Morgunblaðið - 28.09.1979, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.09.1979, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1979 Vetrarstarfið að hef jast Hvöt gefur út félagstíðindi VETRARSTARFIÐ er að hefjast hjá Sjálfstæðiskvenna- félaginu Hvöt. Liggur fyrir starfsáætlun til áramóta, sem kynnt er í nýútkomnum Félagstíðindum, sem hefur verið hleypt af stokkunum. Mbl. fregnaði hjá Björgu Einarsdóttur formanni Hvatar hvað helst væri þar á döfinni. Hún sagði að eftir fundahlé í sumar hefði fyrsta verkefni félagsins verið að efna til markaðshalds á útimarkaðinum á Lækjartorgi, eins og félagið raunar einnig gerði í vor. Það hefði verið bæði skemmtileg og félagsleg aðgerð og til nokkurrar fjáröflunar. — í Hvöt eru á annað þúsund sérstakt efni kynnt og síðan eru konur, sagði Björg, — og þrátt fyrir blómlegt félagsstarf og mikla fundasókn, næst þannig ekki tii nema takmarkaðs hluta félagsmanna, eins og segir í inn- gangsorðum Félagstíðindanna: „Stjórn félagsins er ljóst að miklu skiptir að ná til allra félagsmanna samtímis með fréttir af starfinu, komá hugmyndum áleiðis og veita Björg Einarsdóttir formaður Hvatar. félagsmönnum færi á að koma skoðunum á framfæri. Útgáfa Félagstíðinda er tilraun í þá átt.“ Sérstaklega ber að leggja áherzlu á að blaðið er vettvangur fyrir félagsmenn og raunar aðra sjálf- stæðismenn, er þess kunna að óska, auk þess sem það er farvegur fyrir stjórn og trúnaðarráð til að hafa samband við félagana. — Rabbfundir um hádegið á laugardögum voru vinsælir sl. vetur og verða 3 slíkir fundir, með eins konar klúbbsniði, til áramóta. Á hverjum fundi er eitthvert frjálsar óformlegar umræður, léttar veitingar, en fundartími er um 2 klst. — Á hádegisfundinum á laug- ardag 29. þ.m. er öllum konum, sem sæti eiga í stjórnum sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík boðið og mun jafnréttis- og jafnstöðu- nefnd félagsins sérstaklega leiða inn umræðuefni. Á hádegisfundin- um-27. október verða kynnt heild- arsamtök kvenna í Reykjavík og á hádegisverðarfundi 24. nóv. verð- ur sagt frá ferð til Austurlands og aðstöðu kvenna þar. Almennur aðalfundur verður fimmtudaginn 18. október og verð- ur þá tekið fyrir og fjallað um foreldraleyfi vegna barnsburðar eða fæðingarorlof, eins og það er stundum nefnt. Sá fundur verður með ráðstefnuformi líkt og fundur sem félagið efndi til fyrr á þessu ári um „fjölskylduna, barnið og vinnumarkaðinn", en báðir þessir fundir taka mið af ári barnsins. Jólafagnaður Hvatar mun að þessu sinni að nokkru sniðinn eftir því að nú er ár barnsins og efnt til fjölskyldufundar. Með tilliti til þessa verður fundurinn um miðj- an dag sunnudaginn 2. desmeber. Sérstök ástæða er til að vekja athygli á ráðstefnu um neytenda- mál sunnudaginn 18. nóv., sem Landssamband sjálfstæðiskvenna og Hvöt standa fyrir. — Stjórn Hvatar fagnar sam- starfi við önnur sjálfstæðisfélög, sem fer vaxandi á mörgum svið- um, sagði Björg að lokum. Valhöll, hús Sjálfstæðisflokksins, er mikil starfsmiðstöð allra félagsmanna og þar er gott fólk að starfa með. Skemmtilegast er þó að finna þann mikla starfs- og stjórnmála- anda, sem einkennir sjálfstæðis- menn um þessar mundir. Lloydsman í ásiglingarham Lloydsman seldur til Singapore DRÁTTARBÁTURINN Lloydsman, sem við Islendingar könnumst við úr tveimur þorskastríðum, hefur nú verið seldur frá Hull til Singaporc, að því er brezka blaðið The Daily Mail segir. Brezka blaðið