Morgunblaðið - 28.09.1979, Síða 32
Sími á ritstjórn oa skrifstofu.
10100
JH*r0unblat>it>
y/Síminn á afgreiöslunm er
83033
JH»r0tinbInfcib
FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1979
Daggjöld á leikskól-
um hækka um 15,6%
DAGGJÖLD á leikskólum og öðrum dagvistunarstofnunum munu
hækka frá og með 1. október. Gjöldin fyrir hálfan dag á leikskóla
hækka um 15,6%, en gjöid fyrir allan daginn á dagheimilum hækka
um 14,3% á sögn Svandisar Skúladóttur fulltrúa í
menntamálaráðuneytinu.
Hækkun þessi var samþykkt í
ríkisstjórninni um síðustu mán-
aðamót. Nokkur sveitarfélög nýttu
sér hækkunina þegar, en flestir
munu hækka 1. október.
Gjaldið fyrir barn á leikskóla í
fjórar eða fjórar og hálfa stund
fimm daga vikunnar verður eftir
hækkun 18500 krónur en var áður
16 þúsund krónur, hækkar um
Sjúkrahúsin:
10,8%
hækkun
DAGGJÖLD sjúkrahúsa hafa
verið hækkuð um 10,8% og
gildir hækkunin frá 1. sept-
ember í þrjá mánuði. Var
hækkun þessi ákveðin á fundi
ríkisstjórnarinnar í gær og
farið þar að tillögum dag-
gjaldanefndar.
Grunngjald daggjaldanna
hækkar um 10,8% og tekur
hækkunin til ailra daggjalda
og er alls staðar hin sama.
15,6%. Sé barnið aftur á móti
fimm tíma á dag verður gjaldið
eftir hækkun 23 þúsund krónur í
stað 20 þúsund króna áður, hækk-
ar um 15,6%.
Ef um heilsdagsvist er að ræða
á dagheimili verður gjaldið 32
þúsund krónur í stað 28 þúsund
króna áður, hækkar um 14,2%. Þá
er ákveðið hámarksverð fyrir þá,
sem ekki teljast til hinna svoköll-
uðu forgangshópa, eftir hækkun
41600 krónur. Það verð kemur
aðeins inn í myndina á stöðum úti
á landi þar sem forgangshóparnir
fylla ekki töluna.
Skólanefnd Grunnskólans í Grindavik ásamt nýsettum skólastjóra, Hjálmari Árnasyni (sá brosandi á
myndinni), fjallar um ráðningu nýs yfirkennara. Við borðendann fjær situr námsstjórinn á
Reykjanesi, Helgi Jónasson, sem boðaði til fundarins. Ljósm. Mbl. Kristján.
Eftirmáli skólast jóraveitingarinnar í Grindavík:
Yf irkennarinn sagði af
sér í mótmælaskyni
YFIRKENNARI Grunnskólans í
Grindavik, Halldór Ingvason, sagði
i gær stöðu sinni lausri i mótmæla-
skyni við þá ráðstöfun Ragnars
Hækkandi fasteigna-
verð að undanförnu
FASTEIGNASALA á Reykja-
vikursvæðinu hefur verið allmikil
það sem af er árinu og sögðu
fasteignasalar, er Mbl. ræddi við i
gær, að hún hefði verið jafnari en
oft áður, þótt segja mætti að
nokkcar sveiflur kæmu öðru
hverju. Þá voru þeir sammála um
að fasteignaverð hefði hækkað
mjög að undanförnu, en nokkuð
hefði hægt á þvi síðustu vikur og
stæði það jafnvel kyrrt i bili. Voru
nefnd dæmi um, að þriggja her-
bergja fbúð i Breiðholtshverfi hefði
hækkað um 85% á 11 mánaða
timabili og einn fasteignasalanna
taldi íbúðaverð á þessu ári hafa
hækkað um 1% á viku að meðaltali.
— Þetta hefur verið gott ár í
meginatriðum það sem af er og þótt
við getum ekki búist við neinni
síldarvertíð allt árið þá höfum við
ekki yfir neinu að kvarta, sagði einn
fasteignasalanna. — Ég geri ráð
fyrir, að verðbreytingar verði ekki
ýkja miklar til áramóta nema menn
sjái fyrir einhverjar ráðstafanir
ríkisstjórnarinnar, en fasteigna-
kaupendur eru á stöðugum flótta
undan verðbólgunni, eins og allir
þekkja reyndar frá hverju kaupæði
sem grípur um sig þegar gengis-
lækkun er talin í aðsigi.
Fasteignasalarnir voru sammála
um, að verðtryggingarákvæði myndu
ekki taka gildi hvað varðaði eftir-
stöðvar á fasteignaverði, a.m.k. ekki
fyrst um sinn. Menn væru hlynntir
því kerfi sem ríkt hefði að undan-
förnu og væri venjan nú að lána
eftirstöðvar til 4—6 ára með 16—
18% vöxtum. Sögðu þeir, að vextirn-
ir hefðu farið nokkuð hækkandi, en
töldu ólíklegt að menn myndu semja
um greiðslu eftirstöðva með verð-
tryggingarákvæðum.
Arnalds, menntamálaráðherra, að
ráða réttindalausan skólastjóra,
Hjálmar Árnason, við skólann og
ganga framhjá umsækjanda með
full réttindi, Boga Hallgrimssyni,
sem gegnt hafði stöðunni undanfar-
in ár. Á fundi skólanefndar
Grunnskólans í Grindavik i gær var
samþykkt að mæla með öðrum
kennara við skólann, Gunnlaugi
Dan ólafssyni, i yfirkennarastöð-
una. Skólanefndarfundurinn var
boðaður að frumkvæði námsstjór-
ans í Reykjanesi, Helga Jónasson-
ar, svo að skólastarf gæti þegar i
stað hafizt með eðlilegum hætti.
Veiting skólastjórastöðunnar hef-
ur vakið mikla gremju meðal
Grindvíkinga þar sem yfir 80%
atkvæðisbærra íbúa kaupstaðarins
höfðu ritað nafn sitt undir áskorun
til ráðherra um að veita settum
skólastjóra stöðuna áfram. í áskor-
uninni var farið lofsamlegum orðum
um frammistöðu setts skólastjóra
sem unnið hefði starf sitt af kost-
gæfni. Þess má geta, að yfirkennar-
inn, sem hafði verið settur ásamt
fyrrverandi skólastjóra, fékk veit-
ingu fyrir embættinu.
Eins og fram kemur á miðopnu
blaðsins í dag, en einnig er fjallað
um málið á blaðsíðu 10, þá þykir
Grindvíkingum stjórnmálin hafa
ráðið malinu, þar sem menntamála-
ráðherra hafi ráðið flokksbróður
sinn til starfans án tillits til rétt-
inda, en gengið framhjá manni sem
gegnt hafði stöðunni um nokkurra
ára bil.
Þá má geta þess, að á bls. 10 segir
Helgi Jónasson fræðslustjóri
Reykjanesumdæmis, að hann hafi
mælt með þeim umsækjanda, sem
réttindi hafi haft. Þá segir og
Valgeir Gestsson, formaður Sam-
bands grunnskólakennara, að hann
sé undrandi á þessari veitingu,
aðeins annar umsækjandinn hafi
haft embættisgengi, auk þess sem
gengið hafi verið í berhögg við vilja
skólanefndar og yfirlýstan vilja
kennara skólans.
Reykj avíkurborg:
Um 12% færri vinnustundir
með minnkandi framkvæmdum
MEÐ minnkandi framkvæmdum
á vegum borgarinnar hefur dag-
vinna og yfirvinna á hennar
vegum minnkað verulega miðað
við s.l. þrjú ár á tímabilinu 1. jan.
til 20. sept. og er minnkunin á
dagvinnu milli ára 1977 og 1978
Viðræðuniim í Moskvu
lýkur væntanlega í dag
SAMNINGAVIÐRÆÐURNAR við Sovétmenn, sem nú standa yfir í
Moskvu, voru til umræðu á ríkisstjórnarfundi í gær, þar sem Svavar
Gestsson viðskiptaráðherra gerði samráðherrum sinum grein fyrir
gangi mála. Svavar sagði i samtali við Morgunblaðið i gær, að heldur
horfði dauflega með undirtektir Rússa um lækkað olíuverð. Hins
vegar kvað hann málinu ekki lokið. bá lá ekkert fyrir um fisksölur
okkar til Sovétríkjanna í gær. en Svavar kvað fund hafa verið boðaðan
um það i nótt.
Eins og skýrt var frá í Morgun-
blaðinu í gær, hefur viðræðunefnd
íslendinga í Moskvu fyrirmæli um
það frá stjórnvöldum hér, að náist
ekki viðunandi oliuverðslækkun,
verði viðræðunum slegið á frest á
meðan kannaðir eru allir aðrir
möguleikar á olíukaupum.
í sambandi við fisksölur okkar
til Sovétríkjanna hafa þegar á
þessu ári verið fluttar og seldar til
Sovétríkjanna 5.900 lestir af flök-
um og 4.000 lestir af heilfrystum
fiski eða samtals 9.900 lestir. í
byrjun maí gerðu fiskseljendur
Prodintorg í Moskvu tilboð um
7.000 lesta viðbótarsölu, 5.000 lest-
ir af flökum og 2.000 lestir af
heilfrystum fiski. Þessu tilboði
svöruðu Rússar aldrei og hefur
ekki verið unnt að fá þá til þess að
kaupa neitt viðbótarmagn. Af
þessum sökum tilkynntu sölu-
samtökin í júnílok, að allur sá
fiskur, sem verkaður yrði fyrir
Rússlandsmarkað, yrði á ábyrgð
verkendanna sjálfra. Þó mun tölu-
vert hafa verið framleitt umfram
samninga.
Svavar Gestsson, viðskiptaráð-
herra, sagði í gær að hann byggist
við því að unnt yrði að gera
opinberlega grein fyrir viðræðun-
um í Moskvu þegar í dag.
um 12% og milli ára 1978 og 1979
um 11,5% í viðbót, en á þessu
tímabili hefur tala starfsmanna
borgarinnar verið um 9000.
„Þetta er allveruleg lækkun á
dagvinnu og yfirvinnu,“ sagði
Egill Skúli Ingibergsson borgar-
stjóri, en hann hefur á þessu ári
sent forstöðumönnum borgar-
stofnana bréf til þess að hvetja til
hagræðingar. Slík bréf sendi
Birgir ísleifur Gunnarsson fyrr-
verandi borgarstjóri reglulega
oft á ári og hélt fundi í sama
tilgangi með forstöðumönnum.
Egill Skúli sagði, að nú væru
borgarstarfsmenn um 4% færri en
fyrir þremur árum og kvaðst hann
ekki reikna með að unnt yrði að
spara fleiri vinnustundir en nú
væri um að ræða, því mikill hluti
af vinnu hjá borginni, t.d. á
sumrin, kallaði á yfirvinnu. „Ég
tel hins vegar gott ef við getum
haldið í horfinu með fjölgun
starfsmanna og vinnustunda og
starfsmenn virðast almennt hafa
virt þessa ósk,“ sagði Egill Skúli.
Dagvinnustundir 1977 voru 2,1
milljón stunda, 1787 þúsund
stundir 1978 og 1694 þúsund
stundir 1979. Yfirvinnustundir ’77
voru 617 þús. st., 616,7 þús. st. árið
1978 og 553 þús. stundir 1979 og er
munurinn mest 11,5%. Starfs-
menn borgarinnar 1977 voru 9340,
árið 1978 voru þeir 9380 á fyrr-
greindu tímabili og 8970 árið 1979.
Sautján
bátarmeð
loðnu
Loðnubátarnir hófu aftur
að geta athafnað sig i gær-
morgun eftir að lægði á
miðunum. í gærkvöldi höfðu
17 bátar tilkynnt um afla
það sem af var sólarhringn-
um og var afli þeirra alls
10.590 tonn. Þessir til-
kynntu afla:
Albert 600, Seley 410, Gísli
Árni 630, Magnús 520, Fífill
600, Jón Finnsson 580, Súlan
780, Keflvíkingur 520, ísleif-
ur 430, Arnarnes 600, Guð-
mundur 900, Hilmir 540, Sæ-
björg 520, Gullberg 600,
Bjarni ólafsson 1.130, örn
580, Hrafn 650.