Morgunblaðið - 17.10.1979, Qupperneq 1
32 SÍÐUR
228. tbl. 66. árg.
MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Óeirðir í bæ
við Kaspíahaf
Baldvin Belgiukonungur og Fabíóla drottning taka á móti forseta íslands. herra Kristjáni Eldjárn. og
frú Halldóru Eldjárn konu hans á Brussel-flugvelli í gærmorgun. Sjá frásögn og myndir á bls. 3.
Stj órnmálaflokkar
bannaðir í Pakistan
Teheran, 16. október. Reuter.
VINSTRISINNAÐIR skærulið-
ar skutu sprengikúlum á bæki-
stöðvar lögreglu í hafnarbæn-
um Bandar Anzali við Kaspía-
haf í dag og blóðugar óeirðir
geisuðu í bænum annan daginn
i röð, að sögn íranska ríkis-
útvarpsins.
Útvarpið sagði, að árásar-
mennirnir hefðu lagt eld að
byggingunni, þar sem byltingar-
verðir úr bænum höfðu leitað
hælis vegna óeirðanna, og ekki
er vitað um afdrif þeirra. Aður
hafði verið tilkynnt að allt að 10
manns hefðu beðið bana og 50
særzt í átökum bæjarmanna og
varðliða í Bandar Anzali og
nágrannabænum Rasht.
Sjónvarpið sagði, að sjö
manns hefðu beðið bana og 13
særzt í óeirðum í allan dag í
Bandar Anzali.
Útvarpið sagði, að síðustu
átökin hefðu hafizt þegar fiski-
menn sem höfðu efnt til mót-
mæla gegn takmörkunum á
styrjuveiði í Kaspíahafi hefðu
ráðizt á fulltrúa friðarnefndar
ríkisstjórnarinnar. Nefndin
Flugrán
Valetta, 16. október. Reuter.
ÞRÍR ungir Arabar rændu
líbýskri flugvél með 40 farþegum
i innanlandsflugi i dag og neyddu
flugstjórann til að fijúga til
Möltu þar sem þeir gáfust upp
eftir lendingu.
Flugvélarræningjarnir sam-
þykktu að gefast upp eftir samn-
ingaviðræður við Dom Mintoff
forsætisráðherra sem kom út á
flugvöll.
Flugvélin var af gerðinni Fokk-
er Friendship og fékk að lenda þar
sem hún var að verða benzínlaus.
Fyrst í stað var ekki vitað um
ástæður flugvélarránsins eða
hverjir voru að verki.
Farþegarnir voru fluttir í flug-
vallarhótelið.
I komst undan, en mannfjöldi
réðst með stuðningi skæruliða á
aðalstöðvar byltingarvarðliðsins
I í Bandar Anzali.
Hua
rœoir við
Giscard
París, 16. október. Reuter.
HUA Kuo-feng formaður ræddi
í dag heimsmálin við Valery
Giscard d’Estaing forseta og
fullvissaði hann um, að Kinverj-
ar mundu auka viðskipti sín og
samvinnu við Frakka.
Giscard d’Estaing forseti sagði
í veizlu í gærkvöldi, að Frakkar
væru reiðubúnir að bjóða
Kínverjum fullkomna tækni til
áætlana þeirra um nútímabreyt-
ingar í efnahags- og atvinnumál-
um.
Hua, sem er á þriggja vikna
ferð í Vestur-Evrópu til að afla
Kína vina og auka viðskipti,
sagði í boði í dag, að hann væri
því sammála að víðsýni borgaði
sig í eflingu samskipta Frakka og
Kínverja.
Formaðurinn sagði Raymond
Barre forsætisráðherra í hófinu
að samskiptin við Frakka væru
framarlega í forgangsröð utan-
ríkisstefnu Kínverja. Barre tók
þátt í samningum um drög að
samkomulagi um samvinnu land-
anna í efnahagsmálum, vísindum
og tækni þegar hann heimsótti
Peking í fyrra.
Islamabad, 16. október. Reuter.
ZIA-UL-HAQ forseti bannaði í
dag alla stjórnmálaflokka í Pak-
istan og frestaði kosningum, sem
áttu að fara fram 17. nóvember,
um óákveðinn tíma.
Hann skýrði einnig frá þvi i
útvarpsávarpi, að hann hefði
bannað verkföll og vinnustöðvan-
ir og komið á ritskoðun blaða og
tilkynnti að herlögum yrði harð-
ar framfylgt en áður. Herlið var
flutt inn á nokkur svæði í Kar-
achi, þar á meðal iþróttaleik-
vanginn.
Ráðstafanir Zia forseta fylgja í
kjölfar mótmæla stjórnmála-
flokka gegn reglum hans um
fyrstu almennu þingkosningarnar
síðan herinn tók völdin. Hann
sagði að herlögum yrði nú fram-
fylgt sem „raunverulegum herlög-
um“ og að islamskar meginreglur
yrðu meira í heiðri hafðar en áður
Aðeins einum mikilvægum
stjórnmálaflokki, Pakistanska
þjóðarbandalaginu (PNA), var
leyft að taka þátt í kosningunum
sem var frestað í dag og hann
neitaði að tilnefna frambjóðendur.
Sú regla um kosningarnar sem
hefur vakið mest uppnám í stjórn-
málaflokkunum skyldar þá til að
skrá sig hjá yfirkjörstjórn.
Zia hershöfðingi felldi niður
þessa reglu fyrir einni viku til
þess að PNA tæki þátt í kosning-
unum, en flokkurinn neitaði samt
að tilnefna frambjóðendur.
Peking. 16. október. AP.
KUNNASTI andófsmaður Kína af
yngri kynslóðinni, Wej Jingsheng,
ritstjóri timaritsins „Rannsóknir“,
var i dag dæmdur i 15 ára fangelsi
íyrir að bjóða útlendingi leyndar-
mál um strið Kinverja og Víet-
nama.
Réttarhöldin gegn ritstjóranum
eru hin fyrstu sem fara fram
opinberlega gegn ungu andófsfólki,
sem var handtekið í vor þegar skorin
var upp herör gegn gagnrýni á
ríkisstjórnina og kommúnistaflokk-
inn.
Um 700 áhorfendur fylgdust með
réttarhöldunum sem stóðu í allan
dag. Dómurinn úrskurðaði að þegar
Wei hefði afplánað dóm sinn skyldi
hann sviptur stjórnmálaréttindum í
þrjú ár. Wei var handtekinn 19.
marz og hefur verið i haldi síðan án
þess að réttarhöld hafi farið fram og
án þess að ákærurnar gegn honum
hafi verið birtar.
* Kínverska fréttastofan sagði að á
tímabilinu desember 1978 til marz
1979 hefði Wei samið margar aftur-
haldsgreinar þar sem hann hefði
hvatt til þess að alræði öreiganna og
sósíalistakerfinu yrði steypt.
Nokkrum flokkum hefur verið
meinað að taka þátt í kosningun-
um, þar á meðal PPP, flokki
Zulfikar Ali Bhuttos fyrrverandi
forsætisráðherra sem Zia hers-
höfðingi steypti af stóli í júlí 1977
og var tekinn af lífi fyrr á þessu
ári.
Að undanförnu hafa verið uppi
bollaleggingar um að Zia stæði
ekki við loforð sitt um kosningar
þar sem hann óttist að dóttir
Bhuttos mundi sigra í þeim vegna
samúðar með föður hennar.
Útlendingurinn sem Wei var sak-
aður um að útvega upplýsingar var
ekki nafngreindur.
Brezhnev
veikur?
Moskvu. 16. október. AP.
LEONID Brezhnev forseti sleppti
tveimur fundum og veizlu með
sýrlenzka forsetanum Haíez Assad
í gær og í dag og sýrlenzkir
heimildarmenn sögðu i dag, að
þeim hefði verið tjáð að Brezhnev
væri veikur.
Vestrænir stjórnarfulltrúar velta
einnig fyrir sér hvort Brezhnev hafi
verið með „diplómatískt kvef“ svo að
hann þyrfti ekki að svara þegar í
stað kröfu sem sagt er að Assad hafi
sett fram um fleiri sovézk hergögn.
Jafnframt er haft eftir heimildum
í Briissel að leiðtogum NATO-land-
anna berist nú bréf frá Brezhnev þar
sem hann veki athygli á ræðu sinni í
Austur-Berlín þegar hann boðaði
brottflutning 20.000 hermanna og
1.000 skriðdreka frá Austur-Þýzka-
landi.
Uppreisn bæld niður
í afghanska hernum
Kabul, 16. október. Reuter.
AFGHANSKT herlið hefur bælt niður uppreisn i hernum gegn
mánaðargamalli ríkisstjórn Hafizullah Amins og tekið sex uppreisn-
arleiðtoga til fanga að sögn útvarpsins i Kabul i dag.
Tilkynningin var lesin eftir rúmlega sólarhrings bardaga umhverf-
is herskála sjöunda vélvædda herfylkisins í Rishkoor, suðvestur af
höfuðborginni. Þar hófust harðir bardagar á sunnudag og beitt var
vopnuðum þyrlum og sprengjuflugvélum. Skriðdrekar voru sendir frá
Kabul til að brjóta uppreisnina á bak aftur.
Bardagarnir héldu áfram í allan
gærdag og sprengjuflugvélum og
stórskotaliði var óspart beitt gegn
herskálunum. Þetta er fjórða og
alvarlegasta hermannauppreisnin
á þessu ári gegn Kabul-stjórninni
sem Rússar styðja.
Þegar stjórnarhermenn höfðu
bælt niður uppreisnina virðast
þeir hafa orðið fyrir skothríð frá
múhameðskum skæruliðum sem
eru andvígir kommúnisma og ráða
yfir vígjum í hæðunum umhverfis
Rishkoor.
Samkvæmt óstaðfestum frétt-
um hefur Watanjar ofursti, náinn
aðstoðarmaður Noor Mohammed
Tarakis fyrrverandi forseta sem
Amin steypti af stóli 14, septem-
ber, gengið í lið með uppreisnar-
mönnum í hernum.
Útvarpið sagði, að stjórnar-
hermenn hefðu fundið skjöl, sem
sýndu að uppreisnarmenn stæðu í
sambandi við „erlend afturhalds-
og árásaröfl", og kvað uppreisn-
arleiðtogana vera aðallega úr
hægriöfgaflokknum Sitam-E-Mili.
Andófsmaður
í Kína dæmdur