getur „frægðarverka“ Lloydsman í þorskastríðum við íslendinga. Lloydsman var „flaggskip" brezkra dráttarbáta, en að sögn talsmanna fyrirtækisins United Towing fer salan fram vegna samdráttar hjá fyrirtækinu og neitunar brezkra stjórnvalda við að hlaupa undir bagga við rekstur Lloydsman. Lloydsman sigldi m.a. á varðskipið Þór í mynni Seyðisfjarðar 11. desember 1975 og neyddist Helgi Hallvarðsson skipherra til að gefa skipun um að skjóta á Lloydsman. Skotið var þremur skotum frá varðskipinu og hæfði eitt þeirra dráttarbátinn. Atburður þessi leiddi m.a. til kæru íslands fyrir Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Þriðja starfsár Fjölbrauta- skólans á Akranesi hafið Fjölbrautaskólinn á Akranesi var settur laugardaginn 1. september. Skólinn hefur nú þriðja starfsár sitt og eru nemendur um 400 á sex sviðum skólans. Þá annast skólinn einnig kennslu í 8. og 9. bekk grunnskóla og eru nemendur því alls um 600 í skólanum í vetur. Nemendur utan Akraness eru nær 100 og varð að vísa nemendum frá skólanum þar sem ekki er unnt flninnmnníliim mirton íriA húsakost skólans. Utanbæjarnem- endur búa í heimavist og á einka- heimilum. í haust verður tekið í notkun viðbótarhúsnæði tvær kennslustofur en þær duga ekki til að mæta nemendaaukningunni svo leigja þarf viðbótarhúsnæði. Er mjög brýnt að sinnt verði hið fyrsta byggingu heimavistar við skólann auk þess sem byggja þarf yfir verknámsdeildir skólans, en þær eru allar í leiguhúsnæði. Nú í haust hófst 100. skólaár reglulegs skólahalds á Akranesi og fer vel á því að fyrstu stúdentar munu brautskrást frá skólanum á þessu skólaári. Skólinn starfar eftir áfangakerfi, og hefur haft samvinnu við Fjöl- brautaskóla Suðurnesja og Flens- borgarskólann í Hafnarfirði um skipulagningu námsbrauta og út- gáfu námsvísis. Skólameistari er Ólafur Ásgeirs- son. Áral Sigurðs8on sveiflar kylf- unni til sigurs á fyrsta golfmót- inu á ísafirði. Fyrsta golfmót- ið á ísafirði NÝLEGA var haldið á ísafirði fyrsta golfmótið sem hér hefur verið haldið. Golfklúbbur hefur verið starfandi hér um tveggja ára skeið, en vegna aðstöðuleysis hefur ekki verið hægt að halda mót. En síðastiiðið vor fékk golfklúbburinn land undir golfvöll í landi Fremri Hnifsdals. Hafa kylfingar komið sér þar upp ágætum sex holu goifvelli, jafnframt því að kaupa gamlan bílskúr sem fluttur var á staðinn, og er nú verið að innrétta sem golfskála. Aðalhvatamaðurinn að stofnun klúbbsins er Margrét Árnadóttir, systir fjármálaráðherra, en þau systkinin eru bæði miklir áhugamenn um golf. í fyrra sumar kom Þorvaldur Ásgeirsson tvisvar vestur og kenndi golf, en í Golfklúbbi ísafjarðar eru nú um 50 félagar, flestir óvanir, en mikill áhugi er meðal félags- manna. Á þessu fyrsta golfmóti ísfirðinga varð Akurnes- ingur hlutskarpastur, hann heitir Árni Sigurðsson, og hefur verið starfsmaður Flugleiða hér undanfarið. í öðru sæti varð Ásbjörn Björgvinsson frá F’lateyri, svo að ísfirðingar urðu að láta sér nægja þriðja sætið á mótinu en það hreppti Reynir Adolfsson deildarstjóri Flugleiða. Keppt var í yngri flokki og varð Guðmundur Kristjánsson í fyrsta sæti, en Arnar Árnason í öðru. Formaður mótsnefndar var Reynir Adolfsson en stjórn golfklúbbsins skipa Margrét Árnadóttir, Pétur Svavarsson og Birna Einarsdóttir. Stjórn Golfklúbbs ísafjarðar: Margrét Árnadóttir, Birna Einars- dóttir og Pétur Svavarsson. Ljóm. Mbl. Úlfar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.