
öðluðust gildi þann 12. maí 1978
eru skýr ákvæði þess efnis, að
einungis megi setja mann án
fullra réttinda í stöðu ef hlutað-
eigandi skólanefnd telur hann
hæfan. Hins vegar sækir um
áðurnefn((p stöðu maður með öll
tilskilin réttindi og meirihluti
skólanefndar mælir með honum.
Á hann því samkvæmt lögum
óskoraðan rétt til starfsins.
Kennarasamtökin hafa sætt sig
við að fólk án kennslúréttinda sé
sett í stöður, sæki engin réttinda-
maður um. Eftir setningu áður-
nefndra laga hafa þau vinnubrögð
verið viðurkennd af hálfu mennta-
málaráðuneytisins og kennara-
samtakanna að fólk með kennslu-
réttindi gangi fyrir um stöður
kennara og skólastjóra við
grunnskóla. Þessi regla hefur nú
verið þverbrotin og réttindi og lög
látin víkja.