Morgunblaðið - 28.09.1979, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1979
Hvað veldur sársaukanum?
1. Hinar örsmáu disklaga blóÖflögur (Platelets) valda þvi að
slagæöar dragast saman á ákveðnu svæði.
2. Blóðflögurnar koma „seretóníni“ i heilanum af stað, en það er
efni sem flytur taugaboð. Slagæðarnar þenjast nú skyndilega út.
3. Þandar æðarnar þrýsta á nærliggjandi taugar og höfuðverkur-
inn byrjar.
Lækning fundin
við mígreni?
Minning:
Þengill Jónsson
frá Skeggjabrekku
NIÐURSTÖÐUR nýlegra til-
rauna bandarískra lækna
með lyfið „Propranolol“ virð-
sat benda til þess að loksins
sé fundin lækning við míg-
reni. Propranolol, sem marg-
ir þekkja undir sérnafninu
„Inderel“ er annars þekktast
sem lyf gegn ýmsum hjarta-
sjúkdómum, en þá sérstak-
lega gegn of háum blóðþrýst-
ingi.
Mígreni er mjög algengur
kvilli, talið er að ekki færri en
25 milljónir Bandaríkjamanna
þjáist af völdum hans. Orsök-
in er enn ráðgáta þótt ein-
kennin séu þekkt. Venjulega
er verkurinn aðeins í öðrum
hluta höfuðsins hverju sinni,
enda er orðið „mígreni" dregið
af gríska orðinu “hemicranía"
sem þýðir „hálf höfuðkúpan".
Höfuðverkurinn lýsir sér
með miklum æðaslætti sem
byrjar til að mynda á öðru
gagnauganu eða kringum aug-
un. Æðaslátturinn færist síð-
an aftur í hnakka, þar sem
hann einnig getur átt upptök
sín og færst síðan fram á enni.
Á meðan kvalirnar vara er
erfitt að þola skært ljós eða
hávaða. Fyrirboði höfuðverkj-
arins er hjá mörgum óþægindi
í augum, suð í eyrum og
jafnvel titringur í fingrum.
Verkirnir vara oft í nokkra
daga.
Mígreni virðist ættgengt
Læknar eru ekki á eitt sátt-
ir með það hvort telja beri
mígreni til taugasjúkdóma eða
ekki. Mígreni virðist vera ætt-
gengt sem bent gæti til arf-
gengra litningagalla. Meðal
fullorðinna er mígreni algeng-
ara í konum en körlum og gæti
það átt rætur sínar að rekja
til hormónastarfseminnar;
tíðni mígrenikasta er í lág-
marki á meðgöngutímanum en
í hámarki á meðan á tíðum
stendur.
Meðal barna er mígreni al-
gengara hjá drengjum en
stúlkum.
Sérfræðingar eru sammála
vélaverksmiðjurnar í Amster-
dam.
Að sögn Leifs Magnússonar var
tilgangur ferðarinnar að ræða
hugsanlega endurnýjun innan-
landsflugvélanna með nýrri og
fullkomnari gerð Fokker Friend-
ship-véla í huga, F-27 500. Gæti
hún flutt allt að 60 farþega, en
núverandi Fokkervélar Flugleiða
hafa 48 sæti. Leifur sagði að
hugmyndin væri sú að losa félagið
við 3 Fokker-vélanna sem eru af
svonefndri 100 gerð, en hinar tvær
væru af 200 gerð sem væri nokkru
burðarmeiri og með aflmeiri
hreyfla. Afgreiðsla nýrrar vélar
frá Fokker-verksmiðjunum yrði
hugsanlega í nóvember á næsta
ári í fyrsta lagi.
um að mígreni feli meðal
annars í sér breytingu á slag-
æðum í höfðinu. Þeir halda því
fram að þeir sem þjást af
mígreni hafi meðfæddan
erfðagalla í slagæðakerfi í
hálsinum sem flytur blóð til
heilans.
Af einhverri ástæðu valda
hinar örsmáu disklaga blóð-
flögur (Platelets) því, að slag-
æðar dragast saman á ákveðn-
um stað í höfðinu. Innan
klukkustundar koma þessar
sömu disklaga blóðflögur
„seretóníni" í heilanum af
stað, en það er efni sem vana-
lega flytur taugaboð. Seretón-
ínið veldur því síðan að slag-
æðarnar þenjast skyndilega út
sem aftur veldur þrýstingi á
nærliggjandi skyntaugar og
sársaukinn hefst.
Lyfið fundið?
Lyf þau sem hingað til hafa
verið notuð gegn mígreni hafa
verið ákaflega ófullkomin.
Eitt þeirra sem nefnist „Ergo-
tamine tartrate" má aðeins
taka inn með nokkurra daga
millibili svo sjúklingurinn
verði ekki háður því. Annað
lyf, sem nefnist „Methylser-
gide“, verður að fara mjög
gætilega með þar sem það
getur valdið skemmdum á
hjarta og nýrum.
Propranolol er mun áhrifa-
meira en þessi lyf og hefur
auk þess þann kost að vera
nær laust við hliðarverkanir.
Sérfræðingar uppgötvuðu
lækningamátt Propranolols
gegn mígreni nánast fyrir
tilviljun. Hjartasjúklingar
sem einnig þjáðust af mígreni,
skýrðu frá því að höfuðverkur-
inn hyrfi þegar lyfið væri
tekið inn. Ekki er vitað fyrir
víst hver vegna svo er, en vitað
er að Propranolol slævir hina
svonefndu „Beta-móttakara“ á
taugaendum, sem valda því að
æðar þenjast út. Með því að
einangra þessa móttakara
gerir Propranololið það senni-
lega að verkum að æðarnar
dragast saman í stað þess að
þenjast út.
Helsti kostur Propranolols
er sá að unnt er að taka það
inn daglega í nokkuð stórum
skömmtum, allt eftir þörfum
hvers notanda. Tíðni verkj-
anna lækkar til mikilla muna
og dæmi er um það að sjúkl-
ingur sem vanur var að fá átta
mígreniköst í mánuði fær nú
aðeins eitt með tilkomu Pro-
pranolols. Þá dregur notkun
lyfsins úr lengd verkjanna og
sumir sérfræðingar halda því
fram að með samhliða notkun
annarra lyfja fáist enn betri
niðurstöður.
(Heimild: Newsweek)
Fæddur 15. janúar 1902.
Dáinn 19. september 1979.
Þengill Jónsson föðurbróðir
minn lést fimmtudagskvöldið þ.
19. september s.l. á fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri, skömmu
eftir hjartaáfall er hann hafði
fengið á heimili sínu. — Hann var
fæddur þ. 15. janúar 1902, sonur
hjónanna Jóns Gunnlaugssonar
bónda og organista og konu hans,
Sigurbjargar Marteinsdóttur, er
lengst af bjuggu í Skeggjabrekku í
ólafsfirði. Þengill var næst elstur
6 systkina, en þau eru auk hans
Gunnlaugur, sem lengst af hefur
búið í Ólafsfirði, kvæntur Döllu
Jónsdóttur frá Blönduósi; Oddný,
gift Steini bónda Jónassyni á
Bakka í Ólafsfirði, en þau brugðu
búi fyrir allnokkrum árum og
fluttu til Akureyrar. Steinn lést
fyrir fáum árum; Tryggvi lengst
af bóndi í Skeggjabrekku ásamt
Þengli bróður sínum, ókvæntur;
Rósa, gift Óskari Karlssyni frá
Garði í Ólafsfirði, nú búsett á
Hrísum í Svarfaðardal. Yngstur
var Bergvin en hann fórst í sjó-
slysi nálægt tvítugsaldri.
Fyrstu minningar mínar um
Þengil frænda minn eru tengdar
uppvaxtarárum mínum heima í
ólafsfirði. Ég fæddist í Skeggja-
brekku og var þar meira og minna
sem strákur, einkum á sumrin á
meðan amma mín lifði. Eftir Jóni
afa mínum man ég lítið, enda dó
hann þegar ég var lítill drengur.
Ég á ógleymanlegar minningar
frá þessum árum og þessu mann-
marga myndarheimili, þegar
amma bjó þar með þremur börn-
um sínum, Þengli, Tryggva og
Rósu og fjölskyldum þeirra. Þeng-
ill kvæntist árið 1934 Ólöfu
Jóhannesdóttur frá Hrúthól, sem
lifir mann sinn, og átti með
honum 3 börn, Sigurbjörgu hús-
freyju á Þóroddsstöðum í Ólafs-
firði, gift Stefáni Ásberg bónda,
Jóhannes byggingameistara á
Akureyri, kvæntan Sesselíu Gunn-
arsdóttur frá Dagverðareyri, Jón
verslunarmann á Akureyri,
kvæntan Erlu Vilhjálmsdóttur frá
Akureyri. Áður en Þengill kvænt-
ist eignaðist hann son, Guðmund,
sem að mestu leyti ólst upp í
Það voru sorgarfréttir, sem
okkur systkinum bárust til eyrna
sunnudag 16. september, er okkur
var tilkynnt, að Þorvaldur bróðir
væri dáinn, hefði farist í bílslysi
austur á Fjarðarheiði. Þetta voru
fréttir, sem okkur fannst erfitt að
trúa, en vegir lífsins eru órann-
sakanlegir, og enginn veit hvar
eða hvenær maðurinn með ljáinn
bregður brandi, kannski er það
líka bezt.
Þorvaldur Waagfjörð var fædd-
ur í Vestmannaeyjum 3. júní 1952
sonur hjónanna Jóns Waagfjörð
bakarameistara og Berthu Gríms-
dóttur, sem bjuggu í Garðhúsum í
Vestmannaeyjum, en búið hafa í
Garðabæ síðan í gosinu 1973.
Þorvaldur var einn úr hópi sjö
systkina og ólst upp eins og aðrir
drengir í sjávarplássum þessa
lands. Hann var fjörmikill og
kjarkaður drengur, og sumum
þótti stundum nóg um, en við, sem
best þekkjum til, vitum að undir
tápmiklu og kannski stríðnisfullu
fasi hans sló hreint og göfugt
hjarta, sem gerði mál lítilmagn-
ans að sínu og átti í staðinn óvild
margra, sem oft og tíðum skildu
ekki hvað fyrir honum vakti, en
sem betur fer voru þeir fleiri, sem
guldu honum vináttu hans með
gagnkvæmri vináttu og tryggð.
Skeggjabrekku og er nú starfandi
múrarameistari og verktaki í
Reykjavík, kvæntur Hugljúfu
Dagbjartsdóttur frá Siglufirði.
Með þessum fáu kveðjuorðum
langar mig að þakka frænda mín-
um samfylgdina, alla rausn og
höfðingsskap sem ég og fjölskylda
mín nutum í Skeggjabrekku bæði
fyrr og síðar. Svo lengi sem ég
man eftir mér og fram til ung-
lingsára fóru foreldrar okkar
bræðranna með okkur fram í
Skeggjabrekku og héldum við þar
jólin á aðfangadagskvöld ár hvert
og er ekki laust við að okkur
fyndust aðfangadagskvöldin „til-
komuminni" eftir að þessi siður
lagðist niður við fráfall ömmu.
Eftir að okkar börn fóru að vaxa
úr grasi voru þau meira og minna
hjá afa sínum og ömmu í Ólafs-
firði á sumrin og nutu þá ætíð
sömu góðvildar í Skeggjabrekku
og þar var ætíð að finna og hygg
ég að Óla mín blessuð hafi átt fáa
sína líka, þegar gesti bar að garði,
hvort heldur voru litlir eða stórir,
svo ríkjandi var gestrisni og allur
myndarskapur þessarar góðu
konu. Fyrir allt þetta og miklu
meira vil ég nú þakka þegar
frændi minn er kvaddur hinstu
kveðju í dag og heldur til nýrra
heimkynna þar sem bíða hans
vinir í varpa. Hjartanlegar sam-
úðarkveðjur sendum við ástvinun-
um öllum norður yfir fjöllin.
Jón B. Gunnlaugsson.
En nú er hans vegur á enda og
líkaminn deyr, en við sem eftir
lifum eigum minningu um hug-
prúðan dreng sem ljúft er að
minnast.
Við systkinin þökkum Þorvaldi
bróður okkar stutta samfylgd og
vonum að hann hafi farið sáttur
við Guð og menn. Við biðjum Guð
að blessa börnin hans og vera
þeim huggun í lífinu.
Systkinin.
Flugleiðamenn
skoðanýjar
Fokker-vélar
NOKKRIR forráðamenn Flug-
leiða, Sigurður Helgason for-
stjóri, Einar Helgason fram-
kvæmdastjóri innanlandsflugs
og Leifur Magnússon fram-
kvæmdastjóri flugrekstrarsviðs,
heimsóttu nýlega Fokker-flug-
t
Eiginmaöur minn, faöir og tengdafaðir
ÞÓRIR JÓNSSON
Eskihlíö 16,
Reykjavík
andaöist í Landspítalanum 27. september.
Helga L. Júníusdóttir
börn og tengdabörn.
Faöir okkar, afi og bróöir
ÓLI RAGNAR GEORGSSON
Álftamýri 46
lést á heimili sínu þ. 19. sept.
Jaröaförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Fyrlr hönd ættingja og vina
Vilhelmina R. Hansson Bentt Hansson
Georg Ragnarsson Stella Gunnarsdóttir.
Tómas H. Ragnarsson Auöur Snorradóttir,
Guömundur Bjarnason Helga Engilbertsdóttir
Fjóla Ragnarsdóttir Ásgeir Einarsson
Sigrún Ragnarsdóttir GIsli Árnason
Bára Ragnarsdóttir og barnabörn.
IIMIEtMIIItlittlMttltllilllltlllltllllitliltllllÍtlllltllllltllllMIIIIIIillillllllllliMlltlll
Þorvaldur Waagfjörð
—Minningarorð