Morgunblaðið - 17.10.1979, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1979
Ljósmynd Stefán Petersen.
Úr hófinu til heiðurs Maríu Magnúsdóttur, ljósmóður. F.v. Þorsteinn Þorsteinsson, bæjarstjóri, Þorbjörn
Árnason, forseti bæjarstjórnar, og heiðursgesturinn María „ljósa“ Magnúsdóttir
Sauðárkrókur:
Heiðruð fyrir 43ára
farsælt ljósmóðurstarf
Sauðárkróki, 15. okt. 79.
S.L. föstudagskvöld var haldið á
Sauðárkróki veglegt samsæti til
heiðurs Maríu Magnúsdóttur
ljósmóður, sem nú lætur af
störfum fyrir aldurs sakir eftir
43 ára farsæl ljósmóðurstörf
hér. Það var bæjarstjórn Sauð-
árkróks og stjórn Sjúkrahúss
Skagfirðinga sem stóðu fyrir
þessu hófi, sem var mjög fjöl-
sótt. Komu þar glögglega fram
þær einstöku vinsældir, sem
María hefur alla tíð notið meðal
Sauðárkróksbúa. Jóhann Sal-
berg Guðmundsson, sýslumaður,
stjórnaði hófinu. Hann rakti
helstu æviþætti Maríu og gat
þess meðal annars, að hún hefði
tekið á móti á milli 2 og 3 þúsund
börnum á starfsferli sínum.
Þorbjörn Árnason forseti bæj-
María Magnús-
dóttir lœtur nú
afstörfum fyrir
aldurssakir
arstjórnar Sauðárkróks færði
Maríu þakkir bæjarstjórnar og
bæjarbúa fyrir mikil og afburða
vel unnin störf í þeirra þágu og
árnaði henni heilla í nýjum
heimkynnum, en hún flyst héðan
innan tíðar.
Þá töluðu einnig Ólafur
Sveinsson, yfirlæknir, og Friðrik
J. Friðriksson, héraðslæknir, og
fóru miklum viðurkenningarorð-
um um störf Maríu. Hólmfríður
Jónasdóttir flutti kveðjur og
þakkir Kvenfélags Sauðárkróks.
Stutt ávörp fluttu Fjóla Þor-
leifsdóttir, ljósmóðir, Jóhanna
Jónsdóttir, húsmóðir, og Stefán
Pedersen, Ijósmyndari Jón Þór
Sverrisson læknir stjórnaði
fjöldasöng.
Að lokum þakkaði heiðurs-
gesturinn fyrir sig og mæltist
vel og skörulega, eins og hennar
var von og vísa.
I hófinu voru Maríu færðar
gjafir frá bæjarstjórn og stjórn
Sjúkrahússins, Kvenfélagi Sauð-
árkróks og starfsmannafélagi
Sjúkrahú3sins. Sem fyrr segir er
María á förum héðan. Fullvíst
er, að henni fylgja góðar óskir
þorra bæjarbúa, sem þakka
henni frábær störf, trúmennsku
og dugnað. Kári.
Undirbúa prófkjör
í flestum kjördæmum
Á dagskrá stjórnmála-
flokkanna um þessar
mundir eru umræður um
prófkjör og skoðanakann-
Sautján
árekstrar
ALLMARGIR árekstrar
urðu í Reykjavík í gær og í
einu tilviki varð um slys að
ræða. Samkvæmt upplýs-
ingum lögreglunnar urðu
árekstrar 17 og eftir
árekstur á mótum Gufu-
nesvegar og Vesturlands-
vegar varð að flytja mann á
slysadeild.
anir vegna fyrirhugaðra
alþingiskosninga nú fyrir
áramótin. Mbl. leitaði eftir
stöðu þeirra mála á
skrifstofum flokkanna í
gær.
Sjálfstæðiflokkurinn hefur þeg-
ar ákveðið prófkjör í Reykjavík
svo sem Mbl. hefur skýrt frá og
verður það 27. og 28. október n.k.
Einnig hefur verið ákveðið próf-
kjör í Vestfjarðakjördæmi og það
auglýst, en kjördæmisráðsfundur
n.k. laugardag mun hins vegar
ákveða endanlega um prófkjörið.
Á fundi í Reykjaneskjördæmi í
gærkvöldi var samþykkt með 65
atkvæðum gegn 41 að hafa próf-
kjör og voru 5 seðlar auðir.
Dagurinn hefur ekki verið ákveð-
inn.
Ekki hefur verið ákveðið frekar
með prófkjör, en fundir fyrirhug-
aðir nú í vikunni í flestum kjör-
dæmum.
Á skrifstofu Framsóknarflokks-
ins fengust þær upplýsingar að
áður en vitað var um þingkosn-
ingar svo skjótt, hefði verið ákveð-
ið prófkjör í Reykjaneskjördæmi
eða skoðanakönnun og hugmynd
hefði einnig verið um prófkjör á
Vestfjörðum, en ekki var vitað
hvort það stæði enn þar sem
frestur væri skammur. Ekki lá
fyrir hvort hugmyndir væru um
prófkjör eða skoðanakannanir í
öðrum kjördæmum, en talið að
það gæti orðið um eða strax eftir
næstu helgi.
Hjá Álþýðubandalaginu var
upplýst að til skoðunar væri hvort
farið yrði út í prófkjör í öllum
kjördæmum, en ekki vitað neitt
með vissu fyrr en um helgina.
Alþýðuflokkurinn gerir ráð
fyrir að prófkjör fari fram í öllum
kjördæmum og er nú að undirbúa
þau, en þó er ekki enn hægt að
segja til um hvort tekst að koma
því við í Austfjarðakjördæmi
vegna framboðsfrests, en mögu-
iegt er að hann verði styttur.
S jálfstæðisflokkurinn:
Akveðið prófkjör í
Reykjaneskjördæmi
Á FUNDI kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjaneskjör-
dæmi í gærkvöldi var samþykkt
að fram skuli fara prófkjör í
kjördæminu. Fylgjandi því voru
65 fundarmenn og 41 á móti, en 5
seðlar voru auðir. Fer prófkjörið
fram dagana 27. og 28. október
og er framboðsfrestur til sunnu-
dags 21. október kl. 12. Skal skila
framboðum til formanns kjör-
dæmisráðs Ellerts Eiríkssonar
Langholti 5 i Keflavik.
Prófk jör í V est-
fjarðakjördæmi
KJÖRNEFND Sjálfstæðisflokks-
ins í Vestfjarðakjördæmi hefur
samþykkt að prófkjör skuli fara
fram í kjördæminu, að því er
skrifstofa Sjálfstæðisflokksins
tjáði Mbl. í gær. Kjördæmisráðs-
fundur er ráðgerður á laugardag-
inn og mun hann skera endanlega
úr um prófkjörið, en talið er víst
að það muni samþykkt og hefur
þegar verið hafinn undirbúningur
þess.
Fyrsta síldin til
Reyðarfjarðar í gær
Reyðarfirði, 16. október.
KLUKKAN átta í morgun
sigldi Gunnar SU 139 inn
með fyrstu síldina sem
hingað kemur. Báturinn
var með 43 tonn af síld og
úr því komu 320 uppsalt-
aðar tunnur. Síldin var
mjög góð.
Nú er verið að skipa út 500
tonnum af mjöli í Múlafoss og er
það fyrsti mjölfarmurinn sem
héðan fer á þessari loðnuvertíð og
fer það til Finnlands. Búið er að
taka á móti 10.700 tonnum af
loðnu. Seley frá Eskifirði landaði
hér rúmum 400 tonnum í dag og
er allt fullt hér nú sem stendur en
rými losnar um miðnættið og er
von á báti í nótt með loðnu. Hér á
Reyðarfirði er mikil atvinna.
Slátrun hjá KHB gengur mjög
vel, 62 starfa við sláturhúsið og
meðalþungi dilka er í ár 1—1,4 kg
minni en í fyrra.
Gréta
Sýningin íslensk
1944—79 opnuð
í Bandaríkjunum
SÝNINGIN íslensk list 1944-
1979 var opnuð 12. september s.l.
i Minnesota Museum of Art i St.
Paul. Sendiherra Bandaríkjanna,
Richard A. Ericson jr„ opnaði
sýninguna með ræðu og rakti
tildrög hennar. f sambandi við
sýninguna var gerður sérstakur
sjónvarpsþáttur og viðtölum við
forstöðumann Listasafns íslands
var útvarpað um öll Bandarikin.
Af opinberri hálfu hefur ekki
verið efnt til yfirlitssýningar á
íslenskri myndlist í Bandaríkjun-
um síðan 1965 er haldin var slík
sýning í Colby College í Maine.
Frá opnun sýningarinnar i Minnesota Museum of Art.
Ámi Gunnarsson:
Ákveðinn í að taka þátt í prófkjöri
„JÁ, ÉG er harðákveðinn i að
gefa kost á mér í prófkjöri
Alþýðuflokksins í Norður-
landskjördæmi eystra,“ sagði
Árni Gunnarsson alþingismaður
i samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins i gær er hann var
spurður hvort hann hygði á
framboð í prófkjöri.
Árni kvað hins vegar ekki enn
ákveðið hvort hann byði sig fram í
fyrsta eða annað sætið, eða bæði í
fyrsta og annað, það ákvæði hann
eftir því hvernig hann mæti stöð-
una er þar að kæmi.
I Morgunblaðinu í gær var
greint frá því, að Bragi Sigur-
jónsson myndi gefa kost á sér til 1.
sætis í prófkjörinu í kjördæminu
og Jón Ármann Héðinsson til 1. og
2. sætis.
Háskólafyrírlestur
um hljóðfræði í dag
HENDRIK Kylstra, prófessor í
hljóðfræði við háskólann í Bris-
bane í Ástralíu, flytur opinberan
fyrirlestur í boði heimspekideildar
Háskóla Islands fimmtudaginn 18.
október 1979 kl. 17.15 í stofu 423 í
Árnagarði.
Fyrirlesturinn nefnist „Voice
sandhi in Dutch — its implicat-
ions for phonological theory" og
verður fluttur á ensku. Öllum er
heimill aðgangur.
(Frétt frá Háskóla íslands).