Morgunblaðið - 28.09.1979, Side 15

Morgunblaðið - 28.09.1979, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1979 15 Ný bylgja bátafólks? Kuala Lumpur — 26. september — AP EMBÆTTISMENN og diplómatar í Malaysíu halda því fram að búast megi við nýrri bylgju báta- fólks frá Víetnam áður en árið er á enda. Á alþjóðlegri ráðstefnu í Genf í sumar féllust Víet- namar á að hindra flótta Blaðamað- ur enn rek- innfrá Iran London, 27. sept. AP. INDVERSKUM blaða- manni í íran, sem starf- aði fyrir The Wall Street Journal, hefur verið skipað að hverfa um- svifalaust úr landi. Sagði í fréttum að blaðamað- urinn Mohan Chandra hefði fengið þessi fyrir- mæli frá ráðuneyti því sem fer með „þjóðar- hagsmál" í íran. Sagt var að hann hefði ekki haldið í heiðri þær regl- ur sem settar hafa verið erlendum blaðamönnum. Hann hefði haft ólögleg sambönd við fréttastofur sem stjórnvöld í íran hefðu ákveðið að loka. bátafólksins. Hefur dregið úr flóttanum, og þeir fáu sem komizt hafa undan segjast hafa flúið án vit- undar stjórnvalda í Hanoi og ekki greitt neinar mút- ur til þess að fá að flýja. Diplómatarnir segja að eftir séu í Víetnam um 800.000 manns af kínversku bergi, og þar sem efna- hagsástand sé svo bágborið í landinu og skortur á matvælum, megi búast við að stjórnvöld í Víetnam hreki menn á ný á haf út. Víetnamar hafi á sínum tíma aðeins lofað að koma í veg fyrir ólöglegan flótta, en þeir telji sig eftir sem áður hafa fullan rétt til að reka fólk á brott. Aðra hugsanlega ástæðu fyrir nýrri bylgju bátafólks segja dipló- matar og embættismenn vera þá, að Víetnömum hafi illa líkað að takast ekki til að tryggja sess núverandi valdhafa í Kambódíu á ráðstefnu hlutlausra ríkja á Kúbu fyrir skömmu. Einnig séu Víet- namar óhressir með að Allsherj- arþing Sþ samþykkti sendinefnd Pol Pots fyrrum leiðtoga Kambód- íu sem fulltrúa Kambódíu hjá Sþ. Símamynd — AP. Frank Sinatra á miklum hljómleikapalli er reistur hafði verið við pýramidana i Egyptalandi, en þar hélt hann í gærkvöldi hljómleika til styrktar byggingu heimila fyrir fjölfötluð börn. Simamynd-AP. Forsetafrú Egyptalands (tv.), frú Jihan Sadat, ásamt eiginkonu Frank Sinatra. Myndin var tekin á mikilli tízkusýningu i Kairó i fyrrakvöld, en þá var einkum sýndur fatnaður hannaður af franska tízkufrömuðinum Pierre Balmain. Tízkusýningin var hluti skemmtana er efnt var til í ágóðaskyni fyrir byggingu heimila fyrir fjölfötluð börn. Lítill árangur Alexandriu, 27. september, Reuter. LÍTILL árangur varð af tveggja daga fundi fulltrúa Egypta. Isra- ela og Bandarikjamanna um sjálfsforræði Palestinumanna á herteknu svæðunum, en fundin- um lauk i dag. Fulltrúarnir ákváðu þó að halda áfram tilraunum til að fá fulltrúa Palestinumanna til þátt- töku i viðræðunum. Singh stofnar nýj- an flokk álndlandi Nýju Delhl, 27. sept. Reuter. CHARAN Singh, sem gegnir for- sætisráðherraembætti i Indlandi til kosninga þar, gekk í dag formlega frá stofnum nýs stjórn- málaflokks í landinu. Nýi flokk- 47 brennd- ust í Istanbul Istanbul, 27. sept. AP. FJÖRUTÍU og sjö manns brennd- ust, þar af tvennt alvarlega þegar ægilegur eldsvoði varð eftir butangassprengingu i húsi í miðborg Istanbul þar sem ýmis eldfim rannsóknarefni voru geymd. Rúður brotnuðu í hundr- uðum næriiggjandi húsa og skemmdir urðu aðrar á sumum þeirra. Singh urinn heitir Lok-flokkur sem mun útleggjast þjóðarflokkur. Hann efndi til fundar i Nýju Delhi þar sem síðan var gengið frá stofnuninni fyrir forgöngu þeirra Singh og George Fernand- es fyrrverandi iðnaðarmálaráðherra. Singh og stuðningsmenn hans í Janataflokknum (S) rufu tengsl við aðal Janataflokkinn í júlí, eins og alkunna er, og með þeim afleið- ingum að Desai þáverandi forsæt- isráðherra varð að segja af sér. Á stofnþingi Lok-flokksins hafði verið búizt við því að armur undir forystu Hemwati Bahuguna, fyrrverandi fjármálaráðherra, myndi ganga til liðs við flokkinn en svo varð ekki. Aftur á móti gaf talsmaður Bahuguna í skyn að ekki væri fráleitt að Lok-flokkur- inn fengi stuðning úr þeirri átt. Formaður flokksins var kjörinn Raj Narain. Hann sagði að flokk- urinn myndi leggja áherzlu á lýðræði, sósíalisma, beita sér fyrir að hætt yrði ofsóknum á hendur minnihlutahópum og uppræta innanlandserjur af öllu tagi. Sprengjur á N-írlandi Lisburn, N.-írlandi, 25. sept. — AP. ÁTTA manns, þeirra á meðal tvær lögreglukonur, slösuðust þegar þrjár sprengjur sprungu í borg- inni Lisburn, suð-vestur af Belfast á Norður-írlandi í dag. Annar armur írska lýðveldishersins, I.R.A., stóð fyrir sprengjuárás- inni, að eigin sögn. Lögreglukonurnar meiddust í einni sprengingunni þegar þær voru að aðstoða viðskiptavini út úr verzlun í miðborginni. Meðal ann- arra, sem slösuðust, var 83 ára kona, ung stúlka sem stökk út um glugga á annarri hæð verzlunar, og tveir slökkviliðsmenn. Enginn slasaðist þó alvarlega, að sögn lögreglunnar. Meðal sjónarvotta var Janet nokkur North, og segir hún svo frá: „Það er kraftaverk að enginn skuli hafa slasazt alvarlega. Ég var á göngu með barnið mitt þegar verzlunarstúlka kom þjótandi út á götu og sagði að borizt hefði sprengjuaðvörun. Eftir andartak var lögreglan komin á vettvang til að koma fólki undan. Þá allt í einu splundraðist forhliðin á þessari kvenfataverzlun. Fjöldi manns kastaðist í götuna, þar á meðal lögreglukona." Vænghluti féll af DC-8 Tókýó, 27. september. AP. HLUTI vængflapsa japanskrar farþegaþotu af gerðinni DC-8 féll til jarðar í þann mund er vélin lenti á flugvellinum í Osaka í dag. Vélin lenti heilu og höldnu og áhöfn og farþega, alls 106 manns, sakaði ekki. Flugvellinum var lokað í 10 mínútur meðan vænghlutans var leitað. Sérfræðingar sögðu að átta samsvarandi flapsar væru á þotum af þessari gerð og að óhapp af þessu tagi stofnaði öryggi vélanna ekki í hættu. Millisvæðamótin: Þetta gerðist 1972 — Japanir og Kínverjar taka upp stjórnmálasamband. 1971 — Mindzenty kardináli fer til Vínar eftir 15 ára dvöl í bandaríska sendiráðinu í Búda- pest. 1958 — Þjóðaratkvæðagreiðsla um stjórnarskrá Fimmta franska lýðveldisins. 1953 *— Indónesía fær aðild að SÞ. 1944 — Kanadískt herlið sækir inn í Calais. 1941 — Ógnarstjórn Þjóðverja hefst í Tékkóslóvakíu. 1939 — Þjóðverjar og Rússar spmþykkja áætlun um skiptingu Póllands. 1924 — Tvær bandarískar her- flugvélar lenda í Seattle eftir fyrsta hnattflugið (175 dagar). 1923 — Abyssinía fær aðild að Þjóðabandalaginu. 1915 — Bretar sigra Tyrki við Kut-El-Amara, Mesópótámíu. 1905 — Frakkar og Þjóðverjar ákveða að kalla saman ráðstefnu um Marokkó. 1900 — „Khaki“-kosningarnar hefjast í Bretlandi. 1864 — Fyrsta Aiþjóðasamband jafnaðarmanna stofnað. 1862 — Bismarck heldur ræðu sína um „blóð og járn“. 1850 — Hýðingar aflagðar í bandaríska sjóhernum. 1826 — Rússar segja Persum stríð á hendur vegna yfirgangs. 1781 — Umsátrið um Breta i Yorktown, Virginíu, hefst. 1716 — Hannover-sáttmáli Englendinga og Frakka leiðir til stofnunar Þríveldisbandalags þeirra og Hollendinga. 1687 — Tyrkir láta Aþenu af hendi við Feneyinga. 622 — Flótti Múhameðs frá Mekka. Afmæli. Sir William Jones, enskur Austurlandafræðingur (1746—1794) — Prosper Méri- mée, franskur rithöfundur (1803—1870) — Georges Clem- enceau, franskur stjórnmálaleið- togi (1841-1929) - Brigitte Bardot, frönsk leikkona (1934—). Torre og Tal í forystu Andlát. Emile Gaboriau, rithöf- undur, 1873 — Louis Pasteaur, efnafræðingur 1895 — Gamal Abdel Nasser, stjórnmálaleið- togi, 1970. Innlent. Kosningalögin 1849 — d. Þorsteinn Erlingsson 1914 — Þorvaldur Thoroddsen 1921 — Jón Vigfússon klausturhaldari 1752 - Skáld-Rósa 1855 - Elliheimilið Grund vígt 1930 — f. Finnur Jónsson ráðherra 1894 — d. Karl ísfeld 1960 — Kristín Sigfúsdóttir rith. 1953 — Loft- leiðir hafna kostum SAS 1967 — Bannað að reykja í leigubílum 1978 — f. Geir G. Zoéga vega- málastjóri 1885 — Kristinn Ármannsson rektor 1895 — Ragnar H. Ragnar 1898 — dr. Símon Jóhannes Ágústsson 1904. Orð dagsins. Veittu mér heldur aðstoð í verki en í orði — Giuseppe Garibaldi, italskur ættjarðarvinur (1807—1882). Rio, Moskvu, 27. sept. Reuter. FILIPPINSKI stórmeistarinn Eugene Torre heldur enn hálfs stigs forystu í svæðamótinu í Rio de Janeiro eftir þrjár umferðir og hefur Torre fengið. 2% vinn- ing. Petrosjan og Vanian, báðir frá Sovétrikjunum, og Hubner frá Vestur Þýzkalandi, eru með 2 vinninga. Niðurstöður þriðju um- ferðar voru að Smejkal vann Hebert frá Kanada, Vaganian vann Harandi frá íran og Bron- stein vann Shamkovich frá Bandaríkjunum. Skákir Velimi- rovic og Hubners, Balashovs og Timmans, Kagans og Sham- kovich fóru í bið, en aðrar voru jafntefli. Á mótinu í Riga hefur Tal frá Sovétríkjunum tryggt sér að verða meðal þriggja efstu að minnsta kosti. Enn eru tvær umferðir eftir og er staðan nú að Tal hefur 12 stig, Ribli 10%, Polugayevsky 10, Gheorghiu 9%, Adorjan og Miles 9, Larsen, Romanishin og Kuzmin með átta vinninga hver. Sprengja sprakk á Karmelmarkaðnum Tel Avlv, 27. sept. AP. SPRENGJA sprakk í námunda við miðborg Tel Aviv í morgun, nánar tiltekið skammt frá Karmelútimarkaðnum. Talsmað- ur lögreglu sagði að sprengjunni hefði verið komið fyrir á almenn- ingssalerni rétt hjá markaðnum, en ekki hefði neinn slasast í sprengingunni og skemmdir orð- ið óverulegar. Mikil mannaferð var á þessum slóðum þegar þetta gerðist en ísraelar búa sig nú undir Yom Kippur-helgina. Hinn 10. apríl sl. létust tveir í sprengingu á Karmelmarkaðnum og tugir slösuðust.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.