Morgunblaðið - 28.09.1979, Side 31

Morgunblaðið - 28.09.1979, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1979 31 • Lárus Guðmundsson sækir að finnska markverðinum, sem virðist hafa misst knöttinn frá sér. Hann var þó fijótur að góma hann á ný. Ljósm. Emilia B.B. „Þetta var reióarslag" „ÞETTA eru gífurleg vonbrigði, ekki heil brú í leik iiðsins, miðju- sannkallað reiðarslag, það var leikmennirnir brugðust, ég var Landsleikir í körfu við íra ÍSLENDINGAR leika sína fyrstu landsleiki i körfuknattleik 26. október næstkomandi og verða írar mótherjarnir. Munu liðin ctja kappi saman þrívegis. Fyrsti leikurinn fer fram í Njarðvík 26. október og hefst hann klukkan 20.00. Síðan verður leikið daginn eftir í Laugardalshöll og hefst sá leikur klukkan 14.00. Þriðji leikurinn fer síðan fram í Borgarnesi sunnudaginn 28. októ- ber og hefst hann klukkan 14.00. Er þetta fyrsti landsleikur af nokkurri tegund sem fram fer í Borgarnesi og verður vafalaust vel sóttur. Irska liðið verður örugglega sterkt, en með því koma a.m.k. tveir atvinnumenn, sem leika með enskum liðum. Landsliðsþjálfari íslands Einar Bollason, hefur lýst yfir að allir leikmenn innan lands- liðshópsins fái að spreyta sig í leikjunum. - gg. Einherjar keppa á Nesinu Einherjar keppa á Nesinu ÞEIR SEM farið hafa holu í höggi, komast i félag, sem heitir Einherjar. Má segja, að það séu einhver erfiðustu inntökuskil- yrði, sem nokkurt félag hefur, þvi sumum tekst aldfet að fara holu í höggi, þótt þeir leiki golf áratugum saman. Einherjar koma saman einu sinni á ári og keppa og venjulega hefur sú keppni verið rétt á undan lands- móti. Þar sem Islandsmótið í ár fór fram á þremur stöðum norð- anlands, þótti ekki fært að halda Einherjamót þar og þess i stað verður það haldið núna um helg- ina, nánar tiltekið á Nesvellinum á laugardag og hefst mótið kl. 12. Leiknar verða 18 holur með forgjöf. Þeir sem farið hafa holu i höggi nú í sumar, eru beðnir um að koma með staðfestingu og geta þeir þá verið með. ailtaf smeykur um það. Ég kann engar skýringar á þessu, ég hef aldrei séð strákana leika jafn illa,“ sagði Lárus Loftsson, þjálf- ari islenska unglingalandsliðsins i knattspyrnu, eftir að Finnar höfðu lagt lið hans að velli, 3—1, i undankeppni Evrópukeppni unglingalandsliða. Staðan í hálf- leik var 1—0 fyrir ísland. Finnska liðið er greinilega það gott, að það er líklega aðeins formsatriði að ljúka síðari leikn- um, Island þarf að vinna 4—0 og það verður að segjast eins og er, að það er ólíklegt að það lánist. Fyrri hálfleikur var tíðindalítill og þó að ísland hafi þá skorað eina markið, voru Finnarnir meira með boltann og líklegri til afreka. Markið var laglegt, en það kom á 9. mínútu. Sigurður Grétarsson óð þá upp allan völl, sendi síðan á Ragnar Margeirsson, sem skoraði eftir að hafa leikið á markvörð Finnanna. Ragnar og Sigurður voru raunar einu leikmenn ís- lenska liðsins sem eitthvað kvað að, en þeir sköpuðu sér og öðrum nokkur færi með einstaklings- framtaki sínu. íslendingarnir voru frískir fyrstu 5 mínútur síðarf hálfleiks og fengu þá 3 ágæt færi sem ekki nýttust, sannast sagna var það vörnin sem var veikari hluti finnska liðsins. Á 15. mínútu kom vendipunkturinn í leiknum. Ragn- ar fékk þá góða stungu frá Sig- urði, komst einn inn að markinu og lyfti yfir markvörðinn. En í þverslá, því miður. Fimm mínútum síðar jafnaði Jari Parikka eftir mistök Stefáns Jóhannssonar markvarðar. Fimm mínútum síðar náði Vesa Nironea forystunni með föstu skoti sem breytti um stefnu af íslenskum varnarmanni og loks skoraði Risto Salomaa með skalla í tómt mark- ið, eftir að Stefán markvörður hafði lagt út í glannalegt úthlaup, þar sem hann komst hvergi nærri knettinum. íslenskum varnar- manni tókst að stöðva knöttinn, en þó að dómarinn dæmdi ekkert, sá línuvörðurinn með haukfránum augum sínum, að knötturinn var kominn inn fyrir. Það sáu allir nema dómarinn, sem fór að ráði Iínuvarðar og dæmdi mark, 3—1. Gífurlegur fjöldi áhorfenda tróð sér á völlinn og studdi við bakið á strákunum, heilir 482! Liðum vísað úr 1. deild í körfunni? SVO GÆTI farið, að nokkrum af liðum þeim sem leika i 1. deild- inni i körfubolta verði meinuð þátttaka i íslandsmótinu i vetur. Ástæðan er sú, að félög þessi skulda KKÍ svo og svo miklar fjárupphæðir, heildarkrónutalan nálgast hálfa aðra milljón. Stjórn KKI hefur ákveðið að taka harða stefnu í máli þessu, þvi að skuldir þessar standa sambandinu fyrir þrifum. Hefur verið ákveðið, að þau lið sem enn eru skuldug þegar íslandsmótið hefst, verði útilokuð frá keppni í Islandsmót- inu. Hvort KKI muni sýna sveigj- anleika og umburðarlyndi verður' tíminn einn að leiða í ljós, en forráðamenn sambandsins vildu í gær ekkert um það mál segja, en undirstrikuðu að tekið yrði íast á málinu. — gg. Körluknattielkur V- ................... • Á meðíylgjandi myndum má sjá liðin sem urðu sigurvegarar í firmakeppni KR í knattspyrnu fyrir skömmu. Efst er lið Flugleiða sem sigraði, þá lið BYKO í Kópavogi sem varð í 2. sæti og loks lið Seltjarnarnes bæjar sem var í 3. sæti. Það má geta þess, að á iaugardaginn klukkan 1G.00 leikur hið sigursæla lið Flugleiða gegn liði Flugfélags Austurríkis og er leikurinn liður í Evrópukeppni flugfélaga, en Flugleiðir keppa nú í fyrsta skipti í því móti. Fer leikurinn fram á Melavellinum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